Kjarnar - 01.10.1953, Blaðsíða 62

Kjarnar - 01.10.1953, Blaðsíða 62
Eva stóð í bókasafnsherberginu og lét blóm í skrautker. Hún var annars hugar og leit án afláts á armbandsúrið. Það var óþolandi, hve lengi Mellony dró það, að færa henni síðdegisblöðin. Holt hafði ekki hringt eins og hún hafði beðið hann um. Eva hafði ekki hugmynd um, hvað gerzt hafði við réttarhöldin fyrri hluta dagsins. Eva var hitalaus, en mjög máttfarin. Læknirinn hafði bannað henni að fara til London fyrr en að tveim dögum liðnum. Það kvaldi hana afar mikið, að þurfa að vera aðgerðarlaus og geta ekki hjálpað Peter, sem varð einn síns liðs að heyja baráttu sína í þéttskipuðum réttarsal. Mellony hafði sagt Evu, að Peter liti ekki eins vel út og áður en hann var látinn í fangelsið. Peter var því vanur að vera mikið undir beru lofti, en nú varð hann að vera inni allan sólarhringinn. Það voru mikil viðbrigði. Það var einkennilegt, að þetta, sem Evu var kunnugt, viðvíkj- andi manninum, er hún elskaði, hafði hún lesið í blöðun- um, í greinum þeirra af réttarhöldunum. Hún heyrði málróm Mellonys niðri í forsalnum; hljóp að dyrunum og opnaði þær. Mellony hljóp til móts við Evu, tók í hönd hennar, mjög kröftuglega og missti öll dagblöðin á gólfið. „Til hamingju“, sagði Mellony hrifinn. Andlit hans ljóm- aði af fögnuði. „Hvað eigið þér við?“ spurði Eva með mikilli eftirvænt- ingu. Mellony tók upp blöðin og lét þau á skrifborðið í bóka- safninu. Hann mælti: „Ég hefi aðeins lesið eina einustu fyrirsögn. En það er nóg. Sjáið“. Hann benti á feitletraða yfirskrift í einu blaðanna. Hún var svohljóðandi: „Lane—Linley leyndardómurinn“. 60 KJARNAR — Nr. 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Kjarnar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kjarnar
https://timarit.is/publication/2065

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.