Kjarnar - 01.10.1953, Blaðsíða 66
Hið opinbera hefir tekið hann í sína umsjá. Vesalings
drengurinn! Hann verður lengi að jafna sig eftir þetta
áfall. Ég veit ekki, hve mikið hefir staðið í blöðunum um
þetta mál. Lögreglan hefir ekki rannsakað það til hlítar.
En það er fullsannað, að Hubert Lane lék tveim skjöldum,“
sagði Peter.
Það varð stutt þögn. Þá hélt Peter áfram máli sínu með
harðneskjulegri rödd: „Já, við vorum tvíburar. En mér
virðist hann gæti eigi að síður verið ókunnur maður.
Hann var eigingjarn, kaldlyndur, bíræfinn og samvizku-
laus. Hann hafði góð verzlunarsambönd, og komst inn á
menn í æðstu stöðum, allt upp í meðlimi ríkisstjórnar-
innar. En samtímis því, eða jafnhliða, var hann háttsettur
í „undirheimum“ Lundúnaborgar. Þess vegna lét hann líf-
ið“. Það fór hryllingur um Peter. „Mér var ekki sleppt úr
haldi fyrr en eftir að ég hafði farið með þjónum réttvís-
innar og staðfest, að hinn myrti maður væri bróðir minn.
Niðurlag í næsta hefti.
BJÖRGllNAKLAUN
Framh. af his. 48.
„Getum við ekki samið um
björgunarlaunin, skipstjóri?
Hvað segið þér um 10.000
pund?“
Reed skipstjóri varð orðlaus.
Hann gat ekki svarað fyrr en
það var of seint. Er hann ætlaði
að svara, kváðu við óskaplegar
hrynur úr flautum „Northstar“.
Þetta var kveðja frá stóra skip-
inu, er nú setti á fulla ferð.
Bill greip sjónaukann. Á
stjórnpalli stóð Helen við hlið
föðursins, og bæði veifuðu hrif-
in til Bills. Hann hafði sjón-
aukann fyrir augunum á meðan
hann gat séð þau. Þá snéri hann
sér að Chimpy, er stóð að baki
honum og tuggði munntóbak,
sem þögull áhorfandi.
Bill mælti: „Chimpy. Áður en
við leggjum af stað í næstu á-
ætlunarferð, verð ég giftur
maður“.
„Hm“, sagði Chimpy.
64
KJARNAR — Nr. 30