Nýja öldin - 01.12.1899, Síða 27
Breytiþróunar-lögmálið.
171
færslu, að engar leifar hafl fundist af þessum frummanni
eða yflr höfuð af mönnum, sem verulega séu frábrugðnir
þeim mönnum, sem nú eru til, og hér vanti því millilið
(„missing link‘‘). Það hafa þó fundist leifar af dýrum,
sem telja má víst, að sumar séu af mannapanum, en
aðrar af útdauðu dýri, sem vei'ið heflr hliðargrein við
menn og apa, eins og bróðurkvísl af niðjum mannapans.
Þannig má iíklega teija Neanderthals-fundinn, og með enn
fyllri vissu leifai' þær sem Dubois fann á Java, og hefir
hann sjálfur talið þær leifar af píþek-anþropos (mannap-
anum), og á því eru flestir náttúrufi æðingar, einkum þeir
sem þær hafa skoðað. (Sbr. ,Skírni“ 1884, 64. bis.). Og
einkennilegt er það, að þeir náttúrfræðingar, sem ekki viija
telja þessar leifar vera af píþek-anþropos, skiftast alveg í
tvö horn; telja aðrir leifarnar vera af manni, er þó hafl
verið ærið frábrugðinn því sem menn eru nú til; en hinir
(Virkow þeirra merkastur) teija leifarnar vera af apa, en
þó ærið ólíkum þeim apategundum, sem nú þekkjast þeim
likastar („gorilla11).
Ég býst við að mörgum þyki gaman að heyra,
hvernig Darwin áleit að „frummaðurinn" hafl litið út og
verið á sig kominn, þó að þetta sé auðvitað getgáta, ein
á líkinda-rökum bygð. Bæði kynin (karlinn og kerlingin)
hafa verið kafloðin um allan skrokkinn; kariinn hefir haft
stórar vigtennur, sem hann hefir notað sem vopn til
vígs; eyrun á frummanninum hafa verið uppmjó og hreyf-
anleg; fæturnir hafa verið eins vel iagaðir til að gripa
með þeim eins og að ganga á; hljóðgreint málfæri heflr
hann skort og því einnig skort allar æðri hugmynda-
greiningar; hann heflr án efa lifað að miklu leyti í trján-
um i einhverju heitu landi, þar sem land var alt skógi
vagsið. — Það er áiit margra náttúrufræðinga, að frum-
maðurinn hafl fyrst fram komið og iifað á meginlandi
miklu, er þeir nefna „Lemuria" og nú er í sæ sokkið;