Nýja öldin - 01.12.1899, Page 28
172
Nýja Oldin.
það álíta menn að hafl náð frá Austur-Afríkn til Austur-
Asíu, og ætti Madagaskar að vera leifar þess Afríku
rnegin, en Sunda-eyjarnar (Surnatra, Java, Borneo, Celebes
o. s. frv.) leifar þess Asíu megin. Kemur það óneitanlega
vel heim við þessa getgátu, að leifar mannapans hafa
einmitt fundist á Java.
Darwin sýnir Ijóslega fram á það í þessari bók sinni,
að munurinn milli líkamsskapnaðar ma-nnanna og annara
dýra sé enginn eðfis-munur. En á líkams-skapnaðinum
er öll dýrafræðisleg kerfiskifting grundvölluð.
En þá eru nú inir svo nefndu „andlegu" eiginleikar
raannsins, sem sumum þykir að taki af öll tvímæii og'
sýni, að maðurinn sé ekki sömu ættar sem önnur dýr.
Vér erum orðnir því svo vanir mennirnir, að skipa sjálf-
um oss i hásæti og kalia oss herra allrar skepnu (eins
og vér reyndar erum orðnir að miklu leyti) og t.aia um
sjálfa oss sem skynserni gæddar verur, en kalia öil önriur
dýr „skynlausar" skepnur, svo að það kemur flatt upp á
oss, og þvert í bága við vanahugmyndir vorar í fyrstu,
að hugsa oss sjálfa oss sem ættbræður annara dýra.
Hleypidómar vorir og vanafastheldni við bókstaflegan
skilning á eddu-sögum eða þjóðsögum austurlandáþjóða,
sem oss hafa verið kendar sem söguleg sannindi, alt þetta
kemur mörgum til að byrgja eyrun fyrir rannsóknum vís-
indanna og vilja ekki heyra nein rök fyrir því, sem þeim
er ógeðfeit.
Darwin játar nú. að miili inanna þeirra, sem nú lifa,
og inna fullkomnustu af öðrum dýrum, sé að andlegu
atgervi til ómæiileg fjariægð.1 Alt um það minnkar fjar-
1) Um þetta eru þó ekki nœrri allir rithöfundar samdóma
Darwin — segir próf. Jolian-Olsen. Ymsir menn, og einkum
trúboðar, sem kynst hafa sumum Afríku-þjóðum, halda því jafn-
vei fram, að nokkrir viltustu þjóðflokkar standi chimpansí-öp-
unum lítið eða ekkert framar að andlegu atgervi.