Freyja - 01.05.1905, Qupperneq 23
vi:. io.
FREYJA,
261.
mesta trúnaöi: „Ég heiti Rhoda og á heima hérna í húsinu, og
ég var rétt sex ára gömul i gœr. “
, ,Nei, varstu það virkilega. Það er býsna hár aldur, mjög
hár, “ sagði hann alvarlega.
■Svo hélt hann áfram í hægöum sínum ofurlítinn spöl, sneri
sinit aftur, stanzaði við hliðið og sagði:
,,Þú sagðist vera sex ára. Einmitt það. Kannske þú getir
sagt mér hvað er orðið áliöið?“ . . ■
Ég hristi höfuðið, og starði á fallegu stjörnuna. ,,Ég á ekk-
ert úr, ‘‘ sagði ég.
■ ,,'Þú hefir ekkert með úr að gjöra. Sjáðu nú til, “ sagði hann
og greip í girðinguna til að styðja sig, því hann hafði beygt sig til
að ná ífífil,sem orðipn var að bjðukollu.og veitti nú örðugt með að
rétta sig upp aftur. ,,Sjáðu nú til, “ endurtók hann og blés í biðu-
kolluna. ,, Eitt, tvö, þrjú, fjögur og fimm—klukkan er fimm og
gamli hershöfðinginn verður að flýtasér inn áður en kólnar, “ sagði
hann. Svo gékk hann heimleiðis og pjakkaði holur ofan í götuna
með stafnum sínum við hvert fótmál, og hafði þá víst alveg gleymt
litlu stúlkunni s.em horfði eftir honum af stólpanum við hliðið.
Þegar hann kom heim til sín leit hann í áttina til mín, tók ofan og
veifaði stafnum sínum.
„Mamma, ég elska gamla hershöfðingjann, “ sagði ég einu
sinni við mömmu.
,,Hvaða hershöfðingja?“ sagði mamma og leit undrandi upp
frá saumura sínum. Hún var að sauina smá svuntur og pils með
yndislegum fellingum. Mamma gat búið til alfs konar falleg föt
og tekið frummyndirnar allar upp hjá sjálfri sér.
,,Hvaða hershöfðingja! hershöfðingjann minn. A gamlihers-
höfðinginn nokkrar litlar stúlkureða drengi sem ég get leikið mér
við? Ó mig langar svo til að leika mér við litlu drengina og stúlk-
urnar hans. “
,,Gamli Clark hershöfðingi á enga litla drengi eða stúlkur.
Hann er búinn að missa þá og'þær, og er nú einstæðingur í elli
sinni, góða mfn. “
,,Getur hann ekki fundið neitt af þeim aftur?“
,,Nei, góða mín, hann getur það ekki. “