Freyja - 01.08.1905, Síða 12

Freyja - 01.08.1905, Síða 12
 FREYJA VII[. i. gjörSi hún inasömu játningu meö þessum oröum: ,,Og nú skilur þú, hvers vegna-ég get ekki gifzt þér. “ Þetta vakti manndómtilfinninguna í sálu hans. Skyldijhún œtia aö hann fyrir þessar sakir afturkallaöi bónorö sitt og á þann hátt hjálpaöi til aö auka þá byröi,sem örlögin höföu lagt henni á herö- ar, þegar hún var enn þá barn aö aldri? Ef svo, haföi hún sann- arlega ekki eins góöa hugmynd um hann eins og hann vildi, og þá fann hann til þess, aö hann yröi að finna hana, og þaö strax, og fám mínútum seinna fékk hún rniöa frá honuin um að finna sig ef hún gœti—svo fljótt sem hún goeti. Hjarta Imeldu sló hratt, og hjúkrunarkonan sá að hún roönaði þegar hún las miðann. Svo hún bauöst til aö vera hjá sjúklingnum meöan Imelda fynndi unn- usta sinn og var þaö með þökkum þegiö. Imelda var þrifin í loft og samstundis kysst, þegar hún kom fram í ganginn. ,,Getur stúlkan mín gefiö mér nokkrar mínútur í kvöld?,, sagöi Norman svo, því það var hann sem þannig tók á móti henni. Eg vildi að þú gcetir gengiö með inér undir lindi- trjánum ofurlitla stund, þar er svo rólegt og gott aö vera, “ bœtti hann viö, Imelda fleygöi yfir sig hvítu prjónasjali og sagöi: ,,Nú er ég til. “ Svo lögöu þau af staö og leiddust fram og aftur í skjóli trjánna, bœði ástfangin, en bæði einnig minnug á þaö, að bak við ástarinnar sælu, býr alvara lífsins. Hann lagði sig alian fram til aö sannfæra hana um helgi hjónabandsins, uin tryggilegheit ást- arinnar í skjóli þess. Hún skildi það allt, en sá fleira og mætti honum alls staöar meö rökum—þungum óhrekjanlegum rökurn. Astin er þolinmóö, og hermar vegna hlustaöi hann þolinmóð- lega á ástæður hennar og eftir því sem þau ræddust lengur viö, eftir því varð hennar hliö gleggri og gleggri. Hann fann, hve ó- lík hún var öðrum stúlkum sem hann hafði kynnst, og við þenna samanburð í huga hans, græddi hún einnig í áliti hans, eins og vitur, hugsandi kona hlýtur æfinlega aö gjöra, fram yfir hinar grunnvitrari systui sínar þegar til lengdar lætur. Hve vel mundi ekki því skipi farnast.sem slík kona stjórnaði? og þó gat hann ekki sætt sig við útskýringu hennar. En hún benti honum á ótal ó- mótmœlanleg dæmi upp á þaö, hve fjölskyldumaðurinn, sem

x

Freyja

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyja
https://timarit.is/publication/33

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.