Helgarpósturinn - 01.06.1979, Page 2
2
Föstudagur 1. júní 1979 -^^ÍQ3f~fDCJ5tUÍ~Ínn—
Tl L STJÓRN
Frá því varnarsamningurinn við Bandaríkin var gerð-
ur fyrir 28 árum hafa Bandaríkjamenn ails varið til
nýrra framkvæmda á Keflavikurflugvelli og öðrum
svæðum í umsjá hersins um 350 milljónum dala eða sem
svarar 118.3 milljörðum króna.
Þetta er einvörðungu tala, sem I
sem sýnir hversu miklu fjár-
magni hefur verið varið til mann-
virkjagerðar, en hefur ekki að
geyma framkvæmdir aðrar, sem
greiddar hafa verið til ótiltekinna
verkefna, sem leynt hafa farið
vegna hernaðarmikilvægis og af
öryggisástæöum.
Þá er hér ekki með talin sú f jár-
hæð, sem Atlantshafsbandalagið
hefur lagt til vegna hersins.
Þessi upphæð er til marks um
naglfast fé á Keflavikurflugvelli.
Ótalið er allt það fé, sem
tslendingar hafa fengiö inn i land-
ið vegna ýmiss konar þjónustu,
svo sem tekjur oliufélaga, skipa-
félaga, tekjur vegna húsaleigu,
tekjur rafmagnsveita rikisins,
Pósts og sima, Flugumferðar-
stjórnar, tekjur vegna sölu á
landbúnaðarvörum o.s.fr., o.s.fr.
Framangreindar upplýsingar
fékk Helgarpósturinn hjá varnar-
málaráðuneyti Bandarikjanna
(Pentagon).
Hreinar tekjur af varnarliðinu
á árinu 1978 nema röskum lf
milljörðum króna miðað vií
skráð gengi nú eða allnokkru
hærra en verðmæti allrar út
fluttrar iðnaðarvöru, aö áli und
anskildu, á liðnu ári.
Af þessum má glögglega sjá,af
tekjur tslendinga af bandarisks
hernum hérlendis eru gifurlegai
enda mun einn af ráðherrum Al-
þýðubandalagsins I tið vinstri
stjórnarinnar hafa sagt i einka-'
samtölum að tslendingar hefðu
ekki efni á að herinn færi.
Að sömu niðurstöðu kemst Ingi-
mundur Sigurpálsson, viðskipta-
fræðingur, i grein sinni Herinn og
hagkerfið sem birtist i Fjármáia-
tiðindum.
t 25 ár hefur eitt fyrirtæki haft
einokun á öllum nýjum fram-
kvæmdum á Vellinum og um leið
komist i gullkistu, sem gert hefur
það að öflugasta verktakafyrir-
tæki á tslandi. Þetta eru að sjálf-
sögðu íslenskir aðalverktakar.
tslenskir aðalverktakar eru
pólitisk valdastofnun i islensku
þjóðfélagi, bæði vegna peninga-
veldis sins og þeirrar aðstöðu,
sem einokun á framkvæmdum
fyrir herinn hafa skapað.
Tengsl eignaraðila tslenskra
aðalverktaka, Regins og Samein-
aðra verktaka, við Framsóknar-
flokkinn annars vegar og Sjálf-
stæðisflokkinn hins vegar eru
óumdeilanleg. Saga fyrirtækisins
i upphafi er þvi til vitnis, enda
þótt vaxandi fjöldi hluthafa séu
dánarbú.
En Aðalverktakar hafa haldið
góðum tengslum við aðra stjórn-
málaflokka og er Helgarpóstin-
um kunnugt um, að fyrirtækið
hefurlagt reglulega ákveðna pen-
ingagreiðslu, fjárframlag, til
a.m.k. eins stjórnmálaflokks og
Ræddi beitingu hervalds á íslandi
Athafnasvæði tslenskra aðalverktaka á Keflavlkurflugvelli. Þarna er töluverð byggð, sem minnir einna
helst á draugaborg.
að likindum til tveggja annarra
stjórnmálaflokka. Tekið hefur
verið fyrir þessar greiðslur i ein-
um stjórnmálaflokki.
Fyrirtækið hefur gætt þess
vandlega, að hvergi komi fram á
pappirum hvaðan þessi framlög
eru upprunnin.
I Innlendri Yfirsýn i Helgar-
pósti; fyrir viku sögðum við, að
Aöalverktakar væru sem riki i
rikinu. Fyrirtækið væri tryggt
fyrir hvers kyns skakkaföllum,
samkvæmt samningi, og þennan
samning hefði rikisstjórn Islands
gert fyrir hönd fyrirtækisins við
Bandarikjamenn.
Það er þvi ekki nóg með, að
Islenzkir aðalverktakar séu fjár-
hagslega mjög öflugt félag á
islenzkan mælikvarða, heldur er
það jafnframt i þeirri aðstöðu að
láta islenzka rikið gera milli-
rikjasamning fyrir sina hönd.
Söguna af samningnum segjum
við annars staðar i opnunni.
AÐALVERKT
„Mjög í þágu
óvenju miklar framkvæmdir
eru I gangi eöa fyrirhugaðar á
Keflavikurflugvelli eða I ná-
grenni á næstunni. Alls hyggjast
Bandarikjamenn verja tæpum 24
milljónum dala til framkvæmda,
annarra en vegna hernaðar-
mannvirkja. Þetta samsvarar
um 8 milljöröum islenskra króna.
Ofan á þetta bætast svo verk-
efni, sem eru hafin, beinar fram-
kvæmdir viö hernaðarmannvirki,
viðhaldsvinna o.fl.
Helstu verkefnin eru þáttur
hersins i Hitaveitu Suðurnesja og
hitaveituvæðing á vallarsvæðinu,
alls 16,2 miiljónir dala á næsta
fjárhagsári Bándarikjanna.
Heildarkostnaður við hitaveit-
una er um 20 milljarðar króna og
munu Bandarikjamenn greiða
helming þeirrar fjárhæöar, eða 30
milljón dali, 10 milljarða isl.
króna.
Þá verður varið 4,4 milljón döl-
íslendinga’7
um (1,5 milljarður ísl. króna) i
flugbrautir, 1,7 milljón dölum
(574 milljónir) i skólabyggingu
og 1,5 milljón dölum (490 milljón-
ir kr.) i sorpeyðingarstöð, sem
bandariski herinn byggir ásamt
Keflavik, Njarðvikum og Grinda-
vik. Hlutur Bandarikjamanna i.
þessu verki eru 65%.
Af þessu er Ijóst, að það er dá-
gott að vera i sambýli við herinn
enda, kopa það fram i viðtölum
Helgarpóstsins við Flakas, að-
stoöarráðherra I Pentagon og
R.J. Murphy, forstöðumann
framkvæmdadeildar hersins I 1
Pentagon, að þessar fram^
kvæmdir væru mjög i þágu Is-
lendinga.
„Við vorum einmitt að ljúka við
að semja við varnarliðsverktak-
ann (þ.e. ísl. aðalverktaka),”
sagði hann og bætti við: „Þetta er ■
ákaflega mikið i þágu tslands, is-
lensku rikisstjoi-narinnar. ”
I umræðum i hermálanefnd
fuiltrúadeildar Bandarikjaþings i
vor var fjallað nokkuð um fyrir-
hugaðar framkvæmdir á Kefla-
víkurflugvelli.
I umræðum um Hitaveitu
Suðurnesja og þátt hersins i þeirri
framkvæmd kom fram, að
Bandarikjamenn hafa keypt ár-
lega oliu til húshitunar. hjá is-
lenskum oliufélögum fýrir einn
milljarð og 352 milljónir króna.
Þegar vallarsvæðið hefur verið
hitaveituvætt munu olíufélögin
missa þennan spón úr aski sínum.
Hér er um að ræða um. . 25
milljón litra af oliu á ári.
I umræðunum kom fram, aö
fulltrúadeildarþingmanninum
McKay frá Utah þótt hlutur.
.Bandárikjamanna, helmingur af
60 milljón dollara verki, vera of
stór.
Fyrir svörum sat Iselin, aðmir-
áll. Þar koma að, að þingmaður-
inn spurði:
„Munum við geta verið þar
áfram? Erum við kannski bara
að láta þá fá peninga til þess að
við getum farið burt?
Iselin, aðmiráll: Við ætlum að
vera þar áfram.
Frá Rockville-stöðinni við
Grindavfk.
McKay: Táknar það það, að viö
verðum að fara með her þangaö
til þess að ge.ta verið áfram?
Iselin, aðmiráll: Nei, herra.
McKay: Nú, hefur það jafnað
sig? Það hefur verið „Burt með
Kanann” (Yankee go home) þar
um allnokkra hrið.
Iselin aðmiráll: Það var þann-
ig: það hefur róast og ástandið
orðið stöðugt og ríkisstjórn ís-
lands styður þetta sérstaka verk
og starfsemi okkar.”
Af þessum orðaskiptum verður
ekki dregin önnur ályktun en sú ,
að fulltrúadeildarþingmaðurinn
frá Utah,McKay, hafi i fúlustu al-
vöru hugleitt þann möguleika, að
Bandarikjamenn beittu hervaldi
á Islandi.
Eins og fram kom i Innlendri
yfirsýn s.l. föstudag hafa
íslenzkir aðalverktakar skrif-
stofu I New York I Bandaríkjun-
um, sem annast öll innkaup fyrir
fyrirtækið. Allt efni og öll tæki,
sem aðalverktakar kaupa eru
fengin frá Bandarikjunum
samkvæmt ákvæöi i samningum.
A þessari skrifstofu störfuðu i
eina tið 7 manns, en þar eru nú
fjórir.
Skrifstofa þessi er á miðri
Manhattan, á horni 42. götu og
Fifth Avenue, þar sem mörg
stærstu fyrirtæki Bandarikjanna
hafa aðsetur. Nokkrum húsaröð-
um ofar er t.d. Rockefeller
Center.
Helgarpósturinn leit við á skrif-
stofum aðalverktaka eöa Iceland
Prime Contractor eins og fyrir-
tækið heitir á ensku, á dögunum.
Þær eru uppi á 36. hæð, i einu
stóru herbergi með minni skrif-
stofum inn af. Þar hittum við
fyrir Sverri Hauksson viöskipta-
fræðing, forstöðumann skrifstof-
unnar.
'4
Sorpeyðingarstöðin
Hann kvaðst hafa byrjað að
starfa á New York skrifstofu
aðalverktaka fyrir tveimur og
hálfu ári og hefði hann i vinnu
þrjá Bandarikjamenn. Rætt hefði
verið um að fjölga starfsliði en
ekki orðið af þvi, enn. '
Sverrir sagði, að algjör
nauðsyn væri á þvi að halda skrif-
stofu i Bandarikjunum, þar sem
aðalverktakar keyptu mest af
efni, vörum og tækjum i Band-
rikjunum. Heima á Islandi væri
þetta ekki til.
Þegar Helgarpósturinn var á
ferðinni hjá Iceland Prime
Contractor i New York var þar
staddur Islendingur, Haukur
Frimannsson, verkfræðingur.
Hann hafði verið i New York i
viku til þess að vinna að teikning-
um að brunavarnakerfi i flugskýli
á Keflavikurflugvelli. Hann tjáði
Helgarpóstinum, að ferðir sem
þessar væru alltiðar, þar sem oft
þyrfti að samræma bandariskar
og islenzkar reglur i reglu-
gerðarkröfur.
Frétt Helgarpóstsins var rétt:
Umframbæturnar hafa
ekki verið greiddar
Flugleiðafólkið í áhöfn DC-8 umframbætur hefðu þegar verið
vélarinnar sem lifði af I Sri greiddar.
Lanka-slysinu, hefur enn engar Forráöamenn Flugleiða hafa
bætur fengið umfram farang- á hinn bóginn tekið ákvörðun
urstryggingu aö fjárhæð 150 um að félagið greiöi umfram-
þúsund krónur, eins og grcint bætur. Að sögn Sveins Sæ-
var frá síöasta blaði Helgar- mundssonar blaðafulltrúa Flug-
póstsins, og blaðið hefur nú leit- leiöa, er málið til afgreiðslu hjá
aö frekari staðfestingar á. félaginu ásamt fleiri málum
Þess vegna er það rangt sem sem þar eru til meðferðar vegna
sagt var í forsiöufrétt Visis sl. slyssins.
föstudag og blaðafulltrúi Flug- Sem sagt — frétt Helgarpósts-
leiða var borinn fyrir, að þessar ins stendur I einu og öllu.
IPC í New York