Helgarpósturinn - 20.07.1979, Blaðsíða 3
3
,helgarpóstúrinrL. Föstudagur 20. júlí 1979.
Cr lessal Þjóöskjalasafnsinns: „Þeir skulu hafa hljótt um sig og vera þokkaiega búnir og hreinir um
hendur, svo að eigi klikki þeir nje óhreinki skjöl þau, er þeir handleika,” segir um safngesti I Reglu-
gjörð.
„Það var minnzt á það
í einhverri skálaræðunni”
Vegna þrengsla I Safnahúsinu
við Hverfisgötu hefur
Þjóðskjalasafnið geymslu-
húsnæði, eins konar útibú, að
Laugavegi 178. Þar hefur
safnið til umráða 200 fermetra
hæð og hefur haft undanfarin
átta ár.
Þar eru ýms söfn til geymslu,
s.s. skjalasafn Vestmannaeyja
það sem kom undan eldinum,
skjalasafn borgardómara
borgarfógeta, landlæknis,
fræðslumáiaskrifstofunnar, lög-
reglustjórans á Keflavikurflug-
velli o.fl.
Þjóðskjalasafnið er i miklu
Skjöl ekki innheimt í
hálfa öld
1 röska hálfa öld hefur inn-
heimtu skjala ekki verið fylgt
eftir reglulega eða frá árinu 1924
jafnframt þvi, sem stjórnarráöiö
hefur sjálf t verið tregt að skila af
sér.
I ráðuneytunum sjálfum gilda
svo engar fastmótaöar reglur um
hvaðnákvæmlegaskulifara leynt
og er þá yfirleitt visað á yfir-
mann, sem spilar eftir eigin nót-
um. Frá þessu eru þó undantekn-
ingar.
Aðalgeir Kristjánsson, skjala-
vörður: „Spurning hvort endist
lengur, ættfræöingurinn eða bók-
in.”
Um afnot af skjalasöfnum opin-
berra embætta er sömu sögu að
seg ja. Um þaueru engar mótaðar
reglur, að þvi er við vitum bezt.
1 samtali við Aðalgeir
Kristjánsson, skjalavörð i Þjóð-
skjalasafninu kom fram, aö hann
þyrfti oft að visa fólki á skjöl i
ráðuneytunum. Þar er það svo
undir reglusemi og velvilja ráðu-
neytismanna hverjar viötökur
menn fá.
Okkur var t.d. sögð sú saga aö
maður nokkur hefði fyrir all-
mörgum árum viljað komast i til-
tekin . skjöl. Sá sem hafði umsjá
meö þeim taldi sér ekki stætt á
þvi aö neita honum um aðgang
enda þótt viðkomandi ráöuneyti
hefði óskað eftir þvi, að maöurinn
fengi ekki aö skoða s|cjölin.
Var þá brugðið á það ráð að
senda skjölin i sjálft ráðuneytið,
visa manninum þangað og láta
ráöuneytið sjálft sjá um að vlsa
manninum frá. Hvort þetta var
póhtik eða eitthvaö annaö vitum
við ekki.
Hins vegar er „danska” reglu-
gjörðin frá 1916 tiltölulega skyr
um eitt atriði. Þar segir: ,,Þó er
skjalaverði heimilt að leyfa aö
nota yngri skjöl (en 35 ára), sem
húsnæðishallæri og veitti ekki af
nýju húsnæði fyrir starfsemi
sina. En Aðalgeir Kristjánsson
sagði, að svarið væri alltaf það
sama, að peninga væri enga að
fá. „Það eru aldrei til peningar,
sem gagn gæti orðið af, en alltaf
nóg til i hitt,” sagði Aðalgeir.
1 nýrri Þjóðarbókhlöðu er
ekki gert ráö fyrir Þjóðskjala-
safninu. Hins vegar var þaö
haft á orði fyrir allmörgum
árum, að safnið fengi allt Safna-
húsið viö Hverfisgötu til
umráða, þegar þar að
kæmi. „Það hefur aldrei verið
talað um það opinberlega af
eru þess eölis, aö honum þyki það
óhætt, en jafnan getur hann
krafizt skýlausrar yfirlýsingar
þess, er nota vill, aö eigi æth sá að
beita skjölum þeim til vanvirðu
eða skapraunar neinum manni,
er sje enn á lifi, nje nánustu
vandamönnum hans.”
Sé skjalavöröur ekki viss i sinni
sök getur hann skotiö máli sem
þessu til „landstjórnarinnar.”
Viö spurðum Aöalgeir
Kristjánsson um þetta og hvort á
þetta hefði reynt.
„Eftir þvi, sem ég bezt veit, þá
hefiir ekki reynt á það að öðru
leyti en þvi', að viö höfum veriö
með innsigluö skjöl, aðallega frá
einstakhngum. Þaö er t.d. hérna
efni frá Jóhönnu Knudsen. Það
má ekki opna það fyrr en
snemma á næstu öld. Hún var
einskonar „ástandsbjargvættur”
ásínum tima. Nú , það voruhérna
frá Sveini Björnssyni gögn, sem
var verið að taka upp fyrir
nokkru siðan og svona ýmislegt
fleira.”
1 tilvikum sem þessum eru
skjalapakkar viðkomandi inn-
siglaðir og skýrir skilmálar
fylgja um það hvenær megi rjúfa
innsigliö og leyfa aðgang að
þessu.
Aðalgeir sagði, aö hending réöi
þvi hvað bærist Þjóðskjalasafn-
inutil vörslu. ,,Á meðan Jón Þor-
kelsson var þjóðskjalavörður inn-
heimti hann grimmt eftir reglu-
gerðinni. Siöan hefur það falliö
alveg niður, eða frá árinu 1924,”
sagöi Aðalgeir. >
„Þeir sitja á öllu bita-
stæðu...”
En hvernig er þetta með ráðu-
neytin? Sitja þau á áhugaveröum
plöggum?
„Já, yfirleitt eru þau orðin
gömul og þaö hefur ekkert reynt
á leyndina. Þau eru orðin það
gömul, þegar þau loksins koma.
Sannleikurinn er barasá,, að þaö
kemur ekkert frá embættunum,
sem er einhvers virði. T.d. ernær
öllu haldiö eftir i utanrikisráöu-
neytinu, sem eitthvað bitastætt er
i, mér sýnist þaö. Við erum með
töluvert frá þeim, en hér er t.d.
ekkert sem er merkt trúnaðar-
mál. Þeir sitja á þvi öllu saman.
Það er i sjálfu sér ágætt. Við
erum ánægöir með það. Við þurf-
um þá ekki að vera aö reka menn
i burt, þegar ekkert af shku er að
hafa.”
Er þá skil frá ráöuneytinum
mjög stopul? Setja þau þetta allt i
sin eigin skjalasöfn?
„Já, a.m.k. hefur regluleg inn-
alvöru. Ég held, aö það hafi
verið minnst á þaö i einhverri
skálaræðunni. Og ég held, að
það sé best að taka ekki of mikið
mark á þvi. Þeir gætu stormað
inn hér meö einhverjar stofn-
anir, sem væru i húsnæðis-
hraki,” sagði Aöalgeir
Kristjánsson.
Fram kom, að stjórnarráðið
og Hæstiréttur hafa haft ágirnd
á húsinu. Aðalgeir benti á, að
húsið væri i raun mjög óhentugt
sem safnhús. Þarna væri ekki
lyfta og menn þyrftu að bera
fleiri tonn af bókum á milli
hæða. Auk þess væri húsið
komið i svokallaða A-friðun og i
þvi mætti ekkert gera, sem til
hagræðingar gæti horft.
En það gæti þá e.t.v. komið i
veg,fyrir, að Hæstiréttur flytti
þarna inn?
„Þaö er nú dálitiö annað. Það
er ekki sama hvort það er Jón
eða séra Jón,” sagði Aöalgeir
Kristjánsson.
heimta ekki átt sér staö i röska
hálfa öld. Annars fer þetta eftir
ráðuneytum. Þaö er t.d. sama og
ekkert hér úr forsætisráðuneyt-
inu, ekkert úr samgönguráöu-
neytinu o.s.frv. Það er hér bara
úr þessum þremur gömiu ráöu-
neytum, dóms- og kirkjumála-
ráöuneytinu, atvinnumálaráðu-
neytinu (eins og það hét) og fjár-
málaráöuneytinu svolftið, en það
er nú litið. Þessi söfn teygja sig
fram .. undir 1940.”
Þessi söfn hafa sem sé skilaö
tiltölulega reglulega iram undir
1940?
„Ja, ég veit ekki hvaö ég á að
segja hversu reglulegt þaö hefur
verið. Fjármálaráðuneytið tók nú
hluta af sinu aftur.”
Hvernig stóð á þvi?
„Þeir gáfu nú enga skýríngu á
þvi. Þetta hefur verib fyrir svona
15 árum siðan”.
Voru þeir kannski að koma i
veg fyrir aðgang að þessum skjöi-
um?
„Ég veit ekki um ástæöuna.
Þeir kunna að hafa þurft aö nota
þau I sambandi við eitthvað, sem
þeirhafa veriö að fara í gegnum.
Mér dettur þaö nú helzt f hug. Að
þaö hafi þurftað nota þau i sam-
bandi við einhverja endurskoðun.
Ég veit ekkert um það.”
En eru ráðuneytin með þessum
vanskilum að brjóta lög og reglu-
gerð?
„Ég veit ekki hvernig ber að
túlka þaö. Hins vegar er þetta
svona viða um heim, a.m.k. þar
sem ég þekki til. Skjalasöfn eru
vföast yfirfull og geta ekki tekiö á
móti. Þannig hefur þetta verið i
Noregi, Danmörku og Finnlandi.
Þannig aö þetta sé aballega
peningaspursmál?
,,Já, auövitað er það þaö.”
Stór embætti hafa ekki
skilað einu einasta skjali
En getur safnið sinnt eiginlegu
hlutverki sínu viö núverandi að-
stæður eins og safninu ber skylda
til samkvæmt reglugerð?
„Nei. Það eru stór embætti,
sem ekki hafa skilað af sér einu
einasta skjali.”
Dæmi?
„Ja, það er t.d. allt bankakerf-
ið. Rfkisbankarnir eiga náttúr-
legaaðskila slnu. Núsvo eru þaö
stofnanir eins og Tryggingastofn-
un rikisins, Rikisútvarpið og
eiginlega allt skólakerfið eins og
það leggur sig. Þaö er ekkert
komið nema úr gamla Mennta-
skólanum I Reykjavfk. Nú, svo er
það allt heilbrigðiskerfið. Þaö er
ekkertkomið nema frá landlækni
sem heitið getur.”
Er af framangreindu rétt að
draga þá ályktun aö skipan þess-
ara mála sé i molum?
„Ja, nú veit ég ekki. Þetta
byggist náttúrlega á afstöðu
stjórnvalda til stofnunarinnar.”
Og hvað segir þú um afstöðu
stjórnvalda? Hafa þau sýnt nægi-
legan skilning?
„Ég held að það sé betra að þú
spyrjir þau.”
Hvað vinna margir hjá ykkur?
„Þaö er þjóðskjalavörður,
fimm skjalaverðir og vélritunar-
stúlka!*
En hvaö telur þú, aö þurfi að
ge-ra ef fara á eftir þeim reglum
sem i gildi eru?
„Það er eiginlega ómöglegt að
svara þvi, en þetta, að það hefur
eiginiega ekkert veríö innheimt
hlýtur að skapa erfiðieika, það
veröur miklu erfiöara aö koma
þessu i röð og reglu. Ég reikna
a.mJc. með þvi.”
Sfðar meir áttu við? Þvi fyrr
þvl betra?
Nefndin hefur aldrei
komið saman
„Já, og svo er þaö náttúrlega
þessi mikla spurning: Hvað á að
geyma oghvaö á ekki aö geyma.
Það hefur ekki verið tekin nein
afstaða til þess ennþá.”
En þaö hefúr sem sé ekki verið
neitt farið f það að láta ykkur
meta hvað skuli geyma og hver ju
og h vernig öllu skjalaflóðinu skuli
haldiö saman og hverju hent?
„Ekkisvo ég vititil. Ég hef ekki
oröið var við neitt slíkt. Þaö var
skipuð nefnd fyrir nokkrum
árum, en ég held, aö hún hafi
aldrei komið saman. I henni eru
núverandi þjóöskjalavöröur
Bjarni Vilhjálmsson, Einar
Bjarnason, prófessor og Gisli
Blöndal, fyrrverandi hagsýslu-
stjóri”.
Og hún átti að vinna aö hverju?
Hún átti að fjalla eitthvað um
þetta, en ég hef ekki séð neitt frá
henni.”
Stóra málið, sagði Aöalgeir, er
einfaldlega hvar á aö geyma öll
þessi skjöl. „Það er hvergi til
geymsla fyrir allt, sem ætti að
vera i Þjóöskjalasafni”, sagði
Aöalgeir.
Þannig að þaö þyrfti að byggja
nýtt hús?
„Þaöer það. Þaöereitt af stóru
málunum, og svo þyrfti náttúr-
lega vinnandi hendur, en það
ræðst að s jálfsögðu af þvi hvernig
verkið verður unnið. Þaö er hægt
að fara á hundavaði yfir þetta, en
þaðer lfka hægt aö fara vandlega
I þetta.”
En hvað með notagildi af safn-
inu fyrir fræðimann, sem þyrfti
aö kanna frumgögn?
Þarna spyrðu dálitið furðu-
legrar spurningar.”
Er hún furðuleg?
„Ja, það virðist eins og safnið
sé voðalega litið notaö. Þaö er
aðallega eða bara fyrir ætt-
fræðinga. Sami ættfræðingurinn
flettir sömu bókinni áratugum
saman þangað til annað hvort
hann dettur dauður niður eða
bókin fer í tætlur. Það er bara
spurning um endingu. Hvort end-
istlengur, pappfrinn ibókinnieða
lifið í ættfræöingnum. Og hann
virðist litlu nær eftir sem áöur.”
Texti: Halldór Halldórsson
Myndir: Friðþjófur
SVARID
VID OLÍUKREPPUNNI
Peugeof 504 Diesel eyðir aðeins wm 7 lítrun af dieselolíw^
á ÍOO kilámetrum. Jafnframt er hann traustbyggður,
hefur frábœra aksturshœfni og hcefir vel
islenskum staðháttum.
HAFRAFELL H.F.
Vagnhöfða T * Reykjavik • Sími 8-52*11
>>>
H.H.