Helgarpósturinn - 19.10.1979, Side 8
8
Föstudagur 12. október 1979 .—he/garpósturinrL_
—helgar
pásturinn—
utgefandi: Blaðaútgáfan Vitaðsgjafi
sem er dófturfyrirtæki Alþýðublaðs-
ins, en með sjálfstæða stjórn.
Framkvæmdastjóri: Jóhannes Guð-
mundsson.
Ritstjórar: Arni Þórarinsson, Björn
Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Jón Oskar Haf-
steinsson.
Biaðamenn: Guðjón Arngrímsson,
Guðlaugur Bergmundsson, Guðmund-
ur Arni Stefánsson og Þorgrímur
Gestsson.
Ljósmyndir: Friðþjófur Helgason.
Auglýsingar: Elín Harðardóttir.
Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir
Dreifingastjóri: Sigurður Steinarsson
Ritstjórn og auglýsingar eru að Síðu-
múla 11, Reykjavík. Simi 81866. Af-
greiðsla að Hverfisgötu 8-10. Simar:
81866, 81741, 14900 og 14906.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Askrift (með Alþýðublaðinu) er kr.
4.000.- á mánuði. Verð i lausasölu er
kr. 200.- eintakið.
PRÉDIKUN
Þá er kosningaslagurinn haf-
inn. Þaö er verið að dusta rykið af
slagorðasmiðjunum þessa
dagana, byrjað að smyrja prent-
vélarnar, sem færa eiga i prentað
mál allan flokksáróðurinn, sem
brátt mun ausið inn um dyra-
lúgurnar um allt land og fjölmiðl-
arnir eru að kúffyllast af pólitik.
Frambjóðendur hafa þegar sett
upp sölumannsbrosið, sem fleyta
eiga þeim fyrst I gegnum
prófkjörið og siöan inn á þing.
Skyndilega hefur almenningi I
þessu iandi aftur verið skipað i
öndvegi, þvf þar iiggja atkvæðin.
Pólitiskar harðsperrur siðustu
kosninga skulu flæmdar burt og
öll póiitisk þreyta deyfö fram yfir
næstu lotu. Þeir sem gaman hafa
af þessum pólitiska hildarleik
þurfa vart að kvíða skammdegis-
drunganum en þeim sem minnna
þykir til koma að verða nauðugir
viljugir að þreyja þennan kosn-
ingaþorra fram i aðventu.
Það veröur slegist um efna-
hagsmálin, þann málaflokk allra
málaflokka, sem allur almenn-
ingur i landinu ber sennilega
minnst skynbragð á og pólitfkus-
arnir sömuleiðis ef marka má
afrekaskrána á iiðnum árum. A
næstunni munu þvi dynja f eyrum
prósentutölur, mismunandi háar
eftir þvi hver flokkur á f hlut, og
frasar eins og hjöðnun verðbólgu,
rýrnandi þjóðartekjur, peninga-
magn I umferð, seðlaprentun,
rikisútgjöld, vfsitölur af ýmsum
geröum kjaraskeröing og kaup-
rán og annað i þeim dúr. Flest af
þessu mun væntanlega fara inn
um annað eyrað og út um hitt.
Efnahagsmál eru guöspjöll
vorra tima. Þau eru jafn fyrir-
ferðarmikil i allri umræðu nú á
dögum og aöskiijanlegar
guðfræöikenningar voru fyrr á
tfmum. Verðbólgudraugurinn
hefur tekið við af skrattanum og
mismunandi hagfræðiformúlur
við af striðandi kennisetning-
ummiðaldaguðfræðinnar. En
alveg eins og guðfræðibólurnar
hjöðnuðu með aukinni upplýsingu
munum við lika komast aö raun
um að lausnarorðið er ekki fóigið
i kennisetningum hagfræðinnar.
Sáluhjálpin kemur nefnilega inn-
an frá — I þessu efni eins og öðru,
með hugarfarsbreytingu
þjóðarviljans svo notuö ségömul
tugga.
Og til að hnykkja ofuriitið á
þessari prédikun skal tilgreina
dæmisögu. Vinur minn einn sex
ára er nýbyrjaöur i skóla og hefur
lent i bekk hjá afar guðhræddri
kennslukonu. Afleiðingin er sú að
hann er orðinn ákaflega trúaður.
Hann ræðir mikið um guð, eink-
um við átta ára frænku sina.Hún
er veraldarvanari, trúleysingi og
reynir að sýna honum fram á að
guð sé ekki til. Hann lætur ekki
segjast og heldur staöfastlega
fram tilvist guðs. Trúmáladeilum
smáfólksins Iyktar þess vegna
venjulega með þvi að telpan
veraldarvana gefur eftir og segir
vorkunnlát: ,,Já, já, svona Tumi
minn — þetta er bara timabil hjá
þér.”
Betri huggunarorö á ég heldur
ekki handa þeim háttvirtum
kjósendum sem lifa f voninni um
aö væntanlegar kosningar einar
muni færa þeim friö.
— BVS
PÓUTÍSKUR LEIÐI OG KOSNINGAR
Sjaldan eða aldrei hefur póli-
tiskur leiði almennings verið
eins mikill og um þessar mund-
ir. 1 meira en eitt og hálft ár
ha£a lika verið stöðug átök og
uppþot i pölitikinni hér á landi.
FVrst voru það sveitarstjórnar-
kosningarnar i fyrra, þá tóku
við alþingiskosningar einum
mánuði siðar, þar á ' eftir lang-
vinnar stjórnarmyndunarvið-
ræður og svo 13 mánaða tlmabil
stöðugra pólitlskra upphlaupa,
sem endaöi svo á þriðjudaginn
þegar Benedikt Gröndal rauf
þingið og sendi þingmennina
heim. Nú er framundan timi
prófkjara og skoðanakannana
og þar á eftir kemur heiftúðug
kosningabarátta og tveggja
daga kosningar. Pólitikusarnir
fylgjast vist vel með lægðunum
á veðurkortinu siðustu dagana
fyrir kosningar. Sumsstaðar á
jarökringlunni þýöir kröpp lægó
hvirfilvind og eigna og
manntjón.Hér á landi getur
kröpp lægðf yrir suö-vestan land
á hreyfingu norð-austur 1. des-
emberþýtt þáttaskil i lifi sumra
stjórnmálamanna. A þessum
árstima er lika gott að hafa
auga með norðanáföllum sem
kunna að skella yfir landiö fyr-
irvaralitið. Þessi norðanáföll
geta ekki siður boöað þáttaskil I
lífi pólitikusanna.
Enhvaða flokkur eða flokkar
tapa svo á vondu veöri og litilli
kjörsókn I desemberkosningun-
um, og hverjir kunna ef til vill
aðhagnast á þvi? Eitt er vist, að
verði slæmt veöur þessa tvo
daga, þá mun þaö draga mikið
úr kjörsókn, þótt veðriö sé ekki
það vont að það hindri kosning-
ar eða flutninga á kjörgögnum.
1 fljótú bragði viröist rétt að
ályktaað stærsti flokkurinn tapi
hlutfallslega mestu áþvief veð-
ur veröur vont á kjördagana.
Hinsvegar er á þaö að lita að
Sjálfstæöisflokkurinn hefur
ávallt haft kosningamaskinu
sina vel smuröa og ekki mun á
hana vanta frostlög núna, þvi
betra er að vera viö öllu búinn.
Við sumarkosningar hefur flok-
urinn keypt heilu bflastöðvarn-
ar til að nota fyrir smala-
mennsku á kjördag, og illa er ég
svikinnef æföir kosningasmalar
eru ekki nú þegar búnir að
tryggja sér mikinn bflafbta á
kjördag. Það verður þvi likleg-
ast ekki Sjálfstæðisflokkurinn
sem tapar i slæmu kosninga-
veöri, heldur kannski helst krat-
ar sjálfir, sem eru ekki með
mikið kerfi og merkingar, hvað
þá f jármuni og mannafla á móts
við hina flokkana.
íhaldið vinnur og
Kratar tapa.
I þessum kosningum er hægt
að slá þvi föstu að Sjálfstæðis-
flokkurinn vinnur,en hann gerir
þó ekki meira en vinna aftur
þausætisem hann hefur tapað á
undanförnum árum. Menn
skulu athuga það að við slðustu
kosningar fékk flokkurinn ekki
nema 20 þingmenn, þar af eru
þrir uppbótarþingmenn, en fyr-
ir aðeins nokkrum árum var
Sjálfstæðisflkkurinn meö 25
þingmenn á Alþingi, og það má
heita gott ef hann naa- þessum
fimm aftur.oger varla hægt aö
tala um mikinn kosningasigur I
þeim efnum. Sápukúlufylgi
Kratanna tvístrast töluvert i
næstu kossningum, en það verð-
ur þó ekkert hrun hjá þeim.
Fyrir nokkrum árum áttu þeir 9
þingmenn á Alþingi, en liklegast
verða þeir 11 nú að loknum
kosningum, og mega Kratar
bara vel við það una, þegar litið
er á málið frá sanngjörnum
sjónarhól. Samkvæmt þessari
spá stendur maddama Fram-
sókn i staö og Alþýðubanda-
lagiö fær þá 12 þingmenn. Aðrir
flokkar eiga ekki möguleika á
þvi að fá menn kjörna I þessum
kosningum.
Reykjavik
Það er fyrst og fremst I
Reykjavik sem Sjálfstæðis-
flokkurinn mun vinna á, þrátt
fyrir þá staðreynd að þar er
hver höndin upp ámóti annarri i
flokknum svo ekki sé meira
sagt. Þaö er ekki aðeins
Geirs-armurinn og Gunn-
ars-armurinn, — það eru miklu
fleiri armar og klikuhópar þar
innanborðs, og tveir sem
hrukkufyrir borö isiðustukosn-
ingum og hyggjast nú hefna
harma sinna. Annar þessara
manna, Guðmundur H.
Garðarsson er nú hvorki meira
né minna en formaður stærsta
verkalýðsfélags landsins, já
þetta hljómar oft einkennilega I
eyrum útlendinga sérstaklegd,
— en svona er það nú samt.
Guðmundur fær nú harðan
keppninaut, þar sem er Þor-
steinn Pálsson. Það værigaman
efþeir yrðuhliövið hlið ibarátt-
unni, Þorsteinn Pálsson
og Guðmundur H. Garöarsson,
leiðtogi stærsta verkalýðsfélags
landsins og einvaldur Vinnu-
veitendasambandsins. Geir og
Albert eru öruggir meö efstu
sætin og Ragnhildur og Ellert
eru lika örugg, en svo fer nú
öryggið að minnka. Gunnar
Thoroddsen verður 69 ára I des-
ember, og það verður óspart
notað gegn honum i prófkjörinu
— Gunnar stendur sig að vísu
betur sem þingmaður, en ráð-
herra — en hvað er maður eins
og hann að streberast við að
komast I öruggt sæti i prófkjöri,
hákarl
er hann ekki búinn að vera nógu
lengi I þessu þrasi, og hann er
búinn að vera borgarstjóri, f jár-
málaráðherra, sendiherra,
koma aftur „sjáog sigra” verða
afturráðherraog hvaö villmað-
urinn meira. Hann er líka kom-
inn á full eftirlaun ráöherra.
Gunnar Thor. ætti að hafa þaö
eins og Einar Olgeirsson,
Eysteinn Jónsson og Gylfi Þ.
Draga sig úr pólitik á réttum
tima, en fylgjast með úr fjar-
lægð og hafa áhrif bak við tjöld-
in eftir sem áður.
Alþýðubandalag
Hjá Alþýðubandalaginu verða
kanski einna mestar breytingar
á þingmanna liði I Reykjavik.
Eðvarð Sigurðsson formaöur
Dagsbrúnar, sá hæglætis önd-
vegismaður verður látinn draga
sig i hlé, samkvæmt slðustu
fréttum og Svava Jakobsdóttir
hefur ekki taugar til að standa i
þessu lengur. Sjálfsagt mun
þykja að Guðmundur J. Guö
mundsson færist í sæti Eðvarðs,
Ólafur Ragnar fær að halda sinu
fjórða sæti og falla i kosningun-
um og Svavar fær áfram fyrsta
sætið. Spurningin er um þriðja
sætið hjá Alþýðubandalaginu.
Asmundur heitir maöur Stefáns
son, sem nú er orðinn fram-
kvæmdastjóri ASl, hefur verið
orðaður viö þetta sæti en liklega
búinn að tapa því. Þaö hefur
verið prinsip hjá Allaballanum
að hafa konu ofarlega, bara af
þvi að hún er kona. Nú vill svo
vel til að þeir hafa innan sinna
vébanda konu sem getur lika
talaö og er vel frambærileg.
Þetta er Guðrún Helgadóttir
barnabókahöfundur, borgar-
fulltrúi og fleira. Það verða
mikil mistök hjá forystu
Alþýðubandalagsins i Reykja-
vik ef henni tekst ekki að telja
Guðrúnu á að fara i þriðja sætið
á listanum.
Kratar
Hjá Krötum er Benedikt
öruggur með að hreppa fyrsta
sætiði' Reykjavlk og Vilmundur
annað sætið.önnur sæti verða
varla ef tirsóknarverð sem
örugg þingsæti hjá Krötum I
Reykjavlk, en þó gæti þingsæti
hjá Krötum i Reykjavik, en þó
gæti þriðja sætið orðið gott ef
það er vel skipað. Ein-
hver beygur viröist hafa
verið i Jóhönnu Sigurðar-
dóttur að gefa kost á sér
I það sæti I prófkjöri, en hún
hefur allt að vinna en engu að
tapa. Þetta upphlaup með
doktor Braga Jósefsson i fyrsta
sætið er bara tóm vitleysa.
Hann er ekki maður sem sópar
að sér fylgi með sérviskulegum
tiltektum.
Framsókn
Hjá Framsókn verður hart
barist um efsta sætið i Reykja-
vik, endaer þar verið að berjast
um öruggt þingsæti, — eitt af
fáum öruggum sætum hjá
maddömunni. Flugufregnír
voru um að Steingrimur Her-
mannsson formaður Framsókn-
arflokksins ætlaði I það þegar
vitað var að Einar Ágústsson
yrði sendiherra i Kaupmanna-
höfn. Þetta var allt uppdiktað á
ritstjórnum einhverra blaða, og
eins að Steingrfmur ætlaði I
Reykjaneskjördæmi, þótt hann
ætti heima þar. Það var nú
hreinlega fáránlegt, að formað-
urinn hætti sér i það sæti sem
virðist <afram vera tapað.
Guðmundur G. Þórarinsson
verkfræðingur og lið hans hefur
fram til þessatalið að hann væri
öruggur erfðaprins i þetta
fyrsta sæti, en svo er nú aldeillis
ekki. Loksins hefur Framsókn
eignast stjörnu I Reykjavlk
slðan slokknaði á henni hjá
varaformanninum. Þessi
stjarna þeirra er Haraldur
Ólafssonlektor I félagsvisindum
við Háskóla Islands, vel fram-
bærilegur og þekktur maður.
Hann fellur að visuekki I kram-
ið hjá Svarthöfða, þvi hann er
sænskmenntaður, og það er eit-
ur i beinum Svarthöfða. Harald-
ur Ólafsson á eftir að veita Guð-
mundi G. Þórarinssyni harða
keppni 1 fyrsta sæti og allavega
verður hann I öðru sæti. Ef
Framsóknarmenn hafna hon-
um, þá er eitthvað meira en litið
að I flokknum, sem ekki veitir
nú af svolítilli andlitslyftingu.
Um önnur sæti hjá Framsókn
skiptir ekki máli hvernig verða
skipuð.
:: HAKARL ::