Helgarpósturinn - 07.12.1979, Side 2

Helgarpósturinn - 07.12.1979, Side 2
2 Föstudagur 7. desember 1979 Hal/jarpncztl irinn HVOR ÞESSARA MANNA ER SNYRTILEGRI? Þaö er sá til hægrí Reglur skemmtistaðanna í Reykjavík um klæðaburð gesta hafa lengi verið mönnum umræðuefni. Sum hús- anna hafa ákveðnar formúlur til að fara eftir, önnur fela dyravörðunum alræðisvaldið. Ekki er gott að segja hvort formið er umdeildara. Helgarpóstsmenn dressuðu sig upp um daginn, fóru á nokkra skemmtistaði og könnuðu viðtökurnar. Tilgang- urinn var að komast að því hvað væri hægt að ganga langt, án þess að brjóta hina frægu bindisreglu og galla- buxnareglu. Þórscafé: Engar gallabuxur, enga sportjakka og bindi takk fyrir. tlótel Saga: Þvi miður, þú kemst ekki inn á gallabuxum. hnéð snyrtilega ofan i poll, þannig að blettur kom i buxurnar. Svo- leiðis var farið á Sögu. Þar kvað við annan tón en i Hollywood. Dyravörðurinn tók mér vel, ekkert var að minum klæðnaði, en Sigurður komst ekki inn i gallabuxunum. Við þrefuð- um aðeins við dyravörðinn um þetta, eins og venjan er i sam- skonar tilfellum, en ekkert dugði. Ég var ágætlega klæddur, fannst honum, en Sigurður ómögulegur. Krá Sögu lá leiðin á Borgina og þar var nákvæmlega það sama upp á teningnum. Sigurður mátti ekki fara inn á finu buxunum sinum, en ég i rifnum jakka og buxum flaug inn, eins og þjóðhöfðingi. Eitthvað eru regl- urnar á Borginni málum Aðferðin var einföld. Við Sig- urður dreifingarstjóri fórumtveir á nokkra staði, hann klæddur nýjum gallabuxum, svartri skyrtu og brúnum sportjakka, i alla staði hreinn og strokinn, eins og hann á vanda til. Ég aftur á móti dró fram nokkurra ára gamla skyrtu, gul- doppótta, um það bil tiu ára gamalt rauðskræpótt bindi, og alltof litið gráteinótt vesti. Bux- urnar og jakkann fékk ég lánað hjá Sigurði. Jakkinn reyndist þrem númerum of litill eða svo, og rifinn á öxlinni, en buxurnar krumpaðar, drapplitaðar og rifið útúr báðum vösum. Þetta fannst okkur alveg sérstaklega hallærislegur og sóöalegur klæðn- aður. Það var kannski ekki fýla af mér, og ekki var ég undir áhrifum áfengis, en mér leiö eins og ég hefði sofið i fötunum vikum sam- an. Þannig lögðum við af staö. Sig- urður smekklega klæddur að okk- ur fannst, en ég sóðalegur. Fyrst var komið við i Hollywood. Þar gengum við báöir inn án þess að dyravörðurinn liti á okkur Þegar við spurðum hann hvaða reglur þeir hefðu um klæðaburö, sagði hann aö ef fólk væri hreint væri þeim alveg sama i hverju það væri. Hann var sjálfur i iþróttabúning. Viö spurðum hvað við þyrftum að gera til að komast ekki inn, og hann svaraði: „Þið gætuð byrjaö á þvi að velta ykkur uppúr götunni hérna fyrir utan”. A leiöinni úti bilinn rak ég svo Hótel Saga: „Aöeins jakkafötff „Þær reglur sem við förum eft- ir þegar við ákveðum hverjum við hleypum inn á okkar dansleiki eru einfaldar”, sagði Vilhelm Vestmann á Hótel Sögu, I samtali viö Helgarpóstinn. „Við viljum að karlmenn séu i jakkafötum með bindi. Við viður- kennum ekki neinar blússur eöa mittisjakka, en stakir jakkar og stakar buxur ganga á venjulegu kvöldi. Kvenfólk má vera i buxum, ef það eru samkvæmisbuxur, eins og algengt er núna, en gallabuxur og flauelsbuxur viðurkennum viö alls ekki”. „Þetta eru linurnar sem við leggjum”, sagði Vilhelm, „en það er siðan dyravaröanna að skera úr um hvort fólk er nógu snyrti- legt. Við verðum vissulega að treysta dómgreind þeirra. Ef upp koma ágreiningsmál er það veit- ingastjóri sem sker endanlega úr um hvort einhver fer inn, ef dyra- vörður treystir sér ekki til að taka þá ákvöröun.” Hótel Borg: „Sparí- kiæönaöurff „I auglýsingum biöjum við um snyrtileg föt”, sagði Steinunn Thorlacius, aðstoðarhótelstjóri á Hótel Borg I samtali viö Helgar- póstinn. „Að öðru leyti höfum við ekki neinar fastmótaðar reglur um það hverjum á að hleypa inn eða ekki. Fólk fær ekki að fara inn I gallabuxum að öllu jöfnu, en ef það er i nýjum og fallegum galla- buxum hafa verið gerðar undan- tekningar”, sagði Steinunn. „Það er mál dyravarðanna að meta hverjum þeir hleypa inn, og það er að minum dómi talsveröur vandi. En þeir eru ungir menn, og eiga að fylgjast með tiskunni. Þeir vita þvi nokkuð hvað er i tlsku á hverjum tima, og geta miðað starf sitt við það. En það er ekki bara klæðaburðurinn sem lagður er til grundvallar þegar ákveðið er hvort hleypa á mann- eskju inn — það er tekið tillit til persónunnar í heild, hvort hún er drukkin eða ekki og svo fram- vegis”. Hollywood: „Allt i tískuff „Við þurfum svotil ekki neitt að skipta okkur af gestunum, i sam- bandi við klæðaburð” sagði Ólaf- ur I.aufdal i Hollywood. „Við virðumst hafa fengið það orð á okkur að litið þýddi að koma hingað nema vel klæddur og það gerir það að verkum að við lend- um sjaldan i þvi að visa fólki frá vegna klæðaburðar. Það er lfka vitað mál að um þessar mundir er allt i tisku, og þess vegna fáránlegt að fara að skipa fólki að vera i einhverjum ákveðnum klæðnaði. Starfsfólkið i Hollywood er til dæmis i Iþrótta- galla og strigaskóm. Ef fólk er hreint og snyrtilegt er okkur alveg sama hverju það klæðist. Vinnuföt kunnum við þó ekki mjög vel við, og það er oftast auð- velt að sjá hvort manneskja er i sliku” sagði Ólafur. Þórscafé: f betrí fötumff „Reglurnar hérna eru miðaðar við aö fólk sé í sfnum bestu fötum”, sagöi Sigrún Indriöa- dóttir, dyravörður i Þórscafé. „Karlmenn verða að vera i herrajakka svokölluðum, og hafa bindi eöa slaufu. Leðurjakkar ganga ekki, og ekki heldur þessir mittisjakkar sem nú eru algengir. Yfirhö.fuð verða menn að vera hreinir og snyrtilegir. Það fer eftir þvi hvernig flauelsbuxur lita út, hvort við hleypum inn I þeim. Ef þær eru nýjar og finar er þaö i lagi, annars ekki. Og þær mega ekki vera með uppbroti. Ef buxur eru með föstu uppbroti, er það hinsvegar i lagi”, sagði Sigrún. „Við leyfum kvenfólki að mæta i siðbuxum”, sagði hún, „en rifflað flauel, gallabuxur og buxur úr kakiefnum leyfum við ekki. Okkur er lika illa við að kvenfólk sé i bolum, en það er erfittað athuga það, eins og gefur aö skilja”. „Karlmenn mega ekki fara úr jökkum inni, en það hefur verið erfitt að ganga eftir þvi aö þeirri reglu sé fylgt.” —

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.