Helgarpósturinn - 07.12.1979, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 07.12.1979, Blaðsíða 21
_JielgarpásturinrL Föstudag ur 7. desember 1979 21 „Þetta hafa verið eintómar andskotans kjarabætur og flestar til ills" Asgeir Jakobsson: Tryggva saga Ófeigssonar. Skuggsjá 1979. ífyrrakomUtbók eftir Asgeir Jakobsson sem mikla athygli yakti, Einars saga Guöfinsson- ar. Nú hefur hann einnig skráö sögu annars aldins umsvifa- manns i sjávarútvegi, Tryggva Ófeigssonar. Sá er þó munur á aö Einars sögu skráöi hann eftir viötölum viö söguhetjuna, en Tryggvi Ófeigsson las slna sögu sjálfur inn á segulband, en As- geir hefur ritstýrt, raöaö efninu og skotiö inn skýringarköflum frá sjálfum sér. Fyrri aöferöin er i sjálfu sér æskilegri en hér hefur þó tekist vel til um samn- ingu bókarinnar, annaö hvort hefur Ásgeiri lánast furöu vel aö vinna úr upplestri Tryggva eöa hann er sjálfur óvenju snjall sögumaöur, nema hvort tveggja sé. Þó er efnisskipan ekki lýta- laus meö öllu, bæöi eru smá- atriöi endurtekin óþarflega oft, og svo er slöasti fjóröungur bókarinnar sundurlaust þátta- safn (gagnrýni á aöstööu togaraútgerðar siöustu áratugi, um störf á togara, um ýmsa sjó- menn og laxveiöimenn, þættir um nánustu aöstandendur Tryggva og loks um nágranna hans þegar hann man fyrst eft- ir) sem óneitanlega væri betra að fallið gætu inn i sjálfa ævi- söguna. Tryggvi sem nú er kominn nokkuö á niræöisaldur, segir fyrst frá uppvaxtarárum sinum á Suðurnesjum, lengst á Leiru, áeinkar geöþekkan hátt, leggur sig mest eftirfróðleik um vinnu- brögö og aöra þjóöhætti. Hann fer brátt á sjó, svo I stýri- mannaskóla og er orðinn togaraskipstjóri 1925, fyrst á annarra skipi, en öll kreppuár- in, 1930—40, á JUpiter sem hann átti sjálfur með fleirum. Um togaraár Tryggva er þriöjungur bókarinnar (sem alls er 400 siö- ur). Hann viröist muna furöu- glöggt að segja frá einstökum veiöiferöum eöa viöburöum, en þó drukkna þeir Asgeir ekki i smásögum, heldur er veittur ótrúlega f jölbreyttur og yfirlits- góöur fróöleikur um togaraUt- veginn —raunarallt frá upphafi hans hér á landi — vinnubrögö, fiskimiö og hvað eina sem þvi tengist. Þetta er yfirleitt prýði- lega stilaö (ég er auðvitað ekki dómbær um sjómannamálið hjá Asgeiri og Tryggva, en ætli megi ekki treysta að það sé I lagi? ) og læsilegt, samt betra til aö lesa hægt en hra tt af þvi hvað þaö er þrungið fróöleik og upp- lýsingum. Tryggvi fer I land 1940 og ger- ist stórvirkur atvinnurekandi i togaraUtgerð (JUpiter og Mars) og fiskverkun (Kirkjusandur) i hálfan fjórða áratug. Frá þeim ferii er einnig fróölega sagt og hressilega, en fljótar farið yfir sögu, og hér gætir þess nokkuö aö Tryggvi hefur meö aldrinum látiö nUtimann fara talsvert i taugarnar á sér. En i rauninni er svartagallsraus hans yfir ný- sköpun, bæjarútgerðum, hnign- un sjómannastéttarinnar og fjölmörgu ööruekki nema góðra gjalda vert. Hann tekur skemmtilega upp I sig, vekur óneitanlega til umhugsunar um ýmislegtog lesandanum er vor- kunnarlaust aö átta sig á aö ein- strengingslega sé á haldiö. As- geir heldur hér áfram að skjóta inn skýringarköflum sem veita lesandanum samfellt yfirlit um aöaldrætti islenskrar togara- sögu fram á þennan áratug. (Smáyfirsjón er þaö hjá Asgeiri aö skýra ekki ummæli Tryggva um Dawsonsævintýrið 1952 sem eru of óljós fyrir ókunnuga.) Þetta er starfssaga Tryggva mjög eindregin, um allt miðbik bókarinnar eru einkahagir hans algerlega I hvarfi, en þeim skýt- ur upp stuttarlega I bernsku- minningum og I þáttum að bókarlokum. A hinn bóginn eru fjölmargar myndir i bókinni af aöstandendum Tryggva, m.a. fjölskyldu og veislumyndir. Sé ég ekki hvaö þær koma eigin- lega bókarefninu viö,en þetta er vist tiska sem lúta ber. Bókinni fylgir nafnaskrá sem er mjög þarfleg vegna þess hve margir koma við sögu. Ég er býsna hrifinn af þessari bók. Hún ernáma af fróöleik um islenskan sjávarútveg, einkum togaraútgerö, togarallf og togaramenn. Hún er sögö rituö af ágætum stilþrótti. Og þaö er gaman aö kynnast Tryggva Cfeigssyni eins og hann kemur fram í þessari bók, haröur nokkuö á skrápinn, kröfuharöur og e i n s t r e n g i n g sl eg u r dugnaöartrúarmaður, en að mörgu leyti geöfelldur sögu- maöur, sérstaklega fyrir þaö hve hjartanlega honum þykir vænt um duglega starfsmenn sina fyrr og siðar. k tJ Bókmenntir eftlr Helga Skúla Kjartansson Af nýjum hljómplötum: BASLFJÖLSKYLDAN OG PAR T/SÖNG VAR Spilverk þjóðanna: Bráðabirgðabúgi 12 lög Hljómplötuútgáfan hf. Eigi alls fyrir löngu kom út sjötta breiðskifa Spilverks þjóö- anna, Bráðabirgöabúgl. Sem fyrr er Spilverkið á kafi i þjóðfélagslegum pælingum. Hér er tekin fyrir tiltölulega „ómeng- uð” fjölskylda af Vestfjöröum — Þorvaldur skafari, Lina Dröfn pökkunarmær og sonur þeirra Einbjörn — sem flytur frá skuld- leysi malarinnar (?) I skuldafen (Megas þó undanskilinn). Og ég held aö þessi mynd sé mjög ná- lægt raunveruleikanum. Hins vegar er ég viss um aö Vestfirö- ingar eru ekki lausir viö lifegæöa- kapphlaupið, þó vel megi vera, aö þeir séu ekki komnir meö eins mikinn hlaupasting og við á ,,bik- inu”. Um tónlistina og flutning henn- ar er ekkert nema gott eitt aö segja. Hún er einföld og smekk- lega fram sett. Og ég held það fari ekki lengur á milli mála, aö Sigrún „Diddú” Hjálmtýsdóttir er mesta söngkona sem Island hefur aliö, fyrr og siðar, Platan malbiksins, Hraunbæinn i Reykjavik. Og oröinn fullgildur þátttakandi i lifsgæöakapphlaup- inu (nr. 11 hjá bankastjóranum) leysist innbyröis samband fjöl- skyldunnar upp, Valdi skefur myrkranna á milli. Lina er I stöö- ugu slmasambandi viö Ólafiu i kaupfélaginu fyrir vestan. Ein- björn oröinn hluti af unglinga- vandamálinu. Enþetta er víst allt aöeins „til bráðabirgöa”. Spilverkið dregur þessa mynd af „bráöabirgöalifinu” býsna skemmtilega upp, enda textar þeirra Valgeirs og Bjólu löngum verið þeir bestu sem alþýðutón- listarmenn hafa boöið uppá hefur lika þann mikla kost til aö bera, að hún vinnur á viö hverja hlustun. Þaö veröur þó aö segjast eins og er, aö þeir Valgeir og Bjóla eru komnir 1 mikla hættu sem lagasmiöir. Mér finnst þeir farnir aö endurtaka sig um of. Aödáendur þeirra munu þvi krefjast þess, aö þeir bryddi upp á tónlistarlegum nýjungum á næstu plötu. Brimkló: Sannar dægurvisur 11 lög Hljómplötuútgáfan hf. Komin er út fjóröa plata hljóm- Richard Chamberlain I hlutverki lögfræöingsins ráöþrota i mynd Peter Weir The Last Wave. fulltrúar minnihluta sem hinn innflutti hviti kynstofn álfunnar hefur bælt og vanrækt. A þetta dauðsfall reynir hin hvita valdastétt að þrýsta sinu réttar- farskerfi, sinum skilningi. Eða skilningsleysi. Og lögfræðingur- inn, sem Richard Chamberlain leikur af prýöi, finnur fljótt fyrir þvi að dæmið gengur ekki upp, sannleikurinn veröur ekki leidd- ur i ljós með þeim aöferðum sem uppeldi hans hefur innrætt honum og skólinn hefur kenrit honum i faginu. Hann stendur frammi fyrir persónulegum vanmætti og menningarlegum ósigri eftir þvi sem rannsókn hans i þágu sakborninganna breytist I leit að eigin uppruna. Or þessu efni býr Peter Weir til spennandi nútimafábúlu, fulla af dul og seiðandi and- rúmslofti. Ég er reyndar ekki viss um að honum hafi tekist að fullu að tefla saman þessum tveimur menningarheimum Astraliu þannig að skýr merk- ing kvikni. Botninn er einhvers staðar i táknum og töfrum sem eru og verða ráðgáta. En The Last Wave er engu að siður merkileg og mögnuð kvikmynd. -AÞ sveitarinnar Brimkló, og kallast Sannar dægurvisur. Brimkló hefur um árabil veriö ein fremsta afþreyingarhljóm- sveit okkar. Þeir félagar gefa sig ekki út fyrir aö vera annaö, og er sú hreinskilni þeirra Ut af fyrir sig lofsverö, — og mættu fleiri taka sér til fyrirmyndar. Þess vegna eru geröar aörar kröfur til þeirra, en t.a.m. Spilverksins. Það er t.d. ekki gerö sú krafa til þeirra, aö þeir sýni okkur vanda- mál hvunndagsins frá öörum sjónarhóli en viö erum vön. Þær kröfursem geröar eru tilBrimkló armanna eru að þeir flytji okkur létt og auömelt dægurlög, sem eiga vel viö i partium, og á öörum þeim stundum þegar við viljum horfa framhjá erfiðleikum llöandi stundar. Þetta er þaö sem fólkiö ætlast til af þeim, þetta er þaö Læknirinn frjósami Ný djörf bresk gamanmynd um ungan lækni sem tók þátt á tilraunum á námsárum sinum er leiddu til 837 fæöinga og allt drengja. islenskur texti. Aðalhlutverk: Christopher Mitchell. Sýnd kl. 5, 7 og 11.10. Bönnuö innan 16 ára. Brandarakarlarnir kosin besta mynd ársins 197 af sænskum gagnrýnendum. tslensk blaöaummæli: Hclgarpósturinn „Góöir gestir I skammdeginu” Morgunblaöiö „Æ.P. er ein af skemmtilegri myndum sem geröar hafa verið siöari ár”. Dagblaðið „Eftir fyrstu 45 min. eru kjálkarnir orönir máttlausir af hlátri. Góöa skemmtun”. Sýnd kl. 9. Islenskur texti. sem þeir reyna aö gera — og þetta er þaö sem þeim tekst öörum fremur. Ekki slst á nýju plötunni. Sannar dægurvlsur hafa að geyma 11 lög, þar af sjö eftir liös- menn hljómsveitarinnar, Björg- vin Halldórsson 4 og Arnar Sigur- björnsson 3. Jóhann G. á eitt lag, en þrjú eru erlend, Textarnir eru eftir Vilhjálm frá Skáholti, Jón Sigurösson, Kjartan Heiöberg, Arnar Sigurbjörnsson og Jóhann G. Það lag sem ég tel að njóta muni mestra vinsælda af plötunni erSaganaf Ninu og Geira. Týplsk dægurvisa um stúlkuna sem bauðst manninum, en loks þegar hann vill taka viö henni er hún gift öörum, Fleiri lög eru einnig likleg til vinsælda, t.d. Ég mun aldrei gleyma þér og Ég veit aö ég hef breyst. Plata þessi er ööru fremur bor- in uppi af söng Björgvins Hall- dórssonar Sem sagt: Sannar dægurvisur stendur fyllilega undir sinu, og á örugglega eftir aö njóta mikilla vinsælda. Jóla- sjónvarp Jóladagskrá sjónvarpsins veröur meö sama sniöi um þessi jól og veriö hefur, meö miklu úrvali af barnaefni, löngum bió- myndum, tónleikum, helgistund- um og Billy Smart. Af barnaefni vekur kannski einna mesta athygli gamla góöa myndin „Lassy” frá árinu 1943, með barnastjörnunni Elisabetu Taylor i aðalhlutverki. Hún veröur sýnd á Þorláksmessu, sem ber upp á sunnudag aö þessu sinni. A jóladag veröur sýndur ballettinn Hnetubrjóturinn i upp- færslu Bolsoy ballettsins, og bió- mynd kvöldsins verður „Kon- ungur konunganna” meö Jeffrey Humphrey i aöalhlutverki. Annan jóladag fáum viö svo aö sjá is- lenska leikritið „Drottinn blessi heimilið” eftir Guölaug Arason, og biómynd kvöldssin veröur bandariska dans- og söngva- myndin „Singing in the Rain” með Gene Kelly og Debby Reynolds i aðalhiutverkum. A gamlárskvöld veröa frétta- annálar ársins, Billy Smart og áramótaskaupiö á sinum stað, en á nýjárskvöld sjáum viö nýtt norskt leikrit eftir Ibsen, sem var frumsýnt i NRK sjötta nóvember. Það er „Frúin af hafinu” meö Liv Ullman i aöalhlutverki. Þannig hittist á, aö þetta sama leikrit er jólaverkefni útvarpsins i ár. W BORGUM EKKI! VIÐ BORGUM EKKI! Miðnætursýning i Austurbæjarbiói laugar- dagskvöld kl. 23.30. 91. sýning, aðeins 2 sýningar eftir. Miðasala i Austurbæjarbiói frá kl. 4 i dag — Simi 11384

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.