Helgarpósturinn - 18.07.1980, Side 2

Helgarpósturinn - 18.07.1980, Side 2
2 Föstudagur 18. júlí 1980 Jielgarpósturínn. Pappirsfrumskógur nútima samfélagsins t daglegu lifi sinu þurfa islensk- . ir borgarar meira eöa minna aö skipta viö kerfiö, þ.e. stofnanir á borö viö tryggingakerfiö, banka- kerfiö og dómskerfiö svo eitthvaö sé nefnt. Þessum samskiptum fylgja gjarnan miklar bréfa- skriftir, útfylling eyöublaöa og hlaup á milli skrifstofa. Mörgum hefur ofboöiö þessi skriffinnska sem sffeilt færist I vöxt og býsnast þá gjarnan yfir kerfinu, bákninu eöa skrifræöinu, allt eftir þvi hvaöa nöfnum þeir vilja nefna þaö. Dr. Ólafur Hagnar Grlmsson er sennilega manna fróöastur um skrifræöiö svokallaöa, bæöi hvaö varöar fræöilega þekkingu og svo hefur hann haft nokkur kynni af islensku skrifræöi af eigin raun sem stjórnmála- og alþingismaö- ur. „Skrifræöi hefur veriö notaö sem þýöing á erlenda oröinu Bureaucracy sem einnig hefur veriö nefnt regluveldi á Islensku”, sagöi Ólafur Ragnar þegar Helgarpósturinn lagöi fyrir hann þá spurningu hvaö viö væri átt meö skrifræöi. „Þessar tvær þýöingar, skrif- raeöi eöa regluveldi gefa nokkra ábendingu um merkingu hugtaks- ins. Skrifræöi vísar til þess aö stór hluti ákvaröanatöku fer fram I formi mikillar pappirsvinnu, hver skrifstofuhöllin á fætur ann- arri ris upp sem tákn um nútima- stjórnsýslu og framleiðsluhætti. Regluveldi visar hins vegar til þeirra einkenna að binda æ stærri hluta ákvaröanatöku viö ákveön- ar reglur og form sem fyrirfram eru ákveönar, þannig aö persónu- legt mat slarfsmanna, hvort sem þaö eru embættismenn eöa starfsmenn I fyrirtækjum ráöi si- fellt minna og minna um gang mála, heldur fari allt fram eftir fyrirfram ákveönu kerfi. Einnig má segja aö oröiö „kerfi”, hafi i daglegu tali fengiö svipaöa merk- ingu og Bureaucracy á erlendum tungum. Meö kerfi eiga menn þá viö hinar margbrotnu þjóöstofn- anir sem almenningur þarf aö leita til og stendur oft hjálpar- vana gagnvart. Skrifræöi sagöi Ólafur Ragnar vera bæöi gamalt og nýtt fyrir- bæri, sem ætti rætur aö rekja til embættiskerfis konunga og keis- ara á fyrri öldum. Þjóökerfi Mandarlnanna I Kina mætti taka sem sögulegt dæmi um skrifræöi og kaþólsku kirkjuna. En fyrst og fremst væri skrifræöiö afsprengi iönvæöingar og stjórnsýslu- byltingar á Vesturlöndum á siö- ustu hundraö til tvö hundruö árum. Kemur í veg fyrir að per- sónulegir hleypidómar starfsmanna ráði ferðinni „Skrifræöi er mjög flókiö fyrir- bæri, fullt af alls konar þversögn- um og er til i mismunandi mynd- um”, sagöi Ólafur Ragnar enn fremur. „Þýski félagsfræöingur- inn Max Weber sem er einn af brautryöjendunum I rannsóknum á skrifræöi setti fram lýsingu á hreinræktuöu skrifræöi, sem meöal annars felst i þvi aö sam- skipti starfsmanna innan stofn- ananna og viö þá sem til þeirra leita eru i mjög föstum skoröum. Abyrgöinni er skipt eftir ákveön- um reglum og valdsvið hvers og eins er itarlega skilgreint. Framabrautir starfsmanna eru ákveönar eftir hæfni og i heild er starfiö aögreint frá starfsmann- inum ef svo má oröa þaö, þ.e.a.s. aö persónulegt mat, hleypidómar eöa óskhyggja starfsmannsins á ekki aö hafa nein áhrif á á- kvaröanatöku, heldur eingöngu lögmál kerfisins eins og þaö er skilgreint. Sumir hafa sagt aö þetta veröi aö teljast til kosta skrifræðisins. Aö þaö séu reglum- ar sem eigi aö ráöa en ekki geöþóttaákvaröanir starfs- manna. Þetta hafi I för meö sér aö allir eigi aö vera jafnir gagnvart stofnununum, bæöi jafnir til vegs og áhrifa innan stofnananna og eins eigi hver og einn sem leitar til þeirra aö fá sams konar þjón- ustu. Þess vegna eigi regluveldiö eöa skrifræöiö aö draga úr alls konar klikustarfsemi og koma i veg fyrir aö verið sé aö hygla mönnum vegna persónulegra sambanda”. Menn kunna misjafnlega vel á kerfið Ein islensk stofnun sem mjög skýrt lýtur lögmálum regluveldis eöa skrifræöis er Tryggingastofn- un Rikisins. Guörún Helgadóttir alþingismaöur vann lengi viö þá stofnun og Helgarpósturinn sneri sér til hennar og spuröi hana álits á skrifræöinu og þvi hvort allir sem á náöir kerfisins leituöu heföu þar jafna möguleika. „Vitanlega er skrifræöi nauösyn- legtþar sem um er aö ræöa fram- kvæmd á lögum landsins”, sagöi Guörún. „Og vitaskuld eiga allir aö hljóta sömu meöferö fyrir lög- unum. Hitt er annaö mál aö ég er sannfærö um þaö aö þaö er langt i frá aö allir hljóti sömu meðferö I þessu kerfi, þrátt fyrir allt skrif- ræöi. Fyrst og fremst vegna þess aö fólk kann misjafnlega vel á kerfiö. Þess vegna er öll upp- lýsingastarfsemi nauösynleg til þess aö kerfiö virki eins og þvi er ætlaö aö gera. Þaö þyrfti aö byrja á aö upplýsa fólk strax i bernsku um réttindi þess og skyldur”. Að nota aðstöðu sína/ sér og sínum til framdráttar ,,Ég hef séö alltof mikiö af fólki sem kerfiö hefur hreinlega niöst á,” hélt Guörún áfram. „Fólki sem er hent út á kaldan klaka með svariö „Þaö er ekki hér”, á bakinu og veit ekkert hvert þaö á aö snúa sér. Þetta gerist ekki vegna galla i kerfinu heldur vegna hugsunarleysis starfs- fólksins. Ég varö fyrir þvl I minu starfi aö til min leitaöi fólk sem var hrætt. Sem haföi búist við aö hitta fyrir hrokagikk sem sæti þarna og passaöi aö þaö fengi sem allra minnsta fyrirgreiöslu. Og þaö segir sina sögu um á- standiö. Opinberir starfsmenn veröa aö gera sér grein fyrir aö þeir eru þjónar fólksins i landinu. Þaö eru til starfsmenn I kerfinu sem ættu ekkert aö vera þar. Fólk sem notar aöstööu sina, sér og sinum pótentátum til framdrátt- ar. En þaö er aö vlsu undantekn- ing fremur en regla”. „Mér finnst þaö vel hugsanlegt aö reka skrifræöiskerfi á manneskjulegan hátt”, sagöi Guörún aö lokum, „hvort þaö

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.