Helgarpósturinn - 18.07.1980, Qupperneq 15
15
---helgarpósturinn F°s-~dagur 18-iúlí 1980
kliibb, skipin vi6 höfnina og aftur
heim.
Þama var lika töluvert svæBis-
bundið atvinnuleysi, þar sem fólk
eygði enga möguleika. Þetta
möguleikaleysi var oröið land-
lægt. Viö töluðum t.d. þarna við
ung h jón, sem áttu einn krakka og
bjuggu uppi á efstalofti. Það var
gati gólfinu, þar sem þau sáu inn
i íbUðina fyrir neðan. „Sjáið þið
hvað viö eigum bágt”, sagöi
hann. ,,Sá sem á Ibúðina gerir
ekki viö þetta”. Flestir Islend-
ingar heföu fariö út á horn og
keypt krossviöarplötu og neglt
yfir gatiö.
Þegar églauk námi I skipulags-
málum, ætlaöi ég aö fara aö vinna
i þróunarlöndunum og var búinn
að ráöa mig til Afriku. Eg kom
hingaö til aö kveöja og talaöi m.a.
viö skipulagsstjóra rikisins, sem
sagöi, aö það væri nú aumingja-
skapur aö vera búinn aö læra
skipulagsfræði og fara svo til
Afriku. Hann stakk upp á þvi viö
mig, aö ég tæki aö mér aö skipu-
leggja byggö á Selfossi og á end-
anum sló ég til. Selfyssingar tóku
.þessu mjög vel og viö héldum þar
almennan borgarafund um
skipulagsmál, sem ég held aö hafi
verið sá fyrsti sinnar tegundar.
Eftir þetta skipulögöum viö
Akureyri, Hverageröi, Hellu og
fleiri bæi.”
Bopgin er lœhi
—Teluiðu Reykjavik vera vel
skipulagöa borg?
„Ef einstaklingarnir eru ham-
ingjusamir, ef þeim gengur vel aö
reka fyrirtæki og ef borgin full-
nægir þörfum og óskum fólks,
ætti þetta að vera nokkuö gott
skipulag. Borg er annars tæki,
sem viö höfum búiö til, eins og t.d.
myndavél eöa bfl. Ef viö tökum
likinguna meö bila, þá getur bill
veriö mismunandi fallegur, þægi-
legur, dýr eöa ódýr f rekstri, og
sama máli gegnir um þessa
byggö.
A höfuöborgarsvæöinu er ann-
ars nóg af ákjósanlegu landi til
ibúöabygginga, sem ekki hafa
veriðfundnar leiöir til aö nýta, og
þess vegna hefur verið byggt i
meira en hundraö metra hæð yfir
sjó, sem er heldur miöur heppi-
legur byggingarstaöur, ef ann-
arra kosta er völ.”
—Hvers vegna?
„Hitunarkostnaöur er aö ööru
jöfnu meiri, m.a. vegna minni
gróöurs, og þú þarft aö lyfta biln-
um þinum hærra upp i loftiö, ef þú
vinnur niöur viö sjávarmörk. Þá
er þar ekki eins gróöursælt. Ann-
ars errekstrarkostnaöur á svona
byggö alveggifurlegur. Þaö hefur
veriö áætlaö, að kostnaöurinn viö
einkabilismann á höfuöborgar-
svæöinu sé um 70-90 milljarðar á
ári.”
—En hvaö um menningarlegt
umhverfi?
„Ef þú ert aö tala um lifsfyll-
ingu, en ekki bara aö fara i vinnu
og heim aftur til aö horfa á sjón-
varpið, þá held ég aö þar vanti
ýmislegt. Þaö er t.d. oröiö mjög
dýrt og timafrekt aö sækja menn-
ingarstarfsemi. Þaö aö skiptast á
skoöunum er ógurlega mikilvægt,
og margt fólk á mjög takmarkaða
möguleika til skoöanaskipta og
þaö er erfitt fyrir fólk aö notfæra
sér þá möguleika, sem svæöiö
býöur upp á. Ef viö tölum um
kvenfólkiö sérstaklega, þá getur
umhverfiö auöveldaö eöa torveld-
aö þeim mjög verulega aö taka
þátt I þjóðlifinu til jafns viö karl-
menn.”
—Hvaö meö áhuga þinn á
pólitik?
„Maöur getur ekki búiö á
tslandi án þess að hafa áhuga á
stjórnmálum, en hins vegar hefur
mér gengiö mjög illa aö skilja
islenska pólitik, og ég held aö ég
sé ekki einn um þaö. Eg tel mig
annars vera frekar frjálslyndan
og umbótasinnaöan og ef ég hef
fundiö hljómgrunn fyrir þær
skoöanir frekar I einum stjórn-
málaflokki en öörum, þá er þaö
ekki mér aö kenna. Ég hef unn-
ið aö skipulagi meö fólki úr öll-
um flokkum og ég held, aö eftir
þvi sem ég eldist, falli mér best
viö þaö fólk, sem er umbótasinn-
aö og vill koma einhverju góöu til
leiöar og setur þaö ofar þröngum
flokkshagsmunum, fólk, sem þor-
ir aö hafa sjálfstæöar skoöanir,
en ég held aö þeir séu þvi miöur
allt of fáir. Annars veit ég ekki
nema aö þaö sé rétt hjá Thor
Vilhjálmssyni, þegar hann var aö
lýsa islensku þjóöfélagi nýlega,
sagöi aö þetta væri aö veröa eitt
allsherjar Hallaladderi.
Mér finnst eiginlega hvaö leiö-
inlegast, hvaö viö sem þjóö van-
rækjum uppeldi og menntun
Islenskra barna mikið, og ég held
aö þaö eigi eftir aö koma okkur i
koll seinna. A mörgum öörum
sviöum kemst fólk lika upp meö
ótrúlegustu hluti og fullyröingar,
sennilega vegna þess aö við erum
eyland. og skortir beinan, stööug-
an samanburö viö umheiminn.
Mér finnst sjálfsagt, að við berum
okkur stööugt saman viö aðrar
þjóöir og lærum eins mikiö af
þeim og viö getum. Þaö eru fáir,
og þaöan af siöur heil þjóö, fæddir
séni, heldur veröum viö aö vinna
aö þvi höröum höndum, sem við
erum og stöndum fyrir. Þegar ég
hugsa til baka, þá var þaö ákveö-
in tegund af hæfileikum, sem
islenska skólakerfiö hélt upp á,
eða þaö aö hafa gott minni, og þaö
var held ég metiö um of miöað viö
þaö aö hafa eitthvað nýtt. Svo
kemst maöur aö þvi siöar, hvaö
þessir sköpunarhæfileikar eru
mikils viröi — og vonandi er búiö
aö breyta skólakerfinu á þessu
sviði.”
Hræddir vio
sjália sig
—Er hægt aö binda þig viö ein-
hvern ákveöinn stjórnmálaflokk?
„Ég hef alltaf reynt aö mynda
mér sjálfur skoöun um hluti og
fyrirbrigði og hef trúaö litiö á ein-
falda þrætubókarmynd af þvi
hvernig hlutirnir eða þjóöfélagiö
sé eöa eigi aö vera.”
—Hvaö meinaröu meö þvi?
^Ég held aö þaö sé mjög var-
hugavert af ráöamönnum aö
ákveöa of mikiö fyrir fólk vegna
þess aö þeir álita aö þeir viti bet-
ur, bæöi vegna þess, aö þeir geta
haft á röngu aö standa og vegna
þess aö einstaklingarnir þekkja
yfirleitt best hvaö aö þeim snýr.
Ég held aö þaö sé heillavænlegra
aöhjálpa fólki til aö taka „góöar”
ákvaröanir, i staöinn fyrir aö
hafa vit fyrir þvi. Annars finnst
mér islensk stjórnmál stundum
sökkva niöur i svo mikla hyldýp-
islágkúru aö maöur veröur hálf-
feiminn viöaökenna sig viö þessa
þjóö. Gott dæmi um þetta er
afgreiösla útvarpsráös á
mynd inni „Dauöi
prinsessu” þar sem
stjórnmálamenn
allra flokka
heykjast á þvi
aö halda viö
ákvöröun sem þeir voru búnir aö
taka — ekki vegna þess aö þeim
hafi veriö hótaö, heldur vegna
þess aö þeir voru hræddir við
sjálfa sig. Þaö er veriö aö skjóta
fólkútumallanheim fyrir aö hafa
sannfæringu sem einhverjum lik-
ar ekki, en ég held aö ef viö vilj-
um vera eitthvaö annaö og meira
en feitir þrælar i sjálfra okkar
augum og augum umheimsins þá
veröum viö aö þora aö fylgja
þeirri sannfæringu, sem viö
höfum, eftir.”
—Þú varst annar þeiíra sem
komu á fót útimarkaðinum á
Lækjartorgi, hvaö vakti fyrir
ykkur?
„Útimarkaöurinn var nú fyrst
og fremst hugsaöur af okkur sem
skemmtiatriöi fyrir fólk. Viö
höföum veriö aö skipuleggja
gömul hverfi i Reykjavlk og þar
voru nokkrir þættir aö okkar mati
augljósir, þótt um þá væru skipt-
ar skoðanireins og gengur. Viö
töldum okkur vita aðþaövantaöi
tvær tegundir af verslun i
Reykjavik, — annars vegar mjög
ódýra verslun, eins og flóamark-
aö þvi viö vissum, aö þaö var
fulltaf alls konar drasli oghlutum
uppiá háalofti hjá fólki. Hins veg-
ar vantar hér enn sérverslun meö
mjög góöar og finar vörur. Viö
ákváöum I hálfgeröu briarii aö
gera tilraun meö útimarkaö og
slepptum þvi að fara I sumarfri,
og notuöum peningana til aö
koma markaðinum upp, og hefur
hann gengið bara sæmilega.”
— Nú hefur þú unnið mikiö fyrir
Reykjavikurborg og ert nú oröinn
forstööumaöur fyrir þessari
Skipulagsstofu höfuöborgarsvæö-
isins. Ertu kannski þrátt fyrir allt
bara kerfisarkitekt?
„Ég hef nú ekki hugsað mér aö
veröa ellidauöur i þessu starfi,
þótt ég hafl tekiö aö mér aO
byggja þessa stofu upp. Þetta er
fyrsti visirinn aö verulegu átaki i
samvinnu þessara átta sveitar-
félaga á höfuöborgarsvæöinu, og
ef opinberir aöilar vilja ráöast í
svona þarfaverk, þá finnst mér
maður skulda þjóöfélaginu þaö að
gefa kost á sér, þó ég græddi ef-
laust meira fé á þvi aö vera meö
skrifstofu út i bæ. Auk þess litur
höfuöborgarsvæöiö allt ööru visi
út ef maður hugsar um þaö i
heild, heldur en ef maöur reynir
aö leysa öll vandamál innan
hvers sveitarfélags fyrir sig. Ég
held lika, aö ef þetta samstarf
sveitarfélaganna i skipulagsmál-
um tekst, geti þaö leitt til mikils
ávinnings fyrir alla ibúa þessa
svæöis.”
—Þú þarft ekkert aö bakka með
þínar hugmyndir?
„Ég held aö þaö sé mun far-
sælla aö reyna aö semja viö fólk
heldur en berja sinum hugmynd-
um eöa vilja upp á þaö, hvort sem
þaö er i hjónabandinu eöa dag-
lega lifinu. Ég trúi aö minnsta
kosti á aö reyna fyrst aö telja
fólki hughvarf. Annars er þaö
mjög mikilvægt I allri skipulags-
vinnu eins og reyndar i lifinu aö
vera ekki svo háöur neinum aö
maöur hætti aö þora aö hafa sjálf-
stæöa skoðun. Ég vona aö ég eigi
þaö ekki eftir.”
Gestur ðiaisson, arkiieki
r ntigarpðslsvlðiail