Helgarpósturinn - 16.01.1981, Page 9
9
—helgarpásturinn
Föstudagur 16. janúar 1981
Byssan og jörðin geyma best
Við vorum óaðskiljanlegir
vinir. Þó var þetta ekki áður en
kapitalisminn var fundinn upp
og heiðarleg vinátta afnumin,
eins og Kristinn E. lýsti i Nýjum
augum.Ogvið vorum komnir úr
mútum, þ.e.a.s. farnir að
syngja i karlakór.
Þá var það einn daginn að
hann kom til min með brenn-
andi spurningu á vörum: ,,Hef-
urður heyrt Yesterday? — Við
getum fengið það útsett fyrir
kórinn ef við komum með það á
nótum.” — Jú, ég hafði heyrt
þetta lag, þvi einhvern veginn
tókst bróður minum á óvið-
ráðanlega aldrinum að komast
yfir lög'bitlanna um leið og þau
fóru á flot. Og þetta notalega lagi
átti hann annað hvort á spólu
eða plötu.
Nú veit ég ekki hvort lesendur
geta gert sér i hugarlund
hvernig það fer fram ef tveir
vinir liggja á gólfinu fyrir fram-
an plötuspilara eða segulbands-
tæki með nótnapappir fyrir
framan sig og ætla að skrifa upp
melódiu. Báðir þekkja þeir nót-
ur á strengjum en hvorugur
kann undirstöðuatriði tónfræði.
Það voru kostulegar stundir. En
eins og oft bæði fyrr og siðar
leysti Jón Ásgeirsson vandann.
Hann samdi að sönnu hvorki
óperu né ballett i það skiptið. En
hann útsetti Yesterday fyrir
skólakór sinn, og þar með var
málið leyst: Við vorum of aftar-
lega á merinni. Stúdentakór
Jóns Þórarinssonar söng aldrei
Yesterday, þetta hugljúfa og
merkilega lag hans Páls bitils.
Þetta var á velmektardögum
bitlanna og það var ekki fyrr en
löngu seinna sem ég skildi að
þeir höfðu skipt heila kynslóð
verulegu máli: kynslóð mina.
Vissulega höfðu þeir birst eins
og uppreisnargjarnir strákar
eru vanir: á móti öllu. Meira að
segja á móti skólastjóranum
sem skipaði þeim að láta
klippa sig. En þeir létu ekki
klippa sig. Sjálfur var ég á leið
inn i menntamarinaelitu lands-
ins (meira að segja gegnum
LÆRÐA skólann) og lét ekki
pilta frá Liverpool rugla mig i
riminu — vel upp alinn ungling-
inn. En skömmu siðar var sam-
timinn orðinn yfirþyrmandi. Ég
var sjálfur kominn i uppreisn.
Kannski sást hún varla. Gat
jafnvel verið i þvi einu fólgin að
ganga i peysu i stað jakka eða
þá með heimahnýtta þverslaufu
i stað bindis. En seinna varö
mér ljóst að jafnvel svona smá-
vægilega uppreisn hefði maður
ekki gert ef ekki hefðu áður ver-
ið komnir piltar og stúlkur eins
og piltarnir f jórir frá Liverpool.
Vitanlega breytti enginn einn
atburður gangi heimssögunnar.
Vitanlega var bitlaæðið svokall-
aða einungis eitt af mörgu. En
árið 1968 var að nálgast og eftir
á er auðvelt að sjá að fyrr höfðu
ýmsar blikur verið á lofti.
Það fer ekki hjá þvi þetta rif j-
ist upp fyrir miðaldra manni nú
þegar einn piltanna hefur fallið
fyrir byssukúlu brjálæðings. Ég
vona i það minnsta hann hafi
verið brjálæðingur, ekki maður
sem skildi að John Ono Lennon
var hættulegur ráðandi aftur-
haldsöflum. Ég vona hann hafi
ekki verið likamningur þeirrar
hugmyndar sem segir að byssan
og jörðin geymi best. — Eitt
Vesturheimsskot — og nöfnin
raðast upp: Lincoln — Kennedy
— King — Kennedy — Lennon —
svo ekki séu nefndir allir hinir,
karlar og konur, sem orðið hafa
að lúta fyrir nefndri kenningu.
— Hver veit nema Rónaldi þyki
enn ástæða til að senda vinum
sinum Chesterfield i jólagjöf á
næstu jólum?
En svo ris upp maður og
skrifar heilsiðugrein i helgar-
blað Visis, undirritar hana i
Sviþjóð og segir að reyndar hafi
bitlarnir alltaf verið að segja
það sama: EKKI NEITT! — Ef
ég vissi ekki að i Sviþjóð er hægt
að læra einhvern allraversta
Marxisma og útvatnaðasta sem
um getur, en þjóðin er að flestu
samt fremri öðrum evrópskum,
þá kynni ég að taka undir með
islensku svarthausunum. En ég
þykist skilja. Og ég er orðinn
nógu gamall maður til að hrista
hausinn og segja: Svona leikur
Saga okkur. Þó svo engum detti
i hug að halda þvi fram að
bitlarnir hafi sagt eitthvað sem
breytti gangi hennar, er þó jafn-
fjarri sanni að hengja það allt
saman á snagann hennar
Nostalgiu og kalla þaö karla-
raup. Ef ekki hefðu komið til
þessir fjórir piltar frá Liverpool
hefði visast eitthvaö annað
gerst. En það voru nú einu sinni
þeir sem blésu á hornið eða létu
strengina gjalla. Og þaö var
John sem sýndi okkur að maður
átti að taka afstöðu — m .a. gegn
Vietnamstriðinu. Það var hann
sem lýsti frati á hernaðarbrölt
og mannvigastefnu en heimtaði
friðnum og ástinni rétt. Að kalla
það nostalgiu að minnast þess
er svik við alla mannúðarstefnu
og dapurlegur misskilningur á
samtiðinni.
— HP.
Heimir Pálsson — Hraf n Gunnlaugsson — Jónas Jónasson — Magnea J. Matthías-
dóttir — Páll Heiðar Jónsson — Sigurður A. Magnússon — Þráinn Bertelsson
Hringborðið
I dag skrifar Heimir Pálsson
með greitt fyrir mannaskiptum á
þeirri tegund samninga?”.
Áður en ég svara er rétt að taka
fram að ég er ekki lengur i stjórn
FIL og get þvi aðeins svarað fyrir
mig sjálfan, þó geri ég ráð fyrir
að skoðanir minar og stjórnar-
innar fari saman i þessu máli. Þá
vilég vekja athygli á að i spurn-
ingu Jóns Viðars kemur fram sú
skoðunhans að uppsagnarákvæö-
in komi i veg fyrir mannaskipti i
leikhúsinu. Hann vék sér hins
vegar undan að rökstyðja fyrri
hefur félagið aldrei haft afskipti
af uppsögnum nema þegar ekki
hefur verið rétt að þeim staðið.
Þvi er stundum haldið fram að
uppsagnarfresturinn sé of langur
vegna þess að leikhús geti ekki
skipulagtstarfsemi sina svo langt
fram i timann að vitað sé með sex
mánaða fyrirvara hvaöa leikara
verður þörf fyrir 'á næsta leikári.
Þetta eru haldlaus rök vegna þess
að uppsagnarfrestinn er aldrei
hægt að miða við það hvenær
vitað er um nýtingu leikaranna á
Leikarasamningar hindra
ekki mannaskipti leikhúsa
Enn virðist ætla að teygjast tal
okkar Jóns Viðars Jónssonar um
samningamál leikara viö at-
vinnuleikhús. Með þessari um-
ræðu erum við komnir nokkuð frá
upphaflegu umræðuefni Jóns Við-
ars sem var listræn stefna Þjóð-
leikhússins sem hann taldi ekki
nógu góða. Upphaflega kenndi
hann Þjóðleikhdsst jóra um
meinta óáran en þegar Þjóðleik-
hússtjórisvaraði fyrir sig dró Jón
Viðar I land og reyndi að koma
sökinni á samninga leikara við
leikhúsið. Af þvi tilefni beindi ég
til Jóns Viðars þrem spurningum
um þau mál sem hann vék sér
undan að svara.
Nú hefur Jón Viðar snúið vörn i
sókn og leggur fyrir mig að svara
spurningu þó mínum spurningum
sé enn ósvarað. Ekki ber þetta
vott mikilli sanngirni en ég mun
ekki erfa það við hann og skal
eiga svör hans inni til betri tima.
Ég mun ekki vikja mér undan að
reyna að svara spurningunni
enda geröi ég mér ljóst þegar ég
fór aðblanda mér I umræðuna að
ég gæti þurft að styðja mál mitt
rökum.
Spuming Jóns Viðars er svo-
hljóðandi: ,,A hvaða forsendum
hefur Félag islenskra leikara
hafnaöósk Þjóðleikhússins um að
uppsagnarfrestur leikara á B-
samningi verði styttur og þar
fullyrðingar sinar um þetta eins
og fyrr segir.
Og nú kemur svarið: Forsenda
þess að ekki hefur verið fallist á
að stytta uppsagnarfrestinn er
m.a. sú að hann er ekki of langur
að mati þeirra sem með samn-
ingamálin fara fyrir hönd félags-
ins. Ennfremur er það mat sömu
aðila að uppsagnarfresturinn tor-
veldi ekki að mannaskipti geti átt
sér stað.
Lengd uppsagnarfrests er að
sjálfsögðu alltaf matsatriði og
getur verið mismunandi eftir
starfsgreinum hvað telst eðli-
legur uppsagnarfrestur. Til-
gangur uppsagnarfrestsins er
hins vegar öllum ljós þ.e. að gefa
starfsmanni og atvinnurekanda
umþóttunartima vegna breyttra
aðstæðna sem af uppsögnum geta
leitt. Eðlilegt er að uppsagnar-
frestur leikara sé i lengra lagi
vegna þess hve sérstætt starfið er
og atvinnutækifæri fá.
Með sex mánaða uppsagnar-
fresti er reynt að tryggja leikur-
um öryggi i starfi sinu og þá er átt
við að þeir geti með nokkru
öryggi vitað um stööu sina á at-
vinnumarkaöinum með sæmileg-
um fyrirvara en ekki að tryggja
að þeim verði ekki sagt upp. Það
hefur aldrei verið ætlun FIL að
torvelda leikhúsum að gera
breytingará leikarahópnum enda
næsta leikári. Reynslan sýnir að
yfirleitt er ekki einu sinni vitað
við upphaf leikárs hvaö hver leik-
ari á að gera á leikárinu og
verður oft ekki ljóst fyrr en á
miðju leikári, I verstu tilvikum
ekkifyrren i lok leikársins. Þetta
geta þeir lausráðnu leikara
vitnað um sem falast hafa eftir
vinnu i leikhúsum og leikhússtjóri
ekki einu sinni getaö svarað þeim
hvort þeim sé ætlað verkefni i
leikriti sem á að fara i æfingu
innan fárra daga.
1 framhaldi af þessu má nefna
að það hefur verið yfirlýstur til-
gangur þessa langa uppsagnar-
frests að knýja á leikhúsin um
skipulagningu lengra fram i tim-
ann en verið hefur. Þess sjást þó
harla litil merki að þessi viðleitni
muni bera árangur, og varla von
til þess. Leikhús ákveður nefni-
lega i fæstum tilfellum uppsagnir
og ráðningar með hliðsjón af þvi
hvernig leikarar muni nýtast á
næsta ári eingöngu. Miklu fremur
ræðst ákvcýðun leikhússins af þvi
hvernig þeir hafa nýst leikhúsinu
á undangengnum leikárum og
hvernig útlit er fyrir að þeir muni
nýtast til frambúðar.
Möguleikinn til uppsagna og
mannaskipta er vissulega fyrir
hendi, það er hins vegar fram-
kvæmdaratriði og háö ákvörðun
leikhússtjórna hvort og hvernig
VETTVANGUR
NdurfaieMnUm' ~ f>rt •• 0 ÞW
'e.khusld er strtr s,ofnun
• vofum.-íghefh^ mj*
iui h 3 n-V"nt!u -1 slarfs-
'i Nm Þ s<>m skipulag
' limann virilis, vcra S
Srotakennt. w-ssir
mulaS; Þeir sem nu raou
úinni i Þjóftleikhtisinu viröast
s vegar hafa gefió upp alla von
, só aft nálgast þessi
rkmift og lata hji —’
!)nn ‘ -
• Clf
VANGUF,
iftbrógftum ellausi su.'^n^Tn,,
alvktir eru hvorki óhugsandi
lonsson. leikhúsfra ftingur. „
ihaldi aí þcim viftbrögftum
•ns i utvarpinu heíur fengift.
ft
u.
h
>ta
in t
inb
til .
ngir
leikhuss
-—rr
su
...»
wúsmannl
' virhrs>
h'?,lu pjóMHkh
ahlla r,.m 1 w
Þj041" urió 0
mein v»ó
Spurn-
•ngar...
SV'
islensk ^'’sam
l>anntg
óratuí
sektari
þjóft'*'
scis iari
Þjóólei, -,iva
11 ,aS r V "'
ístræna
)óta ver ...... ..
lann hefi h.s *•■ SVOr
þpaódr-^.f úareóu.,
»n
t tilcfnj af ,,r ■
•tnnssonar ^ < ln Jóns vi*__
Jf*!*1"* '-’ dev : !'anRi Helftar!
Jónssoij
,föræ»t uni
?raf"sem ha„
^ förna til a,
■Samt virðist
rg»- a.m.k
halda Þeirri
úonuni tilupp
,sem kynnu uT
Þusanna k veö.
a6.e,iis einn t
eekstur „K J
“mia Sja|fra ,
v»ft sogu
sá möguleiki er nýttur. Það að
mannaskipti hafa verið fátiðari
en Jóni Viðari likar á sér aðrar
orsakir og fullyrðingar um að þar
sé samningum leikara um að
kenna eru einber fyrirsláttur.
Það sannast best á því að þrátt
fyrir sex mánaða uppsagnarfrest
hefur leikurum verið sagt upp
störfum og aðrir ráðnir i þeirra
stað. Minna má á að Þjóðleik-
húsið sagði upp tveim leikurum i
hitteðfyrra og réði aðra i staðinn.
Þá hefur Leikfélag Akureyrar
tvivegis sagt upp öllum leikurum
sinum og ýmist endurráðið þá eða
ráðið nýja.
Fleira mætti tina til sem styður
þá afstöðu FIL aö vilja ekki stytta
uppsagnarfrestinn á B-samningii
Þjóðleikhúsinu en ég læt þetta
duga i bili. Vona ég nú að málið
hafi skýrst fyrir Jóni Viðari og
hann sjái að þetta ákvæöi i samn-
ingum leikara er dcki orsök þess
sem honum finnst vera að i at-
vinnuleikhús un um.
P.S.
Jón Viðar segir aö ég brigsli
honum um aðtala af vanþekkingu
um samningamál leikára og verð
ég að gera athugasemd viö það.
Ég hef e.t.v. ekki tjáö mig nógu
skýrt í siðustu grein minni en
meining mln var sú að brigsla
Jóni Viðari um að tala af van-
þekkingu um öll innri mál at-
vinnuleikhúsanna, ekki bara
samningamálin.
Sigurður Karlsson leikari.