Helgarpósturinn - 20.03.1981, Síða 9

Helgarpósturinn - 20.03.1981, Síða 9
Jielgarpásturinn Föstudagur 20. mars 1981. Leglausir og brjóstalausir læknar ógurlega er ég eitthvað tóm i kollinum i dag. Það verða engir rjiikandi réttir, sem ég ber fram á Hringborði þessu sinni. En það er vist of seint að hringja i þá Helgarpósta og bera ein- hverju við, svo maður verður vist að reyna að sjóða eitthvað saman. Mér datt fyrst i hug veðrið. Það er búið að vera svo andskoti leiðinlegt uppá sið- kastið, næðingur, slydda, frost, rigning, snjór, rok og fleira af þvi taginu, allt i bland. Enda kenni ég þvi' hiklaust um and- leysi mitt og fannst tilvalið að velja veðurguðunum nokkur hressileg hrakyrði svona rétttil að létta á sálartetrinu. En svo skein sólin framani mig þegar ég vaknaði i morgun... Þessi árstimi er nú ekki bein- linis upplifgandi heldur. Manni liður hálfpartinn einsog óléttri konu á siðasta mánuði að biða eftir að fæða, nema hvað fæð- ingin i þessu tilviki er vist vorið. Og langt i það enn. Mér finnst þetta sinnuleysi lika einkenna allt og alla—það er einhvern veginn einsog enginn geti fest hugann við neitt, hvað þá fundið umræðuefni af viti. t minum kunningjahópi er tilaðmynda einna helst rætt um hina að- skiljanlegu megrunarkúra og vonlausa baráttu við auka- kilóin, en þeim er sá eiginleiki gefinn, að þau koma aftur og aftur og aftur... Kannski er þaö bara af hungri, að kunningjar minir eru svona daufir i dálk- inn. En varla getur islenska þjóðin öll verið i megrun? Nei, það hlýtur að vera tiðin. Ég vil að minnsta kosti kenna skammdegisdoða um við- bragðaleysi almennings I ýms- um málum. Einhverntima hefði einhver fundið hjá sér þörf að úttala sig um „Stattu þig strákur”. Einhverntima hefði einhver skrifað Velvakanda útaf greininni „Barnsfæðing”, sem birtist i Mogganum um daginn og var hroðaleg lýsing á þvi, hvernig sprenglærðir sér- fræðingar geta komist upp með að meðhöndla fæðandi konu á fullkomnustu fæðingardeild landsins. Bæði móöir og barn voru stórlega sködduð þegar fæðingin var yfirstaðin og tiu (minnir mig þeir hafi verið, kannski fleiri) sérfræðingar sáu þess engin merki að neitt hafi verið óeðlilegt við það. En þeir hafa auðvitað ekki fætt börn og finnst sjálfsagt eðlilegt að vera með hrfðir i marga sólarhringa. Landlæknir gerði dulitla at- hugasemd, sagði málið „leiðin- legt” og fann þau helst rök að bakka sérfræðingahópinn upp, að ungbarnadauði væri svo lágur á Islandi. Það var nú in- dælt. Ég er viss um að móðúrog barni hefur bráðbatnaö við að heyra það. Forstöðumaður fæð- ingardeildarinnar tjáði sig sömuleiðis um þettaatvik, sagði ekki nema eðlilegt að útkoman hafi verið svona og notaði kær- komið tækifæri til aö benda kon- um á að fæða hvergi nema á fæðingardeildum. Persónulega ætla ég að endurskoða afstöðu mina til þess. Umrædd kona hafði nefnilega reynt tvær: eina úti á landi, þar sem fæðingar- laáeni fannst ástæða til að senda hana i' Reykjavik og fullkomn- ari tæki, og svo fæðingardeild Landspitalans. Hún græddi vist ekki mikið á þeirri reisu. Auðvitað er það afskaplega einfalt fyrir svo sérmenntaða menn sem læknar eru að standa saman og bakka hver annan upp. Hvaða leikmaður getur með góðu móti staðiö uppi hár- inu á þeim og fullyrt að þeim hafi orðið á i starfi? Þeir eru trúlega ekki margir sem hafa nægilega þekkingu til þess. Svo „Læknamafian” sér um sina. Það eru lika fjöldamörg dæmi um virðingarleysi lækna, og þá ekki sist kvenlækna, fyrir sjúkl- ingum. Hvernig eiga blessaðir mennirnir lika að vita það hvernig er að vera i kven- mannsskrokki? Þeir eru flestir karlmenn, leglausir og brjósta- lausir og geta i besta falli til- einkað sér fræöin og verklega tækni en enga reynslu af sjúk- dómunum. Það er raunar furðu- legt, að ekki skuli fleiri kven- læknar (og þá meina ég kven- kyns) leggja stund á kvensjúk- dómafræði. — Einhverntima þegar ég lýsti yfir þessari furðu minni var mér sagt, að slikt stafaði af þvi að konur treystu ekki öðrum kvenmönnum við þess háttar lækningar. Það hefur sjálfsagt verið byggt á sömu sálarfræðinni og ónefndur læknir trúöi á þegar ég leitaði til hans við tiðaverkjum. Hann fræddi mig á þvi að ég vildi ekki vera kona og þarafleiðandi hefði ég þessa hysterisku verki. Blessaður! Kannski hann hafi verið að rifja upp Freudinn sinn,—-Eöa færibandavinnan i mæðraskoðun heilsuverndar- stöðvarinnarhérna i Reykjavik. Hún er nú eitt gloriust dæmi um þá sannfæringu læknastéttar- innar að kvenfólk sé annað tveggja: sálarlausir hlutir eða slefandi vanvitar, sem komi (þarafleiðandi) hreinlega ekk- ert við hvað gerist innra með þeim. Flestum er ekki hægt að óska annars en að endurfæðast einhverstaðar á afskekktum jarðarparti i kvenmannsliki og þekkja engar getnaöarvarnir. Sumsé: sem meiriháttar barna- maskinur og útungunarvélar. Jæja, bökkum nú. Þeir eru auðvitað ekki allir jafnslæmir, karlagreyin. Sumir meira að segja nokkuð góðir. Og einstaka hefur meiraaðsegja Imynd- unarafl og getur gert sér i hugarlund hvernig kvenna- kvijlar lýsa sér. Það er þvi ef til vill ennþá hrikalegra, að slfk at- vik geti gerst sem ég las um i „Barnsfæðingu”. Agætur kunningi minn sagði við mig um daginn, að Islend- ingum væri andskotans sama um allt nema sjálfa sig og auk þess væru þeir svo lægir undir yfirvaldið, aö manni hlyti að of- bjóða. Ég gat ekki einu sinni andmælthonum meö góöri sam- visku. Þetta er nefnilega að svo stóru leyti satt. Ef það er titlað, þá skriðum við. Læknir, lögga, lögmaður — nefndu það og við missum allanuppburð og föllum flöt á vambimar. Merkilegur andskoti. — Kannski þetta sé þá ekki skammdegisdoði eftir allt saman? Heimir Pálsson— Hrafn Gunnlaugsson — Jónas Jónasson — Magnea J. Matthías- dóttir — Páll Heiðar Jónsson — Sigurður A. Magnússon — Þráinn Berfelsson Hringborðið I dag skrifar AAagnea J. AAatthiasdóttir Kvenleg fegurö og fjárhættuspil Arósum 3. mars Jæja, þá er Vigdis komin og farin, búin að leggja dönsku þjóð- ina að fótum sér. — Sjarmerandi var helsta lýsingarorðið sem notað var um hana i blööum og öðrum fjölmiðlum. Vinnufélagar hennar Asu á póstinum áttu vart orð yfir það hve falleg hún væri. Það kom þvi ekki á óvart, að annað siðdegisblaðanna skyldi spyrja Vigdisi að þvi, á frægum blaðamannafundi hennar og Möggu hvort það væri ekki betra fyrir konur i pólitik að hafa útlitið gæta meðal Þjóðverja, Svia og ef- laust viðar. Én þeir visu tölfræð- ingar höfðu ekki búist við þvi að fækkunar færi að gæta hér i landi fyrr en um miðjan næsta áratug. Þessi þróuner þvi fjórtán árum á undan tlmanum. Og nú er mikið rætt og ritað um það, hvað valdi þessu. Ein kenn- ing kom fram um daginn býsna athyglisverð. Læknir nokkur hélt þvi fram að atvinnuleysið ætti þátt I aukinni tiðni dauðsfalla. Hann vitnaði til ameriskrar rann- sóknar sem leiddi i ljós að fyrir hverja 25 þúsund atvinnuleys- með sér. Vigdis sneri laglega á pressuna meö þvi aö segja, að hún efaðist ekki um að viðstaddir blaðamenn væru henni sammála i þvi að allar konur séu fallegar. En það sem ég held að hafi komið Dönum einna mest á óvart var að manneskja sem hefur fengið það litt öfundsverða hlut- skipti að vera samnefnari þjóðar skuli geta talað blátt áfram um veraldlega hluti eins og stöðu kvenna. Ekki þannig að allt hafi verið jafn gáfulegt sem blessaður forsetinn lét sér um munn fara. Nei, en hér i Evrópu eru menn orðnir þvi vanir að fólk I svo há- um embættum sé svo rigbundið i báða skó að það geti ekkert látið út úr sér nema innihaldslaus faguryrði sem engu máli skipta. En látum Vigisi liggja milli hluta. Einn daginn i siöustu viku vaknaði danska þjóðin upp við vondan draum: Tölfræðin sýndi aö Danireru hættir að fjölga sér. Dauðsföll eru orðin fleiri en fæð- ingar. Þetta er að visu ekki neitt einsdæmi meöal rikra iönaðar- þjóða, sömu þróunar er tekið að ingja hækkaði tiðni dauösfalla um 1.000 á ári. Samkvæmt þessu ætti núverandi atvinnuleysi að fjölga dauðsföllum um 10.000 á ári hér i Danmörku. Skýringin á þessum tengslum atvinnuleysis og fjölgunar dauðs- falla er sú aö sögn læknisins, að atvinnuleysið brýtur menn niður andlega og líkamlega. Afbrotum og sjálfsmorðum fjölgar og menn hreinlega dragast upp og deyja þegarþeir upplifa tilgangsleysið i tilverunni. Hann sagðist hafa horft upp á slikt eigin augum. Mér verður tiðrætt um atvinnu- leysið I þessum Danmerkur- pistlum minum. Þaö er ekki undarlegt þvi hér getur þú varla opnað blað eða kveikt á útvarpi eða sjónvarpi án þess aö rekast á þessa vofu. Ég sagði I einum pistlanna að hægt væri að leika sér með tölur um atvinnuleysi eins og aðrar tölur. Það hefur nú sannast ansi rækilega. Atvinnumiðlunin hefur haft þann sið að birta vikulega tölur um fjölda atvinnulausra. Rétt fyrir jól var þvi hætt. Frá og með nýári var talningaraöferð- Draumur tipparans. inni breytt og hún færð nær raun- verulegum fjölda þeirra sem er ofaukið á vinnumarkaðnum. Fyrstu tölur eftir áramót hafa nú verið birtar og þá fékk danska þjóðin sjokk. Nú eru opinberar tölur um atvinnuleysið liðlega 270þúsund sem er mun hærra en áður var taliö. Samkvæmt þvi á Danmörk Evrópumet i atvinnu- leysi með 11.5% vinnufærra. Eneitthvað verðamenn að gera til að lyfta af sér drunganum og bjarga sér út úr vonleysinu. Og hvað er betra en veðmál og fjár- hættuspil, stóri vinningurinn gæti alltaf lent hjá þér og lyft þér upp yfir grámósku hversdagsleikans. Enda er tippað og veðjaö sem aldrei fyrr. 1 hverri viku slá fót- boltagetraunimar met I veltu og af öörum vigstöðvum veömál- anna berast sömu fregnir. I fyrra eyddu Danir rúmum miljarði króna i fótboltagetraunir, veð- hlaup oþh. og allt bendir til stór- aukinnar veltu i ár. Fótboltinn er vinsælastur en næst koma kappreiðar. Siðar- nefnda Iþróttin á sér hetjur ekki siöur en fótboltinn og sú frægast þeirra hét til skamms tima Tarok, glæsilegur brúnn sjö vetra foli. I janúar urðu aðdáendur kappreiða fyrir þvl reiðarslagi að Tarok fékk garnaflækju og lést. Siðdegisblöðin birtu risastórar myndir af folanum með sorgar- ramma utan um og i fleiri daga rikti þjóöarsorg á vertshúsum landsins. Eigandinn getur þó huggaö sig við þær þrjár miljónir króna sem þessi hlaupagikkur var búinn að hala inn handa honum með spani sinu út um allar þorpagrundir meginlandsins. Menn eru sammála um að kreppan hafi stóraukið áhuga Dana á þvi að freista gæfunriar á þennan hátt. Þvi miður nær töl- fræðin ekki ofan i reykjarkófiö i öllum þeim kjöllurum þar sem menn sitja sveittir að pókerspili. Þess vegna veit enginn hvort veltan eykst þar eða dregst saman. En eftir á að hyggja held ég að Islendingar séu engir eftirbátar Dana þótt ekki hrjái þá atvinnu- leysið. I það minnsta þekkist ekki hér allt það happdrættisfargan sem tröllriður islensku þjóðinni. A tslandi ertu varla maður með mönnum nema þú eigir happ- drættismiða, helst trompmiða, I einhverju þessara þriggja löglegu fjárhættuspila sem rekin eru.

x

Helgarpósturinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.