Helgarpósturinn - 03.04.1981, Side 6

Helgarpósturinn - 03.04.1981, Side 6
6 „Vores Rolls-Royce limousine afhenter Dem gerne i lufthavn- en”, auglýsir Lars Bang bila- kaupmaður i Grená á Jótlandi. Á islensku útleggst þaö á þá leið, aö viöskipta vinir Lars Bang, ÁutoBang, verði sóttir á Rolls- Royce á flugvöllinn, óski þeir eft- ir þvi. Á eina leigubílnum af Rolls-Royce gerð i Danmörku, og liklega i öllum heiminum. Þegar viöskiptavinurinn er kominn á bilasölu Bang á öster- brogade i Grená getur hann valiö á milli Alfa Romeo, Aston Martin, Daimler, Jaguar, Lamborghini, Lotus, Maserati, MG, Monteverdi, Morgan, Panther, Porsche, Sbarro, de Tomaso og vitanlega Rolls- Royce, nýrra og notaðra. Semsé dýrustu bilar heimsins, en inn á milli er þó að finna „venjulega” bila, bæði ameriska og evrópska. Nafnið AutoBang, sem er nafnið á bilasölu Lars Bang, er orðið aII þekkt i Danmörku, að minnstakosti meðal þeirra sem hafa áliuga á bilum, sérstaklega „klassiskum” og dýrum bilum. Og nú hcfur hróður þessa manns borist til islands með Rollsinum.^ og Lamborhini bilnum, sem hann lánaöi á bílasýninguna Auto ’81. Það var Jonna Bang, eigin- kona bilamannsins, sem opnaði, þegar blaðamaður Helgarpósts- Danski bílasalinn Lars ff AutoBang hefur alla Evrópu undir Lars Bang fannst það alveg upplagt, að hann og Jonna kona hans yrðu inynduð við elsta og „klassiskasta” bilinn sem fyrirfannst á bilastæð- inu við Hótel Loftleiðir, Volvo PV árgerð 1965. „A Grænlandi safnaði ég pen- ingum i fyrsta sinn. Þar borgar maður enga skatta, vinnur 15 timá á dag og eyöir engu. Þegar við komum til Danmerkur aftur lagðiégiminafyrstu fjárfestingu. Ég keypti land, skipti þvi niður i sumarhúsalóðir og seldi Dönum i Grænlandi, sem voru i vand- ræðum með hvað þeir ættu að gera við peningana. Ég fór til Grænlands um miðjan vetur, flaug milli bæjanna og sýndi fallegar sumarmyndir af lóðun- um i samkomuhúsunum, og það var létt verk að losna við þær”. Eftir lóðasöluna rak hvað annað. Lars Bang rak meðal annars þvottahús, fatahreinsun og veitingahús, en áhugamálið og fristundaiðjan var gamlir bilar, sem hann keypti, gerði upp og seldi aftur. Fyrsti billinn sem hann keypti var Jaguar E Mark 2 Coupé, og seinna keypti hann á einu bretti tvo Jagúara og einn Rolls-Royce Silver Shadow. Eftir það var tómstundagamanið orðið að aðalatvinnu. „Það er að sjálfsögðu hrein geðveiki að eiga svona bila, sem enginn hefur i rauninni þörf fyrir. En þetta er eins og hver annar listiðnaður — þetta er bilalist! Rafvirkinn sem kveikti á perunni: skiptir árgerðin ekki svo miklu máli. Ég kaupi oftast átta til tiu bila í einu og sendi þá heim á vöruflutningabilum Stundum eru þeir fleiri, allt upp í 20. Raunar hef ég umboð fyrir einni tegund. Það er Rolls-Royce, enda þýðir ekki að eiga fleiri bila i þeim verðflokki en örugglega er hægt að selja”. — Nú spyr ég i heimsku minni: Hvernig hefurðu efni á þessu? Þú hlýtur að vera forrikur. „Þú veist kannski hvernig það er með hunangsfluguna? Eftir vængjastæröinni miðað viö skrokkinn getur hún alls ekki flogið. En hún veit það ekki sjálf, þess vegna flýgur hún samt! Og hvernig er það ekki með ykkur ts- lendinga — það er eiginlega alveg óbúandi hérna, en samt gerið þið það, og lifið meira að segja góðu lifi”, segir Lars og hlær dátt. „Auðvitað á ég allt of marga bila, ég timi aldrei að selja þá! Núna á ég 120 á lager og auk þess 15—20 einkabila, sem ég vil alls eftir Þorgrím Gestsson myndir Jim Smart og Þorri Hvers vegna skyldu menn ekki kaupa þá ef þeir hafa efni á þvi? Flestir ganga bara i venjulegum skyrtum, en sumir hafa ánægju af aðganga i skyrtum sem eru gerð- ar af listamönnum, og skera sig úr”, segir Lars Bang og bendir á, aö liklega sé Lamborghini billinn sem er á Auto '81 einn af þeim allra brjálæðislegustu. Fyrirtækiö AutoBang stundar kaup og sölu á nýjum og notuðum bilum, inn- og útflutning á toll- frjálsum bilum og það sem Danir kalla „leasing” upp á ensku. Það eru leigukaup á bilurn, svipað og tiðkast með flugvélar hér. Menn geta tekið bil á leigu til fjögurra ára og eignast hann siðan, en dregið leiguna frá skatti. Evrópa full af bilum „Ég flyt sjálfur inn alla þá bila sem ég sel, en ekki eftir venjuleg- um innflutningsleiðum. Evrópa er full af bilum, sem er hægt að fá keypta, og það á mun lægra verði en opinberir innflytjendur fá þá á. Stundum er um það að ræða, að bilasaiar hafa orðið gjaldþrota, og oft kemst ég i lagera af bilum frá árinu áður. Þá er erfitt að selja i Evrópu, en i Danmörku ekki láta. En það er auðvelt að fá lán niðri i Evrópu og vextir eru ekki nema sjö prósent. Svo hef ég orðið mér úti um allskonar við- skiptasambönd i gegnum bila- söluna. Þetta er nefnilega eins og hestaverslun. Ég skipti yfirleitt á þessum dýru bilum og hlutum sem ég get siðan auðveldlega selt aftur. Nýlega tók ég til dæmis tvo oliutanka og einn hraðbát fyrir tvo Jagúara. Heyrðu mig, Rolls- inn hérna á sýningunni er til sölu. Ég gæti hugsaö mér að selja hann fyrir lopajakka — eða málverk!” Rolls fyrir lopa! — Hvað kostar hann margar lopapeysur? „Tja, ég þyrfti að fá svona tvo til þrjá gáma”, segir Lars Bang, og þeir hjá Alafossi eiga næsta leik! En það er ekki heiglum hent að eiga viðskipti við hann, að minnstakosti ef sá gállinn er á honum. Hann hefur sjóast i bransanum meö þvi að eiga viðskipti við flesta hörðustu bissnessmenn Danmerkur. Sumir eru að visu áfjáðir i að kaupa og koma til Grená i þyrlum til að gera út um viðskiptin. En við aðra getur Lars þurft að slást i heilt ár áður en gengur saman. Það eru heldur engar smáræðis- upphæðir, sem um er að ræða. ins barði að dyrum á herbergi 334 á Hótel Loftleiðum um siðustu helgi. „Komdu innfyrir og fáðu þér sæti”, kallaði Lars með sinni drynjandi röddu úr sófanum, þar sem hann hafði fleygt sér útaf og sparkað af sér skónum. „Hvað viltu drekka? Þú sérð, að úrvalið er nóg”. Og þaö kemur tröllslegur hlátur úr úfnu, rauðu skegginu um leið og hann bendir á Campari og tvær tegundir af likjör.. sem standa á borðinu. örlitill dreitill af likjör i vatnsglasi verður fyrir valinu. Kveikti á perunni Þessi úfni og þéttholda Dani sem lifir og hrærist innan um heimsins dýrustu bíla hóf feril sinn sem rafvirki á Grænlandi, áriö 1963, en þar var hann ásamt Jonnu konu sinni næstu árin og lagði grunninn að þeirri vel- gengni sem gerði rikustu menn Danmerkur, og sjálfa drottn- inguna, að viðskiptavinum hans. Þetta er eitt af dæmunum um menn, sem byrjuðu með tvær hendur tómar og brutust áfram af eigin rammleik. I þessu tilfelli rafvirkinn sem kveikti á perunni. Lars Bang er ekki i vandræöum með að útvega Margréti drottningu nokkur stykki Rolls-Royce þegar hún er i vandræöum, og sjálf hefur hún keypt einn slíkan af honum. Einn af þessum stórlöxum er sjálfur Simon Spies, Tjöru- borgarpresturinn og eigandi flug- félagsins Sterling. Þeim samdist að lokum þannig, að presturinn fék.k Rolls-Royce fyrir fimm lúx usferðir til Sri Lanka. Eri iiklega hefur Margrét drottning greitt i reiðufé, þegar hún keypti sinn Rolls, og nú nýlega Chevrolet Caprice. En ekki er yfirbyggingin á fyr- irtækinu Auto Bang mikil. Hann hefur einn starfsmann i sýningar- salnum, og sá er jafnframt einka- bilstjóri, þegar þvi er að skipta. Einkaritari sér svo um skrifstofuhaldið, og hún hefur <

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.