Helgarpósturinn - 03.04.1981, Qupperneq 6
6
„Vores Rolls-Royce limousine
afhenter Dem gerne i lufthavn-
en”, auglýsir Lars Bang bila-
kaupmaður i Grená á Jótlandi. Á
islensku útleggst þaö á þá leið, aö
viöskipta vinir Lars Bang,
ÁutoBang, verði sóttir á Rolls-
Royce á flugvöllinn, óski þeir eft-
ir þvi. Á eina leigubílnum af
Rolls-Royce gerð i Danmörku, og
liklega i öllum heiminum.
Þegar viöskiptavinurinn er
kominn á bilasölu Bang á öster-
brogade i Grená getur hann valiö
á milli Alfa Romeo, Aston
Martin, Daimler, Jaguar,
Lamborghini, Lotus, Maserati,
MG, Monteverdi, Morgan,
Panther, Porsche, Sbarro, de
Tomaso og vitanlega Rolls-
Royce, nýrra og notaðra. Semsé
dýrustu bilar heimsins, en inn á
milli er þó að finna „venjulega”
bila, bæði ameriska og evrópska.
Nafnið AutoBang, sem er
nafnið á bilasölu Lars Bang, er
orðið aII þekkt i Danmörku, að
minnstakosti meðal þeirra sem
hafa áliuga á bilum, sérstaklega
„klassiskum” og dýrum bilum.
Og nú hcfur hróður þessa manns
borist til islands með Rollsinum.^
og Lamborhini bilnum, sem hann
lánaöi á bílasýninguna Auto ’81.
Það var Jonna Bang, eigin-
kona bilamannsins, sem opnaði,
þegar blaðamaður Helgarpósts-
Danski bílasalinn Lars
ff
AutoBang
hefur alla Evrópu undir
Lars Bang fannst það alveg upplagt, að hann og Jonna kona hans yrðu
inynduð við elsta og „klassiskasta” bilinn sem fyrirfannst á bilastæð-
inu við Hótel Loftleiðir, Volvo PV árgerð 1965.
„A Grænlandi safnaði ég pen-
ingum i fyrsta sinn. Þar borgar
maður enga skatta, vinnur 15
timá á dag og eyöir engu. Þegar
við komum til Danmerkur aftur
lagðiégiminafyrstu fjárfestingu.
Ég keypti land, skipti þvi niður i
sumarhúsalóðir og seldi Dönum i
Grænlandi, sem voru i vand-
ræðum með hvað þeir ættu að
gera við peningana. Ég fór til
Grænlands um miðjan vetur,
flaug milli bæjanna og sýndi
fallegar sumarmyndir af lóðun-
um i samkomuhúsunum, og það
var létt verk að losna við þær”.
Eftir lóðasöluna rak hvað
annað. Lars Bang rak meðal
annars þvottahús, fatahreinsun
og veitingahús, en áhugamálið og
fristundaiðjan var gamlir bilar,
sem hann keypti, gerði upp og
seldi aftur. Fyrsti billinn sem
hann keypti var Jaguar E Mark 2
Coupé, og seinna keypti hann á
einu bretti tvo Jagúara og einn
Rolls-Royce Silver Shadow. Eftir
það var tómstundagamanið orðið
að aðalatvinnu.
„Það er að sjálfsögðu hrein
geðveiki að eiga svona bila, sem
enginn hefur i rauninni þörf fyrir.
En þetta er eins og hver annar
listiðnaður — þetta er bilalist!
Rafvirkinn sem kveikti á perunni:
skiptir árgerðin ekki svo miklu
máli. Ég kaupi oftast átta
til tiu bila í einu og sendi
þá heim á vöruflutningabilum
Stundum eru þeir fleiri,
allt upp í 20.
Raunar hef ég umboð
fyrir einni tegund.
Það er Rolls-Royce, enda
þýðir ekki að eiga
fleiri bila i þeim
verðflokki en örugglega er
hægt að selja”.
— Nú spyr ég i heimsku
minni: Hvernig hefurðu
efni á þessu? Þú
hlýtur að vera forrikur.
„Þú veist kannski
hvernig það
er með hunangsfluguna? Eftir
vængjastæröinni miðað viö
skrokkinn getur hún alls ekki
flogið. En hún veit það ekki sjálf,
þess vegna flýgur hún samt! Og
hvernig er það ekki með ykkur ts-
lendinga — það er eiginlega alveg
óbúandi hérna, en samt gerið þið
það, og lifið meira að segja góðu
lifi”, segir Lars og hlær dátt.
„Auðvitað á ég allt of marga
bila, ég timi aldrei að selja þá!
Núna á ég 120 á lager og auk þess
15—20 einkabila, sem ég vil alls
eftir Þorgrím Gestsson
myndir Jim Smart og Þorri
Hvers vegna skyldu menn ekki
kaupa þá ef þeir hafa efni á þvi?
Flestir ganga bara i venjulegum
skyrtum, en sumir hafa ánægju af
aðganga i skyrtum sem eru gerð-
ar af listamönnum, og skera sig
úr”, segir Lars Bang og bendir á,
aö liklega sé Lamborghini billinn
sem er á Auto '81 einn af þeim
allra brjálæðislegustu.
Fyrirtækiö AutoBang stundar
kaup og sölu á nýjum og notuðum
bilum, inn- og útflutning á toll-
frjálsum bilum og það sem Danir
kalla „leasing” upp á ensku. Það
eru leigukaup á bilurn, svipað og
tiðkast með flugvélar hér. Menn
geta tekið bil á leigu til fjögurra
ára og eignast hann siðan, en
dregið leiguna frá skatti.
Evrópa full af bilum
„Ég flyt sjálfur inn alla þá bila
sem ég sel, en ekki eftir venjuleg-
um innflutningsleiðum. Evrópa
er full af bilum, sem er hægt að fá
keypta, og það á mun lægra verði
en opinberir innflytjendur fá þá á.
Stundum er um það að ræða, að
bilasaiar hafa orðið gjaldþrota,
og oft kemst ég i lagera af bilum
frá árinu áður. Þá er erfitt að
selja i Evrópu, en
i Danmörku
ekki láta. En það er auðvelt að fá
lán niðri i Evrópu og vextir eru
ekki nema sjö prósent. Svo hef ég
orðið mér úti um allskonar við-
skiptasambönd i gegnum bila-
söluna. Þetta er nefnilega eins og
hestaverslun. Ég skipti yfirleitt á
þessum dýru bilum og hlutum
sem ég get siðan auðveldlega selt
aftur. Nýlega tók ég til dæmis tvo
oliutanka og einn hraðbát fyrir
tvo Jagúara. Heyrðu mig, Rolls-
inn hérna á sýningunni er til sölu.
Ég gæti hugsaö mér að selja hann
fyrir lopajakka — eða málverk!”
Rolls fyrir lopa!
— Hvað kostar hann margar
lopapeysur?
„Tja, ég þyrfti að fá svona tvo
til þrjá gáma”, segir Lars Bang,
og þeir hjá Alafossi eiga næsta
leik!
En það er ekki heiglum hent að
eiga viðskipti við hann, að
minnstakosti ef sá gállinn er á
honum. Hann hefur sjóast i
bransanum meö þvi að eiga
viðskipti við flesta hörðustu
bissnessmenn Danmerkur. Sumir
eru að visu áfjáðir i að kaupa og
koma til Grená i þyrlum til að
gera út um viðskiptin. En við
aðra getur Lars þurft að slást i
heilt ár áður en gengur saman.
Það eru heldur engar smáræðis-
upphæðir, sem um
er að ræða.
ins barði að dyrum á herbergi 334
á Hótel Loftleiðum um siðustu
helgi.
„Komdu innfyrir og fáðu þér
sæti”, kallaði Lars með sinni
drynjandi röddu úr sófanum, þar
sem hann hafði fleygt sér útaf og
sparkað af sér skónum. „Hvað
viltu drekka? Þú sérð, að úrvalið
er nóg”. Og þaö kemur tröllslegur
hlátur úr úfnu, rauðu skegginu
um leið og hann bendir á Campari
og tvær tegundir af likjör.. sem
standa á borðinu. örlitill dreitill
af likjör i vatnsglasi verður fyrir
valinu.
Kveikti á perunni
Þessi úfni og þéttholda Dani
sem lifir og hrærist innan um
heimsins dýrustu bíla hóf feril
sinn sem rafvirki á Grænlandi,
áriö 1963, en þar var hann ásamt
Jonnu konu sinni næstu árin og
lagði grunninn að þeirri vel-
gengni sem gerði rikustu menn
Danmerkur, og sjálfa drottn-
inguna, að viðskiptavinum hans.
Þetta er eitt af dæmunum um
menn, sem byrjuðu með tvær
hendur tómar og brutust áfram af
eigin rammleik. I þessu tilfelli
rafvirkinn sem
kveikti á
perunni.
Lars Bang er ekki i vandræöum með að útvega Margréti drottningu nokkur stykki Rolls-Royce þegar
hún er i vandræöum, og sjálf hefur hún keypt einn slíkan af honum.
Einn af þessum stórlöxum er
sjálfur Simon Spies, Tjöru-
borgarpresturinn og eigandi flug-
félagsins Sterling. Þeim samdist
að lokum þannig, að presturinn
fék.k Rolls-Royce fyrir fimm lúx
usferðir til Sri Lanka. Eri iiklega
hefur Margrét drottning greitt i
reiðufé, þegar hún keypti sinn
Rolls, og nú nýlega Chevrolet
Caprice.
En ekki er yfirbyggingin á fyr-
irtækinu Auto Bang mikil. Hann
hefur einn starfsmann i sýningar-
salnum, og sá er jafnframt einka-
bilstjóri, þegar þvi er að
skipta. Einkaritari sér svo um
skrifstofuhaldið, og hún hefur
<