Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 24.04.1981, Qupperneq 22

Helgarpósturinn - 24.04.1981, Qupperneq 22
22 Föstudagur 24. apríi 1981 helgarpó^tiirinn „Er alltaf upptekinn — rætt við Pálma Guðmundsson upptökumann á Akureyri oftast vel undirbúið, en þegar verið er að gera prufuupptökur t.d. þá er efnið oft litið æft. — Hefur þú tekið upp margar plötur? — Já, ég held að ég geti sagt það. A þessu ári hef ég tekið upp einar fjörar plötur. Káta daga með Finni Eydal, Ljúfa sönglist, með Jóhanni Konráðssyni og fjöl- skyldu. Kór Barnaskólans á Akureyri undir stjórn Birgis Helgsonar og Jón nikkara Hrólfs- son. Ég hef einnig tekið upp leikhljóð, auglýsingar og annað slikt. Siðan hef ég tekið upp eina 4ra laga plötu, sem heitir Arný trúlofast en þá plötu ætla ég að gefa út sjálfur. Og meiningin er að fara úti útgáfustarfsemina. — Einmitt það. — Já, Arný trúlofast er væntanleg á næstunni, en Arný skipa þeir Hreinn Laufdal og Ingjaldur Arnþórsson. Platan hefur þvi miður tafist i presunni en ég vona að biðin eftir henni taki senn enda. Plötur vilja oft tefjast. Finnur i fullu fjöri — Spilar þú sjálfur á hljóðfæri? — Nei, það geri ég ekki, hins vegar hlusta ég mikið á plötur. Og það er merkilegt að eftir að ég fór sjálfur að taka upp plötur, þá hlusta ég allt öðru visi á þær. Ég hlusta alls ekki eftir laginu sjálfu, heldur er ég sifellt að hlusta á eitthvað annað. S.s. sándið, leita eftir bjögun, notkun effekta o.s.frv. — En svo við snúum okkur aðeins aðpoppinu á Akureyri, eru einhverjir nýir straumar hér núna? færið og skamma þá fyrir fram- taksleysið og aumingjaskapinn, skýtur ljósmyndarinn inni. — Ég veit það nú ekki, en eins og ég segi þá eru margir góðir tónlistamenn hér og þá hef ég áhuga á að virkja. Þess vegna er ég jú að fara út i allt þetta. Ég hef trú á þeim. Þolinmæði þrautir vinnur... — Nú varst þú plötusnúður hér áður, hlustaðir þú þá mikið á diskótónlist? — Ég gerði það hér áður fyrr, já. En diskó er atvinnutónlist. Hún er algjörlega stöðnuð. Ég vil heldur hlusta á soft tónlist, ein- hverja þægilega á bak við eyrað, helst instrúmental. — Er skemmtilegt starf að vera upptökumaður? Já, það getur oft á tiðum verið skemmtilegt, en það krefst mik- illar þolinmæði. Það er svosem ekkert fútt i þvi að vera eini upptökumaðurinn á Akureyri og þaði hjáverkum, þvi ég lifiekki á stúdiómennskunni einni saman, ég er i fullu starfi sem skrifstofu- maður hjá KEA. En ég er að búa mig undir að gera þetta að aðal- starfi helst i haust. Og seinna meir að fá jafnvel útlærða menn i upptökur. — Hvaða kostum þarf upptöku- maður að vera búinn? Hann þarf að hafa áhuga á tækjum og tónlist og ekki er verra að kunna eitthvað fyrir sér i tón- mennt og rafeindafræði. Og ekki sakar að hafa þolinmæði: Ein- hverju sinni tók 2 daga að taka upp sama stefið. — Samspilið var 7 7 Pálmi Guðmúndsson, eigandi stúdió Bimbó á Akureyri er við- mælandi minn að þessu sinni. Ég heimsótti hann i nýja stúdióinu sinu að Glerárgötu 20, en þangað flutti Pálmi um áramótin. Hann hefur nýlega fengið 16 rása mixer eða hljóðblöndunartæki og brátt mun hann einnig fá 16 rása segul- band. Það er talsvert stökk frá 4 rása tækjunum sem hann hafði áður. — H.vers vegna ferðu út i að setja á stofn stúdió? — Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á tækjum ýmiss konar og að siálfsögðu einnig tónlist. Ég var t.a. m. plötusnúður i Sjall- anum. Ti! að byrjt með var ég smám saman að koma mér upp tækjum en svo fór þetta að verða viðameira. Ég tók að sjálfsögðu lán, þvi það er geypilegur kostn- aður sem liggur þarna á bak við. Svo græddi ég auðvitað á verð- bólgunni, segir Pálmi og glottir. — llvernig er plata búin til? — Fyrst er haldinn fundur með tónlistamönnunum og upptakan grófplanlögð. Þá er að koma saman i stúdióinu. Tónlista- mönnunum er skipað á sinn stað i upptökusalnum og ég reyni að finna rétta „sándið” á þeirra hljóðfærum. Þetta tekur yfirleitt mjög langan tima, þvi rétt ,,sánd” er algjört undirstöðu- atriði. Siðan er tekin prufu- upptaka. Ef að vel til tekst og allir eru ánægðir með „sándið” þá er farið i sjálfa upptökuna. Grunn- urinn tekinn upp, en siðan sólóin og söngurinn. Að þessu loknu er farið út i hljóðblöndun og klipp- ingu. Ætli það fari ekki um og yfir 120 timar i að gera eina 12 laga plötu, svona að meðaltali. En þetta er jú misjafnt eftir við- fangsefni. Ég tók t.d. upp harmonikkuplötu á 25 timum. Það var að visu eitt hljóðfæri og prógrammið vel æft. Vilja oft tefjast — Eru tónlistamennirnir yfir- leitt vel undirbúnir þegar þeir koma i stúdióið? — Það er nú bæði og. Þegar það á að gefa út hljómplötur þá er fólk eftir Jóhönnu Þórhallsdóttur myndir: Einar Kristján Pálmi fer fimlegum höndum um nýju tækin sln. — Það eru tvær efnilegar hljómsveitir hér núna sem spila frumsamda músik og new wave. Það eru Bara-flokkurinn og Tor- timing. Siðan er Finnur Eydal alltaf i fullu fjöri og hljómsveit- irnar Jamaica og Astró-trióið. — Eru akureyskir popparar professional? — Nei, langt i frá. Þeir hafa ekki þá reynslu i spilamennsku sem til þarf. Finnur er náttúrlega sá eini sem hefur einhverja reynslu. Hann er búinn að spila inná það margar plötur, enda er allt öðru visi að vinna með honum. Hann veit að hverju hann gengur. Veit hvaða „sánd” hann vill o.s.frv. En hér hafa aldrei komið fram hljómsveitir sem stefna hátt. Inná milli eru jú góðir tónlistamenn, en það er heldur alls ekki næg atvinna fyrir þá hér. — Þú vilt kannski nota tæki- ekki nógu gott. Þarna þurfti ég að hlusta i 8 tima á sama lagið dag eftir dag. Ég hefði verið búinn að fá leiða á laginu fyrir löngu ef ég hefði eingöngu hlustað á það. Siðan þarf upptökumaður að vera mjög nákvæmur, þvi upptaka er svo sannarlega mikil nákvæmis- vinna. — En hvenær tekur þú upp, varla á næturnar? — Nei, það eru kvöldin og helg- arnar sem fara i þetta. Þetta er enn ekki það mikið að maður fórni nóttunum i upptökur. — Er stúdiótiminn dýr hjá þér? Hann kostar allt frá 13.500 — 16.500, það er ekkert rosalegt, held ég. — Og hvað er nú framundan. — Framundan er útgáfa á plötum nú og svo er maður alltaf aö bæta við tækjumog lagfæra stúdióið. Ætli maður haldi þvi bara ekki áfram...

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.