Helgarpósturinn


Helgarpósturinn - 24.04.1981, Qupperneq 23

Helgarpósturinn - 24.04.1981, Qupperneq 23
23 holrjrirpn^tl irinn Föstudagur 24. apríl 1981 Klukkan hálf tiu á föstudags- morguninn hefst fundur aö Hótel Loftleiðum sem margir hafa beðið eftir. Sumir með óþreyju, og aðrir eflaust með trega. Það er aðalfundur Flugleiða. Mikið hefur borið til tiðinda i sögu þessa unga félags siðan á aðalfundinum siðasta, eins og vandlega hefur verið greint frá i fjölmiðlum. Við hefur legið að starfsemi þess yrði að miklu leyti hætt, að farið yrði i samvinnu við Luxemborgarmenn, eða að rikið tæki reksturinn yfir. Með miklum hávaða og brestum hafa þó Flug- leiðir siglt áfram sinnsjó og á aðalfundinum á föstudaginn verða birtir reikningar félagsins frá siðasta ári — reikningar sem marga fýsir að sjá. Þessi fundur er haldinn siðar en i upphafi stóð til. Eitt af hinum frægu skilyrðum rikisstjórnar- innar fyrir 12 milljón dollara lán- inu og bakábyrgðinni fyrir Norður-Atlantshafsfluginu var nefnilega að aðalfundur félagsins yrði haldinn fyrir febrúarlok. Það varð díki, en i staðinn var haldinn sögulegur hluthafafundur, þar Knn er beðið atburða hjá Flugleiðum Hluthafar bita i skjaldarendur sem Höskuldur Jónsson, ráðu- neytisstjóri i fjármálaráöuneyt- inu lék aðalhlutverkið. A þeim fundi, sem haldinn var sam- kvæmt ósk rikisvaldsins, var borin upp tillaga stjórnar Flug- leiða þess efnis að stjórnar- mönnum yrði fjölgað úr niu i ellefu, til að hægt væri að bæta inn þeim tveim mönnum sem rikis- stjórnin setti sem skilyrði fyrir „,aðstoðinni”. Til að svona breyt- ingar verði gerðar þurfa fjórir fimmtu hluthafanna að greiða þeim atkvæði, en þegar Höskuldur tilkynnti að hann, sem fulltrúi rikisins, myndi sitja hjá við slika atkvæðagreiðslu varð ljóst að tillagan yrði ekki sam- þykkt — vegna þess að Höskuldur hafði umboð fyrir 20% hluta- fjárins. Sannarlega sniíið mál. Þeirri lausn á þessu st jórnar- máli sem i upphafi virtist ein- földust, var semsagt hafnað. Rikið vildi ekki tvo af ellefu, heldur tvo af niu og það þýðir að tveir af núverandi stjórnar- mönnum verða að vikja. Sem aftur hefur i för með sér ein- hverja röskun á valdajafnvæginu innan hennar. Þessar hreyfingar innan stjórnarinnar verða eflaust hið stóra mál þessa fundar, þótt reikningarnir séu forvitnilegir. Vitað er að bak við tjöldin hefur verið unnið kröftuglega við atkvæðasmölun, ef svo má að orði komast, og meðal annars haft uppá erfingjum fyrrum hluthafa, sem aldrei haf a skipt sér af neinu i sambandi við reksturinn, og fengin hjá þeim umboð. Fjöl- eignarmenn, með Kristjönu Millu i fararbroddi hafa þótt hvað dug- legastir við þetta, en aðrir hags- munaaðilar hafa ekki gefið sitt eftir. Reyndar er valdskipting innan stjórnarinnar langt frá þvi að vera einföld. Kristjana Milla, sagði hér i yfirheyrslu fyrir all- nokkrum vikum að hægt væri að skipta stjórninni nánast i tvennt. Annars vegar i Eimskipafélags- menn þ.e. Flugfélags Islands menn og hinsvegar i Loftleiða- menn. t Eimskipafélagsarminum væri sex, en i hinum þrir. En eflaust eru ekki allir sammála svona einföldu valdamunstri. Grétar B. Kristjánsson er til dæmis talinn Sigurðar maður Helgasonar, um leið og hann samkvæmt flokkun Kristjönu Millu hlýtur að teljast Loftleiða- maður. 1 stjórninni eru niu manns, eins og áður sagði. Þeir eru: Orn Johnson, Sigurður Helgason, Sigurgeir Jónsson, öttar Enska skáldið Graham Greene var um daginn i JerUsalem aö taka við verðlaunum, sem kennd eru við hina helgu borg, Ur hendi Teddy Kollek borgarstjóra. JerUsalemverðlaunin eru veitt fyrir markvert framlag til aö glæöa skilning á gildi ein- staklingsfrelsis i mannlegu sam- félagi. Ekki þarf að Utlista fyrir les- endum bóka Greene, að hann er vel að slikum verðlaunum kom- inn. Frjáls vilji til athafna eða af- skiptaleysis og siðræn ábyrgð sem sliku vali fylgir er grunn- tónninn i veigamestu skáldsögum . þessa viðlesna höfundar. Þegar fréttamenn komust að Greene i JerUsalem i tilefni verð- launaafhendingarinnar, voru Sir Roger Hollis Kim Philby Hverjum er treystandi til að njósna um njósnarana? það þó ekki svör hans um skáld- skap og lifsviðhorf, sem frétt- næmust þóttu. Fréttastofur töldu mestu varða að dreifa um heims- byggðina áliti skáldsins á undir- rót nýjasta uppnáms Ut af brigsl- um um svik á æðstu stöðum i bresku leyniþjónustunni. Eins og fleiri breskir rithöfund- ar hefur Greene verið við leyni- þjónustustörf riðinn. 1 heims- styrjöldinni siðari var hann talinn gera landi sinu mest gagn með þvi aö höfuðsitja flugumenn óvin- anna i fjölfarinni hafnarborg á vesturströnd Afriku. Siðar starf- aði hann i aðalstöðvunum i Lond- on, en sagði sig Ur þjónustunni i fUssi, þegar Kim Philby hugðist að tilefnislausu hækka hann i tign, og átti það aö vera ieikur i valdastreitu þessa sovéska Ut- sendara i bresku leyniþjónust- unni. Dvöl Greene i JerUsalem bar upp á dagana, þegar fullt var af fréttum af eftirköstum ásakana um að bresk stjórnvöld hefðu þaggað niöur vitneskju um að sjálfur sir Richard Hollis, yfir- maöur M15 gagnnjósnadeildar bresku leyniþjónustunnar, ára- tuginn 1956 til 1965, heföi i raun- inni verið á mála hjá sovésku leyniþjónustunni og starfað i þágu hennar. Þessi var ástæðan til að fréttamönnum varð tfð- ræddara við Greene um njósnir en skáldskp. Fréttamenn komu ekki að tóm- um kofunum hjá Greene. Hann kvaöst hafa myndað sér skoðun á þvi, hvernig ásakanirnar á hend- ur sir Roger, sem leiddu til tveggja mannfrekra rannsókna á ferli hans, væru til komnar. t sin- um huga léki enginn vafi á, að viðleitnin til aö gera annan helsta foringja bresku leyniþjónustunn- ar um langt skeið tortryggilegan, væri undan rifjum sovésku leyni- þjónustunnar runnin, eitt af þaul- skipulögðum brögðum hennar. HUn léti einskis ófreistað til aö nota i sina þágu grunsemdir um svik og tvöfeldni i rööum leyni- þjónustumanna, sem sér i lagi hafa sprottið af ferli Philby, Blunt og annarra af sama sauðahUsi i Bretlandi. t þessu skyni kemur sovéska leyniþjónustan á fram- færi þvi sem á leyniþjónustumáli er kallað „óupplýsingar”, fölsuð- um gögnum sem fallin eru til að veikja andstæðinginn með þvi að valda UlfUÖ og árekstrum i röðum hans. Greene kvaöst þekkja þetta af eigin raun, i bréfum frá Moskvu hefði Philby reynt aö koma á framfæri við sig sovésk- um „óupplýsingum”. Skoðun Grahams Greene á upp- runa sakargifta á hendur sir Roger Hollis kemur heim við niöurstöður yfirlitsgreinar um málið i breska blaðinu Guardian. Þar benda þeir David Leigh og Gareth Parry i fyrsta lagi á, að Chapman Pincher, fyrrum her- málafréttaritari Daily Express, ljóstrar upp um ásakanir á hend- ur sir Roger og rannsóknirnar á ferli hans sem þvi fylgdu i þeim augljósa tilgangi að selja nýja bók sina. Pincher kemur ekki fram með tangur eða tetur af upplýsingum, sem ekki lágu fyrir þegar rannsóknirnar fóru fram, enda heimildarmenn hans óvinir sir Rogers i leyniþjónustunni, sem á sinum tíma knUðu fram rannsókn og langvinnar yfir- heyrslur yfir honum. Þvi bar Möller, Halldór H. Jónsson, Bergur G. Gislason, Alfreð Elis- son, Kristinn Ólsen, og Grétar B. Kristjánsson. Þeir þrir siðast- töldu koma Ur gömlu Loftleiðum, en hinir eru taldir gamlir flug- félagsmenn — Sigurður Helgason að visu varla, en hann telst til Klaks-manna, sem höfðu áhrif þar, ekki siður en i Loftleiðum. Þetta hljómar eins og upptalning úr Sturlungu, sem kannski á vel við, en flokkadrættir og ættar- tnlnaður hefur áreiðanlega verið meiri þá, og allar einfaldanir i þessa veru svolitið varasamar. En i fyrirtæki eins og Flugleiðum er þó ljóst að hluthafar bindast samtökum til að koma sinum mönnum að i stjórn, og þeir félagsmenn hafa svo samvinnu til að koma þeirra málum áfram, á kostnað þess minnihluta sem óhjákvæmilega myndast. Þegar svo rikisstjórnin kemur með tvo fulltrUa inn i þessa stjórn Flugleiða, er ljóst að það valda- jafnvægi raskast sem þar hefur rikt. Og það er kannski fyrst og fremst þessvegna að beðið er eftir þessum fundi með eftirvæntingu. Stjórnarkjörinu er þannig háttað, að kosið er til tveggja ára i senn, en aðeins helmingurinn i einu. Þannig voru i fyrra kosnir fjórir menn i stjórn til tveggja ára, þeir Halldór H. Jónsson, Kristinn ólsen, Grétar B. Kristjánsson og Bergur Gislason. Þeir munu þvi örugglega halda sætum sinum i gegnum þennan aðalfund. Að þessu sinni verður hinsvegar kosið um þá örn Johnsen, Alfreð Eiiasson, Sigurð Helgason, Sigurgeir Jónsson og Óttar Möller. Komi þvi inn menn, eða maður, fyrir rikisstjórnina þá fer einn af þessum herramönnum Ur stjórn- inni. Óliklegt er talið að rikis- stjórnin muni ganga hart á eftir þvi að fá inn tvo menn, i ár, heldur verði sæst á einn nUna og einn að ári, þegar hinir fjórmenn- ingarnir eiga aö ganga Ur stjórn. Litill vafi leikur á þvi að Alfreö Eh'asson, gefur ekki kost á sér til endurkjörs, og að Krist jana Milla Thorsteinsson, eiginkona hans, tekur við af honum i stjórninni. Aö þvi hefur hUn og Fjöleignar- menn unniö að undanförnu. Rikismaðurinn er svo talinn muni koma fyrir Sigurgeir Jónsson, sem gegnt hefur hlutverki nokkurskonar óopinbers fulltrUa þess um nokkurt skeið. Ekki er heldur Utilokað talið að hann verði einfaldlega gerður að opin- berum fulltrUa rikisins. Sigurgeir hefur haft stuðning Eimskipafélagsins, sem á rdm 20 prósent hlutaf járins, en liklegt er að það einbeiti sér að þvi að halda Óttari Möller inni, og að Sigurgeir fari. Hver kemur þá i staðinn? LUðvik Jósepsson hefur heyrst nefndur nokkuð oft, en háttsettur Alþýðubandalagsmaöur neitaði þvi alfarið i samtali við mig að LUðvik ætlaði sér i þetta starf. Al- þýðubandalagsmaður verður það hinsvegar örugglega (hann verður fulltrUi fjármálaráðu- neytis) og þegar A'þýðubanda- lagsmaðurinn sem áöur var minnst á, talaði um talna og bók- haldsglögga menn, koma nöfn eins og Baldur Óskarsson, Ingi R. Helgason, Þröstur ólafsson upp i hugann. En þetta eru getgátur. Ljóst er að fyrir þennan fund hefur verið unnið mikið starf, og að á honum veröa aðilar ekki á eittsáttir. Enganveginn er þó vist að þetta verði sá sprengifundur sem margirbUast við. Það er oft svo að þegar mikið hefur verið smalað og mikið talað fyrirfram, þá verður fundurinn sjálfur sléttur og felldur. Við þvi má bUast i þetta sinn. INNLEND YFIRSÝN ERLEND þeim Thatcher forsætisráðherra og Callaghan fyrrverandi forsæt- isráðherra saman um það, þegar málið var rætt á þingi, að ekkert sem Pincher segir i bók sinni né viðtölum til kynningar á henni réttlæti nokkrar frekari aðgerðir stjórnvalda i málinu. 1 öðru lagi rekja þeir Leigh og Parry hliðstæðurnar milli máls sir Rogers Hollis i Bretlandi og svipaðs uppsteits i leyniþjónust- um annarra málsmetandi vest- rænna velda á siðasta áratug. I Kanada réöst Leslie Bennett, yfirforingi gagnnjósnadeildar Konunglegu kanadisku riddara- lögreglunnar, á hendur John Watkins, fyrrum sendiherra Kanada i Moskvu, með ásökunum um að Watkins heföi ánetjast sovésku leyniþjónustunni. Máliö féll niöur, þegar Watkins dó af hjartaslagi, meðan rannsókn stóð enn. Siðar risu undirmenn Bennetts i gagnnjósnadeildinni upp gegn honum sjálfum og sökuðu hann um að ganga erinda sovésku leyniþjónustunnar KGB. Bennett var tekinn i stranga yfir- heyrslu, játaöi ekki neitt en skýr- ingar hans þóttu ófullnægjandi, svo látið var heita svo að hann væri leystur frá störfum af heilsufarsástæöum. Býr hann nU i Astraliu og á i málaferlum viö rit- höfund, sem gerði feril hans að uppistöðu i njósnasögu. 1 bandarisku leyniþjónustunni var James J. Angleton viðfrægur fyrir ákefð sina að hafa uppi á moldvörpum sovésku óvinanna, sem hann var sannfærður um að leyndust meðal samstarfsmanna sinna. Liðhlaupi Ur sovésku leyni- þjónustunni, Golitsin aö nafni, gaf upplýsingar sem urðu Angleton i Washington, eins og reyndar Bennett i Ottawa, tilefni til grun- semda, yfirheyrslna og rann- sókna, sem árum saman kröföust starfskrafta margra af færustu gagnnjósnamönnum CIA. Svo langt gekk trU Angletons á Golitsin, aö þegar annar liðhlaupi Ur rööum KGB, en sá heitir eftir Magnús I'orfa Olafsson Nosenko, hafði sögu að segja sem i þýðingarmiklum atriöum stang- aöist á við það sem Golitsin hafði frætt menn á, var Nosenko hnepptur i einangrun á vegum CIA og hafður þannig i haldi i fjögur ár, i þvi skyni að buga hann og fá hann til að meðganga, að KGB hefði gert hann Ut til að ó- merkja Golitsin. Angleton neitaði að viðurkenna þann möguleika, að KGB hefði einmitt notað Golitsin til að ljUga hann fullan, og ekki virðist hann hafa gert sér grein fyrir að forusta KGB gæti verið svo slungin að láta tilbUning sem hUn vill nota til að rugla and- stæðingana I riminu verða á vegi liklegs liðhlaupa, sem breiðir svo „óupplýsingu” KGB Ut i góðri trU, þegar vestrænir gagnnjósna- foringjar taka að rekja ur honum garnirnar. Nokkuð er það, að Angleton varð að lUta i lægra haiíi innan CIA. Andstæðingar hans i gagn- njósnadeildinni komu þvi til leið- ar að Nosenko var leystur Ur prisundinni. Meöferðin á honum varð til aö þingnefnd lét málið til sin taka. Gagnnjósnamaðurinn Clare Petty samdi langa skýrslu, þar sem leidd voru að þvi marg- vísleg rök að Angleton sjálfur væri erindreki KGB. Ekki var þaö plagg þó samið i alvöru, heldur til aö sýna fram á að samsæriskenn- ingum mætti beita gegn hverjum sem væri. Endir málsins varð sá, að William Colby skipaði Angleton aö vikja Ur starfi, þegar hann tók við yfirstjórn CIA árið 1974. Komst Colby að þeirri niður- stööu, aö „flóknar samsæriskenn- ingar um aö langur armur hins volduga og slæga KGB heföi verið að verki áratugum saman” tor- velduðu gagnleg og markviss störf af hálfu gagnnjósnadeildar KGB. Ekki fer milli mála, að Angleton er einn af heimildar- mönnum Pinchers.

x

Helgarpósturinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.