Helgarpósturinn - 09.10.1981, Side 3

Helgarpósturinn - 09.10.1981, Side 3
3 ha/rjrirpnczt, ,rinn Föstudagur 9. október 1981 hann drukkinn einu sinni. Og þótt vinnan sé erfiö, þá er skemmtanalifiö enn erfiöara þvi aö þaö rænir hann nætursvefni (og jafnvel nágranna hans lika). Þegar viö hittum Karl, haföi hann fengiö heimsókn frá lögregunni — og kvaöst hafa grátiö viö öxl eins boröalagös — peningaraunir hans og sundur tætt tilfinningalif bugaöi hann þaö kvöldiö. Viö höföum tal af lögfróöum mönnum og reyndar lögreglunni lika, til aö kanna, hvaöa meöferö Karl kemur til meö aö fá og hans mál öll, þegar aö þvi kemur aö hann hefur hafnaö i reipisendan- um, eins og stundum er sagt. Karli finnst eiginlega aö honum sé vorkunn. Hann er einnig á þvi aö hann sé hreint ekki sá eini sem lent hefur i svona klipu. Karli finnst hann og „kollegar” hans litil áhrif hafa haft á rás at- buröanna. Hann veit ekki fyrr en hann er kominn i klandur, og þaö má rekja til þess aö hann réð ekki við skattana. Og hann réö ekki við skattana vegna þess að tekjur hans voru svo misjafnar ár frá ári. Og þegar hann er endanlega kominn i svaðiö byrjar lögreglan aö hafa af honum afskipti. Skárra er það nú helvitið. Þe%ar hann var stöövaður um daginn, grun- aöur um ölvun viö akstur, fyrtist hann við. /#Komdu með okkur, vinur" Bjarki Eliasson yfirlög- regluþjónn var spurður, hver væri réttur manns i sliku tilviki. „Þaö er skylda hans að tala við lögregluþjóninn”, sagöi Bjarki. „Þaö er raunar afar sjaldgæft aö menn neiti þvi, þegar þeir eru stöðvaðir úti á götu. Ef slikt kem- ur fyrir, þá biðum við bara ró- legir. Við forðumst að beita valdi, en einfaldlega sjáum við til þess að billinn fari ekkert. Reynslan sýnir okkur að áður en langt um liöur láta menn segjast.” Heimili Karls er hans Kastali. Þaö hefur löngum verib skoðun hans sjálfs, og ekkert siður eftir ab hann flutti frá konu og börnum i herbergiskytru i Smáibúða- hverfinu. Hún er hans konungs- riki. En Karl getur ekki fremur en aðrir Islendingar lokaö vanda- málin úti. Bjarki Eliasson: „Þegar lögreglan fer inná heimili fólks er það i langflestum tilfellum vegna þess aö einhver heimilismanna hefur kallað á lög- regluna, og boðiö henni inn á heimiliö til aö skakka leikinn. I öðrum tilfellum er tvenns konar háttur hafður á. Annars vegar er það svokölluð bein eftir- för. í þvi tilfelli hefur lögreglan verið á eftir ákveðnum einstak- lingi i óslitinni eftirför, og þá er hægt að sækja menn inná heimili. Þá nægir ekki að loka á eftir sér huröinni. Hinsvegar er stundum fariö inná heimili grunaöra manna, eöa manna sem tengjast ákveöinni rannsókn. Til aö gera þaö þarf úrskurö dómara. Reyndin er samt sú aö áöur en þessi úrskurður er fenginn þá bankar lögreglan uppá og spyr viðkomandi hvort hann vilji ekki koma meö sér. Og oftast koma menn þá strax. En neiti þeir, er ekki annað fyrir lögregluna að gera en aö reyna að fá dómsúr- skurö um aö henni sé heimilt að fara inná heimili viökomandi og sækja hann.” Fótur fyrir? Karl gat þvi ekki lokað lög- regluna úti, þegar hún heimsótti hann eitt kvöldiö, og bað hann ab koma meö sér. Hann var grunaður um aðild að ávisana- keðju. Karli fannst mælirinn endanlega fullur, þegar honum var sagt þaö. „Ekki nóg meö að þeir hirði af manni hvern eyri i skatt — heldur saka þeir mann um þjófnaö þar aö auki”. Karl var þvi langt frá þvi viðmótsþýöur viö laganna veröi. Hann svaraöi i hálfkæringi. Sneri útúr þegar hann gat. Geröi i þvi að vera leiðinlegur. Rannsókn málsins leiddi i ljós aö Karl var saklaus. En hann var samt ekki alveg sáttur við gang mála. Hann taldi sig hafa veriö svivirtam á margan hátt. Allur stigagangurinn fylgdist meö þegar lögreglan leiddi hann úti bil, honum fannst yfirheyrslan niðurlægjandi, og einu sinni taldi hann aö sér hefði verið hrint á gangi i lögreglustöðinni. En hvað gat hann gert: Jónatan Sveinsson, saksóknari hjá Rikissaksóknara: „Þegar hinn almenni borgari kærir lögreglu fyrir harðræði, eöa óréttlæti af einhverju tagi, þá get- ur hann skilað kærunni á þrjá staöi. í fyrsta lagi til lög- reglunnar sjálfrar. I ööru lagi til rannsóknarlögreglunnar, og þaö er ef til vill eölilegri leiö. 1 þriöja lagi beint til rikissaksóknara. Þess eru einnig dæmi að kært hafi verið beint til dómsmála- ráðuneytisins I öllum tilfellum kemur máliö fyrir rikissak- sóknara, og hann ákveöur hvort fótur er fyrir kærunni”. Jóhann sagði kærur af þessu tagi ákaflega sjaldgæfar. Hann sagði þær koma fram i flestum tilfellum undir rekstri mála, þannig að ákæröur maður, eöa grunaður, teldi sig órétti beittan. En Jónatan sagöi að nánari rannsókn leiddi mjög sjaldan i ljós aö fótur væri fyrir kærunni. „Aö visu hefur rannsókn rikissaksóknara leitt til þess ab einstaka löggæslumenn hafa veriö ákærðir, en þaö er heldur ekki algengt”, sagöi Jónatan. Jónatan sagöist vita um aö nokkur slik mál heföu farið fyrir dómstólana og nefndi eitt nýlegt mál, þar sem dyravörður á balli þótti fara of höröum höndum um dansgest — sem þó haföi gefiö tilefni til afskipta. Björn Helgason hæstaréttar- ritari sagði afar sjaldgæft aö mál af þessu tagi kæmu fyrir hæsta- rétt. Hann sagðist i fljótu bragöi aðeins muna eftir einu tilviki. Það væru mál þeirra manna sem sett- ir voru I gæsluvarðhald I tengsl- um viö rannsókn Geirfinnsmáls- ins. Dýrt og gagnslaust? Karl haföi óljósan grun um að litið þýddi fyrir hann aö kæra lögguna. Vinir hans og kunn- ingjar töluðu um að málarekstur- inn tæki langan tima. Að þetta væri dýrt. Og þar að auki sögöu þeir aö löggurnar stæöu alltaf saman og vitnuðu hver með annarri. „Jú, viö vitum svosem af þess- ari trú fólks”, sagöi Jónatan Sveinsson. „En ég tel hana ástæðulausa. Ég held aö almennt gildi sú regla um svona mál, að þau eru rekin meö meiri hraöa en almennt gerist. Þaö er lögö áhersla á aö fá niöurstööur hiö fyrsta. '' Um hitt atriðið, að lögreglu- menn standi saman, vil ég segja að þaö er ekki óliklegt að borgar- inn telji aö hann eigi öröugt um vik aö sanna fullyröingar sinar, þegar hann hefur ekki aðra til aö styðja viö sig. Honum finnst , eflaust aö þá strax halli á hann”. Lögfræöingur sem Helgarpóst- urinn talaði við sagði samskipti hins opinbera við einstaklinginn alls ekki einkennast af fjandskap, heldur kæmi rikiö oftast fram eins og velmeinandi guðfaðir. Þegar hinsvegar einstaklingurinn teldisigóréttibeittan, þá vandað- ist málið._ „Dómstólarnir eru þriöjungur rikisvaldsins, eða eiga að minnsta kosti aö vera þaö”, sagöi þessi lögfræöingur. „En dóms- kerfiö hefur lengi veriö i miklu fjárhagslegu svelti, og nýtur oröiö takmarkaðrar viröingar almennings, vegna þess hve vanmáttugt þaö stundum virðist vera. Dómstólarnir eru ekki nærri þvi eins virkt afl i þjóöfélaginu og þeir ættu ab vera, hvorki hvaö viökemur einstökum úrlausnarefnum, né almennri skoöanamyndun. Dómskerfið í lagi? Þaö er stáöreynd aö hraöinn i þjóðfélaginu hefur aukist gifur- lega á siðustu árum og áratugum. Fyrir svona fimmtiu árum skipti kannski ekki mjög miklu máli fyrir einstakling þó dómsmál á hans vegum væri 2 til 3 ár að velkjast i dómskerfinu. En núna, þegar hlutirnir gerast langtum hraðar en áöur fyrr, þá skiptir þaö öllu máli að menn geti fengib skjóta úrlausn. Að þessu leyti hefur dómskerfiö ekki náð aö fylgja almennri þróun, og þetta gerir almenningi erfitt fyrir. Við þetta bætist siðan sú staöreynd að rikið þarf mjög sjaldan aö sækja neitt i hendur dómstólanna. Þannig hefur veriö búiö um hnútana, aö hiö opinbera hefur sjálfkrafa réttinn sin megin. Ef þú til dæmis skuldar rikinu peninga (skatta o.s.frv.) þá hefur þaö fullan rétt til að sækja þá peninga i eignum þinum. Ef þú hinsvegar skuldar Jóni Jónssyni sömu upphæö, þá verbur hann aö leita til dómstólanna til að fá greiðsluna. Rikiö er þannig aö talsveröu leyti óháb dómstólunum aö þvi leyti aö þaö þarf sárasjaldan aö leita til þeirra. langstærsti hluti dóms- mála eru mál einstaklinga gegn öörum einstaklingum, eöa mál einstaklinga gegn rikinu. Aö rikiö höföi mál gegn einstaklingi er ekki mjög algengt,” sagöi lög- fræöingurinn. „Af þessu leiðir aö löggjafinn— stjórnmálamennirnir — hafa ekki mjög mikinn áhuga á dóms- málunum. Þaö er vegna þess að löggjafinn þarf litt á dómstólum aö halda. Allt fé kemur nánast sjálfkrafa inn. Meöal annars þessvegna er dómskerfiö ekki betur stutt fjárhagslega en raun ber vitni.” Lögfræöingurinn bætti viö aö „rikiö eri rauninni litiö annaö en fólkiö sem vinnur hjá rikinu. Þaö er þvi þetta fólk sem hefur lögin á bak viö sig. „Flestir rikisstarfs- menn kunna sig og misnota ekki stööu sina. En þegar einstaka starfsmenn rikisins haga sér á frumstæðan og ruddalegan hátt — þá hefur almenningur litlar varn- ir, eins og glögglega kom i ljós nú i siðustu viku i sambandi viö toll- gæsluna á Keflavikurflugvelli.” Það er aö lokum aö segja af Karli, að hann náöi sér uppúr soranum, fór aö vinna reglu- bundna vinnu, og ákvaö aö drifa sig i fjögurra vikna hressingar- ferö til Florida. Hann var edrú allan tfmann, og var stoltur af. Þegar hann kom heim var hann stoppaöur i græna hliðinu, færöur inn i tollherbergi, og skipað aö klæöa sig úr hverri spjör. Honum fannst hann niðurlægöur á allan máta. Karli datt samt i rauninni aldrei i hug aö bera fram kvartanir. Tollveröirnir höföu réttinn sin megin. Hann hafa rikisstarfsmenn yfirleitt. Og Karl þekkti lika dæmi um þaö að opin- ber starfsmaöur bar fram kvörtun i svipuöu tilfelli og þessu og áöur en sá maður vissi af, var honum svaraö fullum hálsi — i fjölmiðlum, af tollveröi. Þegar slikt vofir yfir, er málið auðvitað fyrirfram tapaö. TILKYNNING TIL FRAMLEIÐENDA SEM NOTIÐ HAFA ENDURKAUPALÁNA í US$ EN SELT HAFA í EVRÓPUMYNTUM Seðlabanki íslands hefur nú ákveðið framkvæmd á endurgreiðslu vegna gengistaps á endurkaupalánum, sem þeirframleiðendur hafa oróið fyrir, sem tekið hafaendurkaupalán í dollurum, en selt framleiðslu sína í Evrópumyntum, sbr. fréttatilkynningu bankans dags. 22. septembers. I. Ákveðið er að endurgreiðslan nái til gengistaps, á teknum endurkaupalánum, sem orðið hefur vegna misgengis US$ og Evrópumynta frá 1. janúar 1981, og miðast við vörur sem framleiddar voru fyrir 1. september 1981. Framleiðendur, sem rétt eiga á endurgreiðslu og hennar óska, þurfa að skila sérstakri skýrslu um útflutning sinn á þar til gerðum eyðublöðum Lánadeildar Seðlabanka íslands. Skýrslunni skulu fylgja fullnægjandi fylgiskjöl að mati bankastofnunar. Afurðalánadeildir viðskiptabanka og sparisjóða munu hafa alla milligöngu um endur- greiðsluna og ber framleiðendum að snúasér nú þegartil sinnar viðskiptabankastofnunar varðandi ofangreind eyðublöð og leiðbeiningar um útfyllingu þeirra svo og frekari fram- kvæmd. Framleiðendursem flytja út í Evrópumyntfyrir milligöngu útflutningssamtakaeðaannarra útflytjenda þurfa að hafa samráð/samstarf við viðkomandi varðandi skýrslugerðina. Seðlabankinn mun reikna út og endurgreiða umrætt gengistap (ásamt vöxtum) jafnóðum og staðfestar skýrslur berast. Gert er ráð fyrir, að framleiðsla umrædds tímabils verði öll seld um n. k. áramót, og verður endurgreiðslu gengistaps hætt frá og með 31. desember 1981. Vakin skal sérstök athygli á því, að endurgreiðslan miðast einungis við gengistap á endurkaupalánum. ISLANDS SEÐLABANKI —Hl^—i^———^ 80.28 ;—.-r _ .y v,-:—rrr Veistu hvaða litsiCHivamstæki býöst meö ÍOOO króna staógreiósluafslactti ?

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.