Helgarpósturinn - 09.10.1981, Page 13
he/garpósturinn Föstudag
ur 9. október 1981
13
Óli H. Þórðarson
ff
mér tókst þó ekki að læra að verða ríkur”
Bílbeltaöldin er gengin i garö
á islandi, en eins og allir öku-
menn (og farþegar i bílum)
vita, þá var notkun bilbelta lög-
leidd hér um síðustu mánaða-
mót. Heista áróðursmaskinan
fyrir notkun beltanna er
Umferöarráö, og framkvæmda-
stjóri þess, Óli H. Þórðarson,er
maðurinn á bak við nafnið að
þessu sinni.
Óli var fyrst beöinn að segja
hvaöan hann væri ættaður.
„Ég er fæddur norður á Þórs-
höfn á Langanesi, en pabbi
minn var læknir þar. Þarna var
ég til sjö ára aldurs og hef
sjálfsagt brotið einhverjar um-
ferðarreglur, geri ég ráð fyrir.
Hins vegar efast ég um, að ég
hafi nokkurn tima heyrt minnst
á umferð á þeim árum, nema
sjálfsagt hefur mamma ein-
hvern tima sagt mér að passa
mig á bilunum”, sgöi Óli.
Frá Þórshöfn á Langanesi lá
leiðin að Kleppjárnsreykjum i
Borgarfirði og þar bjó Óli á sin-
um sokkabandsárum.
„Það lá svo beint viö að fara
þaöan i Samvinnuskólann.
Þangað fór ég 17—18 ára
gamall. Upp úr þvi flutti ég svo
til Keykjavikur og hef verið hér
siðan, mörgum til mikils ama.”
— Hvað hefur þú svo starfað i
gegnum árin?
„Ég byrjaði sem aöalbókari
við Áburðarverksmiðjuna i
Gufunesi og var þar I sjö ár.
Eftir það fór ég til Einars rika.
Mér tókst að læra margt gott af
honum, en mér tókst þó ekki að
læra að verða rikur. Þar var ég i
annan eins tima, 0—7 ár. Þaö er
skammturinn, en samt er ég
ekki að hóta landsmönnum, að
ég ætli aö vera svo lengi i
Umferðarráði. Þó er aldrei að
vita.”
Þegar Óli hafði lokið vist sinni
hjá Einari rika tók hann við nú-
verandi starfi sinu sem fram-
kvæmdastjóri Umferöarráðs.
Óli var þá spurður hvort hann
hafi eitthvaö leitt hugann aö
umferöarmálum, áður en hann
tók við þessu starfi.
„Þaö hafði margt fariö i
taugarnar á mér i sambandi við
umferöarmálin, áður en ég kom
hingaö. Ég var meö ákveðna
kenningu i umferöarmálum,
sem ég hef aldrei þorað að láta
nokkurn heyra fyrr. Ef þú átt að
passa þig á einhverjum, þá er
það maður með hatt. Þessari
reglu fór ég mjög vel eftir, og ég
held, að það hafi gefist nokkuð
vel”, sagði hann.
Viö verðum svo að láta
lesendum það eftir að reyna aö
ráða i þessi orð Óla. Hann
sagðist þó hafa lagt þessa kenn-
ingu á hilluna eftir að hann kom
til Umferðarráös.
— Hvernig hefur þér gengið i
umferðarmálunum?
„Mér hefur gengið bölvan-
lega. Ég get sagt með góðri
samvisku, að ég sé engan
árangur af minu starfi og það er
illt til þess aö vita. Ég held, að
það hafi ekkert breyst i um-
ferðinni frá þvi ég kom hingaö.”
— Ertu kannski á leið út úr
þessu?
„Nei, en þetta starf miðast við
það, að maður er að gera hluti,
sem kannski skilja ekki svo
mikið eftir sig. Maður veit
aldrei hver árangurinn er af
þvi, sem maður er aö gera. Ég
hef lagt mikla áherslu á tillits-
semi i umferðinni, en ég spyr
þig: finnst þér hafa orðið nokk-
ur breyting á þvi?”
— Ef við snúum okkur að
bilbeltunum, hvernig hefur það
gengiö?
„Það hefur komiö i ljós, að
sumsstaðar notar helmingur
ökumanna beltin, en annars
staðar er það minna. Mér finnst
þaö alls ekki nógu gott, vegna
þess, aö ég er svo einlægur i
þeirri trú minni, að þau séu til
mikilla bóta. Það fer um mig,
þegar ég sé fólk, sem ekki notar
þau. Þarna er verið aö leggja
upp i hendur þess tæki, sem get-
ur kannski haft áhrif á heilsu
þess um ófyrirsjáánlega
framtið. Af hverju notar fólk
þetta ekki?”
— Hefur þú sjálfur alltaf
notað bilbelti?
„Nei, þaö get ég alveg sagt
með góðri samvisku. Ég geröi
það ekki fyrr en ég eignaöist bil
með góðum beltum, en hef gert
það siöan.”
— Attu einhver heilræöi til
ökumanna svona i lokin?
„Að fara eftir 49. grein
umferöarlaganna: „ökuhraða
skal ávallt miða við gerð og
ástand ökutækis, staðhætti,
færö, veður og umferð, og haga
þannig aö aksturinn valdi ekki
hættu eða óþægindum fyrir aðra
vegfarendur né geri þeim
óþarfa tálmanir”.
Ef allir færu eftir þessu, þá
væri allt i lagi hjá okkur,” sagði
Óli H. Þórðarson.
— GB.
Óli mcð beltið spennt, eins og vonandi allir ökumenn landsins.
V Vestfrost
FPYSTIKISTUR
eru DÖNSKgœóavara
VESTFROST frystikisturnar eru búnar
hinum viöurkenndu Danfoss frysti-
kerfum.
Hverri VESTFROST frystikistu fylgja
1-2 geymslukörfur. Aukakörfur fáan-
legar á hagstæðu veröi.
VESTFROST frystikisturnar eru allar
búnar sérstöku hraðfrystihólfi og
einnig má læsa kistunum. Innrabyrði
er úr rafgalvanhúðuðu stáli með inn-
brenndu lakki.
VESTFROST verksmiðjurnar í Esbjerg
er ein af slærstu verksmiðjum sinnar
tegundar á Norðuflöndum.
\Of
LÍTRAR 201 271 396 506
BREIDD cm 72 92 126 156
DÝPT cm án HANDFANGS: 65 65 65 65
HÆÐ cm 85 85 85 85
FRYSTIAFKÖST pr SÓLARHRING kg. 15 23 30 30
ORKUNOTKUN pr. SÓLARHRING kWh. 1,2 1,4 1,6 1,9
201 Itr.
271 Itr.
396 Itr.
506 Itr.
5.829.-
6.387,-
7.241.-
8.450.-
n
Síðumúla 32 Simi 38000
uec&fccðáját?
I o f ■
.' W'
% 3
Á w
9 vi m\
0,
1=f ■ ' i yéJtid
’’ . Jr
L tes?
HLAÐAN er salur í Óðali. í Hlöðunni matast stemningu. Við gerum þér ótrúlega hag-
saman allt að 100 manns. Hið óvenjulega stætt „ALLTINNIFALIÐ" tilboð (dæmi í inn-
umhverfi Hlöðunnar, langborðin og sam- fellda rammanum hér að ofan) og fyrirhöfn
huga gestir skapa ávallt eftirminnilega þín eraðeins símahringing í 11630.
MABAN