Helgarpósturinn - 09.10.1981, Page 19
.nnnVTODO^Q^rU ra?r ied6t^o ii'psbutíö^l
_Jielgarpásturinn_ Föstudagur 9. október 1981
ar
19
urnn.
ÁsgerðurEsterBúadóttir í Listasafni alþýðu:
List úr ull
Það er viðtekinn sannleikur að
ull hélt lifinu i tslendingum i
gegnum tiðina — að mninsta kosti
þangað til Hekluúlpurnar komu
til sögunnar. tslenskar konur
hafa frá aldaöðli setið við prjón-
ana sina og prjónað ullarfatnað
og ekki siður slegið vefinn og ofið
efni I vaðmálsföt.
Vefnaður má þvi teljast samof-
inn sögu þjóðarinnar. Vaðmáliö
hélt hita á rithöfundum okkar og
mestu afrekin á veraldlega
sviðinu voru unnin i vaömálsföt-
um. En lengra náði vefnaðurinn
ekki hjá okkur. Engum datt i hug,
að hann gæti verið listgrein eða
afrek útaf fyrir sig.
Það kemur því ekki á óvart að
sá listamaður islenskur sem telst
frumkvöðull i myndvefnaði fékk
fyrstu viðurkenningu sina i út-
löndum. Það var nánar tiltekið
árið 1956 sem Asgerður Ester
Búadóttirhlautgullverðlaun fyrir
verk sin á 8. alþjóðlegu list-
iðnaðarsýningunni i Miinchen.
Þá voru islenskar konur að
mestu hættar aö slá vefinn til að
vefa efni i igangsklæði. Asgerður
hafði hinsvegar sest við vefstól-
inn einum sex árum áður til að
vefa listaverk. Og Islendingar
urðu fljótlega að endurskoða af-
stöðu sina til vefnaðar.
Nú eru liðin 30 ár siðan As-
gerður Búadóttir sneri sér að
þessari listgrein. 1 tilefni af þvi
veröur á laugardaginn opnuö
yfirlitssýning á verkum hennar i
sýningarsal Listasafns alþýðu við
Graisásveg 16.
A sýningunni eru 38 verk.það
elsta frá 1957, en yngsta verkiö er
ofið i ár.
,,Ég lærði ekki að vefa i skóla;
það má segja að ég sé sjálfmennt-
uð í þvi'. Leiðin lá I Handiða- og
myndlistaskólann, eins og hann
hét þá, og þaðan á Konunglegu
akademiuna i Kaupmannahöfn.
Þarna teiknaði ég og teiknaði og
fór siðan að fást við málverkið.
En einhvern veginn fékk ég ekki
það út úr þvi sem ég vildi”, sagði
Asgerður viö Helgarpóstinn.
Þegar hún hélt heim frá Dan-
mörku aö námi loknu keypti hún
sér vefstól „eiginlega án þess að
vita hvað ég ætlaði að gera við
hann”eins og hún orðar það sjálf.
Siðan hefur hún setið við vefinn,
lengst af á vinnustofu sinni að
Karf avogi 22 i Rey kjavik þar sem
hún héltfyrstu einkasýningu sina,
árið 1962.
„Ég var lengi i vafa um, hvort
ég hefði gert rétt i þvi að fara á
listaskóla i stað þess að læra
tæknina við vefnaöinn á list-
iðnaðarskóla. En ég held að list-
mamtun min hafi komið mér
frdíar til góða; hún hefur gefið
mér miklu breiðari grundvöll til
aö vinna á”, segir Asgerður.
Og að sjálfsögðu notar hún is-
lenskt efni i myndverk si'nj is-
lenska ull. Þar að auki annaö
gamalt islenskt hráefni,hrosshár.
Með þessu efni og margskonar
aðferðum við vefnaðinn, þar á
meðal þá gömlu aöferð sem is-
lenskar konur notuðu við gerð
vaðmáls frá örófi alda, hefur As-
gerður tryggt sér sess sem viður-
kenndur listamaður innanlands
sem utan og frumkvöðull list-
greinar sem á vaxandi gengi að
fagna i landinu.
Um feril hennar þessa þrjá ára-
tugi sem sýningin i sýningarsal
Listasafns alþýðu á að gefa ein-
hverja hugmynd um er best að
hafa óbreytt orö Harðar Ágústs-
sonar listmálara i sýningarskrá:
„Likt og margir jafnaldrar
hennar i islenskri myndlist hóf
Asgerður sköpunarferil sinn rneð
stilfærðum hlutbundnum mynd-
um, þar sem réöu heilir fletir og
mjúklátir litir með ivafi af ljóð-
rænu. Með timanum uxu þó
myndir hennar frá hinum ytri
veruleika að undirstöðu mynd-
heimsins, fletinum sjálfum.
Meira að segja liturinn hvarf.
Sjálfsagt hefur þetta af hennar
hálfu verið itrasta könnun á
vefjarlistinni sjálfri. Þaðan lá
leið hennar til hýrnandi lita og
efniskenndar, uns hún nær full-
þroska áfanga er markað hefur
henni sess i fslenskri listasögu.
Enda þótt óhlutbundin séu við
fyrstu sýn, streymir frá verkum
Asgerðar Esterar Búadóttur rik
og djúp skynjun á landinu, lifi
þess og ásýnd. Ahrifin eru þvi
sterkari sem still hennar er
agaöri. Hún hyllist aldrei til að
láta efni eða tækni glepja fyrir
sér; þau hjú eru svo undirorpin
vilja hennar, að áhorfandinn
gleymir þeim vegna þess innri
boðskapar er verk hennar flytja.
Slikt er kennimark mikils lista-
manns”. þQ
Kór Langholtskirkju:
Syngur fyrir húsaskjóli
þessir tónleikar komu uppá
mjög skyndilega og tilgangurinn
með þeim er að syngja fyrir gleri
i Langholtskirkju, með öðrum
orðum syngja fyrir htísaskjóli
handa díkur”, segir Jón Stefáns-
son söngstjóri við Helgarpóstinn.
Tónleikarnir hefjast klukkan
tvö á laugardaginn i Háskólabiói,
og uppistaðan i söngskránni eru
lög sem kórinn söng á tónleika-
ferð sinni til Kanada i vor. Auk
þeirra syngur kórinn Bftlasyrpu i
útsetningu Sigurðar Snorrasonar
klarinettleikara, með undirleik
kammersveitar, og argentinska
messuverkið Misa Criolla, sem
kórinn flutti fyrir nokkrum árum
ásamt einsöngvurunum Sverri
Guðjónssyni og Alfred Wolfgang
Gunnarssyni, en þeirsyngja einn-
ig einsöng i þetta sinn. Auk þeirra
syngur Ólöf Kolbrún Harðardóttir
einsöng með kórnum á laugar-
dag.
Einnig koma karla-og kvenna-
raddir kórsins fram sitt i hvoru
lagi, undir nöfnunum Stjúpbræð-
ur og Stjúpsystur. Karlarnir
syngja þr jú lög, en konurnar taka
syrpu af lögum eftir Sigfils Hall-
dórsson með undirleik
kammersveitar.
Þá er komin út hljómplata
kórsins, sem hann söng inn á áöur
en hann fór til Kanada i vor. Ætl-
unin var að hafa plötuna með i
ferðinni, en svo slysalega vildi til,
að hún eyðilagðist i pressun, svo
ekki varð af þvi.
EnnU er platan semsé komin út
og hefur aö geyma þau lög sem
sungin voru i Kanada, aðallega
alkunn islensk ættjarðarlög og
þjóðlög,semerui útsetningu Jóns
Asgeirssonar tónskálds. Siðast en
ekki sist er islenski þjóösöngurinn
á plötunni, en þetta mun vera i.
annað sinn sem hann er sunginn
inn á plötu.
ÞG
Tröllin e/skast með ærs/um
Astarsaga úr fjöllunum.
Saga: Guðrún Helgadóttir.
Myndir: Brian Pilkington.
26 bls.
Iðunn 1981.
Nútima prenttækni ræður yfir
undraveröum mætti til þess aö
menningu hafi sagt margt Ijótt
um fjölþjóðaútgáfurnar, og yf-
irleitt með réttu, þá má alls ekki
gleyma þvi að vegna hennar
fáum viö einnig á islensku mörg
listaverk sem að öðrum kosti
kæmust aldrei I hendur hér-
lendra barna.
1*^1 sinn að islenskt forlag hefur lagt i að gefa út barnabók þar sem nýjasta prenttækni er nýtt til
Bókmenntir
TEjJP eftir Gunnlaug Astgeirsson
búa til falleg listaverk i fjölda-
framleiðslu. En til að þessi
tækni nýtist þurfa góöir lista-
menn að skapa verkin sem
prentiðnaðurinn tekur við. Hjá
sumum þjóöum hefur þaö þótt
vera óaðskiljanlegur hluti af
menningarlegri reisn aö fram-
leiða prentlistaverk fyrir börn.
Hefur mörgum þótt það vera
mælikvarði á menningarstig
þjóða, hversu vel sé búiö að
börnum i þessu efni sem og öðr-
um. Hafa viða orðið til fullfal-
legar bækur sem ýmist eru
frumsamdar að öllu leyti, bæði
texti og myndir, eöa aö um er aö
ræöa myndskreytingar færustu
listamanna við eldri ævintýri
eða sögur. Hafa sumar þessara
bóka lent i dreifingarkerfi hins
fjölþjóðlega prentiönaðar en
aörar ekki. Eru þessar bækur
sem hér um ræöir með þvi besta
sem gefiö er út i heiminum. Þó
aö bæði ég og aðrir sem fjallað
hafa um barnabækur og barna-
hins ýtrasta. Hér er vafalaust
um fjárhagslegt glæfrafyrirtæki
að ræða, þvi þessar bækur eru
mjög dýrar i framleiðslu ef að-
eins er miðað viö islenskan
markað. En hér sýnir það sig að
þegar hæfileikafólki eru gefnar
frjálsar hendur og ekkert til
sparaö við framleiöslu þá lætur
árangurinn ekki á sér standa.
Við höfum eignast alislenska
bók sem er fyllilega sambærileg
viö það besta sem framleitt hef-
ur verið annarsstaðar.
Saga Guðrúnar Helgadóttur er
ákaflega falleg og skemmtileg.
Hér kveöur viö allt annan tón en
i fyrri verkum Guörúnar. Ævin-
týrið og fr jálst Imyndunarafl
hefur tekið völdin af þvi nota-
lega og kimna hversdagsraun-
sæi sem einkennir fyrri bækur
hennar. Efniviöurinn er sóttur
til islenskra þjóðsagna og nor-
rænna goðsagna og náttúra
landsins kemur mjög viö sögu.
Ramminn um söguna er sá,
að drengurinn og pabbi hans
sitja við sögusteininn i hliðinni,
en hann minnir á tröllkerlingu
sem og margir aörir steinar I
grenndinni. Pabbinn fer að
segja söguna af tröllskessunni
Flumbru sem varö svo skotin i
stóra ljóta tröllkarlinum að þau
elskuðust með ærslum þannig
að jörðin skalf. Það kalla menn
irnir jaröskjálfta. Þarna hafa
þau skötuhjú tekið viö hlutverki
Loka i goðsögunni, sem kiptist
til og olli jarðskjálftum þegar
eitur ormsins draup i andlit
honum. Upp úr þessu eignast
Flumbra átta tröllastráka sem
ekki eru beint frýnilegir en
henni finnst, eins og öðrum
mæörum, sin börn allra barna
fegurst. Hún fæöir þá á brjósta-
mjólk, en þegar þeir eru mettir
renna hvitir lækir niöur fjalls-
hliöarnar. Tröllin eru löt, elda
Umræðuþáttur sem tókst ve/
Fyrir nokkru kæröi maöur
framkomu tollgæslunnar i
Keflavik við farþega sem kom
til landsins.
Vafalaust hefði þessi kæra
fengið „eðlilega meðferð” og
rannsókn samkvæmt sinu eöli —
hefði hasarblaðamennskan ekki
fundiö sér þarna gölt að flá og
geöillur tollgæslumaður fundið
lágri gráðu. Svona blaöaskrif
þjóna ekki öðru en Iágum hvöt-
um kjaftaska og blöðin ættu að
sjá sóma sinn i að láta ekki
endalaust fallerast.
Ég minntist fyrir nokkru i
þessum dálki á hina þreytandi
og gagnslausu umræðuþætti I
útvarpi og sjónvarpi. A þriðju-
dagskvöldið er var, var i sjón-
málefninu „kvennaframboði” kveikti ég á tækinu. Og þaö er ég viss um, að þeir karlar, sem á
Fjölmiðlun
eftir Gunnar Gunnarsson
tilefni til aö rjúka i blöðin með
litt vönduðu orðfæri.
Islensku dagblööin virðast
verða aö sæta þvi aö birta hvaða
geöillsku og vaöal sem á f jörur
þeirra rekur, og geta reyndar.
ekki við neinn aðila sakast ann-
an en sjálf sig. Þaö er engu lik-
ara en aö öll þjóðin þurfi i sifellu
að vera að taka þátt i persónu-
legu skitkasti vegna einhverra
smámála, sem árekstrasöm
sambúð okkar i landinu fram-
leiöir á hverjum degi.
Undanfarin ár hefur toll-
þjónn nokkur i Keflavfk tekiö aö
sér að svara fullum hálsi þegar
á hann er yrt. Sami maður veð-
ur stöðugt upp og niður dag
blaðssiöur, eins og vandamál
hans i starfi komi einhverjum
við. Siðdegisblöðin hlaupa i si-
fellu til, þegar hann þarf aö
senda einhverjum tóninn, og
bera skætinginn á milli málsað-
ila.
Þetta er ekki fréttamennska.
Ekki einu sinni sensasjónismi af
næstunni munu koma til stjórn-
málaumræöna I sjónvarpi/út-
varpi, geta mikið lært af
þessum konum sem ræddu
málin á þriðjudaginn.
Þátttakendurnir (allir konur
ásamt stjórnendum) ræddu
ákaflega málefnalega og skýrt
um þetta merka mál, sem fjöl-
miölar hafa reyndar sinnt af
áhugaleysi.
Hver þátttakenda kom öðrum
betur fyrir. Allar töluöu þær
skipulega, æsingslaust og af
kurteisi og tillitssemi, jafnt
hver viö aðra sem viö áhorf-
endur. Það er eitt sem vist er,
að þaö er mál til komið aö
stungið verði á mörgum þessara
blaöurbelgja sem þykjast bera
hag kjósenda fyrir brjósti — og
skynsömu, alvarlega þenkjandi
— venjulegu fólki hleypt aö i
pólitikinni. Einhverjum, körlum
eða konum, sem skýra sinn
málstaö og koma fram eins og
konurnar sex á þriðjudags-
kvöldið.
ekki nema á áratuga eða alda
fresti og eins er um alla tiltekt
hjá þeim, en þaö er eins gott þvi
eldgos, skriðuföll og grjóthrun
eru afleiðingar þessara athafna
þeirra. Þegar bjargir Flumbru
eru þrotnar ætlar hún meö
strákana aö heimsækja tröll-
karlinn sinn, sem ekkert vissi
um þessi efnilegu afkvæmi sin,
en þau dagar uppi á leiðinni. En
hin lifandi náttúra sér um aö
klæða þau i mosa og grös og
snjórinn gefur þeim vetrarflik-
ur þannig aö ekki væsir um þau.
Drengurinn er ekki lengur
hræddur við tröllin, náttúruna,
og hugsar hlýtt til þeirra þegar
náttúruhamfarir verða, þvi þá
eru þau að elskast, taka til eöa
elda mat.
Þessi endursögn er aö visu
einfölduð mjög mikiö en von-
andi gefur hún til kynna hvernig
efnistökin eru, hvernig þjóð-
söguefni og náttúru landsins er
tvinnað saman á hlýlegan hátt,
hvernig náttúruöflin eru per-
sónugerö i ævintýrinu. Textinn
er fallegur.og vel unninn. Hann
leynir viöa á sér, ber keim af
þjóösögustil I bland viö einfalt
en fágað nútímaoröfæri.
Um myndir Brians Pilking-
tons eru aörir en ég færari að
fjalla um. En vist er þaö aö þær
eru hrein listaverk. Formbygg-
ing þeirra er mjög sterk. Sér-
kenni islenskrar náttúru eru
dregir. skýrt fram og ævintýra-
figúrurnar, tröllin, eru hreint
frábærar. Litir eru oftast sterk-
ir og hreinir, iöulega i stórum
flötum og formum.
Mig furðar ekkert á þvi aö út-
lendingar hafi oröiö hrifnir af
þessari bók, eins og fram hefur.
komiö i fréttum, og þaö standi
til að þýöa hana á erlend tungu-
mál. Bókin er mjög falleg og
sérstæö, sérislensk aö innihaldi
og yfirbragði, en á aö minu viti
að geta höfðað til flestra, óháð
aldri og búsetu.
G.Ast.
Sýnishorn af myndum Pilking-
tons I Ástarsögu úr fjöllunum.