Helgarpósturinn - 09.10.1981, Side 22

Helgarpósturinn - 09.10.1981, Side 22
22 Föstudagur 9. október 1981-hs/QdrpOSfurÍnri— Að halda í drauminn Bókaklúbbur AB gefur út Dag- slátta Drottins (God’s Little Acre) eftir Erskine Caldwell, i þýöingu Hjartar Halldórssonar. Bókin er 222 bls, Prentstofa G. Ben ediktssonar. Bókaklúbbur AB veröur stööugt öflugri. Ekki veit ég hversu félagar eru margir nú en liklega er þarna um aö ræða stærsta og öruggasta markaö fyrir bók- menntir sem finnst á Islandi. En þeir gera lika ýmislegt til aö halda veröi bókanna niðri, m.a. aö endurútgefa bækur sem nú eru uppseldar. Dagslátta Drottins var fyrst prentuö á íslandi 1944 og þvisannarlega kominn timi fyrir aðra prentun hennar. Erskine Caldwell fæddist i Georgiu I Bandarikjunum áriö 1903. Hann er harðsoðið sagna- skáld og gifurlega afkastamikill. Bestu verk hans eru þau er hann skrifaði á 4. áratugnum, s.s. Tobacco Road, Journeyman, Trouble in July og Dagslátta Drottins. öll þessi verk fjalla um hina hvi'tu i' Suöurrikjum Banda- rikjanna, vandamál þeirra og fátækt. Verkamenn i bómullar- verksmíjum og bændur á villi- götum eru skjólstæðingar Caldwells öörum fremur. í Dagsláttunni er sagtfrá Ty Ty Walden og hans fólki. Ty Ty er bóndi sem á stóra og góða jörð en sinnir litiö landbúnaði vegna þess aö hann er haldinn gullsóttinni og trúirþvi staðfastlega að gullséað finna á landareign hans. Gullsótt-; in er meiriháttar sjúkdómur en ; gamli maöurinn lýsir henni svo: ; ,,Ef þú hefðir sóttina myndir þú ekki hafa tlma til neins annars. Það fer meö mann eins og brenni- vln eða kvennafar. Þegar maður kemst á bragöið þá eirir maður engu fyrr enn maður hefur fengið meir. Þannig heldur það áfram og eykst i sífellu”. (17) Smám saman veröur jöröin þakin gryfjum og Dagsláttan sem gamli maðurinn hafði helgað Drottni sinum verður stöðugt að vikja, vegna þess að hann treystir sér t ekki til að standast þá freistingu að svikja Guð ef gullið fyndist á ekrunni hans! Ty Ty finnur af og til til sektarkenndar gagnvart Drottni en vegna hins mjög svo persónulega viðhorfs sem hann hefur til Guös tekst honum ávallt aö sannfæra sjálfan sig um að þeir gömlu mennirnir skilji hvor annan. En gamla manninum tekst ekki að halda fjölskyldu sinni sam- einaöri aö gullgreftrinum. Einn sona hans hefur flutt til borgar- innar og auögast þar á braski. Hann fyrirlitur gamla manninn og systkini sin fyrir hjakk sitt. Tengdasoriur Ty Tys vinnur i bómullarverksmBju og er einnig afhuga gullgreftrinum, enda standa verkamenn i verksmiðiu- unum I baráttu fyrir starfi sinu á þessum timum. Will, tengda- sonurinn, er hetja verkalýðsins og lætur að lokum lif sitt í barátt- unni gegn verksmiöjueigendum og bandamönnum þeirra, .hinum ihaldssömu forystumönnum amerisku verkalýössamtakanna. Caldwelllýsir i verki sinu eymd fólksins i Suðurrikjunum og dregur þar ekkert undan, enda hneykslaði hann marga landa sina og útgáfa bókarinnar varð tilefni málaferöa. Lýsing hans er einkar trúverðug þótt nöturleg sé, en frásögn hans er jafnframt blandin kimni sem minnir á stundum á Steinbeck. Ty Ty Walden er bitur I bókarlok þegar draumur hans um gullfundinn og hamingjuna sem honum fylgi er verulega farinn að láta á sjá, enda stendur hann þá yfir rústum fjölskyldu sinnar. Ég enda þessa umfjöllun á orðum gamla manns- ins er hann gerir vpp við Guð og lukkuna: „Það ereins og hiðgóöa og hið illa þurfi alltaf að verða samferða. Manni hlotnast aldrei annað án þess að hitt fylgi með /.../ Einhvem veginn hefur verið leikið illa á okkur. Guð setti okkur i dýrsham, en reyndi á hinn bóg- inn að láta okkur hegöa okkur eins og fólk. Það er upphaf ógæf- unnar.” (213) SS Gulli fílar bjór Fræbbblarnir—Bjór Bjór, Critical Bullshit, Mast- urbaticm Music For The Future Fræbbblarnir halda framförinni áfram eiga þeir eftir að gera stóra hluti. E.S. Gulli S. filar Bjór... og No Friends heita lögin á ný- legri litilli plötu Fræbbblanna. Samin af Valla Söngvara og Arnóri gitarleikara. Hér skipa Fræbbblarnir sér loksins á bekk með bestu rokkhljómsveitum landsins. Ná tæknilegum og list- rænum tökum á þvi sem þeir eru að gera, án þess að glata kraftinum og hráslaganum. Ef Box Keflavlk er aftur farin að þramma með i rokkleiknum. Box sér til þess. — Baldur Þ. Guðmundsson, hljómborð, söngur, Eðvarö Vilhjálmsson, trommur, söngur, óskar Niku- lásson, gitar, söngur, Kristján E. Gislason, gitar, söngur og Sigurður Sævarsson, bassi, söngur. — Fimm frumsamin lög á stórri lítilli plötu. Misjöfn að gæðum reyndar, einsog við er að búast af svo litt skóluðum tónlistarmönnum, en Box, London og Góður drengur gefa góð fyrirheit. — Mættum við fá medra að heyra. En með leyfi að spyrja: Hvað merkir málshátturinní?): Dla er brestur, gaman gefur... Ultravox — Rage In Eden önnur breiðskifa Ultravox, sem sló i gegn siðastliðinn vetur með laginu Vienna. Niu lög. Vinalegt kuldalegt tölvurokk. Draumfarir frústreraða skrif- stofumannsins. Þrælgóð plata, auövitað, eðlilegur eftirrennari Viennu, en ekkert nýtt... Simple Minds — Sons And Fascination/ Sist- ers Feelings Call Enn vinalegra, enn kulda- legra tölvurokk. Tvær fyrstu plötur Simple Minds saman I einum pakka. Simple Minds er að minu mati ein besta hljóm- sveitin sem gerir út á þessi mið. Ogþóað hennihafi enn ekki tek- ist að brjóta nógu stórt gat á is- inn, er ég handviss um að hún á eftir að slá virkilega vel i gegn, — fyrr en siöar. Tónlistin þö full mónótónisk I stórum skömmtum... Greatful Dead — Dead Set Fyrr á árinu kom út tveggja- platna albúm, Reckoning, og hafði að geyma órafmagnaða hluta hljómleika Greatful Dead i San Francisco og New York á siðasta hausti. Nú er komin Dead Set, rafmagnaðir hlutar sömu hljómleika. Hér eru margir gamlir kunningjar á ferð, ss. Fire On The Mountain, Friend Of The Devil, Candy- man, að ekki sé minnst á Little Red Rooster eftir Wille Dkon og . A 0€»1«1TÍV1 £»‘ÍCíAUr ÞHICSD noutur Airn/M BY M1”AD- jjgH |||P ' Greatful Dead svikur ekki frek- ar en fyrri daginn. Samter augljóst að Dead eru komnir að leiðarlokum á þeirri ferð sem hófst fyrir hartnær tuttugu árum. Hvað gerir Jerry Garcia nú? Fjölþætt byrjendabók Guðbjörg Þórisdóttir, Jóhanna Einarsdóttir, Kristján Ingi Einarsson: Krakkar krakkar, bók til að lesa skoða og segja frá. 64 bls. Bjallan, 1981. Bjallan er litið útgáfufyrir- tæki sem hefur sérhæft sig I út- gáfu bóka fyrir börn. Einkum hefur veriö lögð áhersla á aö gefa út bækur sem unnt er aö nota I skólum til hliðar og viö- bótar við reglulegt námsefni, enda eru þaö nokkrir kennarar og skólabókaveröir sem standa að þessu forlagi. Nýlega kom út hjá Bjöllunni nýstárleg og frumleg bók sem einkum er ætluð yngstu skóla- nemum, þeim sem eru nýbúnir aö ná einhverju valdi á lestri. En það er einmitt mikill skortur á vekjandi og lifandi lestrarefni fyrir þennan hóp. Efni sem er hæfilega einfalt til lesturs en um leið áhugavekjandi og höfðar til þeirra sem lesa. Bókin krakkar krakkar er þannig byggð upp að á hverri opnu er öðrumegin texti en hinu megin ljósmynd. Myndirnar eru teknar úr hversdagsumhverfi barna I borg eða bæ, það skiptir ekki máli hvort er, og eru af fólki, bæði börnum og full- orðnum við ýmisskonar iðju. Myndir af smábörnum, litlum börnum, stálpuöum börnum, unglingum, ungu fólki, mið- aldra fólki og gömlu fólki. Myndirnar segja frá leik og starfi. Nokkrar lýsa þroska barns, aðrar eru úr fiskvinnslu, á sumum er verið að mála hús öðrum að malbika götu, götu- myndir o.s.frv. o.s. frv. Textinn er unninn úí frá myndunum, oft þannig að myndirnar verða tilefni frásagnar þar sem hugmynda- flugið ræöur oftast ferðinni. Textinn býöur einnig upp á það aö honum sé breytt eða nýr settur I staðinn. 1 lok bókarinnar eru nokkrar myndir án texta, beinllnis ætlaðar til þess að spinna út frá, til að búa til sögu eða frásögn I kringum. Ég trúi að þessa bók sé hægt að hafa til margvislegra nota i yngstu bekkjum grunnskóla og einnig fyrir börn sem ekki eru komin á skólaaldur. 1 fyrsta lagi er um að ræða góða æfingabók fyrir byrjendur i lestri. 1 öðru lagi er hún vel til þess fallin aö æfa frásagnargáfu um leið og hún gefur margvislegt tilefni til umræöna af ýmsu tagi. 1 þriðja lagi er hægt aö tengja hana fræðslu um nánasta umhverfi t.d. I vettvangsferðum til að skoða einhver fyrirbæri sem vikið er að i henni. 1 fjórða lagi má nota hana við myndmennta- kennslu og fleira mætti sjálfsagt telja. Með þessari bók er stigiö stórt skref I þá átt að bæta úr þeirri brýnu þörf sem er á nýstárlegu og fjölþættu náms- efni fyrir yngstu skólanem- endur. G.Ast. „Með þessari bók er stigið stórt skref I þá átt að bæta úr þeirri brýnu þörf, sem er á nýstárlegu og fjölþættu námsefni fyrir yngstu skólanemendur,” segir Gunnlaugur Astgeirsson I umsögn sinni um Krakka, krakka.

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.