Helgarpósturinn - 05.11.1982, Síða 2
Smygluð egg og Hótel Loftleiðir:
Föstudagur 5. nóvember 1982
-tk'k
L)Ssturinn.
„Forkastanleg ummæli”
— segir Emil Guðmundsson hótelstjóri
■ Dreg ekkert
til baka, segir
Gunnar Guð-
bjartsson
í grein um smygl á kjöti í síðasta
Helgarpósti var m.a. haft samband
við Gunnar Guðbjartsson, for-
mann Stéttarsambands bænda, og
hann inntur eftir því hvort bænda-
samtökinyrðu mikið vör við smygl-
varning. I svari hans kom fram að
alltaf annað slagið heyrðu menn af
slíku en hcfðu engar sannanir frek-
ar en aðrir. „Ég veit til þess að í
sumar voru flutt inn egg í vélum
Flugleiða og ég hef nokkra vissu um
að hluti þeirra fór inná Hótel Loft-
leiðir. En þetta er alltaf grunur,
ekki vissa“, sagði Gunnar enn-
fremur.
í framhaldi af þessum ummælum
Gunnars Guðbjartssonar hafði
Emil Guðmundsson, hótelstjóri á
Loftleiðum, samband við Helgar-
póstinn.
„Mér finnst forkastanlegt að
maður í þessari stöðu skuli geta
látið útúr sér þessi ummæli“, sagði
Emil. „Hér hefur aldrei verið
boðið uppá erlend egg, ekki eitt
einasta. Þvert á móti hefur þetta
hús verið einn stærsti viðskiptavin-
ur þeirra sem framleiða íslenska
landbúnaðarvöru. Við höfum
þannig eflt íslenskan landbúnað,
og mér þykir það mjög ómaklegt
að maður í forsvari bændasamtaka,
opinber aðili, skuli segja svona
lagað. Ég get því ekki annað en
farið frammá að hann dragi þessi
ummæli sín til baka“, sagði Emil.
Þess skal getið að ísleifur Jóns-
son, veitingastjóri á Loftleiðum,
var ásamt yfirveitingamönnum
öðrum spurður í umræddri grein
hvort hann yrði eitthvað var við
smyglvarning í sinni stöðu, og hann
Tugir tonna af
smygluðu
. -í, -
Hœttulegt
Hrámetið - þx. óunrnð- kj« - kemur
cinkum hingftð til Umh frí meginieAdi Hvi-
ópu, en einnig fri Bandutkjtmuin. Það er aö
tjílfsógóu flutt hingað (rosid. og vegna van-
kvcðanna við að feU það kemur óhjákvcmi-
lega fyrir að það þiðnar. Þegar bthð er að
tvifrysu það hafa gaðin minnkað nokkuð.
cada segja veitingamenn að þctta kjöt U
Guójón Arngrfn
sógn Páls A. Piliaonar. yfudýralcknis er til- IX
■ gangurmn U að torðasl sjúkdóma .Það eni I ^
flgQ mymórg ilrmi þrsa að alvailegir t|úkdóma- I •
I laraUlrar fvlgja I kiólfar ullul smygluiVi k)<*■(i
H um allan heim I sumar hertum við mjóg fl
■ eftulit, og (engum v>ð þvl góðar undutektir. H
■ vrgna gin og klaufaveikifaralduruns I Dan
^Sflp mórku. En það verður sjálfsagtjildrei hcgt
SKa
r‘l Sambúð gagnrýnenda og lista-
/ imanna virðist fara batnandi. í
S vikunni kom út ný skáldsaga
eftir Stefán Júlíusson rithöfund og
heitir hún Átök og einstaklingar,
með undirtitil Skáldsaga úr bæn-
um. Þetta er fjölskyldusaga um pó-
litík og persónuleg átök og gerist á
síðustu áratugum. Fyrir tveimur
árum kom út eftir Stefán skáld-
sagan Stríðandi öfl og segir hún frá
sömu persónum og nýja bókin. Um
hana skrifaði þá Gunnlaugur Ást-
geirsson, bókmenntagagnrýnandi
Helgarpóstsins,umsögn hér í blað-
ið. Fyrirsögn hennar var Átök og
einstaklingar. Nafn nýju bókarinn-
ar tekur Stefán Júlíusson semsagt
úr fyrirsögn rítdóms um þá fyrri.
Svona geta menn hjálpast að...
'>11 Landhelgisgæsla íslands er
f'i meira og minna lömuð um
-^iþessar mundir og mun mikil
óánægja innan Gæslunnar með
hvernig mál hennar hafa snúist.
Þykir hinn nýi forstjóri Gunnar
Bergsteinsson ekki hafa haldið sínu
í viðureign við fjárveitingavaldið
og hlýða sparnaðarkröfum orða-
laust með þeim árangri að skip
Gæslunnar eru mest í höfn og flug-
vélarnar fljúga ekki. Segja sumir
innan Gæslunnar: enginn veit hvað
átt hefur fyrr en misst hefur, og
eiga þá við Pétur Sigurðsson
sjóðliðsforingja. Yfirflugstjóri
Gæslunnar mun nú hafa sagt því
starfi lausu vegna óánægju með
ástandið...
neitaði því alfarið.
Gunnar Guðbjartsson kvaðst
ekki mundu draga orð sín til baka,
þegar Helgarpósturinn las fyrir
hann ummæli Emils Guðmunds-
sonar hótelstjóra.
„Ég hef hérna bréf frá stjórnar-
manni í Sambandi eggjafram-
leiðenda sem hann sendi landbún-
aðarráðherra og Framleiðsluráði
landbúnaðarins 13. ágúst í sumar. í
þessu bréfi hefur hann það m.a.
eftir starfsfólki á Hótel Loft-
leiðum, að þar hefðu verið á boð-
stólum ný innflutt egg, að öllum
líkindum frá Lúxembúrg. Auk
nýrra eggja hefur ákveðin heildsala
flutt inn eggjaduft, sem mun flokk-
ast undir iðnvarning, en vafasamt
er hvort það er rétt flokkun.
Ég hef óskað eftir rannsóknum á
þessu en ekki fengið niðurstöður
enn. En það er hinsvegar forráða-
manna Hótels Loftleiða að afsanna
þau ummæli starfsfólks þar, að þar
hafi verið á boðstólum ólöglega
innflutt ný egg“, sagði Gunnar
Guðbjartsson formaður Stéttar-
sambands bænda.
Við þetta sagðist Emil Guð-
mundsson hótelstjóri engu hafa að
bæta öðru en því, að téð egg hafi
verið flutt inn til að nota þau í flug-
vélum Flugleiða, og það hafi verið
gert með leyfi frá landbúnaðarráð-
herra.
„Eggin fóru aldrei út fyrir flug-
völlinn og voru því ekki á borðum á
Hótel Loftleiðum. Árum saman
hefur hótelið keypt öll sín egg af
sama framleiðandanum, Geir í
Eskihlíð, og á því hefur engin
breyting orðið“, sagði Emil Guð-
mundsson.
-GA/ÞG.
GOODWYEAR
GEFUR 0'RETTA GRIPIÐ
Minni bensín-
eyðsla
Meiri ending
Betra grip í
bleytu og hálku
Örugg rásfesta í
snjó
Goodyear hefur framleitt
hjólbarða síðan árið 1898
og er stærsti fram-
leiðandi og tæknilega
leiðandi á því sviði í
heiminum.
Hjá Goodyear hefur
öryggi ökumanns,
farþega og annarra
vegfarenda ávallt verið í
fyrirrúmi.
Það er því ekkert skrum
þegar sagt er að þú sért
ÖRUGGURÁGOODYEAR.
FULLKOMIN
HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
Tölvustýrð jafnvægisstilling