Helgarpósturinn - 05.11.1982, Blaðsíða 16
Allsherjar
frík
Nafnið
Minnir nafnið Allsherjarfrík þig
á eitthvað?
Ef svo er ekki, þá er tími til þess
kominn... Af því að við erum nú
ísfirðingar í húð og hár (hm) finnst
okkur ekki annað tilhlýðilegt en að
taka viðtal við ísfirska hljómsveit.
Og þar sem hljómsveitin Allsherj-
arfrík hefur komið fram á tón-
leikum hér í höfuðborginni (þegar
þetta blað kemur út) þá drösluðum
við helmingnum af sveitinni,
Bjarna Brink söngvara og Kristni
Níelsar gítarleikara upp á Helgar-
póst og spurðum þá nokkurra
staðlaðra spurninga.
Af hverju stofnuðuð þið hljóm-
sveit, strákar?
Kristinn: Tja.. Þörf fyrir útrás.
Frægð
Langaði ykkur ekkert til að
verða frægir?
Bjarni: Mann langar alltaf til að
verða frægur þangað til maður er
orðinn það.
Hvernig er tilfínningin að vera
að fara að spila fyrir fólk scm þið
hafið ekki hugmynd um hvernig
tekur ykkur?
Bjarni: Virkilega spennandi. Ja,
sviðskrekkurinn heltekur mig 5—10
mín. fyrir hljómleikana...
Kristinn: ...en skreppur saman í
fyrsta laginu.
Hvað eruð þið búnir að spila
lengi saman?
Kristinn: U.þ.b. eitt ár. En hug-
myndin er tveggja ára.
Bjarni: Þriggja.
Hvernig varð nafnið til?
Bjarni: Já, nafnið. Bæði það að
svona nafn getur orðið vinsælt, svo
er það táknrænt fyrir okkur sem
fyrstir starfa á ísafirði eingöngu á
tónleikagrundvelli.
Pólitík
Hvar standið þið í pólitík?
Bjarni: Ég er á móti þessari
hreppapólitík á íslandi.
Kristinn: Hægri öfgamaður
(hlær).
Bjarni: Hann er afturhaldssvín,
skrifiði það... hahaha (o.s.frv...)
Viðhorf ykkar til vímugjafa?
Bjarni: Erum á móti lími og svo-
leiðis ógeði...
Kristinn: ...en það er fyrst og
fremst mál einstaklingsins. Hver er
virkilega hjálparþurfi í þjóðfé-
laginu?
Konur og karlar
Af hverju haldiði að það sé meira
um karlmenn í tónlistarbrans-
anum?
Bjarni: Þeir eru haldnir meiri
sýniþörf, frjálsari.
Kristinn: Munurinn liggur i eðli
og uppeldi.. Bjarni:... Rétt, rétt.
Hvað um kvenréttindamálin?
Bjarni: Meðan ég er ekki giftur
rauðsokku þá er allt í lagi.
Trú?
Báðir: já, já, við trúum á guð.
Bjarni:.. og hugarorkuna
Kristinn:.. og eigin hæfileika, ég
. er á móti fóstureyðingum, þið meg-
ið skrifa það.
Eigið þið ykkur eitthvert mottó?
Bjarni: Láta sér líða vel, held
það eigi við um alla.
Kristinn: Ég lifi eftir því, að
maðurinn er alltaf einn.
Og einhver spök lokaorð?
Bjarni: Við viljum agressívheit!
Kristinn: Vona að ég geti ávallt
verið sjálfum mér samkvæmur.
Við þökkuðum þeim þar með
pent fyrir komuna og hentum þeim
út.
Hrönn og Svanhildur
Viðtökur
Plata?
Er í bígcrð að gefa út plötu?
Bjarni: Er það ekki draumurinn
Kristinn?
Kristinn: Jú, það er takmarkið,
en við verðum að vera ánægðir
með efnið áður en við þrykkjum
því í plast. Við erum í raun og
veru tónleikagrúppa.
Bjarni: og hugsjónamenn. Plöt-
ur eru svo dýrar á íslandi í dag að
það er eiginlega betra að ná til
fólksins með tónleikahaldi.
Hversu lengi haldið þið að þið
eigið eftir að tóra?
Bjarni: Eins lengi og við höfum
áhuga.
Kristinn: Svo framarlega sem
maður hefur þessa útrásarþörf sem
mirinst var á í upphafi.
Hvernig tónlist?
Hvernig viljið þið flokka tónlist
ykkar?
Bjarni: Hrátt og hratt rokk. Við
erum allir mjög ólíkir innbyrðis í
sambandi við tónlist.
Kristinn: T.d. held ég mikið upp
á sígilda tónlist.
Bjarni: En ég held upp á erlenda
og innlenda nýbylgjutónlist.
Hver semur lög og texta?
Kristinn: Bjarni semur alla
texta, en lögin koma út í einni sjálf-
stæðri heild, hjá hljómsveitinni.
Hvar hafíð þið komið fram?
Bjarni: Við höfum komið fram
nokkrum sinnum á ísafirði og einu
sinni á Núpi.
Hvernig voru viðtökur og að-
sókn?
Mjög góðar viðtökur og aðsókn
|nest 150manns, en þá varðlíka allt
brjálað.
Boðskapur?
Við semjum dálítið af anti-
textum. Reynum að terrorisera
fólk, köllum fram viðbrögð með
því að semja texta sem eru vilhallir
einhverju efni á mjög öfgafullan
hátt, þó við séum á móti því.
„Kjarnorka" er einmitt gott dæmi
um þetta. Við syngjum „Kjarnorka
er gjöf til mannsins til að leysa sín
vandamál, kjarnorka er bjargvætt-
ur mannsins til að draga úr offjölg-
un“. Kristinn:Erumfyrst ogfremst
mótmælendur.
Bjami Brink og Kristinn Ní-
eisar, meðiimir Allsherjar-
fríks
Umsjón:
Hrefna Haraldsdóttir
og Jóhanna Þórhallsdóttir
er sitja fast í mér og gera þetta
kvöld eftirminnilegt.
Tiltekt
Jæja þá kæru lesendur:
Þá er komið að lokapunktinum í
frásögn minni af leiðangrinum
góða.
Þeir dagar er nú gengu í hönd
eftir ánægjulega tíma í kortagerð-
inni gengu aðallega út á tiltekt og
öllu er því fylgdi, s.s. næturvarsla á
gámum og fleira í þeim dúr.
Varðeldur
Síðasta sameiginlega kvöldið er
við vorum í Angmagsalik var
kveiktur varðeldur og smakkað á
selkjöti og í fyrsta sinn í ferðinni
fengum við ferskar kartöflur. En
það verð ég að segja að ekki var
þetta skemmtilegasti varðeldur
sem ég hef verið við, en eins og
Hingað...
Hingað til lands var flogið á
mánudegi og þriðjudegi en til Bret-
lands á fimmtudegi. Þessir dagar
voru óspart notaðir til sundferða
enda ekki búin að njóta heita
vatnsins í 7 vikur, eingöngu þvegið
sér úr ísköldu vatni er þarna rann
undan jöklum. Einnig var farið
með hópinn hina venjulegu túrista-
leið (Gullfoss, Geysir og Hvera-
gerði). Ólafur forstöðumaður í
Tónabæ á þakkir skildar fyrir góð-
an samstarfsvilja við hina órólegu
en þó langþreyttu Breta, og ekki
má gleyma að minnast á plötusnúð-
inn sem sá um að halda dúndrandi
diskótek og mátti líkja liðinu við
beljur sem hleypt er út á vorin, svo
mikil voru lætin og ánægjan er þá
ríkti.
Dúndrandi diskó
Og svona í leiðinni langar mig að
skjóta þökkum inní til Rafha er
góðfúslega lánaði okkur eldavéla-
hellur og komu þær sér mjög vel.
Og fyrst ég er byrjaður á þökk-
um ætla ég að endurtaka þakkir
mínar til HP fyrir að hafa valið mig
í ferðina. S.B., J.P. Guðjóni og
Ragnari Guðleifs færi ég góðar
þakkir fyrir þá styrki er ég hlaut frá
þeim. En þá er komið að spurning-
unni hvort svona lagað borgi sig
raunverulega því óneitanlega var
þetta dýrt. Var þetta eitthvað
meira en bara ævintýra- og
skemmtiferð? Þessum og fleiri
álíka spurningum varpa ég fyrir
róða og stend fastur á því að þessi
ferð hafi svo sannarlega borgað sig.
Ferð sem borgaði sig
Jók hún til dæmis til muna skiln-
ing minn á Bretum og þá ekki síður
Grænlendingum, svo voru einnig í
þessari för ítalir, Ástralir, Dani og
Kanadabúar.
En ég held að það sé vissara fyrir
mig að stoppa nú því ég er að fara
út á háskalega braut sem ég veit að
ég mun aldrei geta klárað hér í
þessum pistli, en eins og gefur að
skilja þakka ég bara fyrir birting-
una og bið að heilsa öllum.
Sigurður.
Hæ æðislegi Suðari:
Við erum svo spældar yfir
viðtalinu við Bjögga. Hann
kvartar yfir því að það sé svo mik-
ið skrifað um ungu grúppurnar og
að það sé samt ekkert að gerast
hjá þeim. Við erum gapandi út af
þessu. Er Bjöggi að meina að allir
hljómleikarnir sem hafa verið séu
sjónhverfingar hjá blöðunum
eins og Melarokk og Risarokk og
Rokkhátíðin mikla í Austurbæ-
jarbíói og Hótel Borg og UPP
Bjöqgi afbrýðisamur út í
Bubba??
...og við þökkum Sigurði fyrir
þessa skemmtilegu pistla og
biðjum hann vel að lifa.
OG NIÐUR og við gleymum
ábyggilega helmingnum. Hefur
Bjöggi trú á að myndin Rokk í
Reykjavík sé plat og að bestu
hljómsveitirnar hafi aldrei verið
til, eins og EGÓ, Þeyr, Purrkur-
inn, Baraflokkurinn, Vonbrigði,
Q4U og margar aðrar eða að
nýbylgjubúðin Stuðbúðin sé ekki
til? Bjöggi vill kannski líka meina
að óskalagaþættirnir séu að ljúga
þegar þeir segja að EGÓ sé lang-
samlega vinsælasta hljómsveitin.
Ætli Bjöggi sé ekki bara afbrýði-
samur eins og þegar hann segir:
„Sannaðu til, það verður ekki
langt þangað til litla Björk verður
sett til höfuðs Röggu'Gísla.“ Af
hverju á að setja Björk til höfuðs
Röggu þegar Ragga er skapandi í
tónlist eins og Björk, þó hún
syngi stundum skallapopp.
Bjöggi skilur ekki að Bubbi var
settur til höfuðs honum. Það var
af því að Bjöggi studdi dautt og
gelt skallapopp eins og hann gerir
ennþá. Áður en Bjöggi rífur næst
kjaft ætti hann að reyna að skilja
hvað Bubbi meinti þegar hann
söng: Ég er löggiltur öryrki,
hlusta á HLH og Brimkló ég er
löggiltur öryrki, læt hafa mig að
fífli, styð markaðinn. Okkur
finnst að Helgarpósturinn eigi
frekar að hafa viðtal við Bubba
eins stórt og skallapopparann.
Svo þökkum við fyrir frábæran
Stuðara og óháða vinsældalist-
ann, þið mættuð líka hafa viðtal
við Q4U.
Dóra og Ása
PÚSTUR OG SlMI: