Helgarpósturinn - 05.11.1982, Side 4
Föstudagur 5. nóvember 1982 . ^pSstUrÍDTL
Misstu aleiguna þegar hænsnabúið á Straumi fór á hausinn
Drap flúormengun
frá álverinu þús-
undir kjúklinga?
Hjónin Guðmundur Jónasson og
Ólöf Sigríður Sigurjónsdóttir eiga allt
sitt undir því að vinna skaðabótamál
gegn álverinu í Straumsvík, sem
vaentanlega fellur á næstu vikum.
í gær, fimmtudag, hófust á n ý rétt-
arhöld í máli sem þau höfðuðu gegn
álverinu vegna kjúklingadauða á bú-
inu sem þau ráku á Straumi, nokkur
hundruð metrum sunnan við verk-
smiðjuna.
„Svar mitt við því hvort þessar kröf-
ur séu ósanngjarnar er einfalt já“,
segir Ragnar S. Halldórsson forstjóri
ísal við Helgarpóstinn.
Málareksturinn hófst þegar á miðju
ári 1977, þegar Guðmundur Jónas-
son, sem þá hafði kjúklingabúið á
leigu, varð að leggja reksturinn niður.
Ástæðan var sú, að vanhöld höfðu
orðið stöðugt meiri, og þegar yfir
lauk drápust 54 kjúklingar af hverjum
hundrað.
Líklegt þótti, að flúormengun frá
Álverinu hefði valdið dauða kjúkling-
anna, og næstu þrjú árin fóru í sátta-
umleitanir við forráðamenn ísal. Þeg-
ar það þótti fullreynt var ákveðið að
höfða mál.
Tekjutap Guðmundar vegna lang-
varandi vanhalda í kjúklingunum var
metið 16,3 milljónir gamalla króna,
þegar reksturinn var iagður niður.
Þegar málið var höfðað árið 1980 var
sú upphæð framreiknuð í 49 milljónir
gkr.
En þarna er fyrst og fremst um
mannlegan harmleik að ræða. Guð-
mundur og Ólöf sem eiga fjögur börn,
misstu íbúð sína í Hafnarfirði vegna
taprekstursins á búinu. Síðan hafa
þau flækst milli leiguíbúða, misst
húsnæði fimm sinnum á fimm árum,
og unnið myrkranna á milli til að
reyna að rétta við fjárhaginn.
„Ég sé ekkert samhengi á milli
flúors í loftinu og dauða þessara
kjúklinga,“ segir forstjóri Isal við
Helgarpóstinn.
Það er einmitt þarna sem óvissan
liggur; hvorki erlendum né inn-
lendum vísindamönnum hefur tekist
að færa fram óyggjandi rök fyrir því,
að flúormengunin hafi raunverulega
átt sök á dauða kjúklinganna.
Þegar dæma átti í málinu í maí á
þessu ári óskuðu tveir meðdómend-
anna, læknarnir Þorvaldur Veigar
Guðmundsson og Jóhann Axelsson,
eftir fresti til að áfla nýrra gagna í
málinu. Þau verða lögð fram í þeim
réttarhöldum sem eru ný hafin.
Á sama tíma og þessi frestur var
veittur voru sett upp í álverinu í
Straumsvík hreinsitæki til að hreinsa
bæði loftið í kerskálunum og það sem
fer út úr verksmiðjunni. Kostnaður-
inn við það var 360 milljónir króna.
.
' o '
■■ ■■■■■>■
- í ;
í rauninni er þarna um tvö sjálfstæð mál að
ræða. Annars vegar er mál Guðmundar,
hinsvegar þáverandi eiganda Straums, Sigur-
jóns Ragnarssonar í Hressingarskálanum og
Kristins Sveinssonar.
54% vanhöld
Þeir ráku svínabú á Straumi en skiptu síðan
yfir í kjúklingabú, og var Guðmundur bú-
stjóri þar á árunum 1971-1973. Haustið 1976
tók hann síðan búið á leigu og keypti bústofn
og annað sem til rekstrarins þurfti.
Fljótlega tók að bera á vanhöldum í kjúkl-
ingunúm, sem síðan jukust þar til afföllin
voru orðin um 54% veturinn 1977. Þá var
framleiðslan um 12000 kjúklingar á mánuði.
Rekstrartap var eðlilega mikið á þessum
búskap og fór svo að Guðmundur varð að
selja íbúð þeirra hjóna í Hafnarfirði til að
standa undir útgjöldunum. Um mitt ár 1977