Helgarpósturinn - 05.11.1982, Side 7
T
„Úrval af því besta"
Þýðingar Sigurðar A. Magnússonar á íslenskum
eftirstríðsljóðum gefnar út í Bandaríkjunum
„Ég held að þetta sé úrval af því
besta sem ort hefur verið á þessum
40 árum,“ segir Sigurður A. Magn-
ússon rithöfundur um Ijóðaþýð-
ingabók sína, sem nýlega kom út í
Bandaríkjunum.
í bókinni, The Postwar Poetry of
Iceland, eru 350 ljóð eftir 28 ís-
lensk skáld, þau elstu Snorri Hjart-
arson og Steinn Steinarr, en þau
yngstu Sigurður Pálsson og
Steinunn Sigurðardóttir.
„Aðdragandann að þessari úgáfu
má rekja aftur til ársins 1976,“
sagði Sigurður í samtali við Helg-
arpóstinn. „Pá fékk ég styrk til að
vera ásamt 25 öðrum höfundum
víða að úr heiminum í rithöfunda
miðstöð, „International Writing
Program“, í Iowa í Bandarfkjun-
um. Þarna í Iowa vann ég í þrjá
mánuði að þessum þýðingum og
lauk þar verkinu með góðri aðstoð
ungs bandarísks ljóðskálds, Mick
Fedullo. Ástæðan fyrir því að
bókin kemur ekki út fyrr en núna
er sú að þeim í Iowa þótti það ekki
vænlegt að gefa út íslensk ljóð í
Bandaríkjunum og það var ekki
fyrr en Unesco og seinna Iceland
Review komu einnig inn í myndina
að af útgáfunni varð.“
- Átti þessi vinna vel við þig?
„Já, ég hafði mjög gaman af
þessu. Þetta var gríðarleg vinna, -
ég nánast lokaði mig inni í þrjá
mánuði og talaði varla við nokkurn
mann. Ég var í hálfgerðum trans,“
sagði Sigurður brosandi. „Þetta
gekk nærri mér, en var gaman."
- Hverjir kaupa svona bók í
Bandaríkjunum?
„Þessi bók fer væntanlega mikið á
bókasöfn háskólanna.
ljóðaunnendur munu einhverjir
kaupa hana og áhugamenn um ís-
lenska menningu, sem ekki eru svo
fáir í Bandaríkjunum. Þótt undar-
legt megi virðast er íslenska kennd
við mjög marga háskóla í Banda-
ríkjunum, sem undirstaða undir
germönsk mál og jafnvel í tengsl-
um við enskunám og margir sem
hafa þannig fengið nasasjón af
landinu hafa áhuga á að kynna sér
það frekar í gegnum bók sem
þessa. Og svo má ekki gleyma því
að margir ameríkanar eru af ís-
lenskum ættum oe ée varð var við
að Vestur-íslendingar voru margir
hverjir mjög spenntir fyrir þessu.
En þetta er svo sem ekki stór út-
gáfa - 1500 eintök. Það er ekki
mikið á okkar mælikvarða, þó það
þyki gott vestra."
-GA
Sigurður A. Magnússon:
„Skemmtileg vinna.“
Mánudags-
myndir í
Háskóla-
bíói í vetur
„Það er aðallega tvennt sem veld-
ur því að í vetur verður ekki lögð
mikil áhersla á mánudagsmyndir,“
sagði Friðbcrt Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Háskólabíós í sam-
tali við Helgarpóstinn.
„í fyrsta lagi sýnir listahátíð nú
um þrjátíu myndir árlega af svip-
uðum toga og tekur þannig toppinn
ofan af úrvalinu af góðum listræn-
um myndum. f öðru lagi lést um-
boðsmaður okkar í Danmörku ný-
lega og af þeim orsökum hefur ver-
ið erfitt um aðföng.“
Friðbert sagði þó Háskólabíó
ætla að sýna þær myndir í vetur sehi
þegar hefðu verið gerðir samningar
um, en þær væru nokkrar- þýskar,
franskar, hollenskar, grískar ög frá
fleiri löndum. Framhaldið er að
öðru leyti óráðið.
Tappinn tekinn úr
Tappi Tíkarrass -
Bitið fast í vitið
Hljómsveitin Tappi tíkarrass
hefur vakið nokkra athygli nú á
síðustu mánuðum. Það má segja
að fyrst hafi fólk orðið vart við
hljómsveit þessa vegna óvæntrar
frammistöðu hennar í myndinni
Rokk í Reykjavík en það var ekki
fyrr en á Melarokkinu hér á dög-
unum að menn gerðu sér grein
fyrir að hún væri orðin ein af betri
hljómsveitum bæjarins. Síðan
hefur nafn hljómsveitarinnar æ
oftar borið á góma í umræðum
manna.
Tappi tíkarrass hefur nú sent
frá sér sína fyrstu plötu og hefur
hún að geyma fimm lög.
Ekki verður annað sagt en að
þau fari bara bærilega af stað og
víst er að margar hljómsveitir
hafa sent frá sér verri fyrstu
plötur en þessi er.
Bestu lögin tel ég vera Óttar og
London, en flutningur þeirra er
kraftmestur og jafnbestur. Mér
finnst Fa Fa einnig ágætt en hin
tvö sem ótalin eru minna spenn-
andi.
Strákarnir eru allir þokkalegir
hljóðfæraleikarar, þó finna megi
smá hnökra hér og þar, einkum í
trommuleiknum. Björk er áreið-
anlega ein af efnilegri söngkon-
um landsins en ég hef einhvern
veginn á tilfinningunni að hún
geti betur en hún gerir að þessu
sinni.
Þessi fyrsta plata Tappa tíkar-
rass er sem sé þokkalegasta byrj-
endaverk og víst er að Tappinn er
hljómsveit sem forvitnilegt verð-
ur að fylgjast með í framtíðinni.
Don Henley -
I Can’t Stand Still
Líklega er hljómsveitin Eagles
vinsælasta bandaríska hljómsveit
sem starfað hefur. Plötur hljóm-
sveitarinnar þóttu flestar góðar1*
og þær seldust í verulegu upplagi.
Einkum þetta tvennt var þess
valdandi að hljómsveitin átti erf-
itt með að senda frá sér plötur,
þar sem sífellt var ætlast til að
þeir gerðu betur en áður. Eftir
útkomu Hotel California, árið
1976, var ljóst að hljómsveitin
mundi eiga í erfiðleikum með að
senda frá sér betri plötu. Það tók
þá þrjú ár og nokkur taugaáföll
að fullgera plötuna The Long
Run, sem þegar til kom þótti alls
ekki nógu góð.
Eftir þetta má eiginlega segja
að hljómsveitin hafi lognast út af
en þess í stað hafa meðlimir
hennar, einn af öðrum, sent frá
sér sólóplötur, með misjöfnum
árangri. Nýjasta sólóplata Eagl-
esmeðlims er nýútkomin plata
Don Henleys, sem líklega hefur
. sungið ríflega helming þeirra laga
sem Eagles sendu frá sér og hann
hefur því röddina sem flestir
muna eftir.
Því er ekki að neita að Henley
fer bara bærilega af stað með
þessu fyrsta sólóafkvæmi sínu.
Hann hefur sér til aðstoðar rjóm-
ann af hinni svokölluðu Kaliforn-
íumafíu en of langt mál yrði að
telja þá upp hér.
Á fyrri hliðinni eru það einkum
tvö lög sem ég hef gaman af en
það eru I Can’t Stand Still, sem er
rólegt en þó kraftmikið og You
Better Hang Up, sem er milli-
tempórokkari. Þá er lagið Nobo-
dy’s Business einnig þokkalegt.
Seinni hliðin er öllu
heilsteyptari en þó eru þrjú fyrstu
lögin einna best. Það fyrsta er
Dirty Laundry, sem nokkur
diskókeimur er af, þá kemur
gamaldags rokkari um hann Jo-
hnny sem ekki kunni að lesa svo
illa fór fyrir honum sakir fávisku
hans og loks má nefna Them and
Us, þar sem gjöreyðingarstyrjöld
er gerð að yrkisefni.
Áðalsmerki plötu þessarar er
pottþéttur en stundum dálítið líf-
laus hljóðfæraleikur en umfram
allt er það góður söngur Henleys
sem setur mark sitt á hana. Hafi
einhver Eaglesaðdáandi verið að
bíða eftir nýrri plötu þá er þetta
líklega það sem næst verður
komist.
Simple Minds -
New Gold Dream
(81, 82, 83, 84)
Platan Empires and Dance,
sem hljómsveitin Simple Minds
sendi frá sér árið 1980, var al-
mennt talin ein af betri plötum
þess árs og furðuðu margir sig á
því að hljómsveitin skyldi ekki slá
í gegn með hinu ágæta lagi sínu I
Travel, sem er einmitt að finna á
þessari plötu.
I fyrra sendi hljómsveitin frá
sér plöturnar Sons and Fascinati-
on og Sister Feelings Call en þær
voru gefnar út saman og seldar
saman í pakka til að byrja með.
Af Sons and Fascination varð
lagið Love song minniháttar hitt.
Ekki gengu þessar plötur eins vel
og ráð hafði verið fyrir gert en þó
betur en fyrri Simple Minds-
plötur.
Það var ekki fyrr en fyrr á
þessu ári að Simple Minds slógu
almennilega í gegn og þá með
laginu Promised You a Miracle
og nú á síðustu vikum hefur Iagið
Glittering Prize gert það gott á
vinsældalistum, auk þess sem
nýja stóra platan þeirra, New
Gold Dreams, hefur farið alla
leið í þriðja sæti breska listans.
En af hverju slær Simple Minds
fyrst í gegn núna, þegar þeir sem
með hljómsveitinni hafa fylgst
eru á því að hún hefði fyrir löngu
átt að vera orðin vinsæl? Ástæðan
er líklega sú að tónlistin hefur
verið snurfusuð nóg til þess að fá
spilun í útvarpi og þar með ná til
stærri áheyrendahóps. Þessu hef-
ur fylgt sú staðreynd að tónlistin á
New Gold Dream er hvergi jafn
kraftmikil og t.d. Iögin I Travel
og Love Song eru. Það hefur nú
verið skrúfað allmikið niður í gít-
arnum en hljómborðin hækkuð
og mýkir það auðvitað heildaryf-
irbragð plötunnar.
Þrátt fyrir þetta er New Gold
Dream mjög góð plata og Simple
Minds er hljómsveit sem er allrar
athygli verð.
Defunkt -
Thermonuclear
Sweat
Hingað til hafa verið ófáan-
legar hér á landi plötur hljóm-
sveitarinnar Defunkt, sem hefur
þótt meðal merkari hljómsveita
sem starfandi eru í heiminum í
dag. En nú ekki alls fyrir löngu
bætti Grammið úr þessum skorti
og hóf innflutning á plötum þess-
arar merku hljómsveitar.
Aðalmaður Defunkt er básúnu
leikarinn Joe Bowie, sem var
nokkuð virtur jazzleikari áður en
hann sneri sér að fönkinu en jazz-
inn er nú svo sem ekki víðs fjarri í
tónlist hans nú. Annars er Joe
þessi bróðir trompetleikarans
Lester Bowie, sem blæs með Art
Ensemble of Chicago, sem hér
var á ferð í apríl sem leið. Lester
kemur einmitt einnig við sögu,
ásamt þriðja bróðumum, saxó-
fónleikaranum Byron Bowie, í
tveggja laga tólf tommu plötu,
sem er önnur þeirra tveggja Def-
unkt platna, sem hér fást nú, en á
henni er að finna lögin Razor
Edge og Strangling Me With Yo-
ur Love og er fyrra lagið einkum
stórkostlegt.
Hin platan sem hingað er kom-
in er stór, og jafnframt nýjasta
plata hljómsveitarinnar. Ber hún
nafnið Thermonuclear Sweat og
er þar í einu orði sagt um stór-
kostlega plötu að ræða.
Meirihluti laganna eru fönklög
og er hér um að ræða fönktónlist
eins og hún gerist best, ég hef
a.m.k. ekki heyrt hana betri.
Lögin eru misjafnlega þung og
sum þeirra alls ekki óaðgengileg
og hef ég þá einkum í huga lög
eins og Illusion, I Tried To Live
Alone, Believing In Love og For
The Love Of Money en það
síðastnefnda gerðu O’Jays vin-
sælt fyrir nokkrum árum. Einnig
er að finna á plötunni eitt lag í
bossa nova takti, sem heitir Cock
tail Hour og lag eftir gamla be-
bopparann Charlie Parker, sem
þeir kalla Big Bird (Au Private).
Ég kannast nú bara við þetta lag
undir heitinu Au Private en þessi
útgáfa er hér um bil helmingi
hraðar spiluð en sú sem ég á með
Parker og hér fer Joe Bowie á
kostum á básúnuna , svo sem
hann gerir að vísu einnig annars
staðar á plötunni þó briljansinn
nái hámarki í þessu lagi.
Þá eru aðeins óupptalin þau
tvö lög sem mér finnst einna best,
á annars jafnri plötu, en það er
Ooh Baby og Avoid The Funk,
sem hvorttveggja eru óhemju
kraftmikil rótarfönklög.
Hljóðfæraleikur á plötunni er
allur stórkostlegur. Trommu-
bassa- og ryþmaleikur er þannig
að hann ætti engan að láta ósnort-
inn. Við það bætast góðir só-
lóistar: básúna, trompet, saxó-
fónn og brjálæðislegur gítar. Joe
Bowie hefur svo svarta rödd sem
fellur vel við tónlistina.
Á heildina litið er Thermonu-
clear Sweat kennslubókardæmi
um hvernig eigi að leika góða og
umfram allt kraftmikla fönktón-
list. Sem sé plata sem ekki má
láta fram hjá sér fara.