Helgarpósturinn - 05.11.1982, Síða 15
15
'Íp&sturinrL. Föstudagur 5. nóvember 1982
Frá 34, þingi
SAMBANDS UNGRA
JAFNAÐARMANNA
sem fram fór í Munaðarnesi um síðustu helgi
KAFLAR ÚR Á-
LYKTUNUM ÞINQSINS
Almenn
stjórnmálaályktun
34. þing SUJ fordæmir harðlega getuleysi og dugleysi
núverandi ríkisstjórnar. Þessi ríkisstjórn erstjórn kerfiskarla,
fulltrúi þess kerfis samtryggingar og spillingar sem jafnaðar-
menn berjast gegn.
Ríkisstjórnin hefur einvörðungu beitt haldlitlum skamm-
timaaðgerðum en ekki reynt að leysa efnahagsvandann á
raunhæfan hátt og til frambúðar. Vegna getuleysis ríkis-
stjórnarinnar hefur efnahagsvandinn hríðversnað og lífskjör
fara versnandi með degi hverjum. Bráðabirgðalögin nú eru
skilgetið afkvæmi aðgerðarleysis og rangra ákvarðana ríkis-
stjórnarinnar fyrr á kjörtímabilinu. Inntak þessara laga er
kjaraskerðing án þess að fyrirheit sé gefið um raunhæf tök á
vandanum.
Þingið minnir á þau úrræði sem Alþýðuflokkurinn lagði
fram í gerbreyttri efnahagsstefnu fyrir kosningarnar 1978 og
útfærð voru í efnahagsmálafrumvarpi flokksins eftir kosn-
ingarnar. Hefði verið gripið til slíkra raunhæfra aðgerða í
tíma, í stað þess að skjóta vandanum sífellt á frest, hefði það
leitt til minnkandi verðbólgu og heilbrigðara atvinnulífs.
Þjóðarbúið hefði þá verið betur í stakk búið til að mæta ytri
áföllum. Hið eina af þessum úrræðum Alþýðuflokksins sem
hefur náð fram að ganga, nefnilega raunvaxtastefnuna, hef-
ur núverandi ríkisstjórn ekki vílað fyrir sér að eyðileggja, þótt
lögbrot hafi þurft til. Þannig bætir ríkisstjórnin siðleysi og
lögleysi ofan á getuleysi. Eftir að ríkisstjórnin ákvað að sitja
sem fastast, þótt hún hefði misst starfhæfan meirihluta á
Alþingi, er Ijóst að öngþveitið í efnahagsmálum mun enn
aukast. Það er því þjóðarnauðsyn að ríkisstjórnin fari frá hið
bráðasta og við taki stjórn sem hefur vilja og kjark til að leysa
verðbólguvandann til hagsbóta fyrir alþýðu þessa lands. 34.
þing SUJ leggur þunga áherslu á að í því uppgjöri sem
framundan er sé brýnt að snúast af alefli gegn þeirri hertu
íhalds- og afturhaldsstefnu sem felst í hinni svokölluðu
frjálshyggju og stefnt er gegn velferðarkerfinu og öðrum
félagslegum ávinningum alþýðunnar. SUJ telur að efna
skuli til kosninga við fyrsta tækifæri, til að þjóðin fái starf-
hæfa ríkisstjórn.
UMINNANLANDSMÁL
Atvinnumál
34. þing SUJ telur brýna nauðsyn til að tekin verði upp
gerbreytt stefna í atvinnumálum, til þess aö gera atvinnulíf
landsins traustara, öflugra og arðbærara. Traust atvinnulíf
er undirstaða efnahagslegs sjálfstæðis þjóðarinnar.
SUJ ítrekar þá skoðun sína að blandað hagkerfi henti
þjóöinni best, þeas. ríkisrekstur, samvinnureksturog einka-
rekstur, allt eftir því sem best tryggir hagsmuni þjóðar-
heildarinnar í hverju tilfelli. Meðal þess sem brýnt er að
þjóðnýta er olíuinnflutningur og tryggingastarfsemi. Þingið
leggur áherslu á að aldrei er réttlætanlegur sá pilsfaldakap-
ítalismi, sem í því felst, að þegar vel árar hirða atvinnurek-
endur gróðann, en fara fram á ríkisaðstoð, þegar á móti
blæs, og vilja þannig láta þjóðnýta tapið.
Þingið minnir á að atvinnulýðræði er eitt af helstu barátt-
umálum jafnaðarmanna. Virk þátttaka launafólks við stjórn-
un fyrirtækja hlýtur að auka starfsgleði launþega, auk þess
sem beint og milliliðalaust samband atvinnurekanda bætir
stjónun í atvinnulífinu.
Félagsmál
Jafnaðarmenn telja, að félagsleg aðstoð og frjáis samn-
ingsréttur launþega með vinnustaöinn sem grunneiningu i
verkalýðshreyfingunni séu raunhæfarleiðirtil kjarajöfnunar.
34. þing SUJ ítrekar þá stefnu sina, að allar lækningar, ,
þar með taldar tannlækningar, skuli heyra undir almenna-
tryggingakerfið. Lyfsala í landinu skal vera í höndum ríkisins,
enda ótréttlætanlegt að einstakir menn hafi vanheilsu ann-
arra að féþúfu.
34. þing SUJ leggur áherslu á, að sem fyrst komist á það
kerfi húsnæðismálalána, að veitt séu 80% verðtryggð lán, til
að minnsta kosti 30 ára. Þeim sem eru að eignast ibúö i
fyrsta sinn, hvort sem um nýbyggingar er að ræða eða kaup
á eldra húsnæði, sé gefinn kostur á slíkum lánum. 34. þing
SUJ telur brýnt, að reistar verði litlar ieiguíbúðir fyrir ein-
hleypinga, td. námsmenn, til að létta á verðþenslu og þrýst-
ingi á hinum almenna leigumarkaði. Þingið ítrekar þá stefnu,
að þriðja hver íbúð verði byggð á félagslegum grunni, og
þannig tryggt nægilegt framboð leiguhúsnæðis. Þá telur
þingið nauðsyn á að komið verði á fót fasteignasölu ríkisins
sem annist milligöngu í fasteignaviðskiptum gegn hóflegu
gjaldi.
Stjórnarfarsmál
34. þing SUJ minnir á nauðsyn þess að aðskilja löggjaf-
arvald og framkvæmdarvald betur en nú er gert. Fram-
kvæmdastofnun ríkisins er dæmi um óæskileg tengsl á milli
löggjafarvalds og framkvæmdarvalds, og ber að leggja
hana niður hið snarasta. Atkvæðakaup og mútuþægni eiga
að heyra fortíðinni til.
34. þing SUJ skorar á þingflokk Alþýöufiokksins að draga
nú þegar mann sinn út úr stjórn Framkvæmdastofnunar og
sýna með því andúð sína a stofnuninni.
Þingið fordæmir þá misnotkun sem átt hefur sér stað á
heimild ríkisstjórnar til útgáfu bráðabirgðalaga, og hvetur til
þess að sú heimild verði felld niður.
Þing SUJ telur að virku eftirliti verði að koma á með
embættismönnum hjá ríkinu, sem bera nú litla.sem enga
ábyrgð gagnvart almenningi. SUJ minnir í því sambandi á
framkomið frumvarp þingmanna Alþýðuflokksins um
breytingar á þingsköpum Alþingis.
34. þing SUJ fordæmir seinagang rannsóknar í ýmsum
fjársvikamálum. Þingið lýsir ánægju sinni með framkomna
tillöqu um stofnun rannsóknarnefndar til athugunar á starf-
semi íslenskra aðalverktaka. Eins eru flutningar á fjármagni
á milli íslenskra og erlendra samstarfsaðila í formi tækja-
kaupa og verðlagning þeirra tækja athugunarverð.
34. þing SUJ ítrekar þá skoðun sína að leitrétt verði það
hróplega misvægi atkvæða eftir kjördæmum, sem nú ríkir,
og krefst þess jafnframt að það verði gert án fjölgunar
þingmanna.
Fyrirspurn bönnuö
34. þing SUJ lýsir megnustu andúð sinni á þeim vinnu-
brögðum meirihluta Alþingismanna að banna fyrirspurn frá
einum af lýðræðislega kjörnum þingmönnum þjóðarinnar.
34. þing SUJ telur, að með þessari ákvörðun sinni hafi
Alþingi sýnt og sannað að það býr við steinrunnið starfs
kerfi. Þing SUJ hvetur því Alþingismenn til að samþykkj0
tillögur þær er Alþýðuflokkurinn hefur lagt fram til úrbóta á
starfsemi Alþingis.
UM UTANRÍKISMÁL
Fríöarhreyfingar:
34. þing SUJ fagnar sívaxandi mætti friðarhreyfinga um
allan heim. Almenningur í heiminum hefur risið upp gegn
— Auglýsing frá SUJ —
stjórnarherrum þeim, sem telja völdum sínum best borgið
með því að halda almenningi f ótta um styrjaldir og vopna-
viðskipti. Þrá fólksins eftir friði mun bera árangur. Hin sam-
eiginlega barátta milljóna og aftur milljóna verður ekki létt-
væg fundin. Ráðamenn verða að hlusta á raddir fólksins.
Ibúar heimsins óttast framtíð helsprengjunnar. Það er
skylda okkar við börn okkar aö þau geti vænst þess að lifa
morgundaginn og framtíðina óttalaus við stríð, styrjaldir og
tortímingu.
34. þing SUJ hveturjafnaðarmenn til þess að hafaforystu
um stofnun islenskrar friðarhreyfingar er hefur á stefnuskrá
sinni baráttu fyrir varanlegum friði í heiminum.
Málefni þriðja heimsins
SUJ bendir á þá ábyrgð, sem vestrænar þjóðir bera á
vanda 3. heimsins og felst í því, að iðnríkin hafa ráðið
verðlagi á alþjóðamörkuðum og mótað það sér í hag, en
þróunarríkjunum í óhag. SUJ fordæmir arðrán ríku þjóðanna
og fjölþjóðafyrirtækjanna á náttúruauðlindum og vinnuafli
fátæku þjóðanna. SUJ bendir einnig á þá hættu fyrir
heimsfriðinn, sem felst í þessari misskiptingu auðsins. SUJ
styður sókn frelsishreyfinga gegn innlendri og erlendri harö-
stjórn og vill stuðla að samstöðu smáþjóða til verndar rétti
sínum.
SUJ telur augljóst, að íslendingar, með þjóðartekjur á
mann með því hæsta sem gerist í heiminum, hljóta að leggja
fram myndarlegan skerf til þróunaraðstoðar. Framlag okkar
nú er þjóðinni til háborinnar skammar. 34. þing SUJ telur
raunhæfustu leiðina í þeim efnum þá, að lögbundnir verði
áfangar að því lágmarki, sem Sameinuðu þjóðirnar hafa
sett, að 1 % þjóðartekna fari til þróunarhjálpar, þannig að því
marki verði náð ekki siðar en 1984. Skorar SUJ á þingmenn
Alþýðuflokksins að flytja frumvarp um þetta mál þegar á
yfirstandandi þingi.
Pólland
34. þing SUJ lýsir vanþóknun sinni á þær gerræðislegu
aðfarir sem herstjórnin í Póllandi beitir gegn „Samstöðu"
samtökum launafólks þar í landi. SUJ ítrekar stuðning sinn
við Samstöðu í baráttu þeirra fyrir almennum mannréttind-
um í Póllandi.
Palestína
34. þing SUJ lýsir yfir stuðningi sínum við baráttu Palest-
ínuþjóðarinnar fyrir þjóðarréttindum sínum, þe. fyrir eigin
ríki. Þingið krefst þess að ísraelsmenn viðurkenni nú þegar
þessar réttmætu kröfur Palestínumanna, jafnframt því sem
Palestínumenn viðurkenni tilverurétt Ísraelsríkis.
Því hvetur þingið deiluaðila til að setjast að samninga-
borði tafarlaust, til að semja um réttláta lausn deilumála
sinna.
Líbanon
34. þing SUJ sýsir yfir megnustu fyrirlitningu sinni á stríðs-
rekstri ísraelsmanna í Líbanon. Það sem herir ísraelsmanna
höfðu í frammi í Líbanon er þess eðlis, að öllum hugsandi
mönnum hlýtur að ofbjóða framferði þeirra.
Þingið krefst þess að ísraelsmenn dragi heri sína nú þeg-
ar til baka úr Líbanon. Þingið krefst þess einnig, að ísraels-
menn láti nú þegar af kúgun sinni á íbúum herteknu
svæðanna. Einnig fordæmir þingið stórveldisáform ísraels,
sem lýsa sér m.a. í landnámi Gyðinga á herteknu svæðun-
um og tilraunum til að gera Líbanon að leppríki sínu.
El Salvador
34. þing SUJ áréttar fyrri yfirlýsingar sínar varðandi mál-
efni El Salvador. Þingið hvetur Bandaríkjastjórn til að hætta
nú þegar stuðningi sínum við ógnarstjórnina og skorar á
allar lýðræðiselskandi þjóðir að beita áhrifum sínum til að
koma megi á lýðræðislegu þjóðskipulagi í El Salvador, með
þátttöku atlra deiluaðila.