Helgarpósturinn - 05.11.1982, Qupperneq 17
't\Margt bendir til þess að nýtt
f J dagblað sjái dagsins ljós á
næstunni, þó ef til vill komi
það ekki úr þeirri átt sem flestir
eiga von á. Aðstandendur Dags á
Akureyri eru nefnilega sagðir hafa
mikinn hug á að auka við útgáfu
blaðsins, sem nú kemur út þrisvar í
viku. Einn reyndasti blaðamaður
Dags, Áskell Þórisson, er að flyt-
jast suður til að taka við embætti
framkvæmdastjóra Sambands
ungra framsóknarmanna, og í
kjölfar þess eru ráðgerðar ýmsar
breytingar á blaðinu, m.a. að
fjölga útgáfudögum um einn eða
tvo, því meira þarf ekki til að það
teljist formlega dagblað og fái þar
með ríkisstyrkinn margumtalaða
og allar opinberar auglýsingar, sem
eru veruleg búbót. Útgáfufélag
Dags keypti fyrir nokkrum mánuð-
um prentbúnað sem annar miklu,
og þegar að auki er haft í huga að
stjórnarformaður útgáfufélagsins
er Valur Arnórsson, kaupfélags-
stjóri KEA og stjórnarformaður
SIS, ætti að vera ljóst að vaxtar-
möguleikar Dags eru talsverðir.
Ekki vantar sterkan bakhjarl, að
minnsta kosti....
•V^Þrátt fyrir harðæri og verð-
Jbólgu halda menn ótrauðir
.^iáfram að kvikmynda á fs-
landi. Frést hefur að Hjálmtýr
Heiðdal kvikmyndagerðarmaður
og Finnbogi Hermannsson á fsa-
firði séu um þessar mundir að hefja
gerð heimildarmyndar um síldaræ-
vintýrið á Djúpuvík. Bæðimun
myndinni ætlað að skýra frá
aðdraganda að og byggingu síld-
arverksmiðjunnar á Djúpuvík,
sem talið var afrek á sínum tíma, og
varpa ljósi á það að stóriðja stend-
ur allt í einu í túni byggðarlags sem
ennþá lýtur lögmálum íslensks
bændasamfélags. Byggt mun verða
á viðtölum við fjölda manns sem
komu við sögu, enda er ekki seinna
vænna að taka fólk tali, því aðeins
er ein fjölskylda eftir sem starfaði
við verksmiðjuna. Tökur munu
þegar hafnar...
Einn af höfuðpaurum íslensks
/ J popps Jóhann Helgason er um
S' þessar mundir að undirbúa
nýja sólóplötu. Sú síðasta, Tass.var
í fyrra valin plata ársins á Stjörn-
umessu DV. Ekki fáum við þó að
heyra nýjasta nýtt frá Jóhanni fyrr
en á næsta ári, því upptökur hefjast
í desember....
Þrengingar útgerðarinnar og
fjölmargra annarra íslenskra
' fyrirtækja hafa bitnað illa á
olíufélögunum og munu þau aldrei
áður hafa átt aðrar eins upphæðir
útistandandi. Þetta hefur aftur þýtt
það að olíufélögin hafa orðið að
knýja fast á dyr lánastofnana og
þrátt fyrir tregðu hefur þeim tekist
að fá mun meira lánsfé en oftast
áður. Er sagt að útlán lánastofnana
til olíufélaganna hafi hækkað um
hvorki meira né minna en 150%
það sem af er árinu....
r
Talsverður titringur hefur að
undanförnu verið innan sjón-
varpsins og í fjölmiðlum
vegna endurskipulagningar tækni-
deildar stofnunarinnar. Þær
breytingar ganga m.a. útá að tak-
marka völd Harðar Frímanns-
sonar, sem verið hefur yfirverk-
Kanaríeyjafarþegar okkar þurfa
ekki að hafa áhyggjur af
þungum töskum, úttroðnum af
regnkápum, kuldaúlpum og
öðrum hlífðarfatnaði,
því við fljúgum beint í
sólina á Kanarí.
Það er allt klárt á Kanarí.
Það er búið að snurfusa her-
bergin, bóna dansgólfin, pússa
glösin og semja við
veðurguðina.
íslendingarnir á Kanarí hafa
látið mjög vel af gististöðunum
okkar og í ár höfum við enn
bætt við 3 glæsilegum stöðum.
íbúar Kanaríeyja kunna að taka
á móti gestum og vita hvað
þarf til þess að gera vetrarfríið
að samfelldri sumarhátíð:
Endalausar sólarstrendur,
skemmtistaðir, golf- og tennis-
vellir, matstaðir, diskótek,
næturklúbbar, kappaksturs-
braut og síðast en ekki síst,
þægilegt viðmót.
SJSft
gjS'S®
Fararstjórarnir okkar á Kanarí-
eyjum, þær Auður og María
þekkja eyjuna eins og lófann
á sér enda hafa þær að baki
margra ára reynslu af störfum
þar niður frá. Svo vita allir
um skrifstofuna okkar á besta
stað á Broncémar.
Brottfarir í vetur verða:
24/11 örfá sæti laus,
15/12 uppselt,
5/1 laus sæti,
26/1 laus sæti,
16/2 uppselt,
9/3 örfá sæti laus,
30/3 Páskaferð.laus sæti
og 20/4 laus sæti.
Allar ferðirnar eru 3ja vikna
langar — á Kanarí.
Verð frá 14.760 krónum.
Sjáumst í sólinni.
URVAL ÚTSÝN Samvinnuferðir-Landsýn FLUGLEIÐIR
Norðansýning í Þjóðleikhúsinu
fræðingur sjónvarps í mörg ár og
löngum hefur staðið styrr um
vegna stefnu í tæknimálum, en
ekki síður vegna erfiðleika í per-
sónulegum samskiptum og vinnu-
bragða almennt. Hefur það rifjast
upp fyrir mönnum að einhvern
tíma í fyrndinni festi stofnunin
kaup á VHS-myndsegulbandstæki
sem notað skyldi til að skoða efni á
myndböndum af þeirri gerð. Síðan
hefur lítið til þessa tækis spurst og
hefur sjónvarpið þurft að leigja
tæki úti í bæ þegar til þess hefur
komið að skoða þyrfti efni á VHS.
Nú mun komið á daginn að VHS-
tækið hafi verið í notkun sem hús-
gagn á heimili yfirverkfræðings-
ins....
#'N Það er ekki bara jólabóka-
/ j flóðið sem er að byrja heldur
J einnig jólaplötuflóðið. Meðal
platna á þeim markaði verður ný
plata Jakobs Magnússonar, „Tvær
systur". Sú plata var hljóðrituð í
Hollywood á þessu ári (og raunar
lok síðasta árs líka) og nýtur Jakob
þar aðstoðar margra góðra manna.
Trommuleikari hans á plötunni er
Vince Caliota, sem dags daglega er
trymbill Frank Zappa, bassaleikari
er Jeff Berlin, sem gert hefur
garðinn frægan með Bill Bruford,
UK, Sky og fleiri stórmennum í
jazz-fönkinu og fleiri koma við
sögu. Plata þessi er væntanlega á
markað um miðjan næsta mánuð...
Það er ýmislegt um að vera hjá
Leikfélagi Akureyrar um þessar
mundir eins og fram kom á
blaðamannafundi sem for-
ráðamenn þess boðuðu nýverið til.
Fyrsta frumsýningin á þessu leikári
var þann 7. október síðastliðinn á
Atómstöðinni eftir Halldór Laxness
í nýrri leikgerð Bríetar Héðinsdótt-
ur. Þegar cru búnar 13 sýningar á
leiknum og hefur aðsókn verið
mjög góð, undirtektir gagnrýnenda
svo og lcikhúsgesta mjög jákvæðar.
Nú hefur verið ákveðið að Leikfé-
lagið leggi land undir fót með þessa
sýningu, og sýni á stóra sviði Þjóð-
leikhússins þriðjudaginn 23.
nóvember næstkomandi. Aðcins
getur orðið um þessa einu sýningu
að ræða, þar sem verkefnaskrá
Þjóðleikhússins er mjög hlaðin, og
af tæknilcgum ástæðum er ekki
unnt að sýna vcrkið víðar. Leik-
stjóri er Bríet Héðinsdóttir og aðal-
hlutverkið, Uglu, leikur Guðbjörg
Thoroddsen, en þess má geta að
hún mun einnig leika þetta hlutverk
í kvikmynd sem fyrirhugað er að
gera eftir Atómstöðinni. Þá mun
leikgerð Bríetar að Jómfrú Ragn-
heiði sem frumflutt var á Akureyri
á síðasta ári og mikla athylgi vakti,
verða jólasýning Þjóðleikhússins í
ár og mun Guðbjörg Thoroddsen
einnig leika þar titilhlutverkið sem
hún hlaut mikið lof fyrir á Akur-
eyri.
Næsta verkefni Leikfélags Ak-
ureyrar er nýtt íslenskt barna- og
unglingaleikrit „Siggi var úti“.
Höfundur er Signý Pálsdóttir
leikhússtjóri sem jafnframt leik-
stýrir, en sýningin er að mestu
unnin af fastráðnum starfsmönn-
um leikhússins. Þráinn Karlsson
hannar leikmynd, Viðar Garðars-
son lýsingu og Freygerður Magnús-
dóttir búninga. Tónlistina samdi
og æfði Asgeir Jónsson, gítar-
leikari og söngvari hinnar kunnu
rokkhljómsveitar Baraflokksins á
Akureyri, og flytur hann hana
ásamt tveim félögum sínum úr
hljómsveitinni. Leikurinn gerist í
hrauni einhvers staðar á íslandi og
fjallar um ævintýri fjölskyldu einn-
ar sem þar dvelst í útilegu. Einnig
koma við sögu líffræðingurinn
Siggi sem vinnur við rannsóknir á
refum, tískudrósin Stella sem
hagnast vill á rebba og skúrkurinn
Úlfur. Þá er hlutur íslensku tóf-
unnar mikill í sýningunni. Vafa-
laust er hér á ferðinni hið forvitni-
legasta verk. Frumsýningeráætluð
1. desember.
Miklar endurbætur hafa verið
gerðar á leikhúsinu í sumar. Húsið
hefur verið málað bæði utan og
innan og einnig hefur verið teppa-
lagt. Þá má geta þess að gerður
hefur verið vísir að hljómsveitar-
gryfju, en slíkt hefur fram til þessa
verið álitið tæknilega ómögulegt.
Er þar rúm fyrir þrjá til fjóra hljóð-
færaleikara og munu nú aðstæður
til flutnings söngleikja batna veru-
lega. Það sem einna næst liggur
fyrir í tæknimálum leikhússins er
að fara þarf að huga að endurýjun
ljósaborðsins, en núverandi ljósa-
borð er löngu úrelt, jafnvel svo að
löngu er hætt að framleiða í það
varahluti. En nýtt ljósaborð af
þeirri stærð sem hæfir þessu
leikhúsi mun kosta allt að einni
milljón nýkróna. Þá standa vonir
til þess að leyfi fáist fyrir viðbygg-
ingu við húsið í suðurátt, en
þrengsli eru nokkuð farin að há
starfsemi leikhússins. En þrátt fyrir
þessi vandkvæði er ekki annað
hægt að segja en framtíð atvinnu-
leikhúss á Akureyri sé björt. Og
það sem mest er um vert, leikhúsið
hefur áunnið sér fastan sess í bæjar-
lífinu. Það sýnir vaxandi aðsókn að
sýningum og vaxandi umfjöllun um
leikhúsmál í bænum samfara stöð-
ugt vandaðri sýningum.
- RA.