Helgarpósturinn - 05.11.1982, Side 18
18
„Lady sings the blues”
Oh, brothers and sisters,
l’m blue as can be
because my jambalaya
didn't taste as it should.
Oh! brothers and sisters
please weep for me...
í þessum dúr blúsa ég núna, hreint niðurbrotin
(blue), eftir fyrstu tilraunir mínar við að kokka á la
Nouvelle Orleans f Reykjavík.
Mér var nær. Hvernig gat mér fáráðri dottið í
hug að til einhvers væri að stunda kreólska matar-
gerð uppi á íslandi? Hvað stoðar okkur að þeir séu
slyngir í kokkamennskunni suður við Mexíkóflóa,
þegar nauðsynleg hráefni eru annað hvort ófáan-
leg hér eða jafnvirði tösku úr krókódílaskinni? Ég
hef komist að þeirri sárgrætilegu niðurstöðu, elsk-
urnar mínar, að út í hött er að rekja hina marg-
slungnu sögu kreólskrar matargerðarlistar. (Eg
verð þó fyrir siðasakir að taka fram fyrir þá sem
ekki vita að kreólar nefnast þeir Suðurríkjabúar
sem eru af frönskum og/eða spönskum uppruna.)
Hvað stoðar ykkur að vita eða upp að rifja að
Frakkar og Spánverjar spreyttu sig hvorir fyrir sitt
leyti á að stjóma Louisianafylki áður en það varð
amerískt að nafninu til með The Louisiana Pur-
chase 1803?Og að kreólsk matargerðarlist er eins
konar fransk-spönsk matargerðarlist í æðra veldi?
L.e. evrópsku innflytjendurnir lærðu náttúrlega
heilmargt af indjánunum sem þeir versluðu við og
negrunum sem þeir létu þræla fyrir sig á
piantekrunum - og í eldhúsunum.
Á ekki ósvipaðan hátt varð jazzinn til (nema við
getum væntanlega látið indjána liggja milli hluta í
þeim efnumj.Enda er túristaslagorðið í New Or-
ieans: Cooking with jazz. Og í slögurum af ýmsum
toga má heyra nöfn eins og jambalaya og gumbo.
Ég reyndi semsé að elda jambalaya (sem er kre-
ólsk útgáfa af spánska réttinum paella), með því
að nota Goða-pyisu og krækling í stað staðbund-
inna tegunda af reyktri pyisu og ostrur. Útkoman
var hreint skelfileg, sama hvað ég sturtaði úr cay-
ennapiparstauknum.
Svo bauð mér háifpartinn við að „marínera“
svín í sjó... til að nota í baunaréttinn þrumusterka,
„Red beans and rice“, (enda hef ég ailtaf verið
háifgerður klaufi í meðhöndiun svína). En til
marks um hversu jazzistar unna þessum rétti heitt
má nefna að Louis heitinn Armstrong endaði
ávallt bréf sín á kveðjunni „red beans and ricely
yours L.A.“
New Orieans hefur löngum verið mikii nætur-
lífsborg. Sukkaðir nátthrafnar svinga á milli jazz-
búiíanna fram undir morgun og fá sér síðan
nokkra augnaopnara, „eyc openers", margslungin
hanastél, til að geta litið nýjan dag jafnhýru auga
og þeir litu nýliðna nótt. Ég get ekki einu sinni
komið með uppskrift að þeim, fyrir þá furðu-
mörgu næturgöitrara sem hér eru miðað við fólks-
fjöida, þjóðarbússtöðu og veðurfar, vegna þess að
hér eru ekki á boðstólum tilheyrandi Hurricane-
mix, Tequila og annað sem gæðir slíka drykki iífi.
En fyrir þá sem vilja standa vörð um heilsu'sína
og siðprýði get ég komið með tvær uppskriftir að
ódýrum og einföldum suðurríkjamáisveröi, mafs-
brauði og kartöflusúpu. Petta flokkast undir fá-
tækramat eða „soul food“ á
Suðurríkjamælikvarða - en erum við ekki hnípin
þjóð á barmi gjaldþrots? - Ég er samt ferlega
spæld yfir að flóknu réttirnir séu ilieidanlegir hér á
þessum útyfiislegu slóðum.
Oh, brothers and sisters
we’ve got to spare some money
so ieavc alone heavy food
it makes you only feel so blue...
Oh, sisters and brothers
if deep in your heart is cold as ice
eat good cornbread and soup
it makes you feel warm and glad
but not blue and sad!
Maísbrauð að suðurrískum hætti
Indjánar voru væntanlega fyrstir til að rækta
maískorn og nýta það m.a. til brauðgerðar. -
Maísmjöl fæst hér í náttúrulækningabúðum og í
nokkrum kjörbúðum, s.s. SS við Háaleitisbraut
(góður verslunarstjóri Jóhannes!) Ruglið því ekki
saman við maisenamjölið, sem er hvítt og mjög
fínmalað. Utan á pokunum á að standa maize
meal eða cornflour. Maísmjöl er ólíkt hveiti að
bragði og áferð, gefur góða tilbreytingu, og þessi
brauðuppskrift er sáraeinföld og skotfljótleg.
3 dl. maísrnjöl
l'/j dl hveiti
1 tsk salt
2 tsk lyftiduft
2egg
3 dl mjólk
6 msk smjör eða matarolía, s.s. soja- eða kornolía
1. Setjið ofninn á 200 gr. C,
2. Blandið saman maísmjöli, hveiti, salti og lyfti
dufti. Leytið eggin með gaffli^hrærið mjólkinni
saman við,hellið blöndunni út í þurrefnin og sam-
iagið vel með sleif.
3. Pegar ofninn er orðinn heitur, setjið þið
feitina í steypujárnspönnu, eldfast leirmót eða
kringlótt, grunnt kökuform, u.þ.b. 25cm breitt, og
skellið í ofninn. Þegar feitin er orðin heit, takið
þið formið út úr ofninum og smyrjið brúnina að
innan, en hrærið því sem eftir er feitinnar saman
við deigið.
4. Setjið nú deigið í formið og bakið í 20-25 mín.
eða þar til brauðið er orðið guibrúnt.
Brauðið nægir handa 6-8 með mat, s.s. súpunni
sem hér fer á eftir.
Soul-kartöflusúpa
Þessi súpa er vel við hæfi í íslenskum hráslaga -
sudda, mettandi og krydduð (eftir þolrifjum
neytenda) með cayenna-pipar, sem er mikið not-
aður í Mið- og Suður-Ameríku. Uppskriftin er
handa u.þ.b. fjórum.
1 dl snyör
1 dl smátt saxuður iaukur
5 miðlungsstórar kartöflur, afhýddar og skornar í
fjórðuparta
3 dl vatn
2 tsk salt
4 dl heit mjólk
1 dl köld mjólk
1 eggjarauða
Ögn af caycnnapipar i mesta lagi 1 kryddmál
2 msk söxuð ný steinselja (eða 1 msk af þurrkaðri)
1. Bræðið smjörið í þykkbotna súpupotti við
vægan hita. Steikið saxaða iaukinn upp úr því þar
til hann er orðinn meyr.
2. Setjið vatn, salt og kartöflur út í pottinn og
lok yfir og sjóðið þar til kartöflumar eru
tilbúnar. - Ef þið notið þurrkaða steinselju,
sjóðið hana þá líka með.
3. Takið kartöflurnar upp úr soðinu og merjið
þær í gegnum sigti, setjið maukið svo út í soðið.
4. Hitið 4 dl af mjólk og hrærið út í súpuna.
5. Þeytið eggjarauðuna og hrærið henni saman
við 1 dl af kaldri mjólk og hrærið blöndunni hægt
saman við heita súpuna. Kryddið með ögn af
cayennapipar. - Bragðið ykkur áfram, varist að
hella of miklu af pipar út í í einu.
6. Hitið súpuna upp að suðumarki, en gætið
þess að hún sjóði ekki. Stráið saxaðri steinseljunni
yfir súpuna rétt áður en hún er borin fram, þe. ef
þið notið nýja steinselju.
Lady sings the blues
Nú hef ég gengið á undan með góðu fordæmi og
blúsað um sorgir hvunndagsins. Fetið nú í fótspor
mín og úthellið bú- og/eða hjartasorgum ykkar
ofan í pottana (ef áheyrendur skortir) í texta og
tónum. Það sefar... Af gefnu búsorgatilefni slæ ég
botninn í þennan pistil með smátilbrigði við texta
eftir Billie Holliday:
Lady sings the blues
she tells she’s sad
nothíng to hide
she wants the world to know
what her blues is all about
blucs is nothing but pain in your heart
when your sauce has got burned too badly
blucs is nothing but pain in your heart
when you’re loving someone too madly
I’m gonna sit down and cry
but I know I won’t die
’causc I’II rise like a dough
to be baked strong in sorrows’ oven.
Föstudagur 5. nóvember 1982
-Pi
nnn
AÐ TAPA UPP-
LÖGDU SPILI
Einu sinni varð ég vitni að því
hvernig spilamaður rembdist við
að ná í níunda slaginn í grandi,
þótt hann Iægi allaf fyrir framan
hann. Spilin voru þannig:
S K-8-6-4
H 7-6-2
T k-9-6
L D. 5. 3.
S D-G S 10-9-7-2
H K-G-8-3 H 10-9-5
T D-G-10-8-7 T 4-2
L G-4 L 10-9-8-6
S Á-5-3
H Á-D4
T Á-5-3
L Á-K-7-2
taka. Síðan tók spilarinn ás og
kóng í spaða, en því miður áttu
andstæðingarnir þá. Nú var
laufið reynt, en það sat tveir-
fjórir, svo ekki gekk það. Þá var
hjartasvínan einasta vonin, en
hún brást líka og þá kom vestur
með tvo hátígla svo þá hrundu
allar borgir suðurs og allt fór í
rusl.
En suður hélt ekki nógu vel á
spilum sínum. Þegar hann kemst
inn á tígulás í fyrsta spili, þá spilar
hann litlum spaða og gefur vestur
á gosann. Vestur heldur áfram
með tígul, sem kóngurinn í borð-
inu tekur. Tekur síðan ás og kóng
í spaða og sér þá hvernig hann
liggur. Nú tekur hann þrjá hæstu í
Spil
eftir Friðrik Dungal
Vestur spilaði tíguldrottningu
sem tekin var á ás suðurs. Suður
sá að hann átti örugga átta slagi,
þ.e. þrjá í laufi, tvo í spaða, tvo
tígla og einníhjarta.Það var veik
von að níundi slagurinn fengist á
spaða eða lauf ef að annarhvor
liturinn var skiptur 3-3 hjá and-
stæðingnum. Þess utan gat
hjartasvínan heppnast.Suður ákvað
að gera sitt besta og spilaði
því spaðaþristi. Vestur lét gosann
og fékk að halda honum og þar
fauk vinningurinn. Vestur hélt
áfram með tígultvist og fékk líka
að halda honum. Og nú voru
vinningsvonirnar brostnar. Vest-
ur hélt áfram með tígul og nú
varð kóngurinn í borðinu að
laufi og sér þá að austur á lauf-
fyrirstöðu. Nú má austur ekki
reyna hjartasvínuna. Hann spilar
einfaldlega tígulníunni. Það eru
aðeins tveir tíglar úti og and-
stæðingarnir hafa fengið einn
spaðaslag. Vestur má því fá sína
þrjá tígla og verður svo að spila
frá hjaranu upp í gaffalinn hjá
suðri og þarmeð er spilið unnið.
Hefði vestur átt tígla og vantað
tíuna, sem er fremur ósennilegt,
þá hefði austur komist inn þegar
níunni er spilað. Austur gat þá
tekið fjórða spaðann og fjórða
iaufið en þvingast þá til að spila
hjarta. Suður á þá ennþá mögu-
leikann að svína hjartanu.
Skákþrautir helgarinnar
Samúel Loyd
A
8
7
6
5
4
3
2
1
abcdefgh
Mát i' 2. leik
Samúel Loyd
B
abcdefgh
Mát i' 3. leik Framh. á bls. 23.