Helgarpósturinn - 05.11.1982, Síða 23
fe/gar
ícrfr /r/nnFöstudagur 5. nóvember 1982
23
Reykjavík er nú orðin samstaða
allra „arma” um hver skipi fjórða
sætið. Það er Ágúst Einarsson,
gjaldkeri flokksins sem áður var í
framboði á Suðurlandi og er óum-
deildur maður innan hans....
Fangelsisyfirvöld standa
/) frammi fyrir óvenjulegum
vanda þessa dagana. Tveir
fangar af Kvíabryggju í Grundar
firði, sem afplána dóma fyrir fíkni-
efnamisferli, sitja nú á bak við lás
og slá í Hegningarhúsinu við Skóla-
vörðustíg í Reykjavík á meðan
reynt er að komast að niðurstöðu
um hvað þeir eiga að borða, hvern-
ig og hvar. Fangarnir eru báðir
gefnir fyrir náttúrulegt fæði (jurta-
fæði) og höfðu fengið það framreitt
sérstaklega á Kvíabryggju. En svo
mun forráðamönnum vestra þótt
kröfur fanganna ganga út í öfgar og
til einhverra árekstra kom. Oskaði
forstöðumaður fangelsisins eftir
því á endanum, að fangarnir yrðu
færðir í annað fangelsi. Þeir voru
fluttir til Reykjavíkur og 'látnir
gista í Hegningarhúsinu eina nótt,
eða þar til hægt væri að taka á móti
þeim á Litla Hrauni. En þegar for-
stöðumaður þar heyrði hvernig í
pottinn var búið sagðist hann ekki
geta tekið við þeim - ef þeir hefðu
ekki getað uppfyllt kröfur piltanna
á Kvíabryggju þá væri það ennþá
síður hægt á Litla-Hrauni. Og þar
við sat síðdegis í gær...
PT'lStöðugt fleiri menn og konur
f' Jgefa nú yfirlýsingu um að þau
ætli að vera með í væntanlegu
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins fyrir
næstu þingkosningar. Ber þar mest
á lögfræðingum og ýmsum stofnana
mönnum. Þykir sumum flokks-
mönnum orðiö nóg um og sakna
þess að sjá enga fulltrúa einka- j
framtaksins, sem svo er nefnt. Því
heyrum við, að talsverður hópur
einkaframtaksmanna leggi nú hart
að Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni,
pylsusala með meiru, að gefa kost á
sér í prófkjörið. Ásgeir mun enga
ákvörðun hafa tekið um það enn og
er sagður eins og véfrétt...
^FlSagt er að Steingrímur Her-
f' 1 mannsson sjávarútvegsráð-
herra hafi lesið hagsmunaaðil-
um í sjávarútvegi pistilinn og ekk-
ert skafið af á fundi, sem hann hélt
með um fjörtíu slíkum í vikunni.
Það hefur nefnilega færst mjög í
vöxt á undanförnum vikum og
mánuðum, að útflutningsvörur á
borð við saltfisk og skreið hafi
fengið harða gagnrýni frá
kaupendum erlendis. Miklu fleiri
kvartanir hafi borist en frá hefur
verið sagt í fjölmiðlum til þessa.
Munu menn hafa setið þegjanda-
legir undir lestri ráðherrans en síð-
an viðurkennt yfirsjónir sínar og
ákveðið að taka höndum saman
um að efla mjög allt gæðaeftirlit og
auka fræðslustarfsemi á þessu
sviði. Hefur verið ráðinn sérstakur
maður, Jóhann Briem, fyrrv. út-
gefandi hjá Frjálsu framtaki, til að
stjórna kynningarstarfinu...
pr'Á Veitingarekstur í landinu hef-
/ Á ur átt í nokkrum kröggum
S* undanfarið - eða aukinni
samkeppni. Þetta hefur haft í för
með sér breytingar á rekstri nokk-
urra veitingahúsa - einkum { þá
átt, að utanaðkomandi menn hafa
tekið að sér veitingareksturinn og
eldhús staðanna. Þannig hafa þeir
Wilhelm Wessmann og Fancois
Fons tekið að sér veitingarekstur á
Hótel Sögu, Ólafur Reynisson
(fyrrum veitingamaður á Hlíðar-
enda) hefur tekið að sér rekstur
eldhússins í Broadway fyrir eigin
reikning og á Hótel Borg hafa tekið
við veitingarekstrinum þeir Jó-
hannes Lárusson, fyrrum yfirkokk-
ur á Borginni, og Kristinn Kjart-
ansson, fyrrum yfirkokkur á Naust-
^jÁtökin innan Alþýðuleikhúss-
/ iins, sein við sögðum frá fyrir
'^'nokkrum vikum, hafa enn
ekki verið til lykta leidd. í vikunni
var haldinn allsherjarfundur
leikhússins þar sem taka átti af-
stöðu til væntanlegra félagslaga
þess, en um það er deilt annars veg-
ar hvort þar skuli gert ráð fyrir því
að úrslitavald í málefnum leikhúss-
ins verði í höndum leikhúsráðs og
hins vegar hvort þetta vald skuli
vera í höndum allsherjarfundar.
Skiptist leikhúsið í tvær fylkingar í
þessu efni. Á fundinum í vikunni
var ákveðið að gera úrslitatilraun
til að ná samstöðu um málið og
hefur verið sett á laggirnar nefnd
með fulltrúum leikhúsráðs annars
vegar og „andspyrnuhreyfingar-
innar” hins vegar til að reyna að
samræma þessi sjónarmið. Niður-
stöður hennar verða svo lagðar
fyrir annan allsherjarfund eftir
hálfan mánuð...
Enn á eftir að ráða forstjóra
f'J Sjúkrasamlags Reykjavíkur.
•S Meirihlutistjórnarsamlagsins
mun hins vegar fylgjandi því að
settur forstjóri, Steinunn Lárus-
dóttir, fái stöðuna...
**A Ekki blæs sérstaklega byrlega
/ J hjá stóru flugfélögunum okk-
S ar. Heimildir í flugmála-
heiminum herma að rekstur Flug-
leiða stefni rétt í að standa í járnum
þetta árið og að tap Arnarflugs á
fyrstu átta mánuðum ársins nemi
allt að 500 þúsund dollurum...
Islenskar kvikmyndir gera
}~ J víðreist þessar vikurnar. Út-
y laginn er ekki aðeins á dag-
skrá kvikmyndahátíðarinnar í
London heldur er hann nú þessa
dagana sýndur á Norrænum kvik-
myndadögum í Lúbeck í Þýska-
landi ásamt Jóni Oddi og Jóni
Bjarna ...
*ír'l Söfnun Krabbameinsfélags
f' Jíslands s.l. laugardag þótti
^ heppnast með afbrigðum vel,
enda undirbúningur og áróður fyrir
söfnuninni sérstaklega vandaður
og markviss. Eins og alltaf áður
voru framtög þó mjög mismunandi
eftir lands- og byggðarlögum.
Vakti athygli að hlutfallslega safn-
aðist langminnst í Reykjaneskjör-
dæmi. Þótt ekki hafi verið fjallað
mikið um það hvar þátttakan í
söfnuninni var minnst, hefur kvis-
ast að það hafi verið í Garðabæ og á
Seltjarnarnesi, en í þessum
byggðarlögum býr tekjuhæsta fólk
landsins, ef marka má opinberar
skýrslur....
Nýjungarnar
komafrá
„ÍSGRIP"
Bridgestone radial snjódekkin eru framleidd úr sérstakri
gúmmíblöndu, sem viö nefnum „ÍSGRIP".
„ÍSGRIP" hefur þá eiginleika aö harðna ekki í kuldum,
heldur helst þaö mjúkt og gefur þannig sérstaklega góöa
spyrnu í snjó og hálku.
„ÍSGRIP“ dekkin eru ennfremur meö sérstyrktum hliöum
(Superfiller) sem veitir aukið öryggi viö akstur á malarveg-
um.
Vegna þessa henta nýju BRIDGESTONE radial snjódekkin
sérstaklega vel á misjöfnum vegum og í umhleypingasamri
veöráttu eins og á íslandi.
Öryggiö í fyrirrúmi meö BRIDGESTONE undir bílnum
25 ára reynsla á íslandi.
Útsölustaðir um land allt.
BRIDQE STONE á íslandi
BILABORG HF
Smiöshöföa 23, sími 812 99.
Nokkrar þrengingar eru með-
f X al sjálfstæðismanna á Suður-
^ landi vegna komandi próf-
kjörs í kjördæminu. Kosin hefur
verið kjörnefnd sem á að hafa um-
sjón með því, en þar eru menn ekki
á eitt sáttir um hvernig staðið skuli
að prófkjörinu. Talið er nauðsyn-
Iegt að skipta sætum á listanum eft-
ir svæðum í kjördæminu, og láta
Rangárvallasýslu, eða réttara sagt
Eggert Haukdal hafa efsta sæti list-
ans. En þar með er einnig komið að
þeim vandræðum hvort Vest-
mannaeyjar eða Árnessýsla fái
annað sætið, og telja margir útilok-
að að ganga fram hjá Eyjamönnum
íþað sæti eftirglæsilegan kosninga-
sigur Sjálfstæðisflokksins í Vest-
mannaeyjum í vor. Árnesingar
munu hins vegar ekki vera á því að
gefa eftir 1. eða 2. sætið á listanum
og því virðist sem sama sjálfheldan
sé að koma upp í kjördæminu og
fyrirsíðustu Alþingiskosningar. Þá
er talið möguleiki að efna til próf-
kjörs í öllu kjördæminu, og hafa
hliðsjón af því við skipan listans, en
eftir sem áður myndu þó svæða-
sjónarmiðin ráða miklu við endan-
lega uppstillingu. Margir eru kall-
aðir í kjördæminu, en ef almennt
prófkjör yrði er hætt við því að
hlutur Eggerts Haukdals yrði ekki
það stór að hann þætti sjálfkjörinn
í efsta sæti listans. Hér munu áhrif
lngólfs Jónssonar á Hellu vega
þungt og þá Eggert í hag......
í kjördæminu telja menn ólík-
/ Jlegt að Þorsteinn Pálsson
S muni fara fram fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Hann verði frekar í
slagnum í Reykjavík. Um sæti
Steinþórs Gestssonar á Hæli munu
trúlega keppa Óli Þ. Guðbjartsson,
forseti bæjarstjórnar á Selfossi,
Jón Þorgilsson á Hellu, og Jakob
Hafstein, lögfræðingur á Selfossi,
og er Óli talinn sigurstranglegast-
ur. Guðmundur Karlsson Vest-
mannaeyjaþingmaður mun ekki
standa vel að vígi gagnvart sókn
Árna Johnsen inná þing. Um fram-
boðsmál annarra flokka í kjör-
dæminu er það að segja, að Garðar
Sigurðsson hjá Alþýðubandalag-
inu er ekki sagður þurfa að óttast
mjög atlögu Baldurs Óskarssonar
að hans sæti. Hjá krötum er Magn-
ús H. Magnússon nokkuð öruggur
og lygn sjór er hjá Framsóknar-
flokknum í kjördæminu...
rr\ Félag íslenskra bifrciða-
f' Jeigenda hóf s.l. vor rekstur
,/ferðaskrifstofu. Ekki mun sá
rekstur hafa svarað kostnaði og
tekur stjórn F.Í.B. afstöðu til þess
á fundi nú í vikulokin að loka þess-
ari ferðaskrifstofu...
'íT\ Magnús Hreggviðsson sem
Y I tók við rekstri útgáfufyrirtæk-
J isins Frjálst framtak af Jó-
hanni Briem mun enn ekki farinn
að mala gull, sem ekki er von.
Eitthvaðeruinnri rekstrarmál fyrir-
tækisins í deiglu, og mun prent-
vinnslustjórinn Ingvar Hallsteins-
son hafa sagt upp störfum nú í vik-
unni...
'tV
)
Skemmtanaþörf íslendinga er
f / annáluð og tekur einatt á sig
sérstæðar myndir. Til marks
um þetta er Vestfirðingahátíð sem
Hótel Loftleiðir gangast fyrir nú
um helgina. Auk Vestfirðinga sem
búsettir eru hér syðra er von á
hvorki meira né minna en 200
manns vestan af fjörðum gagngert
til að skemmta sér hér um
helgina...
| Ákvörðun Björns Dagbjarts-
f /sonar að gefa kost á sér í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra hefur
valdið töluverðu fjaðrafoki. Þeir
Lárus Jónsson og Halldór Blöndal
töldu að vandræði sín væru yfir-
staðin eftir að Jón G. Sólnes náði
kjöri í bæjarstjórn Akureyrar og
fékk þar með þá pólitísku uppreisn
sem hann sóttist eftir. Nú er hins
vegar víst að Björn Dagbjartsson
mun ógna þeim verulega og þá sér-
staklega Halldóri. Mun Sólnes-
armurinn á Akureyri vera mjög
hlynntur framboði Björns og er þar
um stóran hóp fólks að ræða. Þá
mun Björn einnig eiga mikið fylgi í
Þingeyjarsýslum, en þaðan er hann
ættaður og upprunninn. Heyrst
hefur að því sé beitt gegn Birni fyrir
norðan um þessar mundir að hann
sé stjórnarsinni og hálfgerður
krati, en Björn var sem kunnugt er
aðstoðarmaður Kjartans Jóhanns-
sonar sjávarútvegsráðherra um
tíma. Björn mun hins vegar vera
einn þeirra sjálfstæðismanna sem
leitt hafa deilur í flokknum að
mestu hjá sér, en mun þó fremur
vera stjórnarandstæðingur en
hitt....
Skák
Lausnir
uauauii
A. 1. Da8 og mdt i næsta leik
D i l/Ln ir J « « ^ a-.