Helgarpósturinn - 05.11.1982, Blaðsíða 24
Síðan 1972 hafa 5 milljónir ánægðra FIAT 127 eigenda
ekið með þá fullvissu í huga að bíll þeirra væri hið
fullkomna farartæki, bíll sem ekki væri hægt að smíða
betur. En í dag hefur komið í Ijós að þetta var ekki nema
hálfur sannleikur, hinn nýi FIAT 127 er ennþá skemmti-
legri og vandaðri hvað snertir hönnun og frágang.
FIAT
UMBOÐIÐ
SMIÐJUVEGI 4, KÓP. SÍMI 77-200
SÖLUMENN 77-720
Athyglisverð plata verður
J væntanlega gerð hér eftir ára-
.^mótin. Það er Bubbi Mort-
hens, sem hyggst gera einskonar
vísnaplötu - en hann var snjall
„trúbador" áður en hann snaraði
sér í rokkið. Um tylft söngva
Bubba frá trúbadors-tímanum
verður á þessari plötu - og líklegt
má telja, að einhver gestur komi
fram á plötunni. Dettur mönnum
helst í hug Megas, en þeir Bubbi
sungu saman nokkur lög í Nætur-
útvarpi Stefáns Jóns í sumar og
vöktu mikla hrifningu....
Fösiudagur 5. nóvember 1982~jpijjsturinn
MEST SELDI
BÍLL EVRÓPU
r'l Enn er óafgreitt eitt kæru-
/ V mála, sem spruttu af Finans-
S* bankamálinu svokallaða fyrir
nokkrum árum. Þá kom í ljós, að
mikill fjöldi íslendinga átti (ólög-
lega) peninga á reikningum í Fin-
ansbankanum sáluga í Kaup-
mannahöfn. Varð af þessu mikið
havarí á sínum tíma. Reikning-
seigendur voru flokkaðir í þrennt,
þegar rannsókn málsins var hafin,
og kom í ljós að þeir höfðu ekki
gerst sekir um refsilagabrot - en
einhverjir um að hafa komið pen-
ingum undan skatti. Reiknings-
eigendum var gefinn kostur á aö
flytja peningana til íslands og
gerðu það allir nema þrír eða fjór-
ir. Mál þeirra voru athuguð nánar
og síðan afgreidd með skattasekt-
um. Nú hefur sem sé öllum málum
verið lokið - nema einu, máli
Konráðs nokkurs Sævaldssonar,
sem heldur sig einkum í sólinni og
sandinum á Spáni....
FIAT 127 SPECIAL
er gjörbreyttur utan sem innan, en þetta er hinn frægi
3ja dyra bíll, sem hefur verið mest seldi bíll Evrópu
mörg undanfarin ár og ekki að ástæðulausu. Við höfum
ekki annað eftirspurn til þessa, enda hefur þessi sér-
staki bíll eitt hæsta endursöluverð hér á íslandi.
FIAT
F* 1 Veruleg spenna ríkir nú í
Z'J röðum krata vegna flokks-
,^1 þings Alþýðuflokksins um
helgina. Ekki ríkir síst eftirvænting
vegna kosninga um varaformanns-
stöðuna í flokknum, en Vilniundur
Gylfason hefur tilkynnt að hann
muni bjóða sig fram gegn Magnúsi
H. Magnússyni. Þeir Vilmundar-
menn hafa verið duglegir undan-
farið við að afla fylgis við framboð
hans og mun staðan nú orðin þann-
ig við upphaf þingsins að þeir Vil-
mundur og Magnús eru áþekkir að
styrkleika, þ.e. hvað varðar af-
stöðu þeirra flokksþingsfulltrúa
sem gert hafa upp hug sinn. Enn
Hugsaöu ráö þitt - Gerðu verðsamanburð
mun um 30-40 manna hópur óráð-
inn, eða hefur ekki verið dreginn í
dilka, og munu úrslit í varafor-
mannskjörinu velta á atkvæðum
þessa fólks...
Úrslit þessa varaformanns-
kjörs kunna að reynast af-
drifarík fyrir Alþýðuflokkinn.
Kunnugir telja að Vilmundur
Gylfason muni íhuga sterklega að
draga sig í hlé a.m.k. að sinni og
taka ekki þátt í prófkjöri flokksins í
Reykjavík ef hann nær ekki kosn-
ingu í varaformanninn. Eins og
Vilmundur orðaði það í viðtali við
HP fyrir skemmstu vill hann „ekki
vera einhver dinglandi sérvitringur
útí kanti á flokknum”....
Talið er að á þessu flokksþingi
J gæti komið til þess að þeir full-
.^itrúar Reykjavíkurkrata, sem
standa að útgáfu Borgarblaðsins
gerðu tilkall til að taka við rekstri
Alþýðublaðsins. Hagnaður mun
hafa verið af útgáfu Borgar-
blaðsins, og hefur þar verið aðal-
fjármálasprautan Emmanúcl
Morthens. Gæti sú tillaga komið
upp að Emmanúel Morthens tæki
við Alþýðublaðinu. Þess má geta
að Alþýðublaðið hefur fest kaup á
eigin setningartækjum og mun
senn flytja í nýtt húsnæði við Ár-
múla....
Þótt sviptingar miklar séu
^ J meðal krata um röðun í þrjú
efstu sætin í
prófkjörinu í J
u
BÚNAÐARBANKINN
undirbýr
gjaldeyrisviðskipti