Helgarpósturinn - 20.10.1983, Side 19
„Leggjum Seðla-
bankann í eyði“
sagði Guðrún Helgadóttir og gekk af
fundi
„Að lokum legg ég til að Seðla-
bankabyggingin verði lögð í eyði“,
sagði Guðrún Helgadóttir á Al-
þingi i gær og gekk af fundi.
Gífurleg fagnaðarlæti kváðu við
eftir ræðu Guðrúnar og ætlaði allt
um koll að keyra er hún gekk af
fundi. Flokksbræður hennar hylltu
hugrekki hennar en andstæðingar
gáfu fögnuðinum lausan tauminn
er ljóst var að hún mundi ganga af
fundi.
Guðrún Helgadóttir gengur af þingfundi,
Kristín Mantyllllle skrifstofustjóri ASÍ stumrar yfir Ásmundi. Tvær starfsstúlkur Alþýðusambandsins
standa áhyggjufullar í hæfilegri fjarlægð
Asmundur
gekk af fundi
og lagðist í rúmið
„Ekki fleiri svona fundi“, sagði
Ásmundur Stefánsson í viðtali við
Aðalbiaðið í gær. „Ég verð alveg
fársjúkur af að hlusta á hann Stein-
grím. Ég neyddist til að ganga af
fundinum. Satt að segja — og þetta
hefurðu ekki eftir mér — þá lagðist
ég i rúmið eftir fundinn og komst
ekki á lappir fyrr en undir kvöld
næsta dag“.
Starfsfólk á skrifstofum ASÍ
staðfestir þessi ummæli forsetans.
„Við reyndum allar að fá hann fram
úr rúminu i morgun, en það þýddi
ekkert. Hann var alveg lamaður eft-
ir fundinn", sagði ein starfsstúlka
hjá Alþýðusambandinu. Þegar
fréttist að forsetinn lægi hugsjúkur
heima fyrir, fóru þrjár starfsstúlkur
á fund forsetans og freistuðu að
hressa hann við en Ásmundur lyfti
ekki höfði frá kodda fyrr en forn-
vinur hans, Guðmundur J. kom í
heimsókn og gaf honum í nefið.
„Nú er nóg komið“
sögðu blaðamenn Alþýðublaðsins og
gengu af fundi
„Við unum þessu ekki lengur,
þess vegna gengum við af fundi“,
sagði einn blaðamanna Alþýðu-
blaðsins við Aðalblaðið í gær.
Starfsmenn Alþýðublaðsins
funduðu með flokksforystu Al-
þýðuflokksins í gær en þar lagði
Kjartan Jóhannsson til að blaðið
yrði selt Alþýðubrauðgerðinni sem
innpökkunarpappír. „Þetta er að
vísu besta hugmynd Kjartans í lang-
an tíma“, sagði einn fréttamanna
Alþýðublaðsins, „en það er öllum
ljóst að það er ekki hægt að spauga
með hina miklu útgáfu blaðsins
öllu lengur. Þess vegna gengum við
af fundi. Allir sem einn“.
Blaðamenn Alþýðublaðsins ganga af samræðufundi blaðsins og Alþýðuflokksins
Miklu betri vínarbrauð á Hressó. Ríkisstjórnin gengur hér af fundi. Eftir sátu þeir Geir og Steingrímur.
Ríkisstjórnar-
fundir á Hressó
Ríkisstjórnin gekk
„Þetta byrjaði allt með því að AI-
bert fór eitthvaö að kvarta yfir vín-
arbrauðinu. Svo tók Halldór Ás-
grímsson í sama streng og sagði að
vínarbrauðið væri hreint og beint
óætt. Við Geir vissum svo ekki fyrr
til en öll ríkisstjórnin var gengin af
fundinum.
Mér er nú næst að halda að þetta
sé tómt sjónarspil, fyrirfram ákveð-
ið, því ég veit ekki betur en að standi
skýrum stöfum í starfssáttmála rík-
isstjórnarinnar að á fundum henn-
ar skuli snætt vísitöluvínarbrauð.
Ég veit ekki betur en menn hafi
af fundi
snætt það með bestu lyst hingað til.
Mér list heldur illa á að það verði
fundafært með þessu áframhaldi í
vetur“, sagði Steingrímur.
„Ef ekki verður eitthvað að gert í
þessum vínarbrauðsmálum, sé ég
ekki önnur ráð en að halda ríkis-
stjórnarfundina á Hressingarskál-
anum í vetur. Ég sé mér ekki fært að
sitja fundi við þessi skilyrði. Vísi-
töluvínarbrauð læt ég ekki inn fyrir
mínar varir“, sagði Matthias Á.
Mathiesen er Aðalblaðið leitaði
álits hans á þessum válegu tíðind-
um.