Helgarpósturinn - 20.10.1983, Blaðsíða 21
JHek
jJústurinn.
Fimmtudagur 27. október 1983
21
greiddir vextir fjórum sinnum
fyrsta árið, en síðan er farið að
borga af láninu, þessum 90% sem
veitt eru til 42 ára. Áður var hlut-
fallið 20% við afhendingu og 80%
lánuð. Ef þessi kjör eru borin sam-
an við það sem almennt gerist, þar
sem fólk borgar allt að 75—80%
íbúðarverðs á fyrsta ári og verður
að taka verðtryggð skammtímalán,
sést hvílíkur gífurlegur munur
þarna er á ferð.
Bygging verkamannabústaða er
þannig í framkvæmd að Verka-
mannabústaðirnir hafa ákveðinn
hóp byggingamanna á sínum snær-
um,en einnig eru ákveðnir þættir
boðnir út. Meðan uppbygging
Breiðholtsins stóð sem hæst var
ákveðinn verktaki sem sá um bú-
staðina.en eftir að hann fór á haus-
inn hafa Verkamannabústaðirnir
séð sjálfir um framkvæmdir.
Fyrir nokkrum vikum var sam-
þykkt í borgarstjórn Reykjaví kur
tillaga frá sjálfstæðismönnum um
að gamlar i búðir sem tilheyra
Verkamannabústöðunum og hafa
verið innan þess kerfis í 30 ár eða
meira.megi nú fara út á frjálsan
markað. Þessi tillaga vakti nokkrar
deilur og var felld i stjórn Verka-
mannabústaðanna en sem áður seg-
ir samþykkt í borgarstjórn. Þetta
mál vekur þá spurningu hvernig
þeir aðilar sem standa að kerfinu
láta á það. Vilja einhverjir það
feigt.eða á að standa vörð um það?
Hvað segja fulltrúar verkalýðs-
hreyfingarinnar annars vegar og
fulltrúar borgarinnar hins vegar?
Við stöndum vörð um
kerfið
Guðmundur Þ. Jónsson borgar-
fulltrúi situr í stjórn Verkamanna-
bústaðanna fyrir hönd verkalýðs-
hreyfingarinnar. Hvert er hans
mat?
„Verkamannabústaðirnir hafa
orðið til þess að nú eru margir í
öruggu húsnæði sem annars hefðu
verið á hrakhólum. Þegar hafin var
bygging verkamannabústaða á sín-
um tíma var það gert til að bæta úr
brýnni þörf. Eftir 1960 urðu verka-
mannabústaðirnir til þess að út-
rýma húsnæði eins og Höfðaborg-
inni og braggahverfunum. Verka-
mannabústaðirnir urðu til vegna
baráttu verkalýðshreyfingarinnar
og við viljum standa vörð um þetta
kerfi. Af þeim fjölda umsókna sem
berast á hverju ári er ljóst að enn er
mikið ógert. Það er óvist að okkur
takist að halda í horfinu og ég óttast
að samdrátturinn í þjóðfélaginu
bitni á okkur eins og öðrum. Hvað
varðar samþykki meirihluta sjálf-
stæðismanna í borgarstjórninni, þá
get ég ekki litið á hana öðru vísi en
sem atlögu að verkamannabústaða-
kerfinu. Ef gömlu íbúðirnar fara út
á frjálsan markað fækkar þeim
íbúðum sem eru til ráðstöfunar og
þeir möguleikar sem við höfum til
að hjálpa fólki minnka. Ég var því
eindregið á móti tillögunni.
Guðlaug Magnúsdóttir félags-
ráðgjafi, sem situr í stjórn Verka-
mannabústaðanna fyrir Kvenna-
framboðið, tók í sama streng. Hún
sagði að hún teldi verkamanna-
bústaðakerfið mjög mikilvægt.
íbúðirnar þyrftu að vera fleiri.
Umsóknirnar sem bærust væru til
vitnis um það. Síðast voru um 700
umsóknir um 150 íbúðir og það
voru þeir verst settu af mörgum illa
settum sem fengu íbúðirnar.
„Umsóknirnar bera það með sér að
það fólk sem sækir um hefur hrak-
ist um bæinn, flutt hvað eftir annað
og börnin hafa byrjað í mörgum
skólum. Það kemur svo greinilega
fram hvað t.d. einstæðar mæður
eru illar settar í okkar þjóðfélagi".
Guðlaug sagði einnig að hún
væri andvíg því að setja gömlu
íbúðirnar á frjálsan markað. í
fyrsta lagi væri engin trygging fyrir
því að áfram yrði haldið byggingu
verkamannabústaða. Hún sagðist
óttast niðurskurð, þrátt fyrir loforð
um fjármagn til íbúðarbygginga.
Þessar gömlu íbúðir væru eftirsótt-
ar, þær væru í gömlum og grónum
hverfum og einmitt af þeirri stærð
sem mikil eftirspurn væri eftir. Þau
rök hefðu komið fram að það væri
of dýrt að gera upp gömlu íbúðirn-
ar en þau rök stæðust ekki.
Tekjumörkin of lág?
Hilmar Guðlaugsson borgarfull-
trúi situr í stjórn Verkamannabú-
staða fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Hann sagðist telja þetta kerfi nauð-
synlegt. Það yrði að tryggja þeim
aðstoð sem illa eru settir. Almenna
lánakerfið væri þannig núna að lág-
launafólk réði ekki við það. Það
stæði vonandi til bóta, en þar til
úrbætur fengjust yrði að tryggja
fólki húsnæði með félagslegum
íbúðabyggingum. Reyndar yrði
slíkt félagslegt kerfi að vera til því
alltaf yrði hópur sem þyrfti á að-
stoð að halda. Hilmar sagði að
hann teldi óeðlilega mikla aðsókn í
íbúðir verkamannabústaðanna sem
sýndi kannski betur en margt annað
hve ástandið á húsnæðismarkaðn-
um væri óeðlilegt. Hilmar sagði
einnig að sér virtist kerfið virka
ágætlega, það mætti kannski velta
því fyrir sér hvort tekjumörkin
væru ekki of lág og hvort ekki ætti
að gefa fleirum kost á að sækja um.
Hins vegar væri óvíst um þessar
mundir hvað framtíðin bæri í
skauti sér. Á þessu ári hefðu fengist
420 millj. til verkamannabústað-
anna, þar af hefðu 90 millj. farið til
endurkaupa á eldri íbúðum. Þessi
upphæð þyrfti að hækka, en það
væri alls óvíst hvort svo yrði.
Um endursöluíbúðirnar sagði
Hilmar að hann hefði mælt fyrir til-
lögu sjálfstæðismanna. Þótt þessar
gömlu íbúðir, sem hefðu verið í eigu
verkafólks í 30 ár, kæmust á frjáls-
an markað hefði það lítið að segja
fyrir verkamannabústaðina í heild,
því þarna væri um mjög fáar íbúðir
að ræða, 7 á síðustu tveimur árum.
Því fjármagni sem færi til endur-
kaupa væri að sínum dómi betur
varið til nýbygginga. Margar þess-
ara gömlu íbúða væru illa farnar og
þörfnuðust viðgerða sem væru
kostnaðarsamar. Alls væri um að
ræða 390 íbúðir fram til 1993.
Varðandi byggingastefnu Verka-
mannabústaðanna sagði Hilmar að
þeir sjálfstæðismenn hefðu tekið
þann pól í hæðina að byggja minni
íbúðir og fleiri, t.d. í Ártúnsholtinu
sem verður næsta byggingasvæði.
Þar átti að byggja 90 stórar íbúðir,
en því var síðan breytt í 136 minni.
Taldi Hilmar þessa breytingu vera í
samræmi við aukna eftirsókn eftir
litlum íbúðum.
Úti á Eiðisgranda
Þá er að halda á vit þeirra sem
búa í verkamannabústöðunum. Úti
á Eiðisgranda er nýtt hverfi að rísa.
Þar eru 176 íbúðir byggðar af
Verkamannabústöðunum. Einn
íbúa þar er Andrea Jónsdóttir
prófarkalesari. Hún er einstæð
móðir með eitt barn. Andrea sagð-
ist hafa sótt um hjá Verkamanna-
bústöðunum tvisvar áður en hún
datt í lukkupottinn. Hún átti von á
að fá íbúð í janúar 1984 en vegna
þess að einhverjir helltust úr lest-
inni fékk hún hringingu einn dag-
inn með þeim skilaboðum að hún
mætti flytja inn í íbúð á Eiðisgrand-
anum. Andrea sagðist vera mjög
ánægð með öll sín viðskijoti við
Verkamannabústaðina. íbúðin
væri góð, 3ja herbergja í 4ra hæða
húsi. Þarna á svæðinu eru ýmist 2ja
eða 4ra hæða hús. Búið er að ganga
frá lóðinni að hluta til, geymslur
eru í kjallara, bílageymslur
neðanjarðar og í framtíðinni á að
koma upp sameiginlegri aðstöðu
fyrir öll húsin þar sem t.d. verður
hægt að innrétta aðstöðu fyrir
börn. Einnig er von á stóru sam-
eiginlegu þvottahúsi. Andrea sagði
að greinilega væri reynt að blanda
alls konar fólki saman, en því væri
ekki að leyna að einstæðar mæður
væru margar í hópnum.
Kristín Johannesdóttir setjari er
líka einstæð móðir með eitt barn.
Hennar saga er á aðra lund. Hún
keypti íbúð í Breiðholtinu fyrir
tæpum tveimur árum, en hefur ekki
enn fengið afsal fyrir íbúðinni.
Ástæðan er sú, að fyrri eigandi á í
brösum og hefur ekki tekist að af-
lýsa veðskuld af íbúðinni þótt tæp
tvö ár séu liðin. Nú er loks komin
hreyfing á málið og að sögn Rík-
harðs Steinbergssonar er mál
Kristínar algjört einsdæmi.
Að sögn þeirra sem sitja í stjórn
Verkamannabústaðanna eru fáar
brotalamir á kerfinu, reynt er að
sinna þeim skyldum sem kerfinu er
ætlað. Þegar á heildina er Iitið virð-
ist svo sem verkamannabústaða-
kerfið þjóni þeim sem það á að
þjóna, þeim sem lægst hafa launin.
Mönnum ber saman um að of lítið
sé að gert og enn sé langur róður
fram undan svo að þörfinni verði
fullnægt fyrir ódýrt félagslegt hús-
næði. Það veltur síðan á þeim sem
halda um pyngjuna hvort áfram
verður haldið við byggingu verka-
mannabústaða eða hvort aðrar leið-
ir verða farnar.
Vegg- og gólfdúkur
DLW vegg- og gólfdúkarnir. Heimsfræg gæöavara.
Úrval allra nauðsynlegra verkfæra og áhalda til
dúklagninga.
Thomson hreinsilögur - hreinsar upp gamla dúka.
Sofix bón gerir gamla dúkinn sem nýjan - nýja dúkinn
enn betri.
Úrval af málningu og málningarvörum.
50 ára þjónusta í sölu vegg-og gólfefna.
Valin gæðavara
vönduð vinnubrögð
+ leiðbeiningar og góð ráð
= ánægjulegur árangur
Sendum í póstkröfu um allt land.
flpGFÓDnflniNN*
^ Hverfisgötu 34 - Reykjavík
____Simi 14484 - 13150