Helgarpósturinn - 20.10.1983, Side 22
22
Fimmtudagur 27. október 1983irinrt
Norðan við frið
að er athyglisvert að á sama
tíma og Sovétríkin eiga ekki leng-
ur neinn formælanda í röðum
vinstrimanna á Vesturlöndum, er
engu Iíkara en ungir ihaldsmenn
séu óðfúsir að taka þau sér til fyr-
irmyndar í neikvæðustu mynd
sinni. 12. og 13. október sl. birtust
í Morgunblaðinu greinar eftir
Guðmund Heiðar Frímannsson,
menntaskólakennara á Akureyri
og höfðu að yfirlýstu markmiði
að ræða friðarmálin af skynsemi.
Fljótlega virtist höfundurinn aka
út af þessum ásetningi sínum og
setti samasemmerki á milli friðar-
hreyfingarinnar og utanríkis-
stefnu Rússa. Af því dró hann síð-
an þá ályktun „að mjög varasamt
sé að halda sjónarmiðum friðar-
hreyfingarinnar á loft“ og varaði
við „afleiðingum þess að friðar-
hreyfingar fá að starfa óáreittar á
Vesturlöndum, hafa uppi kröfu-
spjöld og mótmæli" (undirstrik-
un mín). Lá ekki beinast við að
banna friðarhreyfinguna hér úr
því hún fékk ekki að starfa í Sov-
étríkjunum? Sem betur fer hrökk
greinarhöfundur upp með and-
fælum áður en plássið var úti og
sá ástæðu til að lýsa því yfir sér-
staklega að hann teldi að friðar-
hreyfingar ættu að fá að starfa, -
þó svo að þær „sköðuðu málstað
Vesturlanda"
r
Eg vildi ekki aðeins mega þakka
fyrir þetta frjálslyndi GHF heldur
einnig láta í ljós undrun mína yfir
því að enn skuli finnast maður svo
langt norðan við stríð að friðar-
hreyfingin kemur honum gjör-
samlega í opna skjöldu. Hvað er
að gerast? spyr hann forviða. „Af
hverju er... svo brýnt nú þessar
vikur og mánuði að ganga fyrir
friði? Hvaða þarfir eða hagsmun-
ir eru það sem krefjast þess?“
Ef menn vilja absolútt dagsetn-
ingu og atburð sem markar upp-
haf þess friðarupphlaups sem
orðið hefur meðal Evrópubúa,
má ugglaust nefna 16. október
1981 er Ronald Reagan viðraði við
blaðamenn hugmyndir sínar um
möguleika „takmarkaðs kjarn-
orkustríðs“ þar sem Evrópa legði
til vígvöllinn. Bandaríkin og
Sovétríkin gáetu reynt með sér í
evrópsku kjarnorkustríði án þess
að útbía heimalöndin. Það var í
þessu skyni sem Evrópubúar áttu
að kokgleypa Pershing-flaugar
Bandaríkjamanna og stilla þeim
upp andspænis SS-20 flaugum
Rússa. Reagan-stjórnin hafði
ekki einasta sett vígbúnaðarkapp-
hlaupið í kaldastríðsöndvegi
heldur vildi hún stuðning almenn-
ings til að hlaupa Rússa af sér.
En almenningur í Evrópu virðist
ekki lengur bíta á agnið. Stjórn-
málatrúðar fá ekki lengur hljóð*
þegar þeir þykjast meta upp á
punkt og prik hverriig vígbúnað-
arballansinn stendur það og það
sinnið. Fólk kaupir ekki einu sinni
á útsöluverði nýjustu tölur um
það hve andstæðingurinn geti
sprengt jörðina oft í loft upp eða
jafnað miklu sprengjumagni nið-
ur á hvern jarðarbúa. Skilur ekki
nauðsyn þess að auka fjárveitingu
til eigin vígbúnaðar til að geta
örugglega sprengt jörðina jafn
oft, útdeilt jafnmiklu sprengju-
magni per haus. í augum flestra
virðist þessi fáránleiki vera búinn
að missa alla viðloðun. Hér kann
líka að koma til að hernaðar-
maskínan nató-ameríska hefur
margsinnis orðið uppvís að því að
Ijúga til um hernaðarstyrk Rússa
1 þeim augljósa tilgangi að pína
sem mest fé út úr skattborgurum
aðildarríkjanna. í apríl sl. hélt
Carrington lávarður ræðu við
herfræðistofnun í London þar
sem hann varaði við úlfur-úlfur
herfræðinni og blöskraði vísvit-
andi vanmat á hernaðarmætti
lýðræðisríkjanna og ýkingu á
hernaðarstyrk Sovétblokkarinn-
ar. Enda bregst ekki að jafnan
þegar sovéskt hergagn brýst und-
an þessu stækkunargleri verður
pinleg þögn, sbr. þegar rússnesk-
ur þotuflugmaður flýði í herþotu
til Japans. Hér gafst tækifæri til
að skrúfa í sundur yfirvættis full-
komna vítisvél sem amerískir her-
fræðingar voru búnir að úthrópa
sem drápsundur og losa um ósmá-
ar fúlgur til að mæta því á jafn-
réttisgrundvelli. Athugun leiddi i
ljós úreltan ryðkláf. Og svipað er
uppi á teningnum þegar sovéskir
hermenn hafa náð að flýja vestur-
yfir. Yfirheyrsla leiðir í ljós hve
þjálfun þeirra er öll í skötulíki,
mennirnir sjaldan komist í tæri
við almennilega byssu, hvað þá
varpað sprengju og falla í stafi yf-
ir þeim viðbúnaði sem mætir
þeim á Vesturlöndum: skriðdrek-
um sem þeir leggja ekki að líku
við jarðýturnar sovésku, o.s.frv.
SS-20 flaugar Sovétmanna sem
nú eiga að safna glóðum elds að
höfðum Evrópubúa eru fram
komnar upp úr 1975 þegar Rússar
hrinoboröiö
tóku að endurnýja SS-4 og SS-5
flaugar sínar, þá teknar að ryðga
fastar í sílóunum. Auðvitað ná
SS-20 flaugarnar til flestra staða í
Evrópu, nema hvað — hluti
Sovétríkjanna og leppríkja þeirra
er i Evrópu. Þær drífa 5000 km,
bera þrjá kjarnaodda hver og eiga
að geta hitt skotmark svo skeikar
200-300 metrum. Af hverju gína
Evrópubúar þá ekki við Pershing-
flaugunum 108 sem á sjö mínút-
um eiga að ná til Sovétríkjanna,
drífa 1800 km og hitta skotmark
svo aðeins skakkar 50 metrum?
Af því að vigbúnaðarkapphlaup-
ið er orðið marklaust, röksemda-
færslan fyrir því bítur i skottið á
sér. Dæmi úr grein GHF: „Brýn-
asta verkefni Vesturlanda þessi ár-
in er að bæta þann ójöfnuð sem
skapast hefur með tilkomu SS-
flauga Sovétmanna. Það er verið
að gera með því að staðsetja stýri-
flaugar og Pershing-flaugar í
Evrópu. Það gera allir sér grein
fyrir því að kjarnorkuvopnum
verður ekki beitt í stríði. (undir-
strikun mín). Til þess er áhættan
of mikil. En til að draga úr hætt-
unni á að svo verði gert, þurfa
Vesturlönd að koma sér upp fleiri
flaugum"!!
Öllum ætti að vera ljóst að
Vesturveldin með sínar herskipa-
og kafbátaflaugar út um
heimsins höf geta hitt Austur-
blokkina hvar og hvenær sem er.
Yfirburðir bandarískrar verk-
tækni yfir rússneska klúðrið eru
svo augljósir, t.a.m. það yfirburða
njósna- og eftirlitsnet sem
Bandaríkjamenn hafa hengt upp
úti í geimnum og sannaði sig síð-
ast í „slysinu" yfir Sakhalín-eyju
þegar Bandaríkjamenn virtust sjá
og hlera allt sem fram fór í og yfir
Sovétríkjunum. Engu líkara en
hér væri loksins kominn sá „guð
sem heyrir sultardropann falla og
telur sérhvert tóbakskorn sem
sogast upp í nös fátæks manns“
(Salka Valka).
V öxtur friðarhreyfingarinnar
vitnar um vantrú manna á að æ
útsmognari vítisvélar tryggi frið.
Forsendur friðar eru frelsi og rétt-
læti og ugglaust erum við GHF
sammála um að þar eru Sovétrík-
in helsti þröskuldur í vegi. Ég aft-
ur á móti álít að æ hraðara víg-
búnaðarkapphláup verði ekki til
að sprengja sovétskipulagið held-
ur efla það. Það er einmitt á hern-
aðarsviðinu sem Sovétríkin eru
helst með lífsmarki og alræðisríki
á borð við Austurblokkina geta
endalaust kreist út úr sér hergögn.
Að flestu öðru leyti eru Sovétríkin
komin að fótum fram og hug-
myndafræðilega eru þau dauð.
Alþýða Austantjaldslandanna
bíður færis að losa sig undan
sovétfarginu. Og það er í þeim
punkti sem Vesturlönd ættu að
rétta fram hjálparhönd. Öll að-
stoð sem þau veita Austurblokk-
inni ætti að vera háð því skilyrði
að þau gefi andófi svigrúm, slaki
á klónni. Einmitt hér hefur Reag-
an-stjórnin brugðist með því að
hefja sölu á hveiti til Sovétríkj-
anna skilmálalaust og Evrópu-
ríkin jafnan þegar peningar eru í
boði. Friðarverðlaun til Lech
Walesa eru skærasta ljósið í því
endalokarökkri sem við nú erum
stödd í. Austantjaldsandófið er
mikilvægara fyrir sundurliðun
Sovétblokkarinnar en þótt komið
væri fyrir Pershing-eldflaugum í
öðrum hverjum kjallara í Vestur-
Evrópu.
Gestir íslensku Óperunnar
í tilefni sýninga íslensku Óperunnar hefur
Arnarhóll ákveöiö að bjóöa upp á
stórkostlegan matseðil fyrir eöa eftir sýningu
Reyksoöiö laxapaté
Léttsteikta heiöagæs m/trönuberjasósu
Vanillutertu m/súkkulaðihjúpuðum
vínberjum
Boröapantanir í síma 18833