Helgarpósturinn - 05.04.1984, Qupperneq 23
HRINGBORÐIÐ
I dag skrifar Heimir Pálsson
• •
Oldungar eða olnbogaböm
Hartnær á hverju misseri getur
einhvemtíma að líta flennifyrir-
sagnir í dagblöðum þar sem ver-
ið er að spá stöðvun og jafnvel
„útrýmingu" þess skólafyrir-
bæris sem kallað hefur verið öld-
ungadeildir á vora tungu. Þar
sem blekberi þessa hringborðs
hefur haft afskipti af þesskonar
skólum næstum því frá því hin
fyrsta öldungadeild hóf göngu
sína fyrirgefst honum vonandi að
teygja lesendur inn í ofurlitlar
umþenkingar á því sviði.
Hin fyrsta öldungadeild var
stofnuð við Menntaskólann við
Hamrahlíð fyrir drjúgum áratug.
Það var rektor skólans, Guð-
mundur Amlaugsson,sem hug-
myndina átti, og það vom hann
og samstarfsfólk hans sem skipu-
lögðu starfið og eiga allan heiður
cif því. Upphéiflega var hugmynd-
in að veita mönnum aðstoð við
heimcmám og greiða þcinnig götu
þeirra sem annars hefðu orðið að
hverfa frá vinnu, jafnvel árum
saman, og setjast á skólabekk
í hefðbundnum skólum. For-
göngulið Guðmundar Amlaugs-
soncir gerði- sér enga grein fyrir
hver þörfin kynni að vera, og
sjálfur hefur Guðmundur sagt
svo frá að fjöldinn sem birtist á
fyrsta kynningarfundi um málið
(og hcifði sá raunar verið mjög
lítið auglýstur) hcifi verið svona
um það bil sexfaldur sá hópur
sem giskað hafði verið á. Alkunna
er að eftirspumin hefur heldur
vaxið en hitt, öldungadeildum
hefur f jölgað og nú em þær starf-
andi við mennta- og fjölbrauta-
skóla um allt land. Samanlagður
nemendafjöldi mun vera yfir
2000. Stærstar em deildimar við
Menntaskólann við Hamrahlíð og
Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Brautskráðir stúdentar frá hinni
fyrmefndu em orðnir 602 talsins
skv. upplýsingum rektors.
Nú skyldi maður ætla eftir tíu
ára starf og vel það að þessi
merkilegi þáttur í fullorðinna-
fræðslu landsins væri kominn á
nokkuð fastan gmndvöll. Svo er
ekki. Stoðir eiga deildir þessar
naumast nokkrar í lögum ríkis-
ins. Engin reglugerð er til um
þær. Þær starfa raunvemlega á
einhverskonar „góðvildar-
gmnni“. Fjárveitingar til þeirra á
fjárlögum em eina staðfestíng
þess að þær séu til.
Þetta er að vísu ekki alltaf til
bölvunar. Öldungadeildimar em
sköpunarverk kennara og skóla-
stjómenda og að mörgu leyti er
eðlilegt og jákvætt að fram-
kvæmd mála geti verið sæmlega
frjálsleg og lcigist að aðstæðum.
Þcmnig gæti flókin lagasetning
orðið til bölvunar, ég tala nú ekki
um innanhússplögg ráðuneytís-
ins þau sem sfðan em kölluð
reglugerðir og hcifa jafnan það
einkenni að vera samin cif mönn-
um sem starfa fjarri vettvangi.
En reglugerðcirleysið og laga-
skorturinn hafa m.a. það í för
með sér að kjarasamningar
starfsmanna við deildimar hanga
einatt í býsna lausu lofti. Það gef-
ur misvitmm ráðuneytismönn-
um sífelld tækifæri til kátlegra
uppátækja þegar spamaðargáll-
inn er á þeim. Og það em þessi
uppátæki sem verða tilefni fyrir-
sagnanna sem ég gat um í upp-
hafi. Hér er hvorki staður né
stund til að rekja alla þá sögu, en
dæmi skulu nefnd.
Einn daginn finna ráðuneytis-
menn út af hyggjuviti sínu maka-
lausu að greiðslur fyrir „heima-
vinnu", þ.e.as. leiðréttingar
verkefna, séu hlutfallslega
nokkm hærri í öldungadeildum
en venjulegum skólum. Þetta vita
allir kennarar deildanna að er
eðlilegt. Ritgerðir fullorðins fólks
em miklu viðameiri og metnað-
arfyllri en þær sem nemendur á
venjulegum framhaldsskólaaldri
skrifa. Yfirferð námsefnis er allt
að tvöfalt hraðari en í „dagskól-
um“ og ritgerðimar því oft og tið-
um greiðasta og skynsamlegasta
þjálfunaraðferð sem unnt er að
beita. Því dettur engum vitiborn-
um kennara í hug að fallast á
fækkun þeirra samkvæmt til-
mælum fólks sem lítið sem ekk-
ert veit um þá starfsemi sem freim
fer.
Annað dæmi: Einn daginn finn-
ur ötull ráðuneytismaður af
hyggjuvitinu góða að laun kenn-
ara séu alltof há. Þeim er greitt
fyrir kennslu í deildinni með
álagsstuðlinum 1,6, þ.e.a^. 60%
hærra en greitt er fyrir „venju-
Iega“ kennslu. Þetta er ósvinna,
segir hinn samviskusami starfs-
maður. Upphaflega var þetta rök-
stutt með því að svo margir nem-
endur væru í hverjum hópi, en
námshópamir eru litlu sem engu
stærri en við dagskólann. Segjum
upp! - En lítum aðeins á hina hlið
málsins, þá sem að kennaranum
snýr. ÓIl kennslan fer fram utan
dagvinnutíma. Öll er hún úr sam-
bandi við annan starfstíma hans
við stofnunina. Hún er því að
vissu leyti algerlega sambærileg
við „útkall" sem önnur stéttar-
félög hafa samið um. Samkvæmt
upplýsingum ASÍ er lágmarks-
greiðsla fyrir útkall 3 klukku-
stundir og mörg félög hafa samið
um fjórar. Yfirferð námsefnis er
mun hraðari en í „dagskólunum".
Öldungadeildarkennslan krefst
því annarskonar undirbúnings
og annars skipulags en dagskóla-
kennslan. Við háskóla er hver fyr-
irlestur stundakennara greiddur
sem fjórir vinnutímar (og er
raunar hláleg greiðsla). Þannig
mætti halda áfram, en lesendum
skal hlíft við því að sinni.
Nú væri fróðlegt að vita hvað
kennslan kostar t.d. á nemanda í
þessu námi. Er hún svo dýr að
það réttlæti allan hamaganginn í
spamaðarráðuneytunum?
Samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu Menntaskólans við
Hamrahíð má m.a. lesa eftírfar-
andi úr reikningum skólans á
árinu 1983: Laun greidd fyrir
kennslu í dagskóla námu kr.
20.003.715 - nemendur voru 830-
840. Sé reiknað með hærri töl-
unni verður kostnaður á hvem
nemanda kr. 23.813,90. (Hér er
aðeins um að ræða kennslulaun,
ekki skrifstofuhald né annan
rekstur, sem færist nær eingöngu
á dagskóla, þar sem öldunga-
deild nýtur ekki viðurkenndrar
þjónustu). - Kennciralaun í öld-
ungadeild vom á sama ári kr.
5.677.835 - nemendur þar um
720. Kostnaður við kennslu á
nemanda var þá 7.885 krónur -
en þæ með er ekki öll sagan
sögð: Nemendur greiða skóla-
gjöld í öldungadeildinni. Á þessu
ári (1983) vom þau kr. 3000 á
mann (reyndar 3100 fyrir hluta
nemenda). Þegar þau em dregin
frá verður kostnaður á nemanda
öldungadeildarinnar í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð krónur
4.885 - segi og skrifa f jegurþús-
undáttahundmðáttatíuogfimm.
Eða með öðrum orðum: Kennsl-
an í öldungadeildinni kostar
rúman fimmtung af því sem dag-
skólakennsla kostar.
Er nú undur þótt maður spyrji:
Gefa þessar tölur virkilega næg
tilefni til þess að launadeild
Menntamálaráðuneytis grípi öll
tækifæri sem gefast til þess að
krukka í samninga kennaranna?
Eiga þeir sem gmnninn lögðu
i 'á
að þessari nauðsynlegu þjónustu
það skilið? Eða er það máski
kenning ráðuneytisins að öld-
ungadeildimar séu einhverskon-
ar lúxus sem engan rétt eigi á
sér? Spyr sá sem löngu er hættur
að skilja.
Nú dettur mér ekki í hug að
tölurnar yrðu öldungis svona frá-
leitcir við aðra skóla. Utan
Reykjavíkur starfa t.d. mjög fá-
mennar deildir og þar hlýtur
kostnaður að verða meiri á hvem
nemanda. En þar um gildir vitan-
lega þeð sama og á öðrum skóla-
vettvangi: Menntun utan höfuð-
borgarsvæðisins er og hlýtur að
verða dýrari en í Rvík. Jafnrétti
kostar peninga. Annað hvort
verða fjármálayfirvöld að horfast
í augu við það ellegarhættaöllu
„snakki" um jöfnun aðstöðu og
flytja cilla skólana til Reykjavíkur.
Að undanförnu hcifa verið
haldnir merkir fundir sem snerta
framtíð öldungadeilda. Miðviku-
daginn 21. þm. kom Ragnhildur
Helgadóttir á fund sem öldungar
MH boðuðu til. Þar gaf ráðherra
von um að sett yrðu ákvæði í lög
um menntaskóla, nægjanleg til
þess að unnt yrði að setja regl-
ur um starfsemi öldungadeilda.
Vonandi ber hún meiri gæfu í
þessu máli en forverar hennar á
ráðherrastóli og lætur ekki sitja
við orðin tóm. - Nemendur öld-
ungadeildanna hafa bundist
samtökum til þess að reyna að
berjcist fyrir rétti sínum. Kenn-
arar fagna því heilshugar og von-
ast til góðs scimstarfs. En lái þeim
hver sem vill að þeir eru ekki
reiðubúnir til að gleypa hverja þá
kjaraskerðingu sem ráðuneytis-
sparendum dettur í hug. Það er
varla tilefni til þess þegar ástand
er slíkt í kjaramálum kennara að
stúdentar hendi því á milli sín að
enginn óbrjálaður maður fari að
hætta námi og hef ja kennslu með
BA-próf þegar launin séu lægri
en námslánin.
Ekkert shampoo jafnast á við
EL’VITAL
frá
L’ORÉAL
ÍXffll -
CUEEN-etiM
Sjálfvirkar kaffikönnur fyrir
veitingahús og fyrirtæki
• Sænsk gæðafram-
leiðsla úr ryðfríu
stáli.
• Lagar 1,8 lítra af
kaffi á 5 mínútum.
• Sjálfvirk vatns-
áfylling.
• Enginn forhitunar-
tími.
Nýtir kaffið til
fullnustu i uppá-
hellingu.
• Fullkomin raf-
eindastýring.
• Raka- og hitavarin.
• Fáanleg 2ja og 4ra
hellna.
• Til afgreiðslu strax.
Frá aðeins kr. 7.780.
jT
Otrúlega
hagstætt
verð
A. Kairlsson h. f.
Umboðs- og heildverslun,
Grófinni 1, Reykjavík.
Sími 27444.
HELGARPÓSTURINN 23