Helgarpósturinn - 05.04.1984, Side 26
HELGARDAGSKRÁIN
Föstudagur 6. apríl
45 Fréttaágrip á táknmáli
00 Fréttir og veður
35 Auglýsingar og dagskrá
40 Á döfinni
55 Skonrokk
25 Kastljós
25 Töframaðurinn Houdini (The
Great Houdinis). Bandarísk sjón-
varpsmynd frá 1976.
00.00 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur 7. april 1984
15.30 íþróttir.
16.15 Fólk á förnum vegi. 21. Sumar-
leyfi.
18.10 Húsið á sléttunni.
18.55 Enska knattspyrnan.
19.45 Fréttaágrip á táknmáii.
20.00 Fréttir og veður.
J 20.25 Auglýsingarog dagskrá.
20.35 Viðfeðginin.
21.05 Bleiki pardusinn snýr aftur.
(The Pink Panther Strikes Again).
Bresk gamanmynd frá 1976.
Leikstjóri Blake Edwards. Aðal-
hlutverk: Peter Sellers, Herbert
Lom, Colin Blakely og Leonard
Rossiter.
22.45 Tólf ruddar. (The Dirty Dozen).
Bandarísk-spænsk biómynd frá
1967. Leikstjóri Robert Aldrich.
Aðalhlutverk: Lee Marvin, Ernest
Borgnine, Robert Ryan, Charles
Bronson, Jim Brown og John
Cassavetes. Myndin gerist í
heimsstyrjöldinni síðari. Nokkr-
um bandarískum hermönnum,
sem dæmdir hafa verið til
þyngstu refsingar, býðst sakar-
uppgjöf gegn því að taka þátt i
háskalegum aðgerðum að baki
viglinu Þjóðverja. Hasarmyndin
fræga sem fæddi áf sér fjölda
stælinga, en stendur enn uppúr
fyrir töff leikstjórn og samansafn
af harðjaxlaleikurum í fremstu
röð. 2 stjörnur.
Þyðandi Jón O. Edwald. Myndin
er ekki við hæfi barna.
01.05 Dagskrárlok.
Sunnudagur 8. apríl
18.00 Sunnudagshugvekja. Jóhanna
19.05 Hlé.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttirog veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku.
21.00 Nikulás Nickleby. Þriðji þáttur.
Leikrit i níu þáttum gert eftir sam-
nefndri sögu Charles Dickens.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.55 Oscar Peterson. Kanadisk
heimildamynd um djasspíanó-
leikarann og tónsmiðinn heims-
fræga, Oscar Peterson. í mynd-
inni rifjar Peterson upp minningar
frá æsku sinni og listamannsferli,
samferðamenn segja frá og
brugðið er upp svipmyndum frá
hljómleikum meistarans. Þýð-
andi Óskar Ingimarsson.
23.00 Dagskrárlok.
Föstudagur 6. apríl
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „Litrikur og sérkennilegur Svii
- Fabian Mánson" eftir Fredrik
Ström. ( endursögn og þýðingu
Baldvins Þ. Kristjánssonar sem
les (2).
14.30 Miðdegistónleikar.
14.45 Nýtt undir nálinni.
16.20 Síðdegistóleikar.
17.10 Siðdegisvakan.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrákvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilk’ynningar.
19.50 Við stokkinn.
20.00 Lög unga fólksins.
20.40 Kvöldvaka.
21.10 Hljómskálamúsik.
21.40 Störf kvenna við Eyjafjörð. III.
og næstsíðasti þáttur. Komið við
í Hrísey. Umsjón: Aðalheiður
Steingrímsdóttir og Maríanna
Traustadóttir (RÚVAK).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Lestur Passíu-
sálma (40).
22.40 Traðir. Umsjón: Gunnlaugur
Yngvi Sigfússon.
23.20 Kvöldgestir - þáttur Jónasar
Jónassonar.
00.55 Fréttir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá RÁS 2 hefst
með veðurfregnum kl. 01.00 og
lýkurkl. 03.00.
Laugardagur 7. apríl
14.00 Listalif.
15.10 Listapopp.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.20 íslenskt mál.
16.30 Nýjustu fréttiraf Njálu.
17.00 Síðdegistónleikar.
18.00 Ungir pennar. Stjórnandi Dóm-
hildur Sigurðardóttir (RÚVAK).
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Heimaslóð. Ábendingar um
ferðaleiðir.
20.00 Fritz Wunderlich syngur lög úr
óperettum.
20.20 Útvarpssaga barnanna: „Dýrin
í Rósalundi" eftir Jennu Jens-
dóttur.
20.40 Fyrir minnihlutann. Umsjón
Árni Björnsson.
21.15 Á sveitalínunni.
22.00 „Gunnhildur búrkona", smá-
saga eftir Verner von Heiden-
stam.
22.40 Harmonikuþáttur.
23.10 Léttsígild tónlist.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
24.00 Næturútvarp frá RÁS 2 til kl.
03.00.
Sunnudagur8. apríl
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. ,,
10.25 Útog suður.
11.00 Messa í Akraneskirkju. (Hljóð-
rituð 25. mars s.l.) Prestur: Séra
Björn Jónsson. Organleikari: Jón
ÓlafurSigurðsson.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
13.30 Vikan sem var.
14.15 Guilöldin í goðsögnum og
ævintýrum. Umsjón: Hallfreður
Örn Eiriksson.
15.15 1 dægurlandi. f þessum þætti:
Upphaf dægurlagasöngs á
hljómplötum.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Um vísindi og fræði - Örverur
og nýting þeirra i liftækni.
Sigmarsdóttir,
dvalarheimilisins
Reykjavík, flytur.
18.10 Stundin okkar.
forstöðukona
Hrafnistu i
Val Leifs Þórarinssonar
,Á föstudag horfi ég kannski á veðurfregnimar í sjónvctrpinu," segir
Leifur Þórarinsson tónskáld. .Annars leiðast mér allar fréttir.
Á laugardag ætla ég að horfa á Bleika pardusinn, en myndina á eftir,
Tólf rudda, nenni ég ómögulega að sjá; tólf mddar! Ha? Er ekki nóg með
einn rudda eða tvo? Á sunnudag horfi ég á Nichoias Nickleby og hlusta
eflaust á Oscar Peterson. í útvarpi er ekkert af viti á föstudaginn nema
Passíusálmamir. Ekkert á iaugardag. Ekkert á sunnudag nema Kammer-
tónleikarnir í Bústaðakirkju. Vildi gjctman hlýða á hann Kristin syngja
síðctr um kvöldið. Annars er ég lítill ríkisfjölmiðlamaður en brjálaður í
blöð.“
Æ Guðni Alfreðsson dósent flytur
sunnudagserindi.
17.00 Frá tónleikum Kammersveitar
Reykjavíkur i Bústaðakirkju 1.
þ.m.
17.45 Erika Köth og Rudolf Schock
syngja.
18.00 Um fiska og fugla, hunda og
ketti og fleiri íslendinga. Stefán
Jónsson talar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrákvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Bókvit.
19.50 Segðu mér leyndarmál, svan-
ur“, Ijóð eftir Sigurð Einarsson
íHolti.
20.00 Útvarp unga fólksins.
20.40 Úrslitakeppni 1. deildar karla i
handknattleik. Hermann Gunn-
arsson lýsir frá Laugardalshöli.
21.15 Kristinn Sigmundsson syngur
úr „Söngbók Garðars Hólm“.
Eftir Gunnar Reyni Sveinsson við
Ijóð Halldórs Laxness. Jónína
Gísladóttir leikur á pianó.
21.40 Útvarpssagan: „Syndin er
lævis og lipur“ eftir Jónas
Árnason. Höfundur les (9).
22.35 Úrslitakeppni 1. deildar karla i
handknattleik.
23.05 Djassþáttur. Jón Múli Árnason.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
£
Föstudagur 6. apríl
10.00-12.00 Morgunþáttur. Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Pósthólfið. Stjórnendur:
Hróbjartur Jónatansson og Val-
dís Gunnarsdóttir.
16.00-17.00 Bylgjur. Stjórnandi Ás-
mundur Jónsson.
17.00-18.00 í föstudagsskapi. Stjórn-
andi Helgi Már Barðason.
23.15-03.00 Næturvakt á rás 2.
Stjórnandi Ólafur Þórðarson.
Rásir 1 og 2 samtengdar með
verðurfréttum kl. 01.00 og heyr-
ist þá i Rás 2 um allt land.
Laugardagur 7. apríl
24.00-00.50 Listapopp (endurtekinn
þáttur frá Rás 1). Stjórnandi
Gunnar Salvarsson.
00.50-03.00 Á næturvaktinni. Stjórn-
andi Kristin Björg Þorsteinsdótt-
ir.
Rásir 1 og 2 samtengdar kl.
24.00 og heyrist þá í Rás 2 um
allt land.
SJONVARP
eftir Árna Þórarinsson
Góður félagi kvaddur
Hann strýkur ímyndaða - eða raun-
vemlega - flösu af öxlinni. Borar í eymn.
Er sífellt að laga hárgreiðsluna, alveg að
óþörfu. Kveikir í sígcirettu. Grípur um
öskubakkann. Strýkur nefið vinstra meg-
in. Það vantar helming á einn fingurinn.
Seilist í glas og fær sér sopa af einhverju
sem líkist vískíi. Hann svitnar á efri vör-
inni. Bregður sér í allra kvikinda líki og
hæðist að því sem flestum er heilagt.
Þannig hefur hann setið í vetur á
mánudagskvöldum á háum stól og talað
við okkur. Það lá vel á Dave AUen á
mánudagskvöldið var. Hann var að
kveðja og lék á als oddi. Reyndar
skemmti hann sér betur en ég, því sjald-
an hefur húmorinn verið slappari hjá
honum en í þessum þætti. Hittni hinna
einstöku brcmdara og skissa er að vísu
alltaf upp og ofan. Gildi þessctra eld-
Skál fyrirDave Allen!
gömlu, endursýndu þátta Allens felst
kannski síst í gríninu, þótt það sé yfirleitt
yndislegt. Gildi þeirra ræðst af því að
þetta er ósvikið sjónvarp.
Þættir Dave Allens byggjast fyrst og
fremst á návígi, hinu nána sambandi
sem tekst að skapa milli mcinnsins fyrir
framan vélarnar í upptökusal og áhorf-
andans heima í stofu. Besti hluti þátt-
anna er Allen einn og yfirgefinn að tala
beint við mig og þig. Vald hans á þessari
miðlun felst umfrcim aJlt í því að virðast
ekki hcifa vald á henni. Það er eitthvert
óöryggi yfir honum, einhver spenna.
Honum líður ekkert sérlega vel. Hann er
ekki „afslappaður". Helst vildi hann
áreiðanlega vera kominn út á pöbb. En
hann býður þessu byrginn og við tökum
þátt í þessu spennta sambandi. Erum
farin að dusta flösuna af öxlinni og seil-
ast í glas og öskubakka og bora í eyrað
áður en við vitum af.
Næsta mánudagskvöld kveðjum við
þennan góða félaga. Þá verður nú fátt
um bústna belli á skjánum. í sjálfu sér er
það skrýtin ráðstöfun hjá sjónvarpinu
að fá margra ára gamla þætti til endur-
sýninga. Það segir sitt um ástandið á
þeim bæ. Það segir líka sitt um sama
ástand að þessar endursýningar hafa
verið eina tilhlökkunarefnið á dag-
skránni um langa hríð, fyrir utan stöku
bíómyndir.
Nú verðum við að fá eitthvað almenni-
legt í staðinn. Bretar framleiða glás af
þáttum á borð við Allen og margt er ekki
síðra en hann. Hvemig væri nú að reyna
eitthvað nýtt? Og gefum innlendu gríni
sjans. Islenski skemmtiþátturinn um
daginn var vel yfir meðallagi. Vantaði að
vísu svolítið upp á ögun og smekk- fyrir
minn smekk. En þetta var virðingarverð
framkvæmd. Meira svona. Meira sjón-
varp. Hvers vegna ekki Ómar Ragnars-
son á háum stól í sjónvarpssal með
mjólkurglas og bitafisk við hliðina á sér?
26 HELGARPÓSTURINN
UTVARP
Rausað og rásað
Mánudaginn 2. apríl flutti Guðmundur
Þ. Jakobsson fyrrverandi bókaútgefandi
erindi „Um daginn og veginrí’. Hann
ræddi þeu' um landsins gcign og nauð-
synjar, eins og menn eiga víst að gera í
þessum erindum. Fjallaði hann um hug-
takið kreppu, og kvaðst neita því, að
kreppa væri nú í íslensku þjóðfélagi.
Vitnaði hcmn til áranna í kringum 1930
og taldi kreppuna þá verulega í saman-
burði við það ástand sem nú ríkti.
Ekki veit ég hvort slíkur samanburður
Guðmundur Jakobsson - réttmætt og
óréttmætt.
sem Guðmundur var með í erindi sínu er
réttmætur, en með aukinni tækni og
meiri almennri menntun hefur fólk öðl-
ast meiri vitneskju um rétt sinn til lífs-
gæðanna.
Hluti af efnahagsaðgerðum yfirvald-
anna er að minnka kauphækkanir svo að
allur þorri launþega, sérstaklega þeir
sem vinna hjá hinu opinbera, lifir sultar-
lífi og verður að leggja á sig mikla yfir-
vinnu til þess að komast af. Launin eru
það lág, að nær vonlaust er fyrir t.d. hjón
með böm að lifa cif dcigvinnutekjum sín-
um. Mikil yfirvinna leiðir til minni af-
kasta yfir dagvinnutímcinn og fólk skilar
ekki nærri því eins góðu dcigsverki.Svo
skapast sú hætta, að vegna þess hvað
launin em léleg freistast margir til þess
að svíkjast um; þetta sé hvort sem er svo
illa borgað.
Þegar ég hef dvalið erlendis, em það
einkum tvær spumingar, sem ég heyri.
Menn spyr ja um verðbólguna og það var
aðalskemmtun útlendinga, þegar ég dró
upp ,Jimmþúsundkallinn" og sýndi. Svo
var ég spurður um vinnutímann og
hvemig við færum eiginlega að því að
lifa. Nú er búið að taka brott núllin tvö,
en það virðist ekki duga til.
Erindi Guðmundcir var um rnargt
ágætt, en heldur þótti mér athugasemd
hans um Rás 2 óréttmæt. Hann verður
að skilja, að Rás 2 er afleiðing aukinna
krerfna til útvarpsins. Svo er það cinnað
mál, að blessuð rásin er að verða dulítið
þreylandi. Nær eina Scimbandið við
hlustendur er í gegnum síma, eða þá
þegar menn koma í beinar útsendingcir.
Viðtölin þar em oft bráðsmellin og
heppnast vel. En hvemig væri nú að hag-
nýta sér tæknina, fara út með hljóðnema
og sendi, heimsækja vinnustaði eða taka
það sem úti á götu heyrist og útvarpa því
beint? Það yrði góð tilbreyting og slíkir
þættir yrðu vafalaust mjög vinsælir
meðal hlustenda.