Helgarpósturinn - 31.05.1984, Qupperneq 9
upp með það, Skattstofan viður-
kenndi þær ekki sem frádráttarlið.
Hvert fer
gjaldeyririnn?
Heildarveiðidagafjöldi erlendra
manna á íslandi 1978 var 5.442.
Veiðidagar íslendinga sama ár
voru 8301. Hér eru aðeins taldar
þær ár sem útlendingar veiddu í
1978: Laxá í Kjós, Laxá í Leirár-
sveit, Grímsá og Tunguá, Þverá,
Norðurá, Langá, Hítará, Haffjarð-
ará, Straumfjarðará, Laxá í Döl-
um, Miðfjarðará, Víðidalsá, Vatns-
dalsá, Laxá í Aðaldal, Deildará-
Hölkná-Hafralónsá, Hofsá, Stóra
Laxá og Sog.
Miðað við að hver útlendingur
hafi dvalið viku við veiðarnar má
gera ráð fyrir að þetta sumar hafi
a.m.k. 780 útlendingar komið hing-
að til laxveiða. Ekki er ósennilegt
að tcdan hafi losað 1000 þegcir þess
er gætt að mjög gjaman sameinast
útlendingar fleiri en einn um eina
stöng. Síðan 1978 hefur útlending-
um smám saman verið að fækka í
íslenskum laxveiðiám. Skýring-
anna á því mun einkum vera að
leita í minnkandi laxagengd, en
fyrir 1978 hafði laxveiðin ávallt far-
ið vaxandi ár frá ári. Fækkunin hef-
ur ekki orðið mikil, t.d. fækkaði
veiðidögum útlendinga frá 1978-
’79aðeinsum 142.
í fyrra námu þær gjaldeyristekj-
ur sem rekja mátti beint til er-
lendra laxveiðimanna 22 milljón-
um króna, samkvæmt upplýsing-
um frá Gjaldeyriseftirliti Seðla-
banka íslands. Miðað við að tekj-
urnar haldist svipaðar á þessu ári
má gera ráð fyrir að 35 milljónir
króna skili sér til Gjaldeyriseftir-
litsins í ár. Leyfisseljendum er gert
að fylla út þar til gerð eyðublöð og
talsvert mun fylgst með gjaldeyris-
skilum í þessari grein.
Engu að síður gefa þær tölur
sem fyrir hendi eru til kynna að
gjaldeyrisskilin séu slæm. Sé þann-
ig reiknað með að í ár verði veiði-
dagar útlendinga ekki rúmlega
5.400 eins og 1978 heldur aðeins
4.500 og að meðal-vikupakkinn
kosti 4000 dollara, má reikna með
að heildartekjur af laxveiði útlend-
inga verði á bilinu 55-60 milljónir,
en ekki 35 milljónir eins og fram-
reikningur á tölum Gjcildeyriseftir-
litsins gefur okkur.
Hvert fara þessir peningar, allur
þessi gjaldeyrir. Hvers vegna skilar
hann sér ekki? Ýmsar skýringar
eru nefndar og sú helst, að hluti
erlendra veiðimanna skipti gjald-
eyri sínum í íslenskar krónur áður
en greiðslurnar fyrir veiðina eru
reiddcir af hendi. Þetta er megin-
skýring Gjaldeyriseftirlitsins. Hún
heldur þó ekki fullkomlega vatni sé
betur að gáð, því algengast er að
útlendingarnir greiði fyrir veiðina
í gjaldeyri. Þetta viðurkenna þeir
sem selja veiðileyfin. Talsverð
brögð munu vera að því að erlend-
ir viðskiptavinir leggi a.m.k. hluta
greiðslunncir, t.d. innáborgun sína
við f)öntun í febrúar, inn á banka-,
reikning veiðileyfisseljenda er-
lendis og þannig framhjá Gjald-
eyriseftirlitinu.
Alveg ótrúlegir menn
En hverjir eru svo þessir þúsund
eða svo útlendingar sem taka frá
okkur besta laxveiðitímann af því
að þeir borga mun betur en við
íslendingar? „Þetta eru cilveg ótrú-
legustu menn,“ segir maður sem
unnið hefur við leiðsögn við lax-
veiðiár. „Fólk trúir því ekki hvers
konar stórmenni eru hér á ferðinni
á sumrin," segir hann. Flestir kcinn-
ast að líkindum við laxveiðiheim-
sóknir Kekkonens, fyrrum Finn-
landsforseta, sem veiddi í Víði-
dalsá, Karls Bretaprins, sem veiddi
í Hofsá, Neil Armstrongs tunglfara,
Jack Nicklaus golfsnillings og
skötuhjúanna Jessicu Lange og
Michaels Barishnikovs á undan-
förnum árum. Færri kannast lík-
lega við Orlcindo, forstjóra stærstu
ál- og stálbræðslusamsteypu
Ítalíu, samlanda hans Angelino,
forstjóra Fiat-verksmiðjanna, eða
Charles Forte, sem rekur 517 hótel
víða um heim, Donald Kendall, for-
stjóra Pepsi, sem var lengi með
Laxá í Dölum á leigu fyrir fyrirtæki
sitt, prívat, eða þá Spiro Skuras,
skipakónginn gríska. Stórlaxamir
eru fjölmargir.
,3tærsti hlutinn af útlendingun-
um eru bara sæmilega efnaðir
menn á ameríska vísu, menn með
40-50.000 dollara árstekjúr, sem
þykir ekki mikið þar vestra. Þetta
eru oft lögfræðingcir, læknar eða
prófessorar, og það er mjög mikið
um menn sem eru komnir á eftir-
laun.orðnir þetta 55-60 ára,“ segir
einn leiguseljenda. Mest er um
Bandaríkjamenn, en hingað koma
líka Bretar, Frakkar, ítalir og Sviss-
lendingar í allmiklum mæli. ,dcifn-
vel námuverkamenn", segir leigu-
salinn. ,3umir eru bara venjulegir
daglauncunenn sem hefur dreymt
um að komcist til íslands, drauma-
landsins, og hcifa Scifnað lengi fyrir
ferðinni. Margir koma á Ap>ex-far-
gjöldum, og maður sér að þeim er
ekki alveg sama hvað hlutimir
kosta."
En sögur em líka sagðar af vell-
auðugum Bndaríkjamönnum sem
eru svo örlátir á þjórfé að þeir telja
ekki einu sinni 20 dollara bunkann
sem þeir em að tippa með. Einn
þeirra rétti einu sinni blaðsölu-
strák niðri í Austurstræti nokkur
hundmð krónur fyrir dagblað.
Strákurinn lét hann hafa öll blöðin
og hljóp svo til kollega síns og fékk
fleiri blöð hjá honum...
Fáránlegt
En það er önnur meginástæða
en minnkandi fiskigengd fyrir því
hvers vegna erlendum laxveiði-
mönnum fer fækkandi hér á landi:
„Við höfum gengið fulllangt í verð-
lagningunni," segir maður sem
lengi hefur starfað í laxveiðivið-
skiptum hér heima og erlendis.
„Það er ekki bara það að íslending-
arnir kvarti yfir því að allir bestu
dagarnir séu famir,heldur em út-
lendingcirnir líka famir að segja að
leyfin séu of dýr. Það er hægt að
komast í mun ódýrari laxveiði í
Kanada og Skotlandi, þótt ámar
þar séu reyndar ekki jafn skemmti-
legar og hér. íslendingar hcúa jafn-
vel farið utan líka í ódýrari túra en
þeir em vanir að fara innanlands.
Sífellt oftar heyrir maður útlend-
ingana segja að þetta sé að verða
svolítið fáránlegt."
spansvo
Berðu saman mismunandi sparnaðarleiðir sem bankarnireru að bjóða þessa dagana.
Athugaöu að við bjóðum aðra leið:
6 mánaða BANKAREIKNINC MEÐ BÓNUS.
Öiyggii
Þú mátt færa á milli verðtryggðra
sem óverðtn/ggðra reikninga. Slíkt
er nú aldeilis ön/ggisatriði ef verð-
bólgan vex.
Þægindi:
Bankareikningurinn þarfnast ekki
endurnýjunar. Engarferðir í bank-
anná6mánaða fresti.
Mnaðarbankinn
Fereigin leiðir -fyrir sparendur.
HELGARPÓSTURINN 9