Helgarpósturinn - 31.05.1984, Blaðsíða 19

Helgarpósturinn - 31.05.1984, Blaðsíða 19
HRINGBORÐIÐ Um samhengi siðleysis og brjóstsviða I dag skrifar Auöur Haralds Ég kom í kjötbúðina í dag og fann þar splunkunýjan starfs- kraft. Hann var smáfríður og fag- urlimaður og ég spurði strax: „Hvað kostar kilóið af honum í heilu? Ég er að hugsa um að taka hann á fæti.“ Hann fór og faldi sig á bak við hangikjötið og seldi þaðan kjöt- fars með fjarskiptasambandi þar til ég var farin. Mig neitaði hann alfarið að afgreiða. Þetta sýnir hversu siðgæðis- þrek manns fer þverrsmdi með aldrinum. Mér hefði þótt það allt í lagi hefði ekki runnið upp fyrir mér að minnkandi siðgaeðisþrek stóð í beinum tengslum við vax- andi brjóstsviða. Vísindalegt ferli þessarar upp- götvunar hófst þegar 20 ára gagnfræðingar komu saman á Naustinu til að borða kind. Kind þessi gekk í berhögg við kenning- ar þeirra sem boða mér að ég verði mögur og fögur viljí ég að- eins fella niður núverandi matar- venjur og aðlaga mig baunaspír- um og spínati. Kindin hafði verið grænmetisæta állt sitt líf og hefði henni verið brugðið á þrekhjólið hjá Hjartavemd þá hefði hún án tafa verið flutt á gjörgæslu, sjúkrasamlagsskírteini eða ekki. Á eftir kindinni kom kaffið og koníakið. Samkvæmt öruggum heimildum er koníak heilsu- drykkur í öllum tilvikum og fyrir- byggjandi lyf í nokkrum. En það er auðvitað með konícik eins og önnur kraftmikil lyf, of stórir skammtar geta valdið tjóni. Og þannig var að í kraðakinu af borðræðum og skálum tæmdist koníaksglasið mitt. Þar hefði átt að koma til átaka við siðgæðis- vitundina, en ég varð ekki vör við að svo mikið sem skipst væri á athugasemdum þegar ég skeið- aði á barinn og lét fylla glasið aftur til að geta haldið áfrcim að sýna félagslega viðleitni. Dciginn eftir var líðan mín blandin. Ég gat að vísu státað af að hafa treyst fjárhagslega stöðu landbúnaðarins í Frakklandi og það svo að það gat jafnvel haft afgerandi áhrif á framtíð Efna- hagsbandalagsins. En í stað þeirrar vellíðuncir sem þessi vissa hefði átt að valda var ég með kröftugan brjóstsviða. Lengi kenndi ég koníakinu um, eða allt þar til mér varð Ijóst að franskir vínbændur voru ekki hinir eigin- lega seku, heldur siðgæðisþrek mitt sem hafði augljóslega fallið úr 99% niður í 1% án nokkurs samráðs við mig, hvað þá að þessi stökkbreyting hefði gert boð á undan sér. Mér þykir rétt að taka fram að ég álít mig aðeins hafa byrjað gönguna gegnum þennan táradal með 99% siðgæðisstyrkleika þar eð ég hef allt frá fyrstu minning- um frumbernskunnar átt örðugt með að hafna tilboðum um rjómaís. Enginn er fullkominn. Brjóstsviðanum létti eftir því sem á leið. En tilhugsunin um þetta hrap siðgæðisins var áleit- in. Ég Vcirð sífellt sannfærðari um að ég myndi aldrei ná upp fyrri siðferðisstaðli. Þessi sannfæring ól svo af sér sívaxandi ósiðsemi. Því var það að þegar dóttir mín sá ástæðu til að gagnrýna mig þá fékk hún, og ég reyni hvorki að afsaka né verja framferði mitt, siðlaust og ófyrirleitið svar. ,3érðu þetta? Hér átt þú heilan sígarettupakka og ég var að enda við að kaupa tvo í viðbót fyrir þig. Hvers konar reykingar eru þetta eiginlega?" „Og hvað með það? Ég klára þó alltaf allar sígarettumar mínar sem er meira en hægt er að segja um suma sem klára aldrei allan matinn sinn, ha?“ Barnið féll orðlaust í valinn og móðirin sigraði, en móðirin fékk svo sannarlega brjóstsviða af að snúa svona lymskulega á sak- leysingjcinn. Strax á þriðja degi hafði mynd- ast skelfilegur vítahringur. Mér fannst ég vera fullkomlega sið- laus persónuleiki og gat því verið andstyggileg við afgreiðslupilt í skóbúð og bitið höfuð af konu í sjoppu án þess að þau hefðu til þess unnið. í bæði skiptin fékk ég ægilegan brjóstsviða. Undir lok fyrstu vikunnar varð ekki lengur greint á milli orsakar og afleið- ingar. Spurningin var, var ég að hefna mín á saklausum fyrir þjáning- amar í eigin brjósti eða olli sið- spilling mín brjóstsviðanum eftir vandrötuðum leiðum samvisk- unnar? Um það bil sem þessi spuming gerðist ágeng hafði brjóstsviðinn fært sig upp á skaftið og var nú staðsettur á tungunni. Þá bar svo við að ég þurfti að hafa samband við góðvin minn í Garðabæ, speking mikinn, vegna póstlúgu- máls. Við höfðum rabbað nokkuð um eðalmálma í póstlúgugerð upp úr fyrra stríði, þegar ég sök- um eðlilegra forvitni og fróð- leiksfýsnar spurði: „Ertu hættur að reykja? Við er- um búin að tala saman í tuttugu mínútur og þú hefur ekkert hóst- að?“ ,JMeinei,“ svaraði hann, „ég er bara búinn að læra að hlæja ekki djúpt, það er það sem tekur í.“ já,“ sagði ég og fann þennan titrandi unað sem samhljómur gagnkvæms skilnings vekur. „Heyrðu," héltég áfram, ,þeld- urðu að þessi brjóstsviði sem ég er með í tungunni geti stafað af reykingum? Eg hef hcift svo mikl- ar áhyggjur af að hann stafaði af þverrandi siðgæðisþreki. Til dæmis hef ég fengið alveg heift- arlegan br jóstbmna af að horfa á mann skera flatköku í nákvæma sexhymda bita áður en hann borðaði hana, þetta var maður sem þótti langar neglur sexí svo ég klippti strax á mér neglumar. Heldurðu að þetta geti kannski bara verið þögul mótmæli tung- unnar gegn því að sjúga 50 sígar- ettur á dag og sé þannig óskylt siðlausu framferði mínu undan- farið?" Hann hélt að þetta gætu vel verið sígarettumar, hafði orðið var við eitthvað svipað undan einum pakka af London Docks í dagskammt. Þó áleit hann að hann myndi fá brjóstsviða sjálfur sæi hann mann skera flatköku í nákvæma sexhyminga. „En,“ sagði hann, „þú skalt ekki hafa áhyggjur cif þessu með siðgæðisþrekið, ég hef nefnilega velt þessu talsvert fyrir mér og komist að niðurstöðu. Og ég get fullyrt að það er ekki siðleysið sem veldur brjóstsviðanum, heldur öfugt.“ Ég bað hann að rökstyðja þetta. irIu,“ sagði hann, „þú manst eftir öilum eldspúandi drekunum í gamla daga sem Georg og þeir vom alltaf að berjast við? Eg hef rannsakað líffræðilegar forsend- ur þess að eðlur spúi eldi og það er bara tæknilega ómögulegt. Aft- ur á móti vom þessir drekar með mikinn brjóstsviða. Það má leiða getur að því að þeir hafi verið með meltingartruflanir ai að gleypa menn í hringabrynjum. Þú veist sjálf hvað jámtöflur geta valdið miklum usla í fólki, hvað þá massívir skammtar eins og 200 punda brynja, jafnvel þótt drekinn hafi kannski vegið eitt- hvað meira en manneskja sem tekur tvær töflur á dag. Altént þykir mér vísindalega sannað að drekarnir hafi dag og nótt logað að inncin og þess vegna vom þeir svona geðvondir og grimmir. Þegar þeir svo hvæstu framan í riddarana, þá stóðu magcisýmm- ar í svælu framan í þá og þeir héldu bara að þetta væri eldur." Hafandi náð réttu orsakasam- hengi í þetta batnaði mér brjóst- sviðinn á örfáum klukkustund- um. En siðgæðisþrekið hefur ekki aukist í réttu hlutfalli við rénandi sviða og sést það best á atburðin- um í kjötbúðinni sem frá greinir í upphaJi þessa máls, en hann gerðist löngu eftir að batinn var fullkominn. tm eivital msm ELVITAl VOIUMEN SHAMPOO L'ORÉAU Ekkert shampoo jafnast á viö EL’VITAL frá L’ORÉAL VERSLUNARMIÐSTÖÐ VESTURBÆJARIN \l£°T (jp\/AL AHar %\ vörur Jli %\ í z Té á á markaðsverði. 2 fi V 33 JL / RAFTÆKJADEILD II. HÆÐ Raftæki - Rafljós og rafbúnaður JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn MUNIÐ OKKAR HAGSTÆÐU GREIÐSLUSKILMÁLA Innkaupin eru þægileg hjá okkur Svo geturðu líka slappað af í Kaffiteríunni A A A. A A ' OPIÐ: Mánud.-fimmtud. 9-19. Föstud. 9-20. Laugard. 9-16. JIS Jon Loftsson hf. Hringbraut 121 Sími 10600 □ □JQj l JdUljqjH j jijpqj:' HELGARPÓSTURINN 19

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.