Helgarpósturinn - 31.05.1984, Page 14

Helgarpósturinn - 31.05.1984, Page 14
LEiKFfiLAG REYKJAVÍKLJR SÍM116620 GÍSL Föstudag kl. 20.30. Næst síðasta sinn á leikár- inu. FJÖREGGIÐ 10. sýn. miðvikudag kl. 20.30. Bleik kort gilda. Laugardag kl. 20.30. Næst síðasta sinn á leikárinu. BROS ÚR DJÚPINU Fimmtudag kl. 20.30. Sunnudag kl. 20.30. Næst síðasta sinn. Bannað börnum. Miðasala í Iðnó kl. 14-20.30. ÞJÓOLEIKHUSiti GÆJAR OG PÍUR Miðvikudag kl. 20. Fimmtudag (uppstigningardag) kl. 20. Laugardag kl. 20. Sunnudag kl. 20. Þriðjudag kl. 20. Miðasala 13.15-20. Sími 1-1200. Hverjum bjargar það næst ír ||Uf^FEROAR Fjölbrauta skólinn í Breiðholti Innritun í Fjölbrautaskólann í Breiðholti fer fram í Miðbæjarskólanum í Reykjavík dagana 4. og 5. júní næstkomandi kl. 9.00 -18.00 svo og í húsa- kynnum skólans við Austurberg dagana 6. - 8. júní á sama tíma. Fér þá fram innritun í dagskóla og öldungadeild. Umsóknir um skólann skulu að öðru leyti hafa borist skrifstofu stofnunarinnar fyrir 10. júní. Þeir sem senda umsóknir síðar geta ekki vænst skólavistar. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður fram nám á sjö námssviðum og eru nokkrar námsbrautir á hverju námssviði. Svið og brautir eru sem hér segrr: Almennt bóknámssvið: (menntaskólasvið) Þar má velja milli sex námsbrauta sem eru: Eðlisfræðibraut, Fólagsfræðibraut, Náttúrufræðibraut, Tónlistarbraut, Tungumálabraut og Tæknibraut. Heilbrigðtssvið: Tvær brautir eru fyrir nýnema: Heilsugæslubraut (til sjúkra- liðaréttinda) og Hjúkrunarbraut, en hin síðari býður upp á aðfararnám að hjúkrunarskólum. Hússtjórnarsvið: Tvær brautir verða starfræktar: Matvælabraut I er býður fram aðfaranám að Hótel- og veitingaskóla Islands og Ma- tvælabraut II er veitir réttindi til starfa á mötuneytum sjúkra- stofnana. Listasvið: Þar er um tvær brautir að ræða: Myndlistarbraut, bæði grunnnám og framhaldsnám svo og Handmenntabraut er veitir undirbúning fyrir Kennaraháskóla Islands. Tæknisvið: (Iðnfræðslusvið). Iðnfræðslubraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti eru þrjár: Máimiðnabraut, Rafiðnabraut og Tréiðnabraut. Boðið er fram eins árs grunnnám, tveggja ára undirbúningsmenntun að tækninámi og þriggja ára braut að tæknifræðinámi. Þá er veitt menntun til sveinsprófs í fjórum iðngreinum: Húsas- míði, rafvirkjun, rennismíði og vólvirkjun. Loks geta nem- endur einnig tekið stúdentspróf á þessum námsbraytum sem og öllum 7 námssviðum skólans. Hugsanlegt er, að boðið verði fram nám á sjávarútvegsbraut á tæknisviði næsta haust ef nægilega margir nemendur sækja um þá námsbraut. Uppeldissvið: Á uppeldissviði eru þrjár námsbrautir í boði: Fóstur- og þroskaþjálfabraut, íþrótta- og félagsbraut og loks mennta- braut, er einkum tekur mið af þörfum þeirra er hyggja á háskólanám til undirbúnings kennslustörfum, félagslegri þjónustu og sálfræði. Viðskiptasvið: Boðnar eru fram fjórar námsbrautir: Samskipta- og mála- braut, Skrifstofu- og stjómunarbraut, Verslunar- og sölu- fræðabraut og loks Læknaritarabraut. Af þremur fyrmefnd- um brauíum er hægt að taka almennt verslunarpróf eftir tveggja ára nám. Á þriðja námsári gefst nemendum tækifæri til aö Ijúka sérhæfðu verslunarprófi í tölvufræði, markaðsf- ræðum og reikningshaldi. Læknaritarabraut lýkur með stú- dentsprófi og hið sama á við um allar brautir viðskiptasviðs. Nánari upplýsingar um Fjölbrautaskólann í Breiðholti má fá á skrifstofu skólans að Austurbergi 5, sími 75600. Er þar hægt að fá bæklinga um skólann og Námsvísi F.B. Skóiamelstari. SYNINGAR í Þrastalundi Óiafur Sveinsson myndlistarmaöur opnar í dag, 25. maí, sína aöra mynd- listarsýningu. Ólafur nefnir sýninguna Ástina og vorið. Á sýningunni eru nær eingöngu vatnslitamyndir allar unnar á þessu ári. Sýningin stendurtil 8. júní. Gallerí Langbrók I Gallerí Langbrók er sölusýning Lang- bróka: grafík, keramik, tauþrykk, mál- verk, vatnslitamyndir, teikningar, fatn- aður og glermyndir. Sýningin stendur fram aö Listahátíðinni. Ásmundarsalur í Ásmundarsal er sýning Bjarna Ragn- ars Haraldssonar á málverkum. Sýn- ingin stendur til 7. júní. Listahátíð í Norræna húsinu Sýning Jöhani Linnovaara frá Finn- landi stendur til 17. júní. Listmunahúsið Magnús Tómasson sýnir ný verk I List- munahúsinu. Hann er meölimur i Gall- erí Grjót. Listahátíðarsýning á Kjarvalsstöðum 10 íslenskir myndlistarmenn sem búa erlendis sýna á Kjarvalsstöðum á Listahátíðinni. Þeir eru Erro, Jóhann Eyfells, Hreinn Friöfinnsson, Kristín Eyfells, Kristján Guömundsson, Tryggvi Ólafsson, Lovísa Matthias- dóttir, SigurðurGuðmundsson, Þóröur Ben. Sveinsson og Steinunn Bjarna- dóttir. Vesturgata 17 Sunnudaginn 3. júní kl. 17 opna 20 félagar úr Listmálarafélaginu sýningu aö Vesturgötu 17. Þar af margir af þekktustu listmálurum þjóðarinnar. Gallerí Grjót Samsýning á verkum meölima gall- erísins í tilefni Listahátíöarinnar. Öpiö verður um helgina kl. 14-18. Hveragerði Sigurbjörn Eldon Logason opnar mál- verkasýningu I félagsheimili Ölfusinga (næsta hús vestan við Eden) I Hvera- geröi, laugardaginn 2. júní kl. 14. Sýn- ingin verður opin tvær helgar. Á sýn- ingunni verða vatnslita- og olíumyndir. Gerðuberg í Breiðholti Textilfélagið opnar sunnudaginn 3. júní sýningu á vefnaði og tauþrykki. BÍÓIN ★ ★ ★ ★ framsúrskarandi ★ ★ ★ ágæt ★ ★ góð * þolanleg O léleg Austurbæjarbíó Breakdance Aðalleikarar: Lucinde Dickey, Shabba-Doo, Boogaloo Shrimp og margirfleiri. Atómstöðin *** ísl. Árg. '84. Leikstjóri: Þorsteinn Jónsson. íslenska stórmyndin byggð á samnefndri skáldsögu Halldórs Lax- ness. Tónabíó Vitskert veröld Gamanmynd með bestu gamanleikur- um Bandaríkjanna fyrr og síðar: Jerry Léwis, Spencer Tracy, Milton Berle, Buddy Hackett, Dick Shawn, Terry Thomas og margir fleiri. Leikstjóri: Stanley Kramer. Regnboginn Tender Mercies Leikstjóri: Bruce Beresford. Aðalhlut- velk: Robert Duvall, Tess Harper og Betty Buckley. Hraðsending Bandarísk litmynd um heldur brösótt bankarán, með Bo Svenson, Cybil Shepherd og Tom Atkins. Svarti guðfaðirinn Bandarísk litmynd um baráttu milli mafíubófa, með Fred Williamson og Durville Martin. Convoy Aðalhlutverk: Kris Kristofferson og Ali MacGraw. Leikstjóri: Sam Peckinpah. Innsýn Ný íslensk grafisk kvikmynd. Algjör nýjung í íslenskri kvikmyndagerð. Höf- undur: Finnbjörn Finnbjörnsson. Tón- list: Ingemar Fridell. Gulskeggur Leikstjóri: Mel Danski (M.A.S.H.). Aðalhlutverk: Graham Chapman, Marty Feldman, Peter Boyle, Peter Cook, Peter Bull, Cheech og chong, James Mason og David Bowie. Frances *** Bandarísk mynd. Árg. '82. Handrit: Christopher DeVore, Eric Bergen. Leikstjóri: Graeme Clifford. Aðalhlut- verk: Jessica Lange, Kim Stanley, Sam Shepard. Bíóhöllin Götudrengir (Rumble-Fish) aðalhlutverk: Matt Dillon, Mickey Rourke, Vincent Spano og Diana Scarwind. Leikstjóri: Francis Ford Coppola. Borð fyrirfimm Bandarisk '83. Handrit: David Seltzer. Myndataka: Vilmos Sigmond a.s.c. Tonlist: Miles Goodman og John Morris. Framleiðandi: Robert Schaffel. Leikstjórn: Robert Lieberman. Aðal- hlutverk: Jon Voigt, Richard Crenna, Marie Christine Barrault, Millie Perk- ins, Roxana Zal, Robby Kiger, Son Hoang Bui og fl. ,, Þrátt fyrir sykursæta tónlist og sár- grætileg atriði gefur hinn raunsæislegi • leikur og heimildarlega umgjörð þess- ari mynd sannferðugt gildi. Manni þyk- ir vænt um þessa mynd. -IM. James Bond myndin Þrumufleygur. Aöalhlutverk: Sean Connery, Adolf Celi, Claudine Auger og Luciana Paluzzi. Framleiðandi: Albert Broc- coli og Harry Saltzman. Byggö á sögu lans Fleming og Kevin Mc- Clory. Leikstjóri: Terence Young. Traust Bondmynd af gamla skólan- um. Silkwood. Bandarísk. Árgerð '83. Handrit: Nora Ephron og Alice Arlen. Tónlist: George Delerue. Framleiðandi: Mike Nichols og Michael Hausman. Leikstjórn: Mike Nichols. Aðalhlutverk: Meryl Streep, Kurt Russell, Cher, Craig T. Nelson og fl. „Kvikmyndin Silkwood segir frá dag- legu lífi Karen, allt frá því að hún sem hress verksmiðjustúlka í kjarnorkuveri lætur hverjum degi nægja sínar þján- ingu, þar til augu hennar opnast I fé- lagslegum og pólitískum skilningi. Silkwood er tveggja og hálfrar stundar löng mynd, og mörgum finnst eflaust atburðarásin hæg og sneydd spennu. En það er einmitt þessi hæga, liðandi lýsing á lífi almúgafólks sem gefur Meryl Streep, í hlutverki Karen, tæki- færi til að sýna leik á hvita tjaldinu sem er sá eftirminnilegasti sem undirritað- ur man eftir i langan tlma." —IM. Maraþonmaöurinn Bandarisk mynd. Leikstjóri: John Schlesinger. Aðalhlutverk: Dustin Hoffman, Laurence Olivier, Roy Scheider og Marthe Keller. Framleið- andi: Robert Evans. Endursýndur þrill- er um eltingaleik við gamlar eftirlegu- kindur nasismans. Vel leikin og all- spennandi. Nýja bíó The Entity (Veran) Leikstjóri: Sidney J. Furie. Aðatleikar- ar: Barbara Hershey, Ron Silver. Stjörnubíó BigChill Educating Rita. *** Bresk. Árgerð 1983. Handrit eftir sam- nefndu leikriti Willy Russel. Leikstjóri: Lewis Gilbert. Tónlist: David Hents- chel. Kvikmyndun: Frank Watts. Aðal- leikarar: Michael Caine, Julie Walters. „Educating Rita fjallar um 26 ára hár- greiðslustúlku, sem er komin af al- þýðufólki. Hún hefur verið gift i sex ár en er enn barnlaus, þar eð hún „þráir að finna sjálfa sig“, eins og hún orðar það. Hún ákveður að sækja kvöldskóla hjá drykkfelldum prófessor í bók- menntum. Eftirmálin segja af sam- skiptum þeirra og uppgötvunum beggja á hæfileikum Ritu á bókina, en jafnframt greinir hún býsn af hugtakinu menntun og þeim fjötrum sem það get- ur fært fólki á mismunandi vegu. Frá- bær samleikgr Julie Walters og Michael Caine i meginrullunum veldur mestu um aö þetta tekst. Sagan er ekkert nema tvíleikur þeirra frá upp- hafi tii enda. Þeim er teflt fram sem andstæðum I upphafi, en undir lokin eygjum viö hvað undir býr i öllum, sömu hæfileikana sem þó iðulega er mismunandi unnið úr á lífsleiöinni." -SER. Laugarásbíó Private School. Aðalhlutverk: Phoebe Cates, Betsy Russel, Matthew Modine og Sylvia Kristel. Scarface. Bandarísk: Árgerö 1983. Handrit: Oliver Stone. Myndataka: John A. Alonzo. Tónlist: Giorgio Morodor. Framleiðandi: Martin Bregman/Uni- versal International. Leikstjóri: Brian DePalma. Aðalhlutverk: Al Pacino, Steven Bauer, Michelle Pfeiffer, Mary E. Mastantonio, Robert Loggia. ,,Hug- myndin að baki Scarface er góð og víst tekst DePalma að halda spennu í myndinni, einkum í byrjun, og reyndar dettur hún aldrei alveg niður. En herslumuninn vantar og vankantar myndarinnar koma ekki sist fram I ein- földum ofleik Al Pacino sem reyndar segir ekki mikið annað en ,,Fuck“.“ —IM. Háskólabíó Footioose Bandarísk. Árgerð '84. Leikstjóri: Her- bert Ross. Aðalhlutverk: Kevin Bacon, Lori Singer, John Lithgow og Diane Wiest. „Það sem rífur myndina upp úr ann- ars væmnu handriti, eru prýðilegir poppsöngvar sem fluttir eru við ýmis tilefni. Sándið er líka gott. Og leikur eftir atvikum, svo ég held ég dæmi þetta hina sæmilegustu afþreyingu fyrir ungt fólk á vissum aldri." -SER. SÍMASKRÁIN 1984 Tilkynning til símnotenda. Athygli skal vakin á því að símaskráin 1984 gengur í gildi frá og með föstudeginum 1. júní. Þetta gildir þó ekki hvað varðar ný 6 stafa símanúmei á miðbæjarsvæði Reykjavíkur, sem reiknað er með að tengd verði í fyrri hluta júnímánaðar, og ný 6 stafa númer á Seltjarnarnesi, enjDau verðaekki tilbúin fyrr en í lok júní n.k. A bls. 616 hefur orðið misprentun á töflu ferðasímaskrár þar sem dálkar hafa ruglast. Símnotendum er bent á að samskonar tafla er á bls. 584 í símaskrá 1983 og er sú tafla í fullu gildi. Jafnframt er verið að sérprenta ferðasímaskrána í handhægu broti og mun hún liggja frammi á póst- og símstöðvum fljótlega. Póst- og símamálastofnunin. 14 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.