Helgarpósturinn - 31.05.1984, Síða 24
Enn hafa litlar fréttir borist af
för GeirsHallgrímssonar utanrík
isráðherra til Bandaríkjanna og
viðræðum hans við Shultz utan-
ríkisráðherra og Weinberger
varnarmálaráðherra. Forráða-
menn Eimskips og Hafskips munu
hafa verið nokkuð óhressir með hve
seint Geir sinnti máli þessu en eni
hins vegar ánægðir með þá
óvæntu hörku sem Geir hefur sýnt
í Bandaríkjunum. Geir mun hins
vegar vera í erfiðri aðstöðu þvi
máíið er flókið og snúið. Banda-
rískir ráðamenn geta ekki hnikað
við lögunum frá 1904 sem kveða á
um forréttindi bandarískra skipa
til vöruflutninga fyrir Bandaríkja-
her. Staða Rainbow Navigation Inc.
er því mjög sterk og hefur styrkst
enn síðustu vikur við stuðning
bandarískra verkalýðsfélaga. Alls
staðar í heiminum annast banda-
rísk skip vöruflutninga fyrir Banda-
ríkjaher nema til og frá íslandi og
ljóst er að ef íslensku skipafélögin
fá jafnrétti og þátttöku í flutning-
unum verða Bandaríkjamenn að
koma á frjálsu samkeppniskerfi í
öllum heimshiutum. Heimildir HP
herma að fyrirsjáanleg lausn í deil-
unni sé eftirfarandi: Ráðamenn
vestra munu hagnýta sér veika
stöðu íslendinga og krefjast sam-
þykkis íslenskra stjómvalda fyrir
radarstöðvum og stjómstöð í
Keflavík gegn áframhaldandi vöm-
flutningasamningi Bandarfkjahers
og íslensku skipafélagannna.
Gangi íslensk stjórnvöld að þess-
um skilmálum.mun Bandaíkjaher
semja við Rainbow Navigation Inc.
á bak við tjöldin um fiutninga fyrir
■
:
Bandaríkjaher annars staðar á
jarðarkringlunni gegn því að félag-
ið láti af vöruflutningum til íslands.
Rainbow-félagið hefur áður annast
vömflutninga fyrir bandaríska her-
inn, m.a. til Honduras. Síðan verði
bandarískri samkeppni aflétt af ís-
lensku skipafélögunum þcingað til
næsti bandaríski flutningsaðili
kemur til sögunnar og bandaríski
herinn kemur með nýjæ kröfur á
íslensk stjórnvöld...
Ljóst hefur verið að mikill titr-
ingur er innan Sjálfstæðisflokksins
VcU'ðandi stjórnarscimstarfið. Nú
fullyrða traustar heimildir HP að
sjálfstæðismenn í Reykjavík muni
beita sér af alefli fýrir því að flokk-
urinn rifti stjómarsamstarfi og fari
í alþingiskosningar vorið eða
haustið. 1985. Ástæðan mun eink-
um vera sú, að sjálfstæðismenn í
höfuðborginni vilja ekki gcinga til
borgarstjórnarkosninga meðan
þeir sitja í stjóm með Framsóknar-
flokknum. Reynslan gegnum árin
sýnir að Sjálfstæðisflokkurinn
hlýtur um 5% færri atkvæði í borg-
arstjórnarkosningum ef hann er í
stjórnarsamstarfi við Framsókn á
sama tíma. Næsta ár mun því þykja
heppilegt til að rifta stjómarsam-
stcirfi því samkvæmt nýju lögunum
verður kosið til borgarstjómar
annan laugardag í júní árið 1986...
|slenskir rithöfundar komast
yfirleitt ekki í feitt erlendis. Nú em
hinsvegar miklar líkur á því að
Andrés Indriðason geri það gott
í frcimtíðinni. Svissneskt risaforlag,
Benziger Verlag, hefur gert samn-
ing við Andrés um útgáfu á þremur
barna- og unglingabókum eftir
hann, „Palli er ekkert blávatn,"
„Viltu byrja með mér?“ og „14
bráðum 15“. Þýðandi er Jón Lax-
dal. Og ekki nóg með það: Foriagið,
hefur ennfremur gert samning við
Andrés um að gefa út allar óskrif-
aðar bækur hans í framtíðinni og
einkaleyfi á sölu þeirra um heim
allan, utan íslands. Samningur
þessi hefur þegar haft áhrif á öðr-
um vettvangi, því Studio Hamburg
hefur tekið að sér dreifingu á kvik-
myndinni Veiðiferðin sem Andrés
gerði á sínum tíma og hefur Andrés
nú skrifa bókarhandrit eftir kvik-
myndahandritinu. Kemur sú bók
út innan tíðar á þýsku...
M
■ v og nýstárleg bókaútgáfa
hefur séð dagsins ljós. Forlagið er
hlutcifélag og em hluthafarnir 15,
cillir starfsmenn hjá auglýsinga-
stofu Gísla B. Bjömssonar og
systurfyrirtækinu Sýn, sem annast
kvikmyndagerð. Mun bókaútgáfan
samræma útgáfu á bókum og
myndböndum, þannig að kaup-
endum gefst kostur á að kynnast
efni bókarinnar betur á videóspólu
og öfugt. Er þetta fyrsta svarið við
minnkandi bókasölu á íslenskum
markaði og ráðgert að fyrstu bæk-
ur/spólur komi á markaðinn um
jólin. Þegar er í vinnslu myndband/
bók um íslensk hross og margar
aðrar hugmyndir í gangi...
c
^^Fpegilsmálið svonefnda, sem
útgefandi og ábyrgðarmaður tíma-
ritsins, Úlfar Þormóðsson, tap-
aði í undirrétti, verður tekið fyrir
Hæstarétt í júnímánuði. Sigurmar
Albertsson, lögfræðingur og verj-
andi Úlfars, hefur fengið málið
samþykkt sem eitt cif þremur próf-
málum. Forseti Hæstaréttar er Þór
Vilhjálmsson, eiginmaður Ragn-
hildar Helgadóttur menntamála-
ráðherra, en eins og minnugir les-
endur 2. tölublaðs Spegilsins
muna, komu þau hjón nokkuð við
sögu í hinu upptæka tölublaði.
Vegna þessara tengsla hefur
Hæstiréttur nú íhugað alvælega að
víkja úr honum og mun ákvörðun
verða tekin um það á næstu dög-
um...
c
igurður Kárason, annar
eigenda Hótel Borgsu', hefur sótt
um til skipulagsnefndcir að fá að
byggja tívolí við Öskjuhlíðina,
austan við Flugleiðabyggihguna.
’ Hefur borgcuráð tekið málinu mjög
vel og íalið kunnum arkitekt hér í
bæ að fjalla sérstaklega um málið,
einkum með tilliti til flugumferðar.
nugumferðaryfirvöid eru nefni-
lega mjög uggandi um að hin mikla
ljósadýrð skemmtigarðsins muni
trufla flugið á Reykjavíkurflug-
velli...
^Lesendur Lögbirtingablaðs-
ins ráku upp stór augu í vikunni er
þeir lásu klausu þar sem sagt var
að Sigurður Skagfjörð Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri NT, hefði
tilkynnt til firmaskrár Reykjavfkur
að hann ræki einkcifyrirtæki undir
ncifninu Nútíminn. Hið sanna í mál-
inu var þó ekki að hlutafélagið Nú-
tí'minn (þar sem Framsóknarmenn
eiga meirihluta) væri kominn und-
ir einkarekstur Sigurðar. Málið er
þannig Vctxið að Nútíminn hcifði
gleymt að skrá söluskattsnúmer
við stofnun og þégar pappírsinn-
flytjandi blaðsins ætlaði að útvega
þeim pappír til að prenta blaðið
kom þetta Vcindamál upp: sölu-
skattsnúmer vantaði. Greip þá
framkvæmdastjórinn til þess ráðs
að skrá Nútímann sem einkafyrir-
tæki, en þegar pappírsviðskiptin
voru í höfn var Nútíminn þegar af-
máður af skrám sem einkafyrir-
tæki...
m
•'V-y-
FERSKUR
FISKURH
GEFUR
Sjómenn vita aö nauðsynlegt er, að varðveita
eiginleika ferska fisksins alla leið að borði
neytandans. Það er Iðng leiðog mestu máli skiptir að
hráefniðségottþegarþaðkemurfvinnsíu. Góður
frágangur og kæling um borð skipta því miklu.
Með samstilltu átaki tekst ökkur áð frámleiða úrváls
sjávarafurðir í hæsta gæðaflokk.i.
Sjávarútvegsráðuneytið
'kynningarstört fyrirbættum lishgæöum
• , ]: ' ' ■ •' • /l
• *' '/. •/'* 'r:‘ . •; % - i V/ - /-&**
,
...
■ • •
’ !" f H
• *4
i;
Hæstu bankavextlrnir i dag
INNLÁNSSKÍRTEININ
fást á afgreiðslustöðum bankans um allt land
BÚNAÐARBANK
I R
JL