Helgarpósturinn - 21.06.1984, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 21.06.1984, Blaðsíða 8
metnaðargjarn," segir Andrés Kristjánsson ritstjóri, „en hann kann að stilla því í hóf.“ Ýmsir urðu til að benda á að Erlendur hafi ekki þurft að sækj- ast mikið eftir metorðum. Stórar stöður hafi ekki fallið honum í skaut fyrr en eftir að hann kynnt- ist Vilhjálmi Þór og Vilhjáimur hafi ekki verið af þeirri tegund að leyfa einhverjum metorðagosum að klifra uppeftir sér. Vilhjálmur hetfi valið Erlend vegna þess að hann hafi séð í honum mikla hæfileika. Þeir hæfileikar komu enda fljótt í ljós. Erlendur gekk í það af fítonskrafti að byggja Samvinnutryggingar upp og tók upp ýmsar djarflegar nýjungar. Hann hóf til dæmis mikla herferð til að selja tryggingar, í stað þess að bíða eftir að viðskiptavinimir kæmu til hans, og allskonar tryggingatilboðum rigndi yfir landsbyggðina í auglýsingum og dreifibréfum. Scimvinnutrygging- ar urðu fljótlega með stærri tryggingafélögum landsins og eru líklega það stærsta í dag. En forstjórastóllinn var ekki eini stórvið- burðurinn í lífi Er- lendar árið 1946. Það ár gekk hann líka að eiga Margréti Helga- dóttur frá Seglbúðum í Land- broti. Margrét er dóttir Helga Jónssonar bónda í Seglbúðum og Gyðríðar Pálsdóttur frá Þykkva- bæ í Lsindbroti. Jón Helgason landbúnaðarráðherra er bróðir hennar og það glottu víst ýmsir þegar hann tók við því embætti og sögðu sem svo að nú gætu þeir mágarnir fyrst slett úr klauf- unum við mótun landbúnaðar- stefnunnar. Það var eftir því tekið að allir viðmælendur Helgarpóstsins, undantekningalaust, minntust á hversu einstaka konu Erlendur hefði eignast. ,JVlcu-grét er frábær kona,“ seg- ir Guðmundur Sveinsson, fymim skólameistari í Bifröst., Jlún hef- ur ekki bara búið honum einstakt heimili heldur líka tekið mikinn þátt í störfum hans og verið hon- um slík stoð og stytta að eins- dæmi er.“ ,JV1eð Margréti eignaðist Er- lendur traustan förunaut og sterkan samstarfsmann," segir Eysteinn Jónsson, fyrrum ráð- herra. „Heimili þeirra hefur orðið mikill samvinnukastali. Á því heimili hefur mikið starf verið unnið í þágu samvinnuhreyfing- arinnar á Islandi og þau hjónin hafa verið Scimhent í því eins og öðru.“ En þeir, sem fannst nóg til um að Erlendur skyldi gerður að for- stjóra Samvinnutrygginga, áttu annað og verra áfall í vændum. Tæpum níu árum síðar vildi Vil- hjálmur Þór hætta sem forstjóri Sambandsins og hef ja aftur störf í Landsbankanum. Erlendur Ein- arsson var settur yfir allt batterí- ið, þá aðeins þrjátíu og þriggja ára gamall. Erlendur hefur sagt um þessa forfrömun: „Ég var tregur til að taka við forstjórastarfinu. Ég var aðeins 33ja ára og þetta var mikið starf og miklu umfangsmeira en að stjórna Samvinnutryggingum. En það var lagt að mér að taka starf- ið og ég lét undan.“ Það urðu margir sem þrumu lostnir þegæ það fréttist að þessi ungi maður hefði verið ráðinn til að stjóma stærsta og umsvifa- mesta fyrirtæki landsins. Sumir urðu ekki aðeins þrumu lostnir heldur líka ævareiðir. „Hann var líka mfög myndarlegur piltur þegar hann fór að stækka og ég held aft flestar stelpurnar hafi verið skotnar í honum" „Það fannst ýmsum starfs- mönnum Sambandsins framhjá sér gengið þegar Erlendur hlaut hnossið,“ segir einn af fyrrver- andi starfsmönnum SÍS. ,Sumir þeirra lögðu fæð á hann og hefur aldrei gróið um heilt. Einhverjir þessara manna eru hættir að vinna hjá Sambandinu, en ekki allir.“ En hvort sem menn lögðu fæð á Erlend eða ekki, verða þeir að viðurkenna að hann hefur nú staðið sig alveg sæmilega. Undir hans stjórn er Sambandið orðið að gífurlegu stórveldi sem teygir anga sína inn í flesta þætti ís- lensks atvinnulífs. SÍS hefur verið kallað stærsti auðhringur í heimi. Scimbandsmenn eru ekki ýkja hrifnir cif ncifngiftinni „auðhring- ur“ og Erlendur kallar hana algert öfugmæli, þvert á móti sé Sam- bandið og kaupfélögin mesta lýð- ræðisaflið í viðskiptcilífinu. En hvað sem menn vilja kalla SÍS þá er víst að það er leitun erlendis að samsteypu sem er hlutfcills- lega jafn stór og Sambandið er á íslandi. Hinir fjörutíu og tvö þús- und eigendur þess geta verið nokkuð ánægðir með þá ákvörð- un að ráða þrjátíu og þriggja ára gamla strákinn í jobbið. Þeir taka nokkuð örugglega undir það sem Eysteinn Jónsson, fyrrum ráð- herra, sagði við Helgarpóstinn. „Erlendur er að mínum dómi óvenjulegur afreksmaður og hef- ur unnið stórvirki í þágu íslensku samvinnuhreyfingcirinnar og þar- með allrar þjóðarinnar. Okkar samvinna er orðin mjög löng og náin og hefur mér fallið því betur samstarfið sem það hefur staðið lengur.“ En hverskonar maður ætli Er- lendur Einarsson sé? Þegar við skrifum nærmyndir, hjá Helgar- póstinum, er venja að fala við mikinn fjölda fólks sem hefur unnið með eða þekkt ,Jómar- lambið". Sumir leyfa að ncifna þeirra sé gétið aðrir kjósa, af ýmsum ástæðum, að vera óþekktir. Gagnrýnin kemur venjulega frá þeim. Svo bar þó við í þetta skipti að það reyndist ákaflega erfitt að toga gagnrýni upp úr nokkrum mcinni. Sumir þeirra sem ég talaði við vom mjög á móti SIS, en höfðu hins- vegar lítið út á persónu Erlendar að setja. Hann er prúður mað- ur, vel gefinn og fcir- sæll í starfi," sagði Tómas Árnason, fyrmm ráð- herra. „Víst hefur hann sitt skap, en ég hef aldrei séð það hlaupa með hann í gönur. Ég þekki hann ekki náið, persónulega, en við áttum sæti saman í fram- kvæmdastjóm Framsóknar- flokksins og hann leggur yfirleitt gott til málanna." „Hann er skapmikill maður en hefur mjög góða stjóm á sér,“ sagði einn þeirra sem sóttu sögu- legan aðalfund Sambandsins, í Bifröst, á dögunum. ,það mátti sjá að hann varð fjúkandi reiður yfir skömmunum sem dundu á forystunni á þessum fundi. Það hefði nú reyndar reynt á sjálfcm erkiengilinn að halda stillingu sinni undir þeirri orrcihríð því ég man ekki eftir að forystan hafi fengið aðra eins yfirhalningu. Honum mislíkaði mjög ýmscir samþykktirnar, til dæmis um ís- film. Én það var ekki hægt annað en dást að rósemi hans þegar hann var að svara fyrir sig.“ Hermann Þorsteinsson minnt-' ist líka á fundinn í Bifröst þegar hann var spurður um skapsmuni Erlendar. „Hann hefur drjúgt skap en fer vel með það. Hann getur vissu- lega verið harður í hom að taka ef undirmenn hans vanrækja störf sín eða vinna illa. En hann er ekki langrækinn. Við höfum aldrei orðið cindstæðingar en við höf- um ekki alltaf verið Scima sinnis og þá hefur gengið á ýmsu. En það hefur aldrei verið neinn vandi að taka í höndina á honum á eftir. Það reyndi nú á þetta í Bifröst núna, ég hef aldrei upplifað að menn leyfðu sér að hirta foryst- una svona. En hcinn kom mjög mildilega inn í þær umræður og ekki hægt að sjá að honum hefði mislíkað." að liggur í augum uppi að forstjóri Sambandsins hefur geysilega mikil völd; hvemig fer hann með þau? „Ég er stundum hissa á að hann skuli ekki fá meiri krítik," segir einn þeirra sem skömmuðu forystuna í Bifröst. ,JÉg held að það sé meira deilt á völdin sem hann hefur en hvemig hann beit- ir þeim. Ég hef aldrei heyrt nokk- urn kvarta undan misbeitingu. Mér hefur satt að segja komið á óvart hve hann er mannlegur og hlýr.“ Erlendur hefur stundum verið kallaður „The Godfather" eða Guðfaðirinn. Þar er vísað til kvik- myndcirinnar með sama nafni, í hverri höfuð Mafíufjölskyldu nokkurrar leysti allra manna vanda og átti þarmeð „inni- stæðu“ sem hann gat leyst út þegar hann þurfti á að halda. Það hefur til dæmis verið bent á að það sé mikið cif Skaftfellingum í kringum Erlend. Hermann Þorsteinsson hló að þessari samlíkingu. „Erlendur er að eðlisfari góð- viljaður maður og ef hann getur tekið stein úr götu einhvers þá „Sumir urdu ekki afteins þrumu lostnir heldur líka ævareidir þegar Erlendur var ráðinn forstjóri Sambandsins.## gerir hann það án þess að ætlast til að það sé endurgoldið. Jú, jú það hefur verið cillmikið af Skaft- fellingum í kringum h£inn en það er ekki óeðlilegt að maður í hcins stöðu safni að sér mönnum sem hann treystir. Ég veit ekki til að hann hafi misboðið nokkrum með þessu og hvað Skaftfelling- ana snertir þá hafa þetta allt ver- ið öndvegismenn sem hafa unnið störf sín vel.“ Svala Magnúsdóttir tekur í sama streng: „Hann er afskap- lega hjálpsamur maður og hefur oft reynst vel gömlum vinum sín- um úr heimabyggðinni. Hann er bara þannig að ef hann er í að- stöðu til að hjálpa einhverjum þá gerir hann það.“ Því hefur verið haldið fram að Erlendur sé vinafár og að hann ungangist ekki marga utcin Sam- bandsins. Einn viðmælenda okk- ar orðaði það á þann hátt að Er- lendur sæti í fílabeinstumi með „pretoríuvörð" sambandsmanna umhverfis sig. „Ég býst við að það sé rétt að flestir vina hans séu úr röðum sambandsmanna," segir einn fyrr- verandi slíkur. „En það er í sjálfu sér ekki óeðlilegt. Það er jú af nógu að taka því sambandsmenn em gríðarlega fjölmennir. Þcir fara líka saman áhugamál og lífs- skoðanir og er það ekki einmitt þannig sem vinir flokkast? Líkur sækir líkan heim." „Vinmargur? Ja, ég get alla- vega sagt að þeir em heppnir sem teljast til vina hans,“ segir Guðmundur Sveinsson. ,Jfcinn er hlýr og skemmtilegur og skilur forstjórann eftir heima ef hann er í vinahópi." Erlendur er vel efnaður en menn em sammála um að hann bruðli ekki með fé og hafi ekki meira umleikis en ósköp eðlilegt sé fyrir mann í hans stöðu. Þau Margrét eiga glæsilegt heimili, en „það er greinilegt að fjármagnið hefur ekki borið smekkvísina ofurliði," eins og einn viðmæl- enda okkar orðaði það. Þau eiga sér sumarhús í landi Seglbúða, æskuheimilis Margrétar, og það er þangað sem Erlendur reynir að komast að minnsta kosti einu sinni á ári til að renna fyrir urriða. Pað fylgir starfi for- stjóra Sarnbandsins að halda góðum tengslum við gífurlegan fjölda manna og það er því gestkvæmt á heimili þeirra og mikið um alls- konar veislur og boð. Hann þarí líka mikið að ferðcist vegna starfsins, til dæmis að sitja alls- konar ráðstefnur, og þá er Mar- grét oft með í förinni. Að sögn vina þeirra kjósa þau helst að vera róleg útaf fyrir sig, þar fyrir utan. Ef þau mögulega koma því við fara þau í sumarhúsið til að njóta næðis en annars þykir Er- lendi gott að hvílast við að hlusta á tónlist. Hann er Iistunnandi og einkar elskur að myndlist og tón- list, enda á hann gott safn ai klassískri tónlist. Erlendur er sagður mikill fjöl- skyldumaður og að mjög gott samband sé með þeim hjónum og börnum þeirra þremur, tveim- ur dætrum og einum syni. „Eriendur er gæfumaður," seg- ir Hermann Þorsteinsson. ,JHcinn á góða konu sem hefur verið hon- um ómetanlegur félagi. Allt hans fjölskyldulíf er hlýtt og bjart. Og svo hefur hann líka verið farsæll i starfi og leyst af hendi með sóma það sem honum hefur verið fal- -ið.“ 8 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.