Helgarpósturinn - 21.06.1984, Blaðsíða 21

Helgarpósturinn - 21.06.1984, Blaðsíða 21
 ma ■ ^■okkrar hræringar eru nú innan þess gaimalgróna bókafor- lags Máls og menningcir. Tveir þriðju hlutar kvennaveldisins á forlaginu, Ólöf Eldjárn fram- kvæmdastjóri og Þuríður Baxter útgáfustjóri hyggjast láta af störf- um á næstunni. Ekki er HP kunnugt um orsakir í smáatriðum, en sam- bandsleysi við kjöma stjóm félags- ins mun ráða nokkm um uppsagn- ir þeirra. Hverjir tcika við stjóm for- lagsins mun ekki liggja ljóst fyrir, en Árni Einarsson, verslunar- stjóri bókabúðar MM, tekur am.k. að sér fjármálin, og einnig er von á ungum bókmenntafræðingi, Hall- dóri Guðmundssyni, til starfa en hann hefur stundað nám í Dan- mörku undanfarin ár... c penna er nú talsverð meðcú krata vegna flokksþings Alþýðu- flokksins sem haldið verður í lok október. Magnús H. Magnússon varaformaður hefur, samkvæmt heimildum HP, gefið skýrt til kynna að hann vilji ekki gegna þeirri stöðu áfram. Líklegustu kandídat- ar í varaformennskuna em sem fyrr Jón Baldvin Hannibalsson, Sighvatur Björgvinsson og Jó- hanna Sigurðardóttir sem enn mun þó treg til að gefa kost á sér. Fleiri breytingar em í aðsigi í for- ystu Alþýðuflokksins. Bjarni P. Magnússon sem verið hefur for- maður framkvæmdastjómar und- anfarin ár vill ekki vera það áfram. Kristín Guðmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Alþýðuflokksins, mun ákveðin í að gefa kost á sér í stað Bjarna, og mun þar leggja undir fyrmefnt starf sitt, en hún þykir hcifa gegnt framkvæmda- stjórastöðunni cúlvel. Þá mun Geir Gunnlaugsson, gjaldkeri flokks- ins, ekki vera áfjáður í að vera það áfram, enda framkvæmdastjóri Kísilmálmverksmiðjunnar sem nú á loksins að fara að reisa austur á Reyðarfirði. Ljóst þykir að Kjartan Jóhannsson formaður hyggst gefa kost á sér áfram, en eftir stjórnarmyndunina íiiugaði liann að draga sig í hlé. Engu að siður er mjög úin það rætt innan flokksins að enn einu sinni sé kömin upp sú staða að skipta þurfi um formann ef flokkurinn á að geta sótt fram frekar en hörfað. Sé staða Kjartans núna álíka veik orðin og staða þeirra Gylfa Þ. Gíslasonar og Benedikt Gröndal var þegar þeir urðu að láta í minni pokann á sín- um tíma. Hvort gerð verður atlaga gegn formennsku Kjcirtans á flokksþinginu er enn öljóst, en þær línur munu skýrast þegar nær dregur fundinum. MeðaJ þeirra for- ystumanna sem hvað mests stuðn- ings njóta til formennskunnar eru Eiður Guðnason og Jóhanna Sigurðardóttir... M MW Mannlíf, nýja tímaritið sem útgáfufélagið Fjölnir hefur verið með í undirbúningi, kemur út í fyrsta sinn næstkomandi fimmtu- dag. Nokkur leynd hefur hvílt yfir' efni blaðsins, en þó hefur kvisast að í fyrsta tölublaðinu verði for- síðuviðtal ritstjóra Mannlífs, Her- dísar Þorgeirsdóttur, við Val- gerði Bjamadóttur, ekkju Vil- mundar heitins Gylfasonar, þar sem hún segir á hreinskilinn hátt frá lífi sínu og lífsviðhorfum. Mikið hefur verið lagt í útlit Mannlífs, en h.önnuður þess ér enginn annar en Jón Óskar Hafsteinsson mynd- listarmaður sem einmitt hannaði hið upprunalega útlit Helgarpósts- ins fyrir fimm árum... iFamtíð Fjalakattarins hefur aldrei verið óljósari en nú, eftir að byrjað var að rífa út úr honum ýmsa innanstokksmuni gamla og svo ýmislegt rusi. Enn binda vemdarsamtökin Níu líf vonir við að forða megi því menningarslysi að þetta aldna kvikmynda- og leik- hús verði að spýtnahrúgu og tak- ast megi að ná samningum við eig- andcum Þorkel Valdimarsson um varðveislu hússins. Þess má geta að eigandinn hefur nýverið endurnýjað leigusamninga við þá aðila sem eru til húsa í Fjalakettin- um Aðalstrætismegin, og binda verndunarmenn vonir við að það bendi til þess að enn sé unnt að bjarga lífi Kattarins þótt farið sé að rífa út úr honum aftantil... c kemmtanalífið í Reykjavík er þegar orðið með fjölbreyttara móti. Enn bætast við nýir staðirog þeir gömlu bjóða upp á nýjungar til að halda velli í sívaxandi sam- keppni. Einn þeirra gamalgrónu skemmti- og veitingastaða sem snúið hafa vöm í sókn í samkeppn- inni er Hótel Saga. Nú heyrir HP að nýjasta tiltæki þeirra Sögu- manna sé að opna Átthagasalinn á fimmtudagskvöldum og bjóða þar ió undir stjörn Magn- anssonar og ýuLsa óvenjulega drykki með. Blusjnn nýtur sívaxandi vinsælda hérlend- is, og er ekki að eía að þetta fram- _tak mælist vel fyrir, en þeir Sögu- menn munu ekki síst ætla að höfða til granná sinna í Vesturbænum með þessum fimmtudagskvöld- um... SKÓLi FATLAÐRA Ákveöiö hefur verið aö kanna áhuga fatiaöra á skólavist veturinn 1984-1985. Fyrirhugað ér aö byrja á nýjum áfanga í tölvu- og bókhaldsnámi 3. september 1984. Upplýsingar veitir Hólmfríður Gísladóttir í skrifstofu Rauða kross íslands aö Nóatúni 21, sími91-26722. Tekið verður á móti umsóknum til 1. júlí nk. RAUÐI KROSS ÍSLANDS. Innkaupin eru þægileg hjá okkur Svo geturðu líka slappaö af í Kaffiteríunni OPIÐ: Mánud. -fimmtud. 9- 19. Föstud. 9-20. LOKAÐ LAUGARDAGA í SUMAR Ji Jon Loftsson hf Hringbraut 121 /A A A A A A □ □JQúl juuijaajll •-HJO lJ i ,,T- ■ UariHUUHHUllllii Sími 10600 VERSLUNARMIÐSTÖÐ VESTURBÆJARIN MUNIÐ OKKAR HAGSTÆÐU GREIÐSLUSKILMÁLA JL-GRILLIÐ Grillréttír allan daginn RAFTÆKJADEILD II. HÆÐ Raftæki - Rafljós og rafbúnaður OPELCORSA VERÐ FRÁKR. 256.000.- OPELASCONA VERÐ FRÁKR. 389.000,- BíLVANGURsf HÖFÐABAKKA 9 IP4 REYKJAVÍK SÍMI 687300 OPEL HELGARPÓSTURINN 21

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.