Helgarpósturinn - 26.07.1984, Side 4
Guðmn Öwaldsdóttir
Pylsuurvaí/og Hákon’
☆ ,,Ég skoöaöi margar
,,delikatessen“ verslanir í
Þýskalandi þegar við vorum
ao undirbúa stofnun Kjöt-
bæjar, því þangaðerfyrir-
myndin sótt“, sagði Hákon
Sigurðsson, annareigandi
nýju verslunarinnar við
Laugaveg 34a.
„Þettaáekki að vera
venjuleg kjötbúð heldur
sannkölluö sælkeraverslun.
Við leggjum mikla áherslu á
að vera eingöngu með
fyrstaflokks hráefni þótt þaö
þýði að verðið verði aðeins
hærra en gerist í stór-
mörkuðum. Við erum með
mjög fjölbreytt úrval af kjöt-
réttum, steikum og pylsum
og á hverjum degi er hægt að
fá úrval af fersku áleggi og
salötum.
[ hádeginu er svo hægt að
velja á milli ýmissa heitra
rétta sem fólk getur tekiö
Virvsælasta símanúmeri&
með sér. Þetta er þjónusta
sem hefur mælst mjög vel
fyrir“.
☆ Líklega eru fá símanúmer
notuð jafn mikið og 03, þar
sem gefnar eru upplýsingar
um ný og breytt símanúmer.
Þangað er hringt um sjöþús-
und sinnum á dag til að leita
upplýsinga. Þartil fyrir þrem-
ur árum voru þessar upp-
lýsingar geymdar á gríðar-
miklum tromlum sem stúlk-
urnar þurftu að handsnúa
fram og aftur þegar þær voru
að leita að númerunum.
En nu éröldin önnur. Nú
sitja stúlkurnar við tölvuborð
og skjái og fá á einni sekúndu
svör um þau nöfn sem þær
slá inn á tölvuna. „Þetta er
mikill munur“, sagði Þóra
Marinósdóttir vaktstjóri.
„Bæði er miklu þægilegra að
vinna þetta og líka miklu fljót-
legra“.
Með þessari nýju tækni
hefur starfssvið 03 stækkað
til muna. í „gamla daga“
voru þar aðeins símanúmer
fyrir Reykjavík og nágrenni
en tölvan geymir hinsvegar
símanúmer fyrir allt landið,
alls um hundrað þúsund
talsins.
En tölvan gerir meira en að
veita fyrinspyrjendum upp-
lýsingar um símanúmer. Hún
sér líka um setningu síma-
skrárinnar og undirbúning
undir prentun, sem sparar
bæði fé og fyrirhöfn.
Þótt tölvan sé fullkomin
veit hún þó ekki meira en hún
er mötuð á og þá rétta stúlk-
úrnar henni stundum hjálp-
arhönd, alveg eins og gert
var með tromlurnar í gamla
daga.
Fyrir nokkrum vikum þurft-
um við á HP til dæmis að
finna númer hjá nýrri verslun
í bænum. Við vissum ekkert
um hana nema að það var
nýbúið að opna. Tölvan var
spurð en hafði enn ekki verið
mötuð á þessum upplýs-
ingum. Og þá heyrðist hróp-
að í gegnum tölvuglamrið:
„Hæ, stelpur, hefurein-
hver ykkar komið í „Te og
kaffi?“ Jú, ein þeirra hafði
komið þangað, vissi hvar hún
var og málið var leyst.*
Eigandi Kjötbæjar, með
Hákoni, er kona hans Katrín
Guðjónsdóttir. Gísli Hall-
dórsson er verslunarstjóri,
Theódóra Gunnarsdóttir er
deildarstjóri, kjötiðnaðar-
meistari er Oskar Smith og
yfirmatreiðslumeistari er
Kristinn Vagnsson.*
UTISAMKOMA
í Þjórsárdal
um verslunarmannahelgina
Bara flokkurinn
HLH flokkurinn
Hljómsveitin Lótus
Hátíðarræða
Kiza flokkurinn
Breikdans
Hljómleikar
Flugeldasýning
og fjöldinn allur af
öðrum skemmtiatriðum
Dansað á tveimur pöllum öll kvöldin kl. 21-03.
Allir sem mættu
í fyrra velkomnir
og svo auðvitað
ailir hinir sem
bætast við.
intpTi
nú er setiö við níu tolvu-
...en n ____fwricniirnum s
skiá sem svarafyrispurnum a
einni sekúndu.
HELGARPÚSTURINN
Sveitamenningin lifir
Útlitið er ekki gott
alls staðar má sjá þess vott
listahátíð lagðist af
lagðist ís um vík og haf.
En þegar allt var orðið trist
og ekki hægt að græða á list
birtist Hallbjörn Hjartarson
hann er landsins eina von.
Niðri
4 HELGARPÓSTURINN