Helgarpósturinn - 26.07.1984, Qupperneq 18
Gammarnir á æfingu
fyrirtónleikanaá
Borginni í kvöld. F.v.
Skúli Sverrisson,
Björn Thoroddsen,
Þórir Baldursson og
Steingrímur Óli Sig-
urðsson. Á myndina
vantar Stefán
Stefánsson saxó-
fónleikara sveitar-
innar.
Smartmynd.
Gammarnir með
glænýja plötu
Jass með bræðingsívafi
og latneskum taktáhrifum
Það hljómar öflugt jassstef úr
sjálfvirka símsvaranum hans
Björns Thoroddsen gítarleikara á
hinum enda línunnar. ,,Láttu þér
ekki bregða, “ segir rödd hans inn á
milli tónanna, og hún býður mér
að leggja inn skilaboð eins og
gjarnt er í símasvörum, — sem ég
og geri, enda tilefnið að rœða við
hann um nýútkomna plötu Gamm-
anna sem var að skila sér í heim-
inn eftir 9 mánaða samstarf þeirra
félaga.
Gammar heitir platan og þegar
ég næ loks tangarhaldi á Bimi segir
hann mér að þar sé á ferðinni jass-
plata, kannski svolítið í bræðings-
stíl, ekki ósvipuð fyrstu plötu
Bjöms, Svif, sem út kom fyrir
nokkmm árum. Munurinn er þó sá
að hér em nýir menn með Bimi
sem ekki komu við sögu á Svifi, og
enginn einn þar með sólóhlutverk
umfram hina. Það bregður líka fyrir
suður-amerískum taktáhrifum í
músík Gammanna en „blessaður
vertu, þetta er allt jass,“ segir
Bjöm aðspurður um nánari jass-
stefnutilhneigingar. ,J>að er svo
misjafnt hvað menn kalla bræðing.
Ætli það sé ekki helst bara það
sem yngri jassleikarar em að fást
við,“ bætir hann við og tilnefnir
Weather Report og nýja blandið
hans Miles Davis sem hvað helsta
áhrifavalda á þá um þessar mund-
ir.
Það em engir aukvisar í Gömm-
unum, því auk Bjöms, sem leikur á
gítar, sér Stefán Stefánsson um
saxófónleik, Þórir Baldursson um
hljómborðin, Skúli Sverrisson leik-
ur á bassa og Steingrímur Óii Sig-
urðsson á trommur. Þeir hafa kom-
ið saman af og til undanfama mán-
uði á ýmsum smástöðum hér um
landið en ekki getað haft eif þessu
fulla atvinnu, „enda gefur þetta
Iítið af sér peningalega," segir
Bjöm. Þeir hsifa því fengist við
ýmislegt annað samhliða, ss.
kennslu, nokkrir þeirra, í jassdeild
FÍH-skólans, stúdíóvinnu, auk
spilamennsku í uppfærslu Þjóð-
leikhússins á Gæjum og píum í vet-
ur.
Þeir Gcimmar em allir virkir við
að semja jassmúsík, og á plötunni
em verk eftir þá Bjöm, Þóri og
Stefán. Og nú em þeir virkilega að
setja samstarfið í gang því þeir
ætla að reyna að fylgja plötunni vel
eftir með hljómleikahaldi. Verða
þeir á Borginni í kvöld, fimmtudag,
og á næstunni mega jafnvel lands-
byggðarbúar búast við að Gamm-
arnir líti við á nokkrum stöðum
með tónleika. ,J>að er engin skipu-
lögð hringferð í anda Sumargleð-
innar, heldur aðeins skroppið á
nokkra staði," segir Bjöm, og þeg-
ar hann er spurður um bígerðir í
framtíðinni er hann hinn bjartsýn-
asti og segir þá harðákveðna í að
halda þessu samstarfi gangandi og
að þeir hafi jafnvel augastað á jass-
mótum á erlendri grund. Þeir ætli
sér m.a. að fá aðila erlendis til að
sjá um kynningu á plötunni utan
íslenska markaðarins. Það er sem
sagt engan bilbug að finna á þeim
félögum en það er Geimsteinn í
Keflavík sem gefur plötuna þeirra
út og hún er hljóðrituð í hljóðveri
þess þar syðra. -ÓF.
MYNDBÖND
Notað, nýlegt og gott
Á myndbandaleigunum má núorðið fá
flestar þær nýju myndir sem teknar em til
sýninga í kvikmyndahúsunum, fljótlega eft-
ir að sýningum þeirra lýkur. Stundum má
reyndar fá slíkar myndir á leigu löngu áður
en bíóin bregðast við. Þá er annaðhvort um
ólöglegt athæfi að ræða eða að vídeóréttur-
inn að myndinni hefur verið seldur sérstak-
lega og kvikmyndahúsið ekki tryggt sér
hsmn. Margar af þessum nýju og nýlegu bíó-
myndum eru einmitt meðal eftirsóttustu
myndbandanna á vídeóleigunum, eins og
fram kom á títtnefndum vinsældalista Helg-
arpóstsins fyrir skömmu. Nokkur dæmi um
vandaðar og vinsælar bíómyndir seinni ára
sem nú eru á markaðnum:
Burt stýrir Burt
Nafn Burt Reynolds er jafnan trygging
fyrir aðsókn að kvikmynd. Hann er einkar
hnyttinn og sjarmerandi leikari, glaðbeittur
skelmir sem stundum minnir á snillinginn
Ccuy Grant hvað varðar ýmsa takta og kóm-
íska tímasetningu. En Burt vill gjama verða
sjálfum sér líkur. Á hann raðast svipuð hlut-
verk ár eftir ár, enda er hin hefðbundna týpa
hans, kvenhollur töffari með gullhjarta, rak-
in gróðalind. Tii að reyna að brjótast út úr
þessari spennitreyju hefur Burt gripið til
þess að gera sínar eigin myndir, - leikstýra
sjálfum sér. Þetta hefur honum oft tekist
prýðilega, þótt ekki hafi honum hins vegar
auðncist að auka verulega við túlkunarsvið
sitt. Meðal myndanna í 5.-13. sæti HP-list-
ans var ein nýjasta mynd Burt Reynolds
sem leikstjóra, - Sharky’s Machine, sem
Austurbæjarbíó sýndi fyrir nokkru. Þama
leikur Burt harðskeytta rannsóknarlöggu
sem beitir óvenjulegum aðferðum og kemst
á spor pólitískrar spillingar í bandarískri
stórborg við að fylgjast með ferðum vænd-
iskonu einnar, sem leikin er af sérlega sætri
og góðri leikkonu sem heitir Rachel Ward.
Leikstjórinn Burt Reynolds fer lengi framan
af á kostum í þjappaðri myndfrásögn og
stjóm skrautlegs leikhóps, og það er ekki
honum að kenna þótt handritið missi að-
eins dampinn undir lokin og lendi í æði
hefðbundnum farvegi. Sharky’s Machine er
engu að síður úrvalsafþreying.
/ stríði við Stallone
Ónnur hasarmynd af betri sortinni er
byggð kringum annað helsta kyntákn Arne-
ríku af karlkyni, - Sylvester Stallone. Þetta
er Flrst Blood sem Regnboginn sýndi á
sínum tíma og mikilla vinsælda nýtur nú á
myndböndum. First Blood er byggð á Scim-
nefndri bók sem út hefur komið á íslensku
undir þvi snjalla heiti í greipum dauðans.
Viðfangsefnið er gamalkunnugt og einkar
hugleikið bandcuTskum rithöfundum og
kvikmyndagerðarmönnum, - örlög fýrrum
Víetnamhermanns eftir heimkomuna, að-
löguncu-vcuidræði hans og firring á heima-
slóðum, sem í stað þess að þakka og meta
framlag hermannsins í þágu þjóðarinnar er
honum fjandsamlegt. Stallone leikur slíkan
mann, þrautþjálfaðan frumskógarhermann
sem lendir upp á kant við ruddafengið lög-
reglulið í afskekktri byggð í BandcuTkjunum,
segir því stríð á hendur og skilur svæðið
nánast eftir í rúst. First Blood er ágætlega
uppbyggð af leikstjóranum kanadíska Ted
Kotcheff, með miklum tilþrifum í ofbeldis-
atriðum og Stallone, sem jafnan minnir á
svcuTskeggjaða freðna ýsu, er í óvenju góðu
formi í hlutverkinu. Vilji menn breyta stof-
unni sinni í vígvöll eina kvöldstund þá er
First Blood lausnarorðið.
/ stríði við Hollywood
Andlegur vígvöllur er afturámóti
Frances, afbragðs ævisögudrama úr leik-
araheiminum sem Regnboginn sýndi einnig
sl. vetur við góða aðsókn. Þettaer nöturleg
saga, byggð á ævi kunnrar Hollywoodleik-
konu, Frances Fcumer, um hæfileikafulla og
skapmikla stúlku sem neitar að selja sig og
sjálfstæði sitt í siðlitlum glysheimi kvik-
myndaborgarinnar og hafnar í fcuigelsi og á
geðsjúkrahúsi. Myndin stendur og fellur
með átakanlegum leik Jessica Lange í titil-
hlutverkinu. Henni tekst að skapa samúð
með þessari jafnvægislausu konu og sýna
innri þróun hennar með eftirminnilegum
hætti. Galli myndarinnar er hins vegar sá að
Sharky’s Machine-
góður lögregluþriller
og Frances-ævi-
saga úr kvik-
myndaborginni.
eftir Árna Þórarinsson
handritið skipar ekki atburðum og öðru fólki í
lífi leikkonunnar í nægilega virkt dramatískt
samhengi, þannig að stundum verður sag-
an of upptalningarleg. Frances er vönduð
og mannleg mynd fyrir þá sem vil ja hvíla sig
á kúlnahríð og krepptum hnefum.
Pottþéttur Polanski
Fyrir þá myndbandaneytendur sem aftur
á móti eru í stuði fyrir bæði kúlnahríð,
kreppta hnefa og magnað drama verður
varla bent á betri spólu en kvikmynd Rom-
an Polanskis Chinatown, sem komst á blað
með þeim fimmtíu vinsælustu í HP-valinu.
Chinatown er gerð 1974 og er fyrir löngu
komin í hóp bestu mynda kvikmyndasög-
unnar, - að mínu mati sígild einkaspæjara-
mynd sem stendur síst að baki gömlu
klassíkerunum The Big Sleep eftir Howard
Hawks og The Maltese Falcon eftir John
Huston. Þéttofið og bráðsnjallt handrit
Robert Towne leiðir Jack Nicholson, í ess-
inu sínu sem JJ. Gittes einkaspæjari, úr
minniháttar íramhjáhaldsrannsóknum á vit
óhugnanlegrar ráðgátu, þar sem völd og
spilling og afbrigðileg fjölskyldumál eru
samslungin. Polanski heldur meistaralega á
spilunum, enda hvert einasta þeirra tromp:
Sólbakað umhverfi Los Angeles á fjórða
áratugnum, fyrsta flokks leikur Nicholsons,
Faye Dunaway, sem er forveri Meryl Streep í
sérgreininni „dularfullar konur", og sjálfs
John Huston í hlutverki forherts öldungs,
framúrskarandi handrit og pottþétt leik-
stjóm hans sjálfs. Chinatown hefur allt:
Spennu, húmor og persónuátök.
Stjörnugjöf:
(kvarðinn 0-4)
Sharky’s Machine ***
First Blood **
Frances ***
Chinatown ****
18 HELGARPÓSTURINN