Helgarpósturinn - 01.11.1984, Side 10
HP
HELGARPÓSTURINN
Rítstjóri:
Ingólfur Margeirsson
Ritstjórnarfulltrúi:
Hallgrímur Thorsteinsson
Blaðamenn:
Óli Tynes, Ómar
Friðriksson og Sigmundur
Ernir Rúnarsson
Útlit: Björgvin Ólafsson
Ljósmyndir: Jim Smart
Handrit og prófarkir:
Hildur Finnsdóttir
Útgefandi: Goðgá h/f
Framkvæmdastjóri:
Guðmundur H. Johannesson
Augiýsingar:
Steen Johansson
Markaðsmál, sölustjórn og
dreifing: Hákon Hákonarson
og Sigþór Hákonarson
Innheimta:
Garðar Jensson.
Afgreiðsla: Ásdís Bragadóttir
Lausasöluverð kr. 35
Ritstjórn og auglýsingar eru
að Ármúla 36, Reykjavík, sími
8-15-11. Afgreiðsla og skrif-
stofa eru að Ármúla 36.
Sími 8-15-11
Setning og umbrot:
Leturval s/f
Prentun: Blaðaprent h/f
Bandarísku
forsetakosningarnar
Bandaríska þjóðin gengur til
forsetakosninga næstkomandi
þriðjudag, þ. 6. nóvember.
Ronald Reagan forseta er spáð
sigri í öllum skoðanakönnun-
um. Engu að síður herðir Walt-
er F. Mondale, frambjóðandi
demókrata, róðurinn í loka-
sennu kosningabaráttunnar, í
stað þess að gefast upp. „For-
setinn er ekki kosinn í skoðana-
könnunum — fólkið kýs for-
seta," eru slagorð hins þrjóska
frambjóðanda demókrata.
Helgarpósturinn hefur sent
tvo blaðamenn sína til Banda-
ríkjanna í því skyni að fylgjast
með framvindu kosningabar-
áttunnar og lýsa andrúmsloft-
inu í landinu í máli og myndum
síðustu dagana fyrir forseta-
kosningarnar. I dag birtir Helg-
arpósturinn ítarlega grein um
hina vonlitlu en aflmiklu bar-
áttu Mondale gegn Reagan
forseta. Blaðamenn HP voru á
kosningafundi Mondale í Chi-
cago og einnig voru þeir við-
staddir sjónvarpsupptöku þar
sem varaforsetaefni demó-
krata, Geraldine Ferraro, sat
fyrir svörum.
Forsetaembætti Bandaríkj-
anna er ein mesta valdastaða
veraldar. Ákvarðanir sem for-
setinn tekur í efnahags- og ut-
anríkismálum geta skipt sköp-
um fyrir þjóðir um allan heim.
En forseti Bandaríkjanna er
kosinn af fólki. Sú mynd sem
bandarískir kjósendur fá af
frambjóðendum repúblikana
og demókrata er iðulega dreg-
in upp af fjölmiðlum. Kosninga-
barátta forsetaframbjóðend-
anna dregur einnig dám af
þessari staðreynd, og á fjölda-
fundum er málefnalegur flutn-
ingur, húllumhæ og persónu-
legur ræðustíll frambjóðenda
oft lagt að jöfnu. „Bandarískir
kosningafundir eru ótrúlega
hömlulausar samkomu. Ræður
frambjóðenda drukkna í ópum
og lófataki stuðningsfólks
þeirra á 30 sekúndna fresti.
„Stemmingin er eins og á
íþróttakappleik eða rokktón-
leikum," segir blaðamaður HP
meðal annars í fréttagrein sinni
frá Chicago.
Grein Helgarpóstsins um
lokadaga kosningabaráttunnar
um forsetastól Bandaríkjanna
gefur íslenskum lesendum inn-
sýn í þann pólitíska málflutning
og það litríka andrúmsloft sem
mótar huga þess fólks sem kýs
einn valdamesta embættis-
mann heims.
ingsfundur að stofnun félags starf-
andi Ijósmyndara. Lengi hefur verið
mikill áhugi meðal margra ljós-
myndara að vekja íslenska ljós-
myndun af dvala, en að áliti all-
flestra atvinnuljósmyndara hafa
ýmis mál Ijósmyndara legið í lág-
inni. Fyrir er Ljósmyndarafélag Is-
lands, sem er félag iðnlærðra Ijós-
myndara, en ekki hafa nær allir
starfandi ljósmyndarar sveinspróf í
ljósmyndun og þykir stórum hópi
ljósmyndara lög félagsins afar forn
og stirð og koma í veg fyrir eðlilega
þróun ljósmyndunar hérlendis. Lög
Ljósmyndarafélagsins byggja á iðn-
fræðslulögum frá 3. áratugnum og
kenna þeir ljósmyndarar, sem ekki
eru í félaginu, hinum gömlu ákvæð-
um um að ládeyða sé í íslenskri ljós-
myndun almennt. Ljósmyndarar
sem starfa hjá dagbíööunum og
ekki eru í Ljósmyndarafélaginu
ha(a undanþágu til vinnu, en mega
ekki starfa utan þeirra að neinu
leyti. Þessu vilja menn nú breyta og
binda miklar vonir við hið nýja fé-
lag. Það eru um 20 ljósmyndarar
sem standa að stofnun félags starf-
andi ljósmyndara og margir þeirra
eru í Ljósmyndarafélagi íslands.
Inntökuskilyrði í hið nýja félag
verða þó ekki alveg frjáls, heldur
mun verða búið til punktakerfi þar
sem umsækjendur verða að upp-
fylla ákveðnar lágmarkskröfur. . .
M
■ W ■iklar deilur munu vera í
Sjáifstæðisflokknum vegna kjara-
samninganna. Hin hófsamari öfl
flokksins telja að ráðamenn Sjálf-
stæðismanna hafi beitt allt of mikilli
hörku í slagnum við BSRB. Þorri
sjálfstæðismanna mun einnig hafa
verið því fylgjandi að greidd yrðu út
mánaðarlaun til opinberra starfs-
manna þ. 1. okt. Við höfum einnig
frétt að Albert Gudmundsson hafi
verið þessu fylgjandi, en Davíð
Oddsson borgarstjóri og Þor-
steinn Pálsson formaður Sjálf-
stæðisflokksins hafi sest að fjár-
málaráðherra og talið hann á aðra
skoðun.. .
lEl in skýring á því að sjálfstæðis-
menn í ríkisstjórn kusu að reyna
samningaleiðina í BSRB-verkfallinu
í stað þess að ganga til kosninga,
mun vera hin hrikalega útreið sem
Sjálfstæðisflokkurinn fékk í skoð-
anakönnun Hagvangs í Morgun-
blaðinu og DV-skoðanakönnuninni
um fylgi flokkanna. Kjósa Sjálfstæð-
ismenn nú að bíða með að rifta
stjórnarsamstarfinu fram yfir ára-
mót í von um að vinsældir flokksins
eigi eftir að aukast. Þá von byggja
þeir ekki síst á nýju fiskverði sem
kemur um áramótin og mun setja
sjávarútvegsráðherra Framsóknar í
erfiða stöðu. Einnig mun vera ljóst
að 30% verðbólga virðist nær óum-
flýjanleg og þá mun forsætisráð-
herra Framsóknar eiga bágt. Óvin-
sældir stjórnarinnar munu því
koma verr niður á Framsóknar-
mönnum en Sjálfstæðismönnum
eftir áramót. Að mati Sjálfstæðis-
manna. . .
o
kkur berast þær fréttir að
Jóhannes Siggeirsson, vara-
bankastjóri Alþýðubankans, sé að
hætta hjá bankanum, og hyggisl
hann halda á ný mið. Málm- og
skipasmíðasambandið hefur heyrst
nefnt í því sambandi. Ef Jóhannes
hættir hjá Alþýðubankanum, er
hann þriðji varabankastjórinn sem
segir starfi sínu lausu hjá þeim
banka á tveimur árum. . .
Leiörétting
í síðasta tölublaði Helgarpóstsins
var rangt farið með nafn alþingis-
manns Framsóknar í greininni
„Frjálst eða lýðfrjálst útvarp?" (Inn-
lend yfirsýn). Var þingmaðurinn
nefndur Stefán Valgeir Friðriksson
en átti réttilega að vera Stefán Val-
geirsson. Er hlutaðeigandi beðinn
velvirðingar á þessum mistökum.
LAIISN Á SPILAÞRAUT
S K-G-9-7
H D-G-10-6
T G-10-8
L K-4
S Á S 10-8-6-4
H A-8 H 9-7-4-2
T D-7-2 T Á-K-6-5
L G-10-7-6-5-3-2 L Á
Vestur hefir tvo möguleika á að
vinna spilið. Sá fyrri er að ás og
kóngur séu tvö ein á annarri hend-
inni. Hinn möguleikinn er sá, að
norður sé með kónginn annan,
eða drottninguna aðra. Ennfrem-
ur að tíglarnir séu skiptir
þrír/þrír.
Vestur tekur drottninguna með
ás. Lætur laufatvistinn á ásinn.
Komi hvorugt hjónanna í ásinn,
þá iætur hann drottningu, kóng
og ás í tígli. Fylgi báðir lit, lætur
hann fjórða tígulinn. Trompi suð-
ur, þá yfirtrompar vestur. Þá er
spilið unnið, því hann tapar aðeins
síag í trompi og einum í hjarta.
Trompi suður ekki, þá hendir
vestur hjartaáttunni og norður
verður að trompa með kónginum.
Svo fá norður og suður aðeins á
laufadrottninguna.
Aldrei meira úrval af brauði— 15 nýjar tegundir
30% ódýrari en annarsstaðar
Bakaríið KRINGLAN
Starmýri 2
Skólavörðustíg 2
Opnunartími: 8-6 virka daga
kl. 8-4 laugardaga
kl 9 - 4 sunnudaga
kl. 8-6 virka daga
kl. 9-4 um helgar
10 HELGAFIPÓSTUFtlNN