Helgarpósturinn - 01.11.1984, Síða 11
y
■ msir slá á létta strengi á erf-
iðum tímum. Meðan ASÍ-forystan
situr á karpi með VSÍ og launþeg-
arnir bíða spenntir eftir úrslitunum,
hafa forkólfar ASÍ pantað veislusal-
-inn í Kvosinni þ. 2. nóvember. Þar
verður haldin vegleg veisla fyrir
100 manna forystulið ASÍ og verður
verðinu stillt í hóf eða 1500 krónur
á mann. Veislan verður greidd með
einni ávísun frá Alþýðusambandi ís-
lands. . .
S_
blaðafulltrúi Flugleiða, sendi sem
kunnugt er frá sér skáldsöguna Við
skráargatið fyrir síðustu jól, en
Vaka gaf út. Sama bókaforlag hygg-
ur nú á útgáfu nýrrar bókar frá
sama höfundi, en af allt öðrum toga.
Vinnuheiti þessarar bókar Sæ-
mundar hefur verið „Hættuflug" og
byggir á frásögnum af því þegar
reyndir flugmenn okkar islendinga
hafa komist í hann krappan í háloft-
unum. Sæmundur hefur aflað sér
upplýsinga um þetta efni hjá nær
öllum atvinnuflugmönnum okkar
frá því flug hófst hérlendis, til dæm-
is hjá Þorsteini Jónssyni sem
flaug í Biafra-stríðinu. Hér verður
þó ekki um viðtöl við flugmennina
að ræða, heldur hefur Sæmundur
fært þetta efni í stíl spennusagna og
að sögn kunnugra hefur honum tek-
ist að gefa þessum sönnu krítísku
augnablikum í starfi flugmanna, líf
sem efalítið á eftir að hrella margan
lesandann.. .
S....... _
standa í vindmyllulslag þessa dag-
ana. Sem kunnugt er hafa Samtökin
ráðið lögfræðing sér til fulltingis er
hefur þann starfa að afgreiða kærur
félagsins vegna ólöglega fengins
efnis til ríkissaksóknara sem síðan
sendir þær til rannsóknarlögreglu-
stjóra ríkisins. Mál þessi hafa hins-
vegar stöðvast þar og hrannast
heldur betur upp, því þau munu
vera yfir hundrað talsins sem bíða
afgreiðslu á borði Hallvarðs Ein-
varðssonar um þessar mundir.
Hallvarður rannsóknarlögreglu-
stjóri mun hafa gefið þeim hjá SRM
þá skýringu á seinlætinu að hann
vanti mannafla til að sinna þessum
málum, og því liggi þau öll kyrr og
rykfalli hjá sér. Á meðan horfa sam-
tökin á sjóræningjana í bransanum
halda uppteknum hætti við leigu
illa fenginna myndbanda, enda
þurfa þessir aðilar greinilega ekkert
að óttast að kærur á hendur þeim
verði rannsakaðar í bráð. . .
S .......... -
verið hin besta að undanförnu. Þó
eru til undantekningar. T.d. þýtur
hús Seðlabankans upp úr Arnar-
hólsjaðrinum enda digrir sjóðir að
baki stofnuninni, það er fé almenn-
ings. Sparisjóður Reykjavíkur hefur
ennfremur sýnt mikinn vöxt að
undanförnu. Hann hefur gleypt
sparisjóðinn Pundið og opnað útibú
úti á Seltjarnarnesi svo eitthvað sé
nefnt. Líklegasta ástæðan fyrir vel-
gengni sparisjóðsins er sú, að hann
stundar ekki áhættulánaviðskipti
með birgðalán og önnur lán sem
ekki eru verðtryggð líkt og stóru
bankarnir, heldur fæst hann nær
einungis við fasteignalán og önnur
áhættulítil lán. . .
u
ndirbuningur er nú hafinn
að stofnun starfsgreinafélaga innan
Morgunblaðsins og DV. Út af
þessu framtaki er ekki aðeins að
vænta urgs innan Félags bóka-
gerðarmanna sem missir við þetta
af fjölmörgum félagsmönnum sín-
um, heldur ekki síður að hálfu
Blaðamannafélags íslands, en
ekki er óhugsandi að þeir blaða-
menn, sem vinna á þessum blöðum,
segi sig úr félaginu í kjölfar stofn-
unar starfsmannafélagsins sem yrði
þar með þeirra umbjóðandi í samn-
ingum. Lauslega reiknað faekkaði
félögum í Blaðamannafélagi íslands
um nær þriðjung við þessi vista-
skipti, en meðal þeirra sem þannig
myndu segja sig úr B.í. er formaður
þess, Ómar Valdimarsson, en
hann vinnur sem kunnugt er á
Morgunblaðinu. . .
l þrengingum almennings er allt-
af gaman að frétta sólarsögur af
góðum kjörum. Við höfum heyrt að
SG-einingahús á Selfossi hafi
danska múrara í vinnu við að hlaða
múrsteinum utan á hús sín. Eru'
múrararnir fengnir sérstaklega frá
Danmörku til starfans og með leyfi
stéttarsamtaka íslenskra múrara.
Danirnir hafa hins vegar haft gott
kaup í verkfallinu eða 15 þúsund
danskar á viku sem gerir 45 þúsund
íslenskar. Og það var á viku.. .
Kl. 11 -22 virkadaga
Kl. 10-22 laugardaga
Kl. 14-22sunnudaga
VÍDEÓSPÓLAN
Holtsgata 1
Sími16969
HÓTEL BORG
Sími 11440
LEIGJUM UT
VEISLUSALI FYRIR
ÁRSHÁTÍÐIR OG ÖNNUR
EINKASAMKVÆMI
HELGARPÓSTURINN 11