Helgarpósturinn - 01.11.1984, Blaðsíða 16
FREE
STYLE
FORMSKUM
lOréal
r>.«.n»c mMi$x
Já — nýja lagningarskúmid
c1UT JM i hárifS ? f™ L'ORÉAL
JiV UlVi / rJUUU. og hárgreiðslan verður
leikur einn.
TÝNDIR
LYKLAR!
Lyklakippa týndist í Selmúla fyrir utan
Helgarpóstinn síöastliðinn mánudag.
Finnandi vinsamlegast hafi samband við
afgreiðslu Helgarpóstsins.
SYNINGAR
Ásgrímssafn
Bergstaöastræti 74
Líkt og undanfarin ár gengst Ásgrímssafn
fyrir vetrarsýningu. Verkin, olíu- og vatnslita-
myndir, sem eru í eigu safnsins, voru valin
meö hliðsjón af temanu „vetur". Safnið er
opið á þriðjudögum, fimmtudögum og
sunnudögum kl. 13.30 — 16.
Ásmundarsalur
Freyjugötu 41
Á laugardaginn, 3. nóv. opnar Hans Christ-
iansen málverkasýningu á 35 vatnslitamynd-
um (landslags) í Ásmundarsal. Sýningin
verður opin á virkum dögum kl. 16—22 og
um helgar frá 13—22. Henni lýkur þ. 11. nóv.
Gallerí Borg
Pósthússtræti 9
I dag, fimmtudag 1. nóvember, opnar Þor-
björg Höskuldsdóttir málverkasýningu í
Gallerí Borg við Austurvöll og er þetta 4.
einkasýning Þorbjargar sem að þessu sinni
sýnir olíumálverk og teikningar.
Á efri palli sýnir Anna K. Jóhannsdóttir
vasa, skálar og eyrnaskart úr steinleir.
Sýningarnar eru opnar virka daga kl.
10—18og um helgar kl. 14 — 18. Þeim lýkur
13. nóvember.
Gallerí Gangurinn
Rekagranda8
Samsýning tólf listamanna frá fjórum lönd-
um stendur nú yfir í Gallerí Ganginum. Lista-
mennirnir eru: Anselm Stalder, Helmut Fed-
erle, Martin Disler, John M. Armleder og
Klaudia Schiffle frá Sviss; Peter Angermann
frá Þýskalandi; John van't Slot frá Hollandi;
Daði Guðbjörnsson, Tumi Magnússon, Árni
Ingólfsson, Kristinn G. Harðarson og Helgi
Þ. Friðjónsson. Sýningin stendur út nóvem-
bermánuð.
Gallerí Langbrók
Amtmannsstíg 1
Á laugardag, 3. nóv. kl. 14 opnar Borghildur
Óskarsdóttir sýningu sína á keramíki í Gallerí
Langbrók. Sýningin er opin kl. 12—18 á
virkum dögum og um helgar frá kl. 14 — 18
en henni lýkur 16. nóv.
Hafnarborg
Strandgötu 34, Hf.
Fyrir viku opnaði Jónas Guðvarðsson sýn-
ingu á málverkum og tréskúlptúrum í Hafn-
arborg, menningar- og listastofnun Hafnar-
fjarðar. Þetta er 7. einkasýning Jónasar en
hann hefur einnig tekið þátt í samsýningum
innanlands og erlendis. Sýningin er opin alla
daga kl. 14 —19 og stendur til 11. nóv. nk.
Húsakynni MÍR
Vatnsstíg 10
Félagið MÍR, Menningartengsl íslands og
Ráðstjórnarríkjanna, minnist 67 ára afmælis
Októberbyltingarinnar með opnun Ijós-
myndasýningar og síðdegissamkomu um
helgina, dagana 3. og 4. nóvember. Ljós-
myndasýningin verður opnuð í húsakynnum
félagsins á laugardaginn 3. nóvember kl. 17.
Kvikmyndir verða sýndar báða dagana.
Höggmyndasafn
Ásmundar Sveinssonar
viö Sigtún
„Vinnan í list Ásmundar Sveinssonar" er yf-
irskrift sýningar sem stendur yfir í safninu. Á
henni er sýnd hin tæknilega hlið högg-
myndakúnstarinnar, s.s. tæki, efni og að-
ferðir, og einnig höggmyndir þar sem mynd-
efnið er „vinnan". Safnið er opið daglega frá
kl. 10-17.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
„Borgin og landið" er yfirskrift sýningar
Katrínar H. Ágústsdóttur í vesturgangi Kjar-
valsstaða en þar sýnir hún 62 vatnslitamynd-
ir. í austurgangi sýnir Sverrir Ólafsson skúlp-
túra og lágmyndir (relief). Sýningarnar
standa aðeins yfir helgina.
Steinunn Marteinsdóttir opnaði keramík-
sýningu 27. október í Kjarvalssal. Megin
uppistaða sýningarinnar eru veggmyndir,
þ.e. lágmyndir, stórar og litlar, unnar í postu-
lín en einnig eru sýndir vasar o.fl. Sýningin
stendur til 18. nóvember.
Opnunartími Kjarvalsstaða er frá 14—22,
daglega.
Listasafn A.S.i.
Grensásvegi 16
Sýning Jakobs Jónssonar listmálara sem
staöið hefur í Listasafni A.S.Í., hefur verið
framlengd til sunnudagsins 4. nóv. Á henni
eru 48 olíumálverk og 5 teikningar. Sýningin
er opin daglega kl. 14 — 22. Þetta er 3. einka-
sýning Jakobs.
Listasafn Einars Jónssonar
við Njarðargötu
Safnhúsið er opið yfir vetrartímann á laugar-
dögumog sunnudögum frá kl. 13.30—16 en
höggmyndagarðurinn er opinn eins og verið
hefur daglega frá kl. 11—18.
Listamiðstöðin
Hafnarstræti 22
Einkasýningum fjögurra listamanna í Lista-
miðstöðinni lýkur á sunnudaginn. 4. nóvem-
ber. Þeir eru: Santiago Harker frá Kólumbíu
sem sýnir 17 Ijósmyndir en sýningu sína
nefnir hann „Hulið". Anna Ólafsdóttir
Björnsson sýnir dúkristur og er þetta hennar
fyrsta einkasýning sem hún kallar „Blikur".
Smámyndir er yfirsRrift sýningar Gunnars
Hjaltasonar á landslagsmyndum og fantasí-
um, unnum með vatnslitum og bleki; Ingi-
berg Magnússon sýnir loks litkrítarmyndir
sem hann nefnir „Trjástúdíur". Sýningarnar
eru opnar daglega kl. 14 — 18.
Listmunahúsið
Lækjargötu 2
Laugardaginn 3. nóvember kl. 14 opnar Óm*
ar Skúlason málverkasýningu í Listmuna-
húsinu Lækjargötu 2. Á sýningunni eru Coll-
age-myndir frá 1976 en meginuppistaða
sýningarinnar eru tvær myndraðir, unnar á
árinu 1984. Við myndgerðina er notuð
blönduð tækni, s.s. málun, þrykk og klipp-
ingar. Einnig verður á sýningunni ein mynd
eftir Egil EðvarðssOn, kvikmyndagerðar-
mann auk annarrar eftir Erni Þorsteinsson
myndlistarmann.
Ómar er f. 1949. Hann stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskólann og útskrifað-
ist þaðan 1971. Þetta er 2. einkasýning hans.
Sýningin sem er sölusýning er opin á virkum
dögum frá 10 — 18, laugardaga og sunnu-
dagafrá14 —18. Lokað á mánudögum. Sýn-
ingin stendur til 18. nóvember.
Menningarmiðstöðin
við Gerðuberg
Sýning á teikningum eftir íslensk grunn-
skólabörn stendur yfir í Menningarmiðstöð-
inni og er efni þeirra um skaðsemi reykinga.
Myndirnar eru til sýnis á venjulegum opnun-
artíma hússins, á virkum dögum frá 16—22
og um helgar frá 14 — 18.
Norræna húsið
í kjallara Norræna hússins sýna þrír mynd-
listarmenn verk sín. Þeir eru: Gunnar örn
Gunnarsson, Samúel Jóhannsson og Stein-
þór Steingrímsson. Á sýningunni eru mál-
verk, skúlptúrar og teikningar. Síðasta sýn-
ingarhelgi. Salirnir eru opnir virka daga kl.
15—20 og um helgar 15—22.
Um síðustu helgi opnaði Kjuregej Alexandra
Argunova sýningu sína í anddyri Norræna
hússins á 39 myndverkum sem unnin eru í
efni (application) á árunum 1979 — 1984,
bæði myndir og veggteppi. Sýningin er opin
á sama tíma og Norræna húsið og stendur til
11. nóvember.
Súlnasalur
Hótel Sögu
Bandalag kvenna í Reykjavík heldur ráð-
stefnu um hagsmuna-og réttíndamál heima-
vinnandi húsmæðra í Súlnasal Hótel Sögu
laugardaginn 3. nóvember. Ráðstefnan
hefst kl. 9.30 og stendur til kl. 16. Ráðstefn-
an er öllum opin sem áhuga hafa á rnglefn-
inu.
BÍÓIN
★ ★ ★ ★ framúrskarandi
★ ★ ★ ágæt
★ ★ góð
★ þolanleg
O léleg
Austurbæjarbíó
Handagangur í öskjunni
(What's up Doc)
Bandarísk. Aðalhlutverk: Barbara Streisand,
Ryan O'Neal. Gamanmynd.
Endursýnd í sal 1, kl. 5, 7, 9 og 11.
Arthur
Bandarísk. Aðalhlutverk: Dudley Moore,
Liza Minelli, John Gielgud.
Endursýnd í sal 2, kl. 5, 7, 9 og 11.
Banana-Jói
Bandarísk-ítölsk. Aðalhlutverk: Bud Spenc-
er. Stórir krakkar og litlir hafa gaman af
þessari mynd.
Sýnd í sal 3, kl. 5, 7, 9 og 11.
Bíóhöllin
Night Crossing
Amerísk. Leikstjóri: Ekki vitað. Aðalhlutverk:
John Hurt, Beau Bridges. Byggð á sann-
sögulegum atburðum úr seinni heimsstyrj-
öldinni. Efni: Fjölskylda flýr frá
Austur-Þýskalandi í loftbelg.
Sýnd í sal 1, kl. 5, 7, 9 og 11.
Mjailhvít og dvergarnir sjö
Teiknimynd eftir Walt Disney.
Sýnd kl. 3.
Fjör í Ríó
(Blame it on Rio)
★
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Stanley
Donen. Aðalhlutverk Michael Caine, Joseph
Bologna, Michello Johnson.
Erótísk gamanmynd um tvo miðaldra feður
sem fara til Ríó ásamt gjafvaxta dætrum sín-
um til að hressa upp á tilveruna. Vandamál
skapast er önnur dóttirin fer að sofa hjá
pabba hinnar. Þunn og illa leikin mynd, gerð
eftir vonlausu handriti.
Sýnd í sal 2, kl. 5, 7, 9 og 11.
Splash
Bandarísk. Árg. 1984. Leikstjóri: Ron Ho-
ward. Aðalhlutverk: Tom Hanks, Daryl
Hannah, John Candy. Gamanmynd.
Sýnd í sal 3, kl. 3, 5, 7, 9 og 11.
Fyndið fólk II
(Funny People)
Leikstjóri: Jamie Uys.
Sýnd í sal 4, kl. 3, 5, 7 og 9.
í kröppum leik
(The Naked Face)
★
Sýnd í sal 4, kl. 11.
Stjörnubíó
Moskva við Hudson fljót
(Moskva on the Hudson)
Amerísk. Árgerð 1984. Leikstjóri: Paul Maz-
ursky. Aðalhlutverk: Robin Williams, Maria
Conchita. Gamanmynd. Efni: Það sem
gammarnir á Mogganum gauka gjarnan að
þjóðinni: Þegar RÚSSAR ráðast á Bandarík-
in. Ætti að höfða til allstórs hluta lesenda, ís-
lenskra. Þó e.t.v. ekki of langt gengið að telja
þessa til gamanmynda.
Sýnd í A-sal kl. 5, 7, 9 og 11.
The Man who loved Women
Amerísk. Árg. 1983. Leikstjóri: Blake Ed-
wards. Aðalhlutverk: Burt Reynolds, Julie
Andrews.
„Enn leggur Blake Edwards af stað í leiðang-
ur með konu sína og aðra vel valda til, svo
hafa megi gaman af förinni. Burt Reynolds er
þar á meðal, og nú í búningi myndhöggvara
sem er orðinn efins í lauslæti sínu og kven-
mannsgirnd. Þessvegna liggur hann dag-
lega inni hjá sálfræðingi í meðförum Julie
Andrews. Þetta er ósköp þægileg saga,
fyndin á sinn smásmugulega hátt einsog Ed-
wards er von og vísa, en heldur viðburða-
snauð ef menn eru að leita eftir æsilegum
senum."
-SER.
Sýnd í B-sal, kl. 5, 9 og 11.
Educating Rita
★★★
Sýnd í B-sal, kl. 7.
Háskólabíó
Eins konar hetja
(Some Kind öf Hero)
Amerísk. Árg. 1983. Leikstjóri: Michael
Pressman. Aðalhlutverk: Richard Pryor,
Margot Kidder, Ray Scharkey, Ronny Cox.
Gamanmynd.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Nýja Bíó
Dalalíf
★
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Laugarásbíó
Helgarfrí
Sýnd kl. 5 og 7.
Scarface
Sýnd kl. 9.
Regnboginn
Áformað er að frumsýna í Regnboganum
nýja íslenska kvikmynd eftir Friðrik Þór Frið-
riksson sem hann kvikmyndaði í sumar sem
leið ásamt aðstoðarmönnum sínum á
Káptrýhátíð á Skagaströnd.
Aðalhlutverkið er í höndum Hallbjarnar
Hjartarsonar. Um er að ræða heimildarmynd
þar sem tónlistin situr í fyrirrúmi.
Sýnd í A-sal.
The Lonely Lady
Frumsýnd um síðustu helgi. Amerísk. Árg.
1983. Handrit: John Kershaw, Shawn Hand-
all, eftir samnefndri skáldsögu Harold Robb-
ins. Leikstjóri: Peter Sasdy. Aðalhlutverk:
Pia Zadora, Lloyd Bochner, Joseph Cali.
Supergirl
★
Sýnd í A-sal, kl. 3, 5.30, 9 og 11.15.
Zappa
★★★★
Síðasta lestin
(Le Dernier Metro)
★★
Farvel Frans
Leikstjóri: Carl Schultz. Aðalhlutverk: Ray
Barrett, Robyn Nevin. Fjallar um spillingu í
lögreglunni.
LEIKLIST
Leikhúsið
Akureyri
Laugardaginn 3. nóvember kl. 20.30 sýnir
Leikfélagið á Akureyri gamanleikritið Einka-
líf eftir Noél Coward sem frumsýnt var þann
12. október sl.
Kjarvalsstaðir
við Miklatún
Alþýðuleikhúsið frumsýnir á sunnudaginn 4.
nóv. kl. 16 leikritið Beisk tár Petru von Kant
eftir Fassbinder. Miðar eru nú uppseldir á
frumsýninguna. 2. sýning verður á mánu-
dagskvöld, 5. nóv. kl. 20.30.
TÓNLIST
Nýlistasafnið
Vatnsstfg 3B
Laugardaginn 3. nóvember verður hátíð
haldin í Nýlistasafninu og hefst hún kl.
21.30. Tvær hljómsveitir munu koma fram,
önnur í fyrsta skiptið en hún heitir Inferno 5
og er skipuð fimm ungum mönnum sem
leika fjöruga danstónlist en kunnáttu sína
segjast þeir sækja til „framandi moldar"; hin
heitir Hið afleita þríhjól.
Austurbæjarbíó
Sunnudaginn 4. nóv. heldur kammersveitin
Ensemble 13 frá Baden Baden í Þýskalandi
tónleika í Austurbæjarbíói kl. 14.30. Um 40
hljóðfæraleikarar skipa hljómsveitina. Á efn-
isskránni eru verk eftir Schubert, Varese,
Muller-Siemens og Rihm. Aukamiðar verða
til sölu við innganginn.
16 HELGARPÓSTURINN