Helgarpósturinn - 21.02.1985, Síða 2
FREJTAPpSTUR
Kjaradeila kennara og ríkisins
Framhaldsskólakennarar innan Hins íslenska kennara-
félags hafa lagt launakröfur sínar fyrir samningamenn rík-
isins. Lægstu laun ættu samkvæmt þeim að hækka úr rúm-
um 20 þúsund krónum í 37 þúsund krónur, en hæstu laun
að hækka úr 29 þúsund krónum í rúm 50 þúsund. Tals-
menn fjármálaráðuneytisins segjast ekki geta byrjað við-
ræður við HÍK á þessum forsendum. Bf ekki semst fyrir 1.
mars er útlit fyrir að kennarar gangi úr sínum störfum, en
ráðherra menntamála telur þeim það ekki heimilt að lögum.
Verkfall sjómanna hafið, SSO skip stöðvast
Verkfall sjómanna hófst síðastliðinn sunnudag og er það
þegar farið að hafa veruleg áhrif. Alls munu um 550 skip
stöðvast og um 4000 sjómenn leggja niður vinnu. Litið hef-
ur miðað í samkomulagsátt á fundum deiluaðila með ríkis-
sáttasemjara í vikunni, en um það bil 8000 krónur ber á
milli deiluaðila í beinum launahækkunum, auk þess sem
önnur atriði eru óleyst. Nokkuð hefur borið á því það sem
af er verkfalli að útgerðarmenn hafi ekki hlýtt verkfallsboði
og haldið skipum sínum úti á veiðum.
Rassía hjá öllum myndbandaleigum landsins
Lögreglan í landinu fór herferð inn á allar myndbanda-
leigur í landinu á mánudag. Þetta var samstillt átak að
beiðni Kvikmyndaeftirlitsins, sem vildi með þessu móti hafa
upp á þeim ólöglegu ofbeldismyndum sem verið hafa á
markaðinum til þessa. Alls hafði löggan um 300 ólögleg
myndbönd upp úr krafsinu, en hún kom nær öllum mynd-
bandaleigueigendum í opna skjöldu.
Öryggismálanefnd getur út ritgerð um herstöðina
Gunnar Gunnarsson, starfsmaður Öryggismálanefndar,
sendi frá sér all ítarlega ritgerð í vikunni um f ramtíðaráætl-
anir og framkvæmdir við herstöðina á Miðnesheiði. í riV
gerðinni kemst Gunnar meðal annars að þeirri niðurstöðu
að fyrirhugaðar ratsjárstöðvar á Vestfjörðum og Norðaust-
urlandi geti ekki orðið skotmörk í stríði, til þess séu þær of
veigalitlar. Auk þess bendir hann á að með eflingu stjórn-
stöðvarinnar í Keflavík sé ekki á nokkurn hátt verið að und-
irbúa hugsanlega staðsetningu kjarnavopna hérlendis. Pyr-
irsjáanlegar framkvæmdir í hernaðaruppbyggingu lands-
ins, fyrir utan uppsetningu ratsjárstöðvanna, munu kosta
284,4 milljónir dollara, að því er Gunnar telur í ritgerð
sinni.
Útvarpslagafrumvarpið nýja að komast á legg
Samkomulag stjórnarflokkanna um afgreiðslu nýja út-
varpslagafrumvarpsins liggur nú fyrir með nokkrum
breytingartillögum, þeim helstum að elnkastöðvum verði
ókleift að fjármagna reksturinn með beinum auglýsingum.
Talað er um mikla eflingu Ríkisútvarpsins á meðan frjáls-
um stöðvum er sniðinn afar þröngur stakkur í sinni fyrir-
huguðu starfsemi.
Örvænting meðal Suðurnesjafólks
Rúmlega sjö hundruð manns á Suðurnesjum, mest kon-
ur, eru nú orðin atvinnulaus, einkum og sér í lagi vegna
fiskiskipa sem horfið hafa úr plássunum á þessu svæði,
annaðhvort vegna sölu eða gjaldþrots. Mikil örvænting er
meðal fólks í þessum landshluta vegna bágs atvinnu-
ástands. Sýnt þykir að ekki verður bætt úr þessu ástandi á
næstunni nema með róttækum aðgerðum, eins og til dæmis
því að sigla með afla frá öðrum löndunarhöfnum í vinnslu
suður, þar sem svo margir kvótar frá Suðurnesjum hafa
flust til annarra landshluta.
Fréttapunktar:
• Pulltrúar ASÍ og VSÍ eru byrjaðir að ræðast við til að und-
irbúa næstu samninga á hausti komanda.
• Málverk Jóhannesar S. Kjarvals, Útsýn yfir Þingvelli í
átt að Súlum.' var slegið á 650 þúsund íslenskar krónur á
uppboði í Köben í síðustu viku.
• Bent Larsen stórmeiscari Dana hefur nú tekið afgerandi
forystu á afmælismóti Skáksambands íslands sem staðið
hefur yfir á Loftleiðahótelinu frá síðustu viku. Margeir Pét-
ursson kemur næstur að stigum.
• Rannsóknarlögreglan lagði hald á blöndunartæki Bjór-
samlags Ámunnar í síðustu viku að beiðni rikissaksóknara,
en kannað verður lögmæti þessarar starfsemi sem byggist á
því að samlagsfólk getur fengið bjórlíki á allstórum tönkum
með sér heim gegn greiðslu.
• Talsverðar umræður hafa staðið um sameiningu ríkis-
bankanna þriggja í einn banka. Ljóst er að langt er í ákvarð-
anir i þessu efni.
• Kvennalistinn hefur hafnað viðræðum þeim sem Alþýðu-
bandalagið óskaði eftir við hann um hugsanlega samvinnu.
• Fyrsti snjórinn á þessu ári féll á reykvíska hausa i næst-
liðinni viku, en einmuna veðurblíða hefur verið um allt land
síðustu vikur. Nú, snjórinn a tarna fór fljótt.
• Milljónatjón varð af eldi í Brekkubæjarskóla á Akranesi
um helgina, og hefur 18 ára Skagamaður verið hnepptur í
gæsluvarðhald vegna grunsemda um að hann hafi valdið
brunanum.
• Halldór Laxness hefur gefið nýstofnuðu myntsafni
Seðlabanka og Þjóðminjasafns alla heiðurspeninga sem
honum hafa hlotnast um dagana, meðal annars Nóbelspen-
inginn sinn.
• Samtök Grikklandsvina verða stofnuð um helgina.
• Banaslys varð á Grindavíkurvegi um siðustu helgi, þegar
sextán ára stúlka lenti i bilveltu ásamt tveimur vinkonum
sinum, en þær sluppu að mestu ómeiddar úr slysinu.
• Tveir bræður, fjögurra og átta ára gamlir, fórust í eldsvoða
sem varð í Hafnarfirði aðfaranótt laugardags.
2 HELGARPÓSTURINN
HERRANÖTT með „They
Shoot Horses, Don't They"
Atvinnuleikhús-
in urðu
undir í
samkeppninni!
★„Skólinn sjálfur er nú orðinn
hálfgert aukaatriði," sagði
Balthasar Kormákur, formaður
Herranætur Menntaskólans í
Reykjavík, en nú fer að styttast
í frumsýningu á því fræga verki
„They Shoot Horses, Don't
They" eða Náðarskotið, eins og
verkið heitir í uppfærslu Herra-
nætur.
„Það er ofsa góð stemmning
í hópnum og æft upp á hvern
dag. Guðni er bara hress yfir
þessu, að minnsta kosti núna,
sennilega vegna þess að við
gáfum honum svo góða afmæl-
isgjöf í síðustu viku, þegar
hann varð sextugur," sagði
Balthasar Kormákur.
Sýningar verða í Broadway
og frumsýning verður 7. mars
næstkomandi.
Formaður Herranætur upp-
lýsti okkur um það, að bæði
Iðnó, Alþýðuleikhúsið og Nem-
endaleikhúsið hefðu reynt að fá
verkið til sýningar og hann
héldi að Iðnó hefði reynt sl.
tvö árin. „En við þrjóskuðumst
við og vorum svo heppin að fá
sýningarréttinn," sagði Kormák-
ur.
Höfundur leikgerðar er Ray
Herman en höfundur verksins
er Horace McCoy.
Leikstjóri er Viðar Eggerts-
son, en Karl Ágúst Úlfsson
þýddi. I aðalhlutverkum eru
Hilmar Jónsson í hlutverki
dansstjórans Rocky Gravo, Hall-
dóra Björnsdóttir leikur Gloriu
Beatty (Jane Fonda lék hana í
kvikmyndagerð verksins, sem
margir hafa eflaust séð bæði í
kvikmyndahúsum og í sjón-
varpi) og dansfélagann leikur
Sæmundur Norðfjörð. Alls taka
um 40 manns þátt í sýningunni
og eru þá með taldir 10 hljóð-
færaleikarar, en í verkinu eru
sungin nokkur lög. Jóhann
Morávek útsetti tónlistina.
Ingibjörg Stefánsdóttir, full-
trúi AT-hóps Herranætur (AT=al-
mannatengsl) sagði (samtali
við HP, að æfingar hefðu staðið
frá áramótum og hópurinn væri
bjartsýnn á að vel tækist til.
„Við vonumst til að gera betur
en í fyrra," sögðu þau Balthasar
Kormákur og Ingibjörg, en þá
urðu sýningar alls 12. „Þá þótti
Guðna rektor nóg komið."
Viðar Eggertsson leikstjóri
var bjartsýnn á góða sýningu
og sagði að leikmyndin, sem
væri sjálfur skemmtistaðurinn
Broadway, hentaði þessari sýn-
ingu einkar vel. „Þetta er lík-
lega dýrasta leikmynd sem
gerð hefur verið," sagði Viðar
Eggertsson.#
Krítarkortasýki
★ Jæja elskurnar, þá er komið
að gjalddögum þeirra sem
greiddu jólainnkaup sín með
krítarkortum eftir átjánda dag
desemþermánaðar í fyrra.
Líkast til hafa margir eytt um
efni fram og sjá nú fram á
erfiða tíma í fjármálunum og
enn aðrir eru alveg bit á því
hvað þeir hafa látið stjórnast af
þessum varhugaverðu plastplöt-
um. Og orðið bókstaflega ofur-
seldir þeim. En þeirra er
vonin...
í Bandaríkjunum (þið vitið,
westurfrá) hefur nú um nokkurt
skeið verið rekið meðferðar-
heimili fyrir þá ólánsömu ein-
staklinga sem hafa fengið inn-
kaupaæði af því að versla með
krítarkort, eða geta ekki á ann-
an hátt haldið aftur af sér með
þessar plastplötur upp á vas-
ann. Þessi meðferð þykir hafa
gefið góðan árangur og læknað
margan veikgeðja korthafa. Hún
stendur alla jafna yfir í viku-
tíma, nema menn séu þess verr
haldnir, og hefst meðferðin á
því að leiðbeinandinn biður
hina kortsjúku að taka kortin
sín upp og klippa þau síðan í
tætlur með þar til gerðum
skærum. Að því búnu hefst
sjálft leiðbeiningarstarfið sem
mest gengur út á það að sýna
mönnum hvernig þeir eigi að
geta notað kortin sín í hófi,
stjórnað þeim í stað þess að
láta stjórnast af þeim.
Þessi meðferðarstofnun í
Bandaríkjunum er enn það ung
að árum að ekki er vitað um
hlutfall útskrifaðra sem fallið
hafa eftir námskeiðið, en sem
fyrr greinir hafa menn þar
vesturfrá á tilfinningunni að
góður árangur hafi orðið.
íslenskum kortasjúklingum er
hér með bent á þessa meðferð-
arstofnun í Bandaríkjunum og
geta þeir leitað til Menningar-
stofnunar Bandaríkjanna á
Neshaga í Reykjavík eftir frekari
upplýsingum.^