Helgarpósturinn - 05.09.1985, Síða 4
Þ
essa dagana situr Magnús
Ólafsson fyrrverandi ritstjóri NT
og kannar möguieika á útgáfu tíma-
rits, þar sem fjallað yrði um pólitík,
menningarmál, vísindi, neytenda-
mál ýmiss konar o.s.frv. Akveðið
hefur verið að boða til fundar um út-
gáfuna 12. september, þar sem mál-
ið verður reifað. Hugmynd þessi
mun vera nokkuð gömul og á sér
rætur meðal vinstri manna og fé-
lagshyggjumanna. Þó er ekki ætlun-
in að gefa út pólitískt blað. Aðal-
hvatamenn að baki þessari hug-
mynd munu vera Reynir Ingi-
bjartsson starfsmaður Búseta,
Arni Sigurjónsson gagnrýnandi
og hópurinn í kringum Svart og
sykurlaust. Með blaðinu mun vera
ætlunin að slá nokkrar flugur í einu
höggi með því að efni blaðsins
spanni efnisflokka tímaritanna
Mannlífs, Gestgjafans, Húsa og hí-
býla og fleiri slíkra rita.. .
iFrl
I orbes Magazine, virt banda-
rískt tímarit, birti fyrir skemmstu út-
tektargrein á skipaiðnaði í heimin-
um, þar sem einkum var fjallað um
rekstur olíuskipa og var niðurstaðan
sú, að á þeim vettvangi gengi allt á
afturfótunum. Það sem vakti sér-
staka athygli okkar Helgarpósts-
manna var myndskreyting forsíð-
unnar á tímaritinu. Forsíðan var
nefnilega skreytt með teikningu af
sökkvandi skipi en þannig skreytt-
um við margfræga grein okkar um
Hafskipsmálið í sumar. Yfir 600
manna aðalfundur Hafskips taldi
ástæðu til þess að samþykkja, að
fyrirtækið stefndi HP vegna þessar-
ar táknrænu myndskreytingar.
Hvort Forbes tímaritið fær á sig
kæru vitum við ekki. . .
stjóri Þjóðviljans, hafa haft uppi orð
um það, að þetta ræðuboð til Svans
gæti verið túlkað á þann veg að
kjördæmisráðið væri að taka undir
gagnrýni Svans og slíkt þyldi staða
Svavars formanns ekki núna. Því
var ákveðið að skilyrða boðið til
Svans þannig, að Svavari yrði jafn-
framt boðið á fundinn, þar sem
hann gæti svarað gagnrýninni. Á
þetta vildi Svanur ekki fallast og lét
svo ummælt, að hann ætlaði sér
ekki vestur til þess að fara að karpa
við formanninn í flokknum sínum
fyrrverandi. . .
^stendur
\ nú yfir 11^
FALCONCREST
l vetur fá Reykvíkingar góðan
gest að norðan. Sá er enginn annar
en Ingimar Eydal, Sjallasnillingur
frá Akureyri. Hingað kemur Ingi-
mar til þess að dvelja og starfa í einn
vetur. Ólafi Laufdal í Broadway
tókst semsé það, sem fáir hefðu trú-
að að væri hægt, nefnilega að tala
Ingimar Eydal inná það að skemmta
með hljómsveit sinni í borginni í
einn vetur. Þeir sem þekkja Ingimar
Akureyring eiga erfitt með að trúa
því að hann verði rólegur í höfuð-
borginni og spá því að hann verði á
eilífum þeytingi á milli Reykjavíkur
og Akureyrar. . .
ÍVrá Vestfjörðum fengum við þær
fréttir, að á fundi kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsins þar hefði verið
samþykkt að bjóða Svani Krist-
jánssyni dósent, hörðum gagnrýn-
anda bandalagsins, til að halda
ræðu á fundi ráðsins. Boðið kom í
kjölfar greinar Svans um Alþýðu-
bandalagið í tímaritinu Mannlífi.
Svanur er, eins og HP hefur skýrt
frá, nýgenginn úr Alþýðubandalag-
inu og þótti mönnum hér syðra boð-
ið allmerkilegt. Á fundi kjördæmis-
ráðs mun Kjartan Ólafsson, fyrr-
verandi alþingismaður og fv. rit-
Frábærir framhaldsmyndaþættir
2 nýir þættir koma á hverium
fimmtudegi
Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins
Dreifing: MYNDBÖND HF.
Skeifunn: 8. Símar 686545 — 687310.
Orðsending
frá lónlánasjoði
um breytt
útlánakjör
Ákveöiö hefur verið að gengistryggja hluta af útlánum Iðnlánasjóðs miðað við
gengi SDR eins og þaðer skráð af Seðlabanka íslands á hverjum tíma.
Gengistrygging þessi nær til byggingarlána, sem eru yfir kr. 5.000.000
og vélalána yfir kr. 700.000 og koma til framkvæmda við umsóknir er berist
sjóðnum eftir 15. september n.k.
Vextir eru breytilegir og háðir ákvörðun stjórnar á hverjum tíma.
Vextir hafa verið ákveðnir 10% p.a.
Önnur útlánakjör sjóðsins eru óbreytt frá 15. apríl 1985,
þ.e. með 7% vöxtum p.a. og bundin lánskjaravísitölu.
IÐNLÁNASJÓÐUR
29. AGUST - 8
SEPTEMBER
I LAUGARDALSHÖLLINNI
SÝNINGAR -
AFSLÁTTUR
^ SAMBANDSINS
ÁRMÚLA 3 SÍMI 687910
4 HELGARPÓSTURINN